Færsluflokkur: Trúmál

Það var og...í andakt og sannleika eða hvað?

 normal_LaughingJesus Þá er "Jesú" mættur, sprellifandi kátur og hress,

  með eiginkonuna hina endurbornu Maríu Magdalenu sér við hlið,

  í Ástralíu.Halo

  Að vísu hefur kvisast, að þessi María hans Magdalena sé

  númer "tvö", af hans eðal spúsum.Whistling

  Það er að "Jesú" hinn ástralski hafi verið búinn að

  sannfæra aðra háheilaga konu um að hún væri

  hin eina sanna María Magdalena hans, en það

  síðan eitthvað ekki gengið upp hjá þeim.Frown

  Sjálfsagt bara smá "tæknileg mistök" í gangi hjá

  "þeim guðlega".....áreiðanlega allt myljandi fullt

  af "endurfæddum" Biblíukarakterum kringum "Jesú"

  þar "down under", svo líklega hefur hann bara ruglast örlítið

  í ríminu.

  María Magdalena hin fyrsta, þá sjálfsagt bara gömul vinkona hans,

  hún Marta til dæmis, systir Lasarusar (his old mate)Wink, nema það hafi verið

  hin systirin; María, sem laugaði fætur meistarans og þerraði með

  hári sínu.

  Þá hefur Jesú hinn ástralski, snarlega uppgötvað mistök sín,

  þegar María Magdalena hin fyrsta, hóf að baða fætur hans á morgni hverjum

  og brúka hárið á sér í handklæðisstað.Whistling

  ÚPS!  Vitlaus María.Pinch

  Verið snöggur að kippa því í liðinn, sem hann hét Allan John Miller.....eða

  nei...Jesú, var nafnið.

  En rosalega hefði verið gaman að vera vitni að því þegar

  All....afsakið ..Jesú hinn ástralski kom svífandi niður á jörðina í sinu

  himneska skýi, samanber : "Þegar hann (Jesú) hafði mælt þetta

  varð hann upp numinn að þeim ásjándi og ský huldi hann sjónum

  þeirra.  Er þeir störðu til himins á eftir honum þegar hann hvarf, þá stóðu

  hjá þeim allt í einu tveir menn í hvítum klæðum og sögðu: "Galíleumenn,

  hví standið þér og horfið til himins?  Þessi Jesús, sem varð upp numinn

  frá yður til himins, mun koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til

  himins" (Postulasagan 1, 9- 11).

  Jamm, alltaf missir húsfreyja, ratinn sem hún er, af öllu merkilegu.Frown

  En máske hefur einhver náð að taka stórkostlegan trúaratburð þennan

  upp á snjallsímann sinn...þá er þetta að sjálfsögðu komið inn á

  You-tube, fésið, tístið sem og aðra netmiðla....kommentatröllin á

  Visir.is þá sjálfsagt löngu búin að tjá sig um málið af stakri hógværð og

  mælskusnilldCool, á meðan húsfreyja er grænni en allt sem grænt er, og

  veit núll og nix og lítið sem ekki neitt um sjálfa "endurkomu Jesú"

  nema það sem stendur í frétt þessari.Shocking

  DÆS.

  Rangur maður á röngum stað í vitlausu landi, eru og verða örlög

  húsfreyju.Crying

  Hún vissi það alltaf, að hún ætti að vera flutt til Ástralíu fyrir löngu.

  Hefði getað verið í móttökunefndinni, þegar Jesú sté niður af skýi

  sínu.....jafnvel komið til greina sem "kandidat" sem ein af

  Maríunum í lífi Jesú?Tounge

  Sjíss!  Alltaf allt of SEIN húsfreyja, ekkert að pæla...mætti halda

  að hún hefði FASTA búsetu á hvítu "þokuskýi".Errm

  Svífur um í villu og svíma.

  En húsfreyja býður Jesú hinn "endurfædda" hjartanlega velkominn aftur til móður jarðar,

  og vonar að hann eigi mun huggulegri jarðvist nú, þegar "krossfestingar"

  eru ekki lengur "inn" og fáir jarðarbúar kippa sér mikið upp við það, að

  einhver gefi það út að hann sé Jesú endurfæddur.Whistling

  Mesta lagi að hans háæruleiki, Páfinn í Róm, verði allur í tjóni

  við tíðindi þessi......svona mergjuð SAMKEPPNI er náttúrulega

  gjörsamlega "óþolandi"!Angry

  Svo virðist þessi Jesú einnig ansi snjall að "græða" svolítið

  á "fortíð" sinni...selur geisladiska og heldur úti námskeiðum...og

  tekur þakklátur við öllum "donations", þó slíkt sé að sjálfsögðu

  engin skylda þegar hann er annars vegar.Halo

  Það muna jú allir "kastið" sem Jesú fékk í bænahúsinu þar sem

  hann rak kaupmenn og sölumenn á brott, velti um borðum og

  stólum og sagði þá gera hús hans að ræningjabæli.

  En það er eins og það var.... allt gengur út á kaupmennsku í dag,

  svo vilji nýi Jesú vera "memm", er víst skárra að

  koma sér upp nokkrum sölubásum.Devil

  Alla vega svona í upphafi vega. 

  Aldrei að vita nema Jesú hinn ástralski

  verði síðan bísna fær í því að "margfalda" mat og drykk, þegar tímar líða, líkt og

  kringum árið 30, þegar hann mettaði fimm þúsundir manna með 5

  brauðum og tveimur fiskum.

  Þá getur hann pakksaddur, velt um sölubásum sínum af einskærri trúargleði...Grin

  Góðar stundir í Jesú nafni.

 


mbl.is Segist vera Jesús Kristur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðlaus?

 2189012 Vantaði ekki stór og þung orð

  þegar hann ræddi heimsendann

  sem aldrei kom...nema þá kannski

  uppi í Grímsvötnum.

  En skítt með heimsendann.

  Hvað með Jesú??

  Kom hann aldrei heldurWhistling?

  Jamm, merkilegur klerkur atarna, herra Camping.

  Húsfreyja mælir með því að hann kasti frá sér trúarritum

  í "leit sínum af svörum" og einbeiti sér að leita svara hið innra,

  en mest þó í almennri skynsemiCool.

  En gleði og myljandi hamingja.

  Búið að fresta heimsendi....ENN OG AFTURDevil.

  Góðar stundir á öskugráum degi.


mbl.is „Mjög erfið helgi" hjá Camping
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúlega ljótasta...

  pope_john_paul_ii... dýrðlingastytta sem húsfreyja

  hefur augum barið.

  Vesalings steindauði Jóhannes Páll páfiErrm.

  Stytta þessir minnir húsfreyju einna helst á

  fyrrum einræðisherra Ítalíu, Mussolíni....nýkrufinnSick.

  Æ, æ, ekki nóg að blessaður Jóhannes Páll II hafi verið

  skikkaður í dýrðlingahlutverkið og orðinn

  dýrðlegur eigandi að HELGU blóðglundri í flöskum í

  miðjum Páfagarði, heldur verður nú hinn elskulegi

  Jóhannes Páll að hanga í styttulíki á öðruhverju götuhorni

  og hverri einustu katólsku kirkju í hinu mikla veldi ítalaPinch.

  Og séu allar hinar styttur hans líkar þeirri sem var afhjúpuð

  fyrir framan eina helstu lestarstöðvar Rómar, er næsta víst

  að menn fari að ganga af trúnni þarna austur í RómW00t.

  Lágmark að "Hinn nýdýrðlegi" þekkist á styttum þessum,

  og minni ekki á líkkistur og krufningar hvað líkamann varðarAngry.

  Eða það hefði húsfreyja haldið.

  En hún telst víst seint katólsk í sinni trú, svo máske ekki alveg

  að marka hennar álit.

  En fögur er stytta Jóhannesar Páls II eigi að hennar mati,

  og ættu hinir heittrúuðu katólsku ítalir að koma

  stytturæskni þessu fyrir í hasti á afviknum og dimmum stað,

  svo lestarferðir leggist ei af frá lestarstöð þeirri

  sem um getur í fréttinniDevil.

  Svo geta ítalskir styttuunnendur katólskra dýrðlinga  brugðið

  sér í eina herlega reisu til litla Fróns, og skellt sér

  inn í St. Jósefskirkju og skoðað allar fallegu dýrðlingastytturnar þar.

  Það eru sko ALVÖRU dýrðlingastytturWink.

  Næsta víst að hinir ítölsku munu falla í stafi og

  fái dýrðlegan innblástur mikinn,

  og næsta stytta af heilögum Jóhannesi Páli II

  við ítalska lestarstöð verði þar með íðilfögur,

  honum lík og full af helgri andaktHalo.

  Góðar stundir og njótið "gluggaveðursins".

 

  P.S  Húsfreyja hefur alltaf verið hrifin af þessari mynd af

  Jóhannesi Páli páfa, því lengi vel hélt hún að hann væri

  með dökkan eyrnalokk í öðru eyranum á henni.Tounge


mbl.is Ekki hrifnir af styttu af páfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blóðglundur í glasi...

snow-angels  ..aldeilis eitthvað, sem

  þörf er á að blessa, á

  þessum síðustu og verstu tímumPinch.

  Svo segir hans háæruverðugi heilagleiki,

  Benedikt, sá sextándi í RómHalo.

  Þar með gutlinu úr sáluðum páfa,

  elskulegum Jóhannesi Páli, komið

  fyrir meðal allra hauskúpanna af Jóhannesi

  skírara, krossaflísum þess frá Nasaret upp á

  nokkur tonn og ekki má gleyma  BLESSUÐUM nýfundnu

  "nöglunum" sem brúkaðir voru til að

  negla upp NasaretannTounge,

  sem einhver snjall kvikmyndagerðamaður

  datt oná í Ísrael nú á dögunum.

  HELGIR DÓMAR!

  HALLELÚJA!

  Hvorki meira né minna.

  Jamm, orðinn að "dýrðlingi" blessaður

  sálaði pólverjinn, sem gengdi störfum páfa

  á efri árum, ferðaðist grimmt um allar trissur,

  komst jafnvel í það að smella kossi á "malbikið"

  á flugbrautinni inn í henni Keflavík okkar FrónbúannaCool.

  Hefur sjálfsagt skilið eftir á malbiksbút þessum

  munnvatn sitt og svita sá dýrðlegi páfi,

  okkur Frónbúum til dýrðar og heillaHalo.

  Og svona líka rosalega "heilagir" líkamsvessar að

  leka niður á frónverskt malbik, að það hálfa væri nógW00t.

  Húsfreyju finnst nú kjörið tækifæri, að koma

  vel "páfakysstu malbiki" þessu í verð, og bjóða

  þeim sextánda að kaupa og koma fyrir í

  sölum sínum innan um aðra "helga dóma"Whistling.

  Ekki mikið mál að finna nákvæmlega,

  hvar "sá dýrðlegi" hné niður á kné sín á frónversku

  malbiki, hér um árið, (sjálfsagt sjálflýsandi míní-

  GEISLABAUGUR á sveimi fyrir ofan þann helga staðTounge)

  skella loftpressunni á blettinn  og mæla út,

  (10x10x10 t.d),  ná upp í heilu lagi og

  senda þeim sextánda í ábyrgðarpósti.

  Rukka heilagleikann hóflega fyrir "helga dóminn",

  200 þúsund kall á hvern centimetra eða svoWhistling.

  Myndi aldeilis sóma sér vel, grásvart frónverskt

  malbikið innan um morknaðar hauskúpur, blóðglundur í glösum og

  ryðgaða nagla þarna austur í RómLoL.

  Ekki spurning.

  En matur næst á heimili húsfreyju;

    Átti ég forðum áform glæst

    eina von sem ei gat ræst.

    En nú er sú mín hugsjón hæst

    hvenær verður étið næst.Devil

                         (Húsfreyja veit ekki höf.)

  Góðar og "helgar" stundir í Páskalok.


mbl.is Blóð úr páfa helgað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott SKÚBB þetta!

Skull_St_John_Baptist  Naglarnir fundnir!

  Sem brúkaðir voru til að negla upp

  Jesú frá NasaretW00t.

  Hallelúja!

  Benedikt sext... XVI hlýtur að hoppa hæð sína af hrifningu

  og andaktugri gleði yfir fundi þessumWhistling.

  Enn einar gersemarnar í helgigripasafn páfa.

  Munu sóma sér vel innan um "einhver tonn" af

  krossaflísum Krists, og "ótölulegum hauskúpum"

  Jóhannesar skíraraPinch.

  Talar ekki húsfreyja um alla líkklæðisstrangana,

  sem Jesú eru eignaðirLoL.

  Himnesk gleði og hamingja katólskra um alla ókomna tíðGrin.

  Gott ef sá sextándi bjallar ekki með hraði í Kára Stefáns.

  okkar Frónbúanna, og lætur rannsaka nagladásemdirnar

  og leita eftir DNA-sýnumHalo.

  Ekki amalegt að vera máske með erfðamengi

  þess krossfesta frá Nasaret í ofanálagJoyful.

  Húsfreyja er þess fullviss að ísraelir munu fúslega

  láta nagla þessa af hendi til hins háheilaga

  Páfadóms á Ítalíu.

  Nema auðvitað þeir þurfi að brúka þá í "naglasúpu"...Devil.

  Það er víst kreppa í Ísrael líkaErrm.

  Góðar stundir og munið:  Betra er "naglfast" útigrill,

  en "fljúgandi grill",  á ferð í mergjuðum vorlægðumTounge.head_of_st_john_chyrsostom

 


mbl.is Segist hafa fundið krossfestingarnaglana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ekki flókið, eða hvað?

  539wSamkvæmt hinni helgu bók

  Sádanna, Kóraninum, þá eru

  konur þeirra frekar ómerkilegur pappír.

  Ekki gott að treysta á minni kvenna eða sannsögli....

  fyrir utan að þær eru allar í "prívat" eigu karla sinna.

  Auðvitað "eiga" flestir velmegandi karlkyns Sádar

  í það minnsta fjórar konur.

  Svo þegar kemur að "lýðræðislegum" sveitastjórnarkosningum

  í henni Sádi-Arabíu er ekki snjallræði að hinir "mark-á-takandi-

  minnugu-sannsöglu" karlmenn smelli einum "fimm" krossum fyrir

  framan val sitt, á atkvæðaseðlinum og málið er DAUTTDevil.

  Konurnar sleppa þá alveg við reyna að gera upp hug sinn,

  um það hvern af "mark-á-takandi-minnuga-sannsögula"

  frambjóðanda þær treysta best, geta setið í ró og næði

  heima yfir börnum og eldamennsku...ef þær rekur þá nokkuð

  minni til að eiga börn og að þurfa að gefa þeim og bónda að borða.

  Og ef í hart fer, ljúga þær bara og segjast ekki hafa haft tíma

  í að elda kjúllann ofan í karl sinn og barnaskarann, því þær hafi verið

  svo uppteknar að sauma ný dúkkuföt á Barbie og KenTounge.

  Hinir eðal "mark-á-takandi" karlar kjósa síðan sína

  "sannsöglu-minnugu" frambjóðendur,

  gleðjast í hjarta sínu að Allah hafi gefið þeim

  "lýðræðislegar kosningar" af sinni miklu náð.....en

  ljóta helvítið að sá "náðugi" skyldi klikka svona

  illilega á konum þeirra, þegar hann valdi þær handa þeimDevil.

  Hehehehehe...stóðst ekki mátið, húsfreyja.

  Makalaus ekkisens fornöld í gangi þarna í Sádí.

  Góðar stundir, og njótið kvöldsins.


mbl.is Konur fá ekki að bjóða sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Syndaaflausn?

  JesusBlessaður öðlingurinn hann

  Benidikt XVI er búin að gefa það

  út að gyðingar eigi ekki sök á dauða Jesú.

  Já, það var aldeilis.

  Og af hverju gefur sá heilagi sextándi það út núnaShocking?

  Hefur einhver verið að leita þeirra einstaklinga

  sem bera sök á dauða Jesú, nýverið?

  Er kærumál í uppsiglinguPinch?

  Húsfreyja hefur lengi talið að allt í kringum dauða

  Jesú hafi verið vendilega fært til bókar, og ekki nein vandkvæði að

  sjá hverjir stýrðu málum, og hverjir stuðluðu að og

  sáu um krossfestingu hansWhistling.

  Húsfreyju rámar í að Kaífas æðsti prestur ásamt fleirum af hans

  prestum og öldungum, og sömuleiðis Heródus og Pontías Pílatus með sína

  rómversku hermenn, hafi allir eitthvað verið við málið riðnirHalo.

  Jamm, og svo auðvitað hinn armi Júdas...svona í upphafi máls.

  Að þjóð sú er nefnast gyðingar í dag, beri þar einhverja sök

  hefur aldrei komist inn höfuð húsfreyju nema sem rugl og óráðsíaShocking.

  Enda Jesú og allir hans lærisveinar gyðingar sömuleiðis.

  Svo hvað er málið með andaktugar páfayfirlýsingar í dag?

  Hlýtur allt þetta krossfestingarmál Jesú löngu að vera FYRNT,

  og of seint að sækja nokkurn til saka fyrir það...allir með

  réttarstöðu grunaðara, steindauðirDevil.

  Eða hvað?

  Ekki alltaf gott að henda reiður á hugleiðingum katólskra páfa.

  En húsfreyja hefur löngum haft áhuga á andlegum

  málum, enda trúuð kona á Guð og góða verndarengla, en lítt

  trúuð á trúarrit, trúarbrögð og trúarkreddur, enda slíkt

  allt frá mönnum komið.

  Hefur dundað sér síðustu vikur og mánuði að glugga í

  Kóraninn, og tarna er furðulega lesningin.

  Eru mikils trúandi á brennandi helvíti í því ritinu,

  og virðist Múhameð spámaður nánast taka helvítis-hugmyndir

  Gamla Testamentisins beint upp og gera þær að sinum og Allah,

  og gott betur.

  Einnig virðist Allah vera tvíburabróðir Guðs gyðinga í

  Gamla testamentinu...auga fyrir auga, tönn fyrir tönn osfr.

  Allah blessaður er einnig ansi herskár:

  "Spámaður, herja þú á hina vantrúuðu og hina hræsnifullu,

  og beittu þá hörku.  Víti skal vera þeim athvarf, og er það takmark allillt"

                                                                              9.Súra 73.

  Allah reynist einnig grimmur "refsari" við lestur þennan.

  Einn hinn harðasti dómari sem um getur, og boðar að

  hann beri að óttast sem og refsingar hans.

  Elskar boð og bönn til mannanna barna... og setur þeim

  óspart lög og reglur.....lögum sem jafnvel er ennþá

  fylgt í dag, hversu forn og ómannúðleg sem þau eru.

  Jamm, ekki mjög kærleiksrík trúarbrögð, nema ölmusufólki,

  munaðarlausum og sjúkum.

  Konur ekki merkilegur pappír í bók þessari, og eiga dætur til dæmis ekki

  sama rétt til arfs eftir foreldra sína, sem bræður þeirra...og þær eru EIGN

  eiginmanna sinna.

  Samt er í sífellu tönnlast á því að Allah sé alvitur og mildur,

  í gegnum allan Kóraninn.....jafnvel eftir hinar hroðalegustu lýsingar

  á fólki sem Allah refsar og sendir til Vítis í sjóðandi vatn, svo

  holdið bráðnar af beinum.

  Jamm, nokkuð merkileg lesning, Kóraninn, en niðurdrepandi á heildina litið.

  Svo húsfreyja smellti sér í meira upplyftandi efni af andlegum toga,

  eftir Kóraninn, og veitti ekki af.

    Ég segi yður:  Þannig verður fögnuður með englum

    Guðs yfir einum syndara, sen gjörir iðrun.

                                                 Lúkas 15:10

 

    Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist.

                                                 Jóh. 14:27

 

    Bodhisattvinn elskar allar lifandi verur sem væru þær

    hans eigin afkvæmi.

                               (Vimalakirtinirdesha sutra 5) Búdda.

 

    Megi ótti og kvíði ekki sigrast á mér.

                                (Majjhima Nikaya 6.8)  Búdda.

 

  Strax skárri boðskapur, þegar stöðugur ótti og hræðsla er ekki

  málið í trúarbrögðunum, heldur kærleikurinn.

  En alltaf fróðlegt að skoða málum frá nýjum sjónarhóli.

  og þó Kóraninn fái ekki háa einkun sem trúarrit hjá húsfreyju,

  er hann áreiðanlega fínn fyrir árásargjarna karla þarna austur um

  sem vilja "eiga" margar konur, fíla að lifa í stöðugum ótta

  við reiði og refsingu Allah, eru lítt fyrir þjóðfélagsframfarir

  og hafa gaman af krjúpandi bænahaldi frá morgni til kvöldsWink.

  Svo mörg voru þau orð.

  Góðar stundir og góða nótt.  Guð og góðir englar "ykkar" geymi ykkur.


mbl.is Hreinsar gyðinga af dauða Jesú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband