4.12.2012 | 20:13
Niðdimm heilaþoka og og drungalegur minnisdumbungur....
....að hrjá bæði Halldóri og Bjarna.
Enda ekki gott að muna eitthvert undirskriftapár
á risastór lán, sem "pottþétt EINHVER annar" veittii
hinum og þessum "Myllusteinum"...eða ekki...
nú eða muna einhverja dagsetningar þegar eitthvað merkilegt
í fjármálum átti sér stað.
Svo var auðvitað upplýsingum haldið "frá" lykilpersónum
innan bankans, en það truflaði samt ekki undirskriftir
pappírslánanna eða risa lánveitingarnar á nokkur hátt.
En samt ekki gott að muna hvort það voru Þessi og Hinn
sem skrifuðu undir, á meðan þeir Einhver og Annar samþykktu lánin...
..en ALLS ekki ég sjálfur...ég þekki bara skriftina mína...eða mig
minnir að hún sé svona.... en þó get ég ekki verið alveg öruggur
þar sem ég veitti ekki lánið.
Allt svona frekar óljóst og þokukennt.... kannski var ég bara ekkert
vinnunni þennan dag, heldur með kúnna úti að borða
á Bæjarins Bestu, og síðan hef ég "óvart" krotað eitthvað
á þessa lánsveitingu, á meðan við kúnninn meltum pylsurnar
yfir instant kaffi og konfekti....ég bara man þetta ekki alveg.... en Þessi
hefur þá haldið að ég væri að veita lánið og Hinn gengið í það
að ganga frá því....en mig minnir samt að Einhver og Annar hafi
veitt lánið...svona óljóst.
Og hver man nákvæmar dagsetningar, þegar maður er aðeins
umboðsmaður, að veðsetja pappírspeninga í greiðaskyni?
Neipp!
Þetta er óþarfa nöldur, tuð og yfirheyrslur hjá "sérlegum".
Enda bara peningar sem eru í húfi, og hverjum er ekki skítsama
um þá?
Hvort eð er allt AFSKRIFAÐ!
Eða bætt ofan á skuldaokið heimilanna, sem skattur á sykur,
eða einhvern annan "óþarfa" hjá pöblinum.
Enda HVER man svona hrikalegt klúður, fjórum árum seinna.
Best að gleyma svona rugli sem fyrst, svo hægt sé að
hefja auðsöfnun á ný sem fyrst.
Plokka af lítilmagnanum það litla fé sem hann hefur á milli handanna,
og koma sér upp einkaþotu og snekkju fyrir árslok 2013.
Jamm, óminnið getur komið sér bísna vel.
Góðar stundir og MUNIÐ að borga skattana ykkar.
Þokukenndur dagur í febrúar 2008 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 6.1.2013 kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2012 | 14:47
Þar fór það.
Litla Frón sokkið, týnt og tröllum gefið, sjálfsagt
ekki seinna en kl. 21:12 þann 21.12.2012.
Jamm og lönd öll og heimsálfur móður Jarðar...
piff...paff... BÚIÐ SPIL!
Húsfreyja og allt hennar slekt, ásamt jarðarbúum öllum (plús eða mínus 200 manns)
flutt með hraði í "Sumarlandið" þar með.... ja, nema ef svo ólíklega vildi til,
að henni lánaðist að kreista hálfrar milljón króna lán út úr
bankastjóra sínum og skreppa í eina herlega "heimsendaspásferð"
til litla þorpsins Bugarach í Frakklandi (íbúat. 200),
með sína fjölskyldu korteri fyrir Jól.
Þá betra að hafa flugmiðana "one way tickets", ef allar verstu spár rætast,
og húsfreyja skyldi daga uppi í litla, franska þorpi þessu með
skyldfólki sínu.
Bara einn hængur á.
Tvö hundruð hræðurnar í Bugarach vilja ekkert með húsfreyju og
hennar líka hafa, í sínu þorpi síðustu vikuna fyrir Jól.
Biðja frönsk yfirvöld í lengstu lög að bægja frá óvelkomnum
ferðalöngum, í leit að frestun á "Sumarlandsreisu" og lengra
og hamingjuríkara lífi á móður Jörð, frá þorpi sínu.
Sjálfsagt búið að endurskíra öll stúlkubörn og drengi upp á nýtt
þar uppi við Pýreneatinda; Evur og Adamar allt saman, svo
afkomendur tvöhundruðmenningana verði verðugir arftakar mannkyns á jörðu.
Að vísu verður sjálfsagt eitthvað vesen í gangi fyrst eftir hinn
"endanlega" dag hinna, sem ekki auðnaðist að fæðast í Bugarach,
svo sem rafmagnsleysi, matarskortur, sjúkdómar, pestarfár, kuldi og
vosbúð, en það kippa hinir úrvöldu tvöhundruð sér ekki við.
Neipp, græja þetta sjálfir upp á eigin spýtur.
Bara verra að hafa einhverja villuráfandi, ókunnuga fáráða, sem hvort eð er
áttu pantaða ferð í "Sumarlandið", og sem jafnvel öllu myndu vilja ráða við
uppbyggingu menningar og fjölgun á mankyni.
Svo líklega verður bara lokað fyrir "jólaösina" í Bugarach
í seinni partinn í Desember.
Vegatálmar með alvopnuðum lögreglumönnum við
þjóðveginn inn í þorpið, sem og við gönguleiðir um
tinda og fjöll í nágrenninu.
O, jæja.
Húsfreyja sekkur þá bara með litla Fróni...eður ei.
Verður að viðurkenna, húsfreyja, að hún er ekki sérstaklega
trúuð á "heimsenda" þ. 21.12.2012, kl.21:12, fremur
en nokkurn annan heimsenda sem spáð hefur verið,
með reglulegu millibili, af og til allt frá því að
mannkyn hætti að príla í trjám, og tók að yrkja jörð.
Því þeir hafa komið og farið, hver "heimsendinn" af fætur öðrum...
öld eftir öld...alveg hárnákvæmt dagsettir...en
hér dólum við enn, þrátt fyrir það....."endalaust".
Mun líklegra að við séum að sigla inn í nýtt tímabil, hér á
móður Jörð, þar sem mannkyn núllstillir sig aftur inn á
"móðurina" og sínar eigin innri andlegu breytingar,
eða það er tilfinning húsfreyju.
Jú jú, það verða náttúruhamfarir eftir sem áður, enda "móðirin"
orkubolti sem skekur okkur og hristir þá henni þóknast, og
blæs eldi og eymyrju af og til af einskærri gleði yfir því að vera til.
En mannkyn er ekkert að farast (plús eða mínus 200 hræður),
þennan desembermánuð, fremur en nokkurn annan mánuð
í fortíð, nútíð eða framtíð, telur húsfreyja...altént nokkuð
örugg þar til slokknar á sól eða tungl tekur upp á því að
hrynja niður á móður Jörð.
Nema kannski að við þurfum að hafa áhyggjur af .....
21.12.2021!
Góðar stundir og megi allir ykkar "heimsendar" verða friðsælir,
og í guðanna bænum verið ekki að flækjast til Frakklands í
Desember, það er bara endemis "Heimsendavesen"! .
Eini staðurinn sem stendur af sér heimsendi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2012 | 19:34
Vér fjármálavitleysingjar ...
...og pólitískir "halanegrar" hér uppi á Litla Fróni,
sem treystu og trúðu árum saman á flokk
einn pólitískan sem kenndi sig við sjálfstæði,
megum nú bíta í það súra epli, að hafa skitið upp á
bak og treyst kolvitlausum flokki til að stjórna oss....
ÁRUM SAMAN.
Vér armir rugludallar í pólitík, trúðum í blindni á, að flokkur
sjálfstæðis myndi leiða oss kreppta og óðaverðbólguþjáða
fram til jöfnuðar, velferðar, frelsis og sjálfstæðis.
VÁV! Vorum við arfaheimskir og auðtrúa.
Uppskárum bankahrun, djúpa kreppu og aðför að velferðarþjóðfélaginu.
Fimmföldun, lágmark á skuldum okkar, minni kaupmátt,
hækkað vöruverð, hrikalegan niðurskurð í heilbrigðis- og menntamálum.
Öldungar gerðir að "annars flokks" þegnum.... öryrkjar og fatlaðir
"skornir niður", vegagerð skorin niður osfr. osfr.
Og flokkur sjálfstæðis... jamm flokkur sjálfstæðis, hvað gerði hann?
GUÐ BLESSI ÍSLAND!...var eitt.
(Flestir vita að Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir.)
Gerðu "alltaf-að-vara-við-hruni-þegar-hann-var-ekki-að-lofa- sterka-
stöðu-frónverskra-banka" SEÐLABANKASTJÓRA að ritstjóra yfir
helsta málgagni sínu, var annað.
Og í þriðja lagi...... í þriðja lagi...öööö......?
Húsfreyju dettur bara ekkert "hið þriðja" í hug.
Núverandi ríkisstjórn tók við VERSTA búi allra tíma,
þegar hún settist á valdastóla.
Lífróður verið róinn fyrir vora frónversku þjóð...sumt vel gert...
annað miður....og sumt ekki einu sinni komist til framkvæmda.
Samt er þessi ríkisstjórn heilagrar Jóhönnu Sig.,
stödd á toppi Everestfjalls í hennar huga,
hvað dugnað og vinnu fyrir "þjóðina" varðar,
á meðan fráfarandi ríkisstjórnir sjálfsæðismanna, lafa á gömlu morknu
akkeri úr skipsskaða, út í Faxaflóa þar sem hann er DÝPSTUR.
Segi Villi hinn skarpi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins,
að litla Frón sé orðið nyrsta Afríkuríkið, er það sjálfsagt hárrétt hjá honum.
Hann ætti að vita það.
Sjálfstæðisflokkurinn kom okkur í þessa eðal stöðu.
Svo mörg voru þau orð.
Góðar stundir og munið að brýna spjót ykkar fyrir næsta
Afríkuríkjafund.
Segir Ísland nyrsta Afríkuríkið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.11.2012 kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.11.2012 | 17:11
Bévískur þotuhreyfill....
...í gangi inni á baði", hugsaði húsfreyja rasandi
þegar hún reis úr rekkju í morgunsárið.
Hávaðinn var ærandi, og versnaði um helming
þega húsfreyja kom fram úr svefnherbergi sínu.
Enda sat læðuræfillinn lúpulegur á gófinu fyrir framan
baðherbergið, eyrun þétt að höfðinu og starði örvæntingafull
á svefnuga húsfreyju og baðherbergisdyr til skiptis.
Inni á baðherbergi blés norðansvöl gola upp á
5 metra á sekúndu, á meðan 45 metrar á sekúndu geysuðu
í argvítans lofttúðunni, með djófulgangi og helvískum hvin.
Húsfreyja ræsti 11 ára djásnið, og þrælaði henni í skólann.
"Á ég að FARA í skólann í SVONA vondu veðri, mamma"?
Og síðan: "Má ég ekki vera heima í dag, mamma"?
GLÆTAN!
Húsfreyja og móðir 11 ára djásnsins var miskunnarlaus.
Enda alin upp í mesta rokrassgati litla Fróns....
Vestmannaeyjum fyrir gos.
"Bara smá vindur, gullið mitt, ég skutla þér í skólann"!
Djásnið sá að móðurinni varð eigi hnikað, dæsti mæðulega og hóf að
hlaða utan á sig hlýjum fötum.
Og upp í skóla ók húsfreyja djásni sínu.
Fékk að vísu míni slag, þegar vindhviða upp á 47 metra reif nærri
því bílhurð hennar af hjörunum úti á hennar eigin bílastæði,
og annað heldur stærra mínislag, þegar fílefldur karlmaður upp á 2 metra á hæð og á
að giska 97 kíló FAUK fram hjá henni eins og tuskudúkka,
með 10 ára dóttur í eftirdragi á skólalóðinni.
"Mamma, SKO, svo ertu að láta mig mæta í skólann", 11 ára djásnið
fullt vandlætingar.
Húsfreyja stóð FÖST fyrir, í báða fætur, hélt djásni sínu þétt að
hlið sér, og lét engan helvískan vindblástur frá Kára, ná
að svipta sér úr stað.
Tók Eyjapæjuna á rokgassann, skáskaut sér áfram og vatt
upp á sig eftir því hvernig vindurinn blés, svo hvergi náði Kári taki
á henni eða djásni.
Djásnið rasandi á því, hvernig lágvaxinni 64 kílóa móðurinni tókst að
snara þeim báðum að anddyri skólans, án þess að takast á loft,
eða fjúka tvist og bast líkt og fyrrnefndur faðir.
"VÁV, mamma"!
"Hva, þetta er nú bara smá gola" sagði húsfreyja og glotti til
foreldra sem stóðu móðir í anddyrinu, og höfðu fylgst með
"skólalóðahlaupi" húsfreyju með djásnið.
"Bára! Þú ert LIFANDI" hrópaði hrifin skólasystir djásnsins.
Húsfreyja kvaddi með hraði, og komst aftur áfallalaust að bifreið sinni
og heim.
Það móaði í dagsbirtu á austurhimni þegar húsfreyja kom heim,
enda klukkan að halla á hálf níu.
En þegar húsfreyja leit út um glugga sína til vesturs,
blasti við niðamyrkur.
Ja, hvur asskotinn?
Dagrenning austan en niðdimm nótt vestan?
Húsfreyja mændi út um glugga sína, snaraði sér síðan
út á dyrapall.
Neipp, hún var ekki komin með illvígan "vesturblindusjúkdóm",
heldur hafði salt og drulla í massavís lokað fyrir skjái hennar
til vesturs, svo hvergi sást út.
En vesturhiminn var langt frá því að vera bjartur...sei, sei nei.
Illvíg grásvört ský og þrútið loft.
Húsfreyja ákvað að fresta fótaferð með hraði,
snaraði sér inn í rúm sitt, og steinsofnaði von bráðar.
" Morgunstund gefur...blablabla...." alvitlaus málsháttur þetta.
"Morgunstund gefur væran svefn, örþreyttu vesturblindu fólki"
Mun betra.
Það var komið undir hádegi, þegar húsfreyju þóknaðist að opna augun aftur.
Þotuhreyflarnir á baðherberginu voru orðnir tveir, þegar húsfreyja
þvoði og þurrkaði hár sitt.
Læðan var horfin undir sófa, gjörsamlega eyrnalaus af angist og ótta.
Veðrið heldur að slá í, og albrjálað að gera hjá
slökkviliði og björgunarsveitum um allt land.
Húsfreyja sló af ferð á Landsspítalann á fræðsluerindi....
Sæbrautin ófær, Laugarvegur lokaður.
Frestaði einngi ferð í Bónus, bóndi náði í djásnið í skóla og
fóstursonur mætti veðurbarinn í heimsókn og mat.
Tengdó hringdi áhyggjufull yfir fréttum úr höfuðborginni.
"Væsir ekki um okkur, innandyra, fyrir utan djö... þotuhreyflana
inni á baði og mjög takmarkað útsýni til vesturs".
Tengdó hress í snjóbyl fyrir norðan.
Jamm, ekki afleitt að vera í fríi í svona norðanáhlaupi.
En húsfreyja ætlar að bjalla í systur sína í Þolló.
Systir skrapp nefnilega í SUMARbústað fyrir helgi.....
... jepp, ÚT Í EYJAR!
Húsfreyja spáir "þokkalega góðum blæstri" á sumarbústaðarferð
systur....kannski svona 60-80 metrum í bestu vindhviðum Kára.
Góðar stundir og megi allir ykkar "þokuhreyflar" hljóðna þá kvölda tekur
og vesturgluggar hreinir verða.
Sjósund í ísköldum norðangarra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 7.11.2012 kl. 19:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2012 | 17:33
Skuldafjandinn!
En hvar eru "lausnirnar" á skuldavanda flestra landsmanna?
Gott og vel að vekja athygli á málinu, en betra væri að
koma með lausnir, og fá ríkisstjórnina til að
koma þeim í gang fyrir fólkið í landinu.
Afnema helvíska verðtrygginguna, fyrir það fyrsta.
Hví í ósköpunum erum við Frónbúar að dóla einir allra þjóða
með slíkan fjárhagslegan óskapnað?
Ekki kom verðtryggingin í veg fyrir massívt bankahrun, djöfulgang
í pappírspeningaútrás og fjármálaspillingu...sei,sei nei!
Gerði aðeins verkafólki og millistéttinni Frónbúanna erfiðara að mæta
öllum þeim skakkaföllum sem á dundu í kjölfar hruns.
Og enginn skyldi velkjast í vafa um eitt:
Verkalýðsstéttin og millistéttin eru "breiðu bökin" sem bera uppi
mannsæmandi líf á litla Fróni.
Það er fólkið sem greiðir alla sína skatta, berst við að standa
í skilum, til að tryggja afkomu barna sinna og heimila,
á örmum og aumum launum, sem duga illa og oft ekki
fyrir nauðsynjum eins og mat, fatnaði, hita, rafmagni og bensíni.
Hinum reikningunum er oft rúllað áfram á greislukortum og
eilífum samningum um dreifingu á greiðslum.
Stokka þarf upp bankakerfið, setja verndandi lög, svo áhættubankar
séu ekki í samkrulli við peningabanka fólksins í landinu.
Skoða vaxtamál ofan í kjölinn, banna okurvexti, og taka á
fjarstæðukenndum húsnæðismálum í landinu.
Eða hví í andskotanum eigum við Frónbúar að greiða
tífalt fullt verð fyrir húsnæði okkar...eða jafnvel fertugfalt!
VERÐTRYGGT!
Hér er einhver maðkur í mysunni...og hefur verið lengi,
svo lengi að djö..., ekkisens mysan er orðin að gallsúrri ormasúpu.
Á meðan er til fólk uppi á litla Fróni, sem á 400 fermetra einbýlishús, skuldlaust,
sumarbústað á Spáni, tvo jeppa af nýjustu sort, og fínan borgarbíl,
borgar jafnvel litla sem enga skatta, því það hefur nánast "engar tekjur"
til að gefa upp, fer reglulega erlendis til að afstressa sig
og er alveg rasandi á hvað "við hin" erum eitthvað
kvartsár og leiðinleg.
"Alltaf skítblankt þetta lið! Kann greinilega ekkert með
peninga að fara, og getur bara sjálfu sér um kennt".
Já, jöfnuðurinn uppi á litla Fróni hefur eitthvað farið fyrir bí,
síðustu 20-30 árin, og fátækt orðin raunverulegt stórmál.
Heilbrigðisstéttin er flutt til Noregs í stórum stíl.
Iðnaðarmenn eru fluttir til annarra norðurlanda sömuleiðis,
í stórum stíl.
Frónverskir námsmenn á erlendri grund, skila sér iðulega ekki heim eftir
útskrift, og jafnvel ungt verkafólk, sem er sæmilegt í skóladönsku
nurlar saman fyrir ferð til Danmerkur eða Noregs...AÐRA LEIÐINA.
Og breiðu bökunum fækkar, og fækkar.
Nei, betur má ef duga skal, eigi hér áfram að byggjast upp íslenskt
mannlíf og íslenskur þjóðararfur.
Ríkisstjórn landsins verður að gera landsmönnum kleift að
búa hér og reisa við þjóðfélagið, upp úr rústum bankahruns og
pappírspeningakreppu.
Mannauðurinn er dýrasti arfur sérhverjar þjóðar, að honum verður
að hlúa.
Búsáhaldabyltingin var ekkert annað en ákall þjóðar til stjórnar sinnar
um aðstoð og hjálp, því hér viljum við öll búa og byggja börnum okkar
örugg heimili og tryggja trausta afkomu.
Nú þarf að bretta upp ermar og láta verkin tala fyrir skuldahrjáða
Frónbúa...annars að óbreyttu, má svo gott sem "jarða" þjóðina.
Svo mörg voru þau orð.
Góðar stundir.
Skuldavandinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2012 | 21:44
Helvískir ræningjar....
...þessir andsk... Frónbúar!
Hvernig í ósköpunum dettur okkur, þessu rumpupakki og ruslaralýð að
vaða í það að VEIÐA fiskinn, sem svamlar í sjónum í kringum
land okkar.
Mætti halda að við, þessir frónversku "þorskhausar" teldum
fiskveiðar vera okkar aðal atvinnugrein, þegar ALHEIMUR veit,
og sér í lagi norskir eðalsjómenn og evrópskir Makrílsnillar,
að Frónbúar gera út á "Eldgos" og helvíska fylgikvilla þeirra, ergo truflanir á
farþegaflugi, ásamt skyrframleiðslu og lopapeysudútli, þegar best lætur.
Fiskveiðar bara "HOBBÝ" hjá þessu ruplandi og rænandi pakki uppi á litla Fróni.
Og það er bara djö... kjaftæði, að Makríllinn hafi fundið upp á því sjálfur
að synda inn í frónverska hafsögu.
Fylli þar alla firði og já, hafnir,
svo að nóg sé að skella út spún á stöng af bryggjusporði,
og BINGÓ, Makríll mættur á steikarapönnuna.
Króknaðir steinbítshausar og grámyglaðir skötukjaftar...þvílíkur vaðall.
Ekkisens þjófahyskið upp á litla Fróni, sjálfsagt búið
að uppgötva hvernig framleiða skal "Makríl-fermón" úr
djö.... eldfjallaösku, hveravatni og "dassi" af skyri, sem þeir
dúndra síðan í þúsunda tunnutali í hafið kringum litla Frón og...
VOILA! MAKRÍLLINN MÆTIR!
Og þjófabálkur sá er kallar sig sjómenn á litla Fróni, vílar heldur
ekki fyrir sér að gefa skít í atvinnugreinina.
Þegar ALVÖRU fiskveiðimenn frá veldi norska kóngsins til dæmis, eru að veiðum,
eru þeir allir uppáklæddir í skæran, níðsterkan og vatnsheldan hlífðarfatnað,
á meðan þeir frónversku mæta jafnvel til sjós á gallabuxum, í
duggarapeysum...og alverst, í andskotans frónversku lopapeysunum!
Svo kallar þessi rummungalýður sig sjómenn og DIRFIST að veiða
eðalfisk allra eðalfiska, sjálfan MAKRÍLINN!
Sjá andskotans Frónbúarnir ekki, að Makríllinn er vel og vendilega
MERKTUR Norsurum, Skotum og fleiri skelegum evrópuþjóðum?
Afhverju halda Frónbúar til dæmis, að Makríllin sé með RÖND á rennilegum
skrokknum?
Þetta er að sjálfsögðu nýjasta "strikamerki" norska kóngsins,
sem ber að virða og akta með bugti og beygingum, og er
vinsamleg "konungleg ábending" til allra sem fiskveiðar stunda,
en eru svo ólánsamir að hafa
eigi fæðst undir evrópskri óskastjörnu eða á norskri grund,
um að snáfa 170 sjómílur til hægri á veiðiskipum sínum,
sjái þeir glitta á Makríl á svamli. (Þá skárra að hæ. hlið skips,
snúi eigi að LANDI....hehehehe).
Skiptir engu þótt veiðiskip ræningjalýðsins, séu í eigin
fiskveiðilögsögu.
Suman fisk MÁ ALLS EKKI VEIÐA!
Norskir EIGA HANN!
MAKRÍLINN.
ÖLL HELVÍSK ÞÚSUNDIN AF MAKRÍLTONNUNUM, sem í kringum landið
lóna, í staðinn fyrir að snauta heim að Noregsströndum.
Svo SKAMM, frónversku Makrílveiðiþjófar og bófar.
Þið eruð að RÆNA arma og fátæka olíufrændur okkar fiskinum.
Ja, svei.
Tarna er ljóta fréttin.
Góðar stundir og megi föstudagssoðningin bragðast vel.
Kallar Íslendinga ræningjaþjóð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 31.10.2012 kl. 21:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.10.2012 | 20:50
Árans ekkisens óheppni....
....alltaf hreint að elta húsfreyju og hennar
eðal familíu.
VESEN með höfuðstöfum og stóru "vaffi"!
Hér hefur húsfreyja ekki komist að bloggborði sínu
svo dögum skiptir, fyrir myljandi roki og frostakulda innandyra...brrrr!
Á heimili húsfreyju tóku nefnilega "sparperur" að "springa"
í síðustu viku!
JEPP!
Fyrst vesælar 40 vatta, 3 í röð...piff...paff...púff...en síðan hljóp
andskotinn í spilið...FJÓRAR....BANG...BÚMM...KRASTJH...piff!
Jamm stórar 60-80 vatta perur bara steindauðar sisona.
SJÖ stykki.
Helvískt kvikasilfursdrasl.....
Hús húsfreyju staðið ÖLLUM, mönnum sem dýrum, OPIÐ
þar með síðustu daga.
Fjölskyldan húsfreyju hefur þar með rölt í Indíánatakti...æææjajaja....eieieijaja...
íklædd 10 lopapeysum, með króklopna fingur, skurðstofugrímur og grýlukerti á nefum,
um íbúðina í "10 cm þykku ryklaginu" á gólfunum, til að koma í veg fyrir
ótímabært andlát af völdum skítakulda og kvikasilfurseitrunar.
MÁ EKKI SÓPA!
Má ekki RYKSUGA, sei, sei nei!
Og Guð hjálpi þeim, sem dirfist að skúra.
LOFTA ÚT!!! er mottó heimilisins.
Heimiliskötturinn er stórmóðgaður....enda búinn að hanga
í kviðbeisli 20 cm. yfir stofuborðinun síðustu daga.
Er aðeins slakað niður á borðið tvisvar á dag, á
matmálkstímum.
Gengur ekki að læðugreyið drepist af kvikasilfureitrun....eða hungri!
Ellefu ára djásninu finnst ástandið á heimilinu MJÖG ÁHUGAVERT,
og ætlar að rita ritgerð upp á 15 síður fyrir Íslenskufræði sín,
um SPARPERUR og áhrif þeirra á geðheilsu foreldra.
Húsfreyja er hinsvegar öll í því að finna LAUSN á málunum.
Er komin í samband við "perusmyglara"....fær hjá honum eðal VENJULEGAR
"orkueyðandi" Osram GLÓ-perur, 10 kíló á 1588 kr. kílóið, í hús á morgun...
meira að segja smyglarar þurfa sín "helgarfrí"!
En kötturinn verður að HANGA þar til í fyrramálið, þó bóndi
hafi loks skúrað íbúðina í dag, og húsfreyja lokaði öllum
gluggum og dyrum KYRFILEGA.
Húsfreyja fær ekki VOTTORÐ frá heibrigðiseftirlitinu fyrr en
á morgun, eftir að "hreinsunarsérsveitin" er búin að
leita dauðaleit að villuráfandi kvikasilfri í íbúð hennar, og
gefa grænt ljós á áframhaldandi búsetu......eða öðrum kosti
ráðleggja húsfreyju að selja Viðlaga-og Hamfarasjóði íbúðina.
Hehehehehehehe....stóðst ekki mátið, húsfreyja.
Var að lesa "sérlegar leiðbeiningar" um hvernig henda
beri sprungnum "sparperum".
Jamm, og nýbúið að BANNA glóperur...ja sei!
Er ekki lífið dásamlega skemmtilegt og skrýtið á plánetunni Jörð?
En góðar stundir, og megi allar ykkar perur loga að EILÍFU.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2012 | 17:14
Úti á túni.
Betra hefði verið að jafna launmismun
milli kynjanna, er mat húsfreyju.
Henni er slétt saman hvort hún ekur um götur Skúla, Geirs
Egils eða Njáls, þá hún leitar í örvæntingu að bílastæði,
þegar hún ætlar að kíkja í miðbæinn.
Og hún er stórlega efins um að henni gangi betur
að finna bílastæði í túnunum þó einhver
slatti þeirra hafi verið endurskírður í höfuðin á
Katrínu, Guðrúnu, Þórunni og Bríeti.
Og næsta víst að húsfreyja verði sem villuráfandi geit í niðdimmri þoku
á fjöllum, verði hún boðuð í kaffihitting niður í "Katrínartún"!
Meeeehehehe.
Æðir sjálfsagt beina leið upp í Grafarholt þar sem götur
og stræti eru öll kennd við Gvenda, Guðríðar, Ólafa, Andrésa og
reyndar Katrínu.
Ergo Katrínarlind.
Ekki efnilegt það.
En "borgarfeðurnir" með Gnarrinn í forystu mega sosum
endurskíra götur Reykjavíkurborgar að vild, tvist og bast, hvað húsfreyju varðar.
Bara gaman að því, en mættu svona í leiðinni huga
að launajafnrétti, enduruppbyggingu menntakerfisins í borginni (eftir
mergjaða niðurskurðinn og niðurrifið sem fylgdi kreppu og hruni) og
að því að finna lausn á húsnæðisvanda fátækra.
Nei, bara svona uppástunga frá húsfreyju.
Hún getur síðan alveg hugsað sér að eiga heima í "Gnarrstræti" eða
við "Jóhönnusiglind".....eða jafnvel við "Steingrímsbrunn".
Dregur aðeins línu við tvennt, þegar kemur að götuheitum.
Hún myndi aldrei samþykkja að búa við "Dabbakóngstún" né heldur
" Martröð"(sem reyndar finnst á Dalvík).......eru reyndar
nánast sama nafnið merkingalega, þessi tvö að mati húsfreyju.
En borgarbúum óskar húsfreyja til lukku með ný kvenleg nöfn
á götur sínar.
Góðar stundir.
Götuheitum breytt í borginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2012 | 01:07
..en svona á léttari nótum...og af óheppnum gluggamígandi nátthröfnum.
ég held að bráðum verði allt í lagi
af því nú er allt í ólagi.
ég held að bráðum hefjist lífið
af því nú er allt svo dauðalegt.
Ólafur Haukur Símonarson.
Hann var ekki dauðalegur 101-íbúinn sem stökk framúr bóli sínu
um miðja nótt, á Adams-klæðum einum saman og
réðst að þremur "stofugluggamígandi" nátthröfnum
með sveðju á lofti og rasskellti alla þrjá.
Húsfreyja er hrifin af framtaki þessu og elju 101-íbúans,
og vorkennir hinum hlandsprungnu gaurum lítið.
Bara HEPPNIR að sá kviknakti trompaðist ekki alveg
yfir hlandblautum stofuglugga sínum, og snéri ei egginni
að óæðri endum þeirra.....eða þaðan af verra sneiddi framan
af "hlanddrjúpandi djásnum" þeirra.
Enda hefur þjóðin öll flissað og glott yfir óförum pissudúkkanna,
og haft fulla samúð með eiganda útmignu stofuglugganna,
Því sú er tíðin löngu liðin, þá Frónbúar brúkuðu hland sitt til
hinna ýmissu þrifa, svo sem hárþvott.
Þykir lyktin af þeim vökvanum svona heldur stæk og leið,
og því allir komnir í vel angandi sápur og gluggavökva nú til dags.
Hvort SVEÐJUR séu réttu tólin til að hafa hemil á stofugluggamígandi
og undirgangaælandi nátthröfnum, lætur húsfreyja kyrrt liggja.....
þó hún efist um að þessir þrír leggi aftur í hlandlosun
á glugga 101-íbúans með sveðjuna,
þá telur hún það bísna flott trikk að ráðast að hlandhaugum
gluggavilluráfandi, kviknakin með æðislegt blik í augum og ekki verra
að láta mergjað víkingaorg fylgja með.
Hlýtur að vera ÆGILEG upplifun, og afspyrnu ÞVAGHEMJANDI
fyrir villuráfandi þvaghauga!
Væri máske ráð að íbúar í 101 tækju sig saman, og réðust allir að
þeim útimígandi allsberir og organdi á háa séinu næstu helgar.
Gæti aldeilis glætt bissnessinn á "Þvagteppudeild" Landspítala
Háskólasjúkrahúss, svo jafnvel yrði hægt að hækka laun
almennra heilbrigðisstarfsmanna um 20% á næstu mánuðum.
Hehehehehe, skemmtileg frétt atarna.
Góðar stundir og munið að "losa sokkinn" innandyra og helst á salernum
um helgar.
7.10.2012 | 23:29
Það var og.
Margt er skrýtið í kýrhausnum eins og kerlingin sagði.
þrotlausa vinnu, meiri ábyrgð, fleiri verk á lægri launum á tímum
kreppu og bankahruns, af stakri náð og einskæru þakklæti.
Og hvernig þá?
Jú, að sjálfsögðu svona:
Stöðulækkun ásamt launaskerðingu, fyrir sömu erfiðu ábyrgðarstörfin og áður,
ásamt fækkun á starfsfólki þeirra.
Allt í nafni niðurskurðar, aðhalds og og BRÁÐRAR nauðsynjar á
því að spara þar sem þegar er búið að skafa inn að beini og
mergsjúga.
Þar sem mannauðurinn má síst missa sín, ákveða stjórnendur að
skera niður.....án þess þó að það MEGI bitna á GÆÐUM þjónustu
við kúnnana.
Og þar með fjölgar þeim einstaklingum í fyrirtækjunum sem fá vinnu við að útbúa allskonar
"gæðavísa", "gæðaplön" og "reglupappíra" sem niðurskornum,
launalækkuðum undirmönnum er ætlað að fylla út, framfylgja og
láta fækkandi starfsfólk sitt fara eftir, hvort sem að tími er til slíks eður ei,
þar sem staffið er allt á harðahlaupum, svo ekki tapist niður GÆÐI á "grunnþjónustu"
til kúnnanna.
Sér enginn þörf á því að "skera niður" hjá pappírsvinnslufólki....sei,sei nei.
Enda hverjir ættu annars að koma með allar hugmyndirnar um HVAR er
brýnast að skera niður og koma þeima á BLAÐ, nema "pappírspésafólkið"!
Gjörsamlega ÓMISSANDI þetta blessaða pappírsfólk.
Þá er bara að SKAFA beinin hinna betur og MERGSJÚGA enn betur.
Jamm, fínt þakkæti þetta til fólks sem sinnir störfum sínum af hugsjón,
dugnaði, fagmennsku og tryggð.
Hefur flest niðurskorna mannfólkið fyrir fjölskyldu að sjá eins og allir aðrir og
berjast ötullega við að lifa kreppuna af fjárhagslega, en sættir sig við lægri laun
í þeirri von að einhvern tímann muni fyrirtækið þeirra
kunna að meta það og launa þeim að verðleikum.
Ó, já, að verðleikum.
Því miður eru mörg þessara fyrirtækja með þjónustu fyrir veika og aldraða
hér á landi, og að halda því blákalt fram að "svona niðurskurður"
bitni ekki á GÆÐUM þjónustu, er hreinn og klár vaðall og ekkisens
kjaftæði, að mati húsfreyju.
Svo mörg voru þau orð.
Húsfreyja örvæntir á sínum svörtustu dögum um heilbrigðiskerfi sitt,
og kvíðir því að verða gömul kona.
Er það framtíð hennar sem annarra er eldast og gamlir verða,
að verða "annars flokks" Íslendingur, með lágmarks heilbrigðisþjónustu...
og ENGA fagþjónustu?
Er þetta það sem við viljum í velferðarríkinu , Íslandi, þegar kemur að
heilbrigðisþjónustu við aldraða og sjúka?
Nei, húsfreyja bara spyr.
Góðar stundir.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)