Færsluflokkur: Kvikmyndir

Hvað saðð'ann?

IMG 1591  Marinó Tý fimm ára var mikið niðri fyrir.

  Enda Kafteinn Kolbeinn nýbúinn að ropa ofan

  í flugvélatankinn, á hrapandi flugvélinni, með

  Tinna og Tobba innanborðs, á meðan vondu karlarnir tveir

  svifu til jarðar í fallhlífum.Devil

  Systurdóttir var á 200 kílómetra hraða að þýða og talsetja fyrir soninn,

  því myndin var ekki með íslensku tali heldur texta.Whistling

  Í þrívídd samt.

  Marinó var með rödd sína stillta á HÆSTA styrk, svo

  bíóáhorfendur í fimm bekkja radíus fengu "kommenta" hans beint í æðTounge.

  "Það blæðir líka úr eyrunum á mér", Pinch Væla Veinólínó ekki síður að

  misbjóða viðkvæmum hlustum Marinós en Kafteins Kolbeins.

  "Ó MÆ GOD", Tinni fljúgandi í loftköstum á eftir bófunum,

  í brjálaðri tilraun að ná þremur bréfsnifum.

  "Hvað saðð'ann, mamma"?

  Það var mikið hlegið, og spennan var ærandi í bíósalnum.

  Tinni og Kolbeinn ekki að klikka.

  Náði húsfreyju alveg, myndin.

  "Skeggjaðir hertir þorskhausar" og Rögnvaldur rauði fékk að

  kenna á reiði Kolbeins.

  Húsfreyja hló hátt og mikið, og skemmti sér konunglega.

  Tíu ára djásnið vissi ekki góða stund, hvort hún ætti að vera vandræðaleg

  yfir háværum kommentum Marinós eða gassahlátri móðurinnarBlush,

  en ákvað að lokum að gleyma sér í kvikmyndinni.

  Systurdóttir þýddi og talsetti í gríð og ergGetLost.

  "Ég skil núna, hvað þú gekkst í gegnum með mig, þegar þú

  bauðst mér á Disneyteiknimyndirnar hér í den, Sigga, og þurftir að þýða

  hverja einustu setningu", systurdóttir þurr í munni og sár í

  hálsi í bíólokWhistling.

  Það hlakkaði örlítið í húsfreyju, sem enn er að berjast við

  krónískt hæsi frá árunum 1990-1995 eða 6 Frown, þegar

  einhverjum snillanum í kvikmyndabransanum

  datt LOKS í hug að "talsetja" Aladdin.

  Sérlegur "talsetjari" systurdóttur þessi ár, þegar Disneyfabrikkan

  ungaði út nýjum teiknimyndum jafnt og þéttW00t, einni eða tveimur á ári.

  Hélt uppi Apoteki Þorlákshafnar árum saman með

  Strepsils hálstöflukaupum, húsfreyjaAngry

  Fór með einn Strepsilspakka á sólarhring, í heila viku eftir "talsetningu"

  fyrir systurdóttur.

  Og stundum dugði ekki ein bíóferð...

  "Sidda mín, þetta var frábær mynd, eigum við ekki að fara

  aftur næsta laujardag"?Pinch

  Hefur húsfreyja minnst á það , að henni finnst "íslensk talsetning"

  á barna- og teiknimyndum, einhver mesta snilld sem hefur

  verið upp fundin í voru litla landi.

  En draumar og vonir húsfreyju um frama sem heimsfræg söngkona

  dóu drottni sínum, steindrápust, og voru jarðaðar þessi

  "talsetningarár" hennar með systurdótturGetLost.

  Hins vegar er systurdóttir eldheitur áhugamaður um kvikmyndir í dag,

  allt frá teiknimyndum upp í drama, grín og morðgátur.

  Kannski á húsfreyja örlitla hlutdeild í áhuga hennar þar með,

  fyrst hún fórnaði frægð og frama og RÖDD sinni fyrir

  gleði lítillar stúlku í bíóJoyful.

  Hver veit?

  En vissulega doldið GAMAN að systurdóttir skyldi

  þurfa að "talsetja" sjálfan Tinna fyrir MarinóDevil.

  Finnst húsfreyju..hehehehehe.Grin

  Hefði viljað heyra systurdóttur þýða og talsetja

  enska orðasambandið hans Kaftein Kolbeins: 

  "Þúsund skrykkjóttar tindabykkjur í þorskavíti".....hehehe.Tounge

  Kvikmynd þessi um Tinna og félaga er tær snilld að mati húsfreyju,

  svo kíkið endilega í bíó.

  EN AÐVÖRUN:  Fólk með VIÐKVÆM eyru ætti að

 hafa með sér bómullarhnoðra...til að stöðva

  "eyrnablæðinguna"Tounge.

  Góðar stundir og látið ekki frostið bíta ykkur í tærnar.Devil


Glaðlegur hrærigrautsstíll...

  leem... þá aftur kominn á miðbæinnWink?

  Þetta er ætíð vinalegt götuhorn í minningu

  húsfreyju, enda dvaldi hún mörgum stundum

  í "gamla" Nýja Bíó, hér á árum áður, þá þangað

  bárust bandarískar og evrópskar kvikmyndir jafnt og þétt,

  lágmark 1-3 árumPinch eftir að þær höfðu verið

  frumsýndar á erlendri grund.

  Myndum sem síðan var varpað á hvíta tjaldið,

  eldheitum kvikmyndaunnendum sem húsfreyju

  til mikillar gleði og ánægju.

  Það var eitthvað hlýlegt og vinalegt að standa

  í poppkornsröðinni í anddyrinu, "popp og kók, takk",

  og rölta svo í sæti sín í ískrandi bekkjunum,

   "númeruðum" að sjálfsögðu og anda að sér

  rómantík kvikmyndasalarins fyrir sýninguInLove.

  Síðan hófst sýningin.

  Engar auglýsingar, alltaf hlé.

  Mátti REYKJA, og kvikmyndin oft öll sveipuð

  dulúðlegri reykjarhulu, sem gerði hryllinginn

  hryllilegri, sorgina þungbærari, sólskynið daufara,

  regnið og vonleysið áþreifanlegra, gleðina reykingatengda,

  hvítu kjólana gráa í kvikmyndabrúðkaupunum, og grínið

  nánast lífshættulegt, þegar sígarrettureykurinn

  sogaðist djúpt ofan í lungun, í miðri hlátursrokuW00t.

  Stóð oft á öndinni, húsfreyja, af óbeinum reykingum

  í bíó hér í den.

  Angaði eins og keðjureykingamaður, þegar heim komFrown.

  Aðrir tímar....den tid den sorg.

  Man þá húsfreyja eina góða ferð í Nýja Bíó, þá hún var

  sextán ára fljóð, ný byrjuð að stunda nám í M.R.

  Þær höfðu rifið sig af stað eftir kvöldmat, húsfreyja

  og tvær vinkvenna hennar, niður í Nýja Bíó.

  Það var kominn nóvember, hráslagaleg slydda,

  sem smaug ofan í hálsmálið á þykkum vetrarkápum

  þeirra og það var kalt....nístingskalt.

  Samt skárra að skreppa í bíó, en að hanga heima

  og reita hár sitt í örvæntingu yfir rúmfræði, stafsetningareglum

  og enskum stílPinch.

  Í bíó var enginn mættur, er stöllurnar þrjár komu á svæðið.

  Báðu um þrjá miða í bekk fyrir miðju, sæti sömuleiðis fyrir miðju

  í bekknum.

  Vestri með Lee Marvin í aðalhlutverki.

  Poppið og kókið keypt.

  Enginn annar mættur, og 5 mínútur í sýningu.

  Fór sextán ára kjánahrollur um vinkonurnar:

  "Verðum við ALEINAR í bíó", hvísluðust á og flissuðu

  vandræðalega.

  Þær drifu sig samt inn í salinn, litu á númerin á

  bíómiðunum og fundu bekk sinn og settust

  svo fyrir miðju af handahófi, enda öll önnur sæti

  laus, svo ekki gat nákvæmt sætanúmer skipt máli,

  töldu þærWhistling.

  Þremur mínutum seinna birtust þrjár unglingsstúlkur

  á svipuðu reki og stöllurnar.

  Þrekvaxnar og í þykkum vetrarkápum, líkt og húsfreyja og

  hennar vinkonur.

  Þær þrekvöxnu gengu beint að bekk vinkvennanna,

  með miða sína á lofti.

  Stöllurnar stóðu upp og hleyptu þeim fram hjá,

  sem var töluvert bras, því þykkar blautar kápurnar,

  voru fyrir, kræktust saman á tölum og beltumPinch.

  En að lokum voru þær þrekvöxnu sestar,

  þétt upp við húsfreyju og vinkonur.

  "Sex í bíó, þétt saman, á sama bekk" hugsaði

  húsfreyja og glotti við tönnDevil.

  Sýning um það að bil að hefjast þegar ein af

  þrekvöxnu skvísunum stóð upp:

  "  Heyriði, þið eruð í sætunum okkar"!Angry

  Valdsmannleg og ákveðin, og sýndi húsfreyju og

  vinkonum bíómiða sinn.

  Mikið rétt.

  Húsfreyja og stöllur urðu að hleypa þeim þrekvöxnu

  aftur til baka...með töluverðu kápubrasi, og flytja

  sig tvö sæti til vinstri, svo þær þrekvöxnu fengu

  sín RÉTTU sæti hægra megin við þær...ÞÉTT upp við þærTounge.

  Húsfreyja sem er fljót að sjá húmorinn í flestum

  aðstæðum, var farin að hlægja óstjórnlegaLoL.

  Tíu augu störðu á hana furðu lostin.

  "Gott að hafa sætanúmerin á hreinu og RÉTT sæti í svona

  fullu bíói" Grin, tókst húsfreyju að stynja upp og benda

  út í tóman salinn.

  Allar skvísurnar skelltu upp úr, og þær þrekvöxnu urðu

  hálf kindarlegar í framan, en hlógu dátt samtTounge.

  Ljósin slökkt og sýning hófst.

  Marvin skemmtilega ófríður á tjaldinu.

  Fimm mínútum seinna opnuðust dyrnar á

  kvikmyndasalnum.

  Lokuðust.

  Skruðningar, pústrar, bölv og dæsWoundering.

  Maður í þykkri rennblautri úlpu, sem angaði eins

  hann hefði fengið hana að láni uppi í Hvalstöð eftir

  hvalskurðSick, velt henni síðan upp úr lýsi og slori,

  settist beint fyrir framan lágvöxnustu, þrekvöxnu

  stúlkunaW00t.

  Manninn var tveir metrar á hæð, og breiður eftir því.

  Stúlkan sá hvorki tangur né tetur af MarviniGetLost.

  Þær þrekvöxnu fóru aftur til ferða, en nú fluttu þær sig

  fimm bekkjum neðar.

  Húsfreyja og stöllur sátu sem fastast, og reyndu að

  anda með munninumWhistling.

  Marvin skaut fjóra með tveimur skotum...drap þá alla.

  Maðurinn í úlpunni góðu, ók sér í sætinu, reyndi að

  troða höndum niður í rassvasa.

  Náði taki á kveikjara, svo rettum.

  Kveikti í.

  Húsfreyja fílaði sig sem lambakjötslæri í

  taðreykskofaSick.

  Marvin drap þrjá.

  Maðurinn drap í, og fór í það að troða sígarrettum og

  kveikjara aftur í rassvasa....as...mas...bras...KRATSJÚ....HLUNK!

  Maðurinn seig snögglega niður.

  Hressilegt bölv....."helv...djö....sætið er brotið".Angry

  Manninum tókst með erfiðismunum að komast upp úr

  brotnu sætinu, bölvandi og ragnandi.

  "Við erum að reyna að HORFA á bíómynd hérna" gall í

  einni af þeirri þrekvöxnu.

  "Afsakið, helv...sætið brotnaði" rumdi í risanum.

  Hann ráfaði úr sætaröðinni, og rölti niður í næsta bekk

  fyrir framan þær þrekvöxnuPinch.

  Loftræsting í lagi dældi "anganum" af úlpunni til

  þeirra þrekvöxnu, á meðan Marvin kyssti mikið málaða

  en fáklædda konu á bar og drakk viský af stút.Tounge

  Pískur og andköf.

  Svo kom hlé.

  Þær þrekvöxnu stóðu upp í snatri,

  sveipuðu kápum sínum þétt að sér.

  Sú hávaxnasta af þeim, var eitthvað föl á vangann,

  kúgaðist og hóstaði....."..hvaða lykt..ég er að farast..Sick" hvíslað.

  Þær strunsuðu fram í anddyri, og sáust ekki meir.

  Húsfreyja var komin með þrautir í magann af innibyrgðum

  hlátriDevil, en náði að þrauka út myndina í fjögra manna bíói þessu.

  Hvernig myndin endaði, eða hve marga Marvin drap,

  hefur hún ekki hugmynd um  enn þann dag í dagHalo.

  Því síður hvað myndin hét.

  Fín bíóferð eigi að síður.

  En vel að búið er að endurbyggja húsin í Austurstræti.

  Húsfreyja bregður sér þá niður í miðbæ í sumarfríi sínu,

  og kíkir á dýrðinaCool.

  Kannski þeir endursýni Lee Marvin.......Tounge.

  Góðar stundir og enn betri bíóstundir.


mbl.is Ný götumynd blasir við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband