Færsluflokkur: Íþróttir

Hann þarf að komast á vinstri löppina....!

soccer-photography_crop_340x234 .....,sjónvarpsmanni var mikið niðri fyrir, er hann

  mælti þau fleygu orð.

 "Þvílík háheilög sannindi" hugsaði húsfreyja hróðug og glotti grimmt,

  þar sem hún sat og "hlustaði" á lýsingu fótboltafróðra

  manna á kreppu-flatskjánum sínum.

  Húsfreyja ELSKAR að "hlusta" á lýsingar fótboltaleikja á skjánum.

  Þar þeysa menn um víðan völl í orðsnilld og íslensku tungutaki,

  svo unun er á að heyraDevil.

 - "Englendingar standa og veifa hendinni", sjónvarpsmenn létu hvergi

  deigan síg í lýsingunni.

  "Og Englendingar eru þá allir "handalausir" nema einn,

  sem aðeins hefur EINA" hló húsfreyja hið innra með sér, "og henni

  veifa þeir grimmt....allir sem einn".Tounge

 - "Mér finnst að skyttur eigi að "hitta" markið þegar þeir eru

  komnir inn fyrir marklínu", sjónvarpsmaður  sár yfir getuleysi leikmanns

  við að skora.Errm

  Húsfreyja veinaði af hlátri.LoL

 - "Carrol er að reyna að koma inn í leikinn".

  "Ekki seinna vænna", hugsaði húsfreyja, "seinni hálfleikur hafinn,

  og andskotans maðurinn inni á vellinum, en utan leikjar"!

 - "Þeir verða að "taka boltann niður", þeim hefur tekist það

  einu sinni á síðustu 10 mínútum", sjónvarpsmaður ábúðarfullur.

  "Ljótt ef boltinn er bara á sveimi yfir höfðum leikmanna", húsfreyja

  var rasandi á 10 mínúta flugi fótboltans.Halo

  En boltinn hélt áfram að fljúga samkvæmt lýsingu:

 - "Boltinn er að rísa yfir markið...margar mannhæðir".W00t

  "Þeir hafa líklega dælt "gasi" í helvíska tuðruna" var álit húsfreyju.LoL

 - "Englendingar aldrei líklegri til að" búa eitthvað til" þarna frammi",

  sjónvarpsmaður, reyndi að vera jákvæður um frammistöðu breskra.

  Húsfreyja var að míga á sig af hlátri......"hvað voru breskir

  að bardúsa í miðjum fótboltaleik?

  -"Hann er allt of HEITUR", húsfreyja missti af því hvort verið

  væri að ræða boltann eða leikmann.Pinch

 - "Menn hafa átt erfitt með að "fóta" sig allan leikinn",

  húsfreyja var komin í keng af hlátri...."atvinnumenn

  í FÓTbolta í erfiðleikum með að FÓTA sig"!Tounge

  -"Balotelli er dálítið hissa"....."engin furða" hugsaði

  húsfreyja, "ef færustu fótboltamenn heims fóta sig ekki

  á fótboltavellinum"!Devil

 - "Þarna er MAAAAARK......hann er rangstæður, já" mæðan

  í rödd sjónvarpsmanns var nánast áþreifanleg!Errm

 - "Englendingar búnir að vera mjög "þéttir" í leiknum".W00t

  Eina hugsun húsfreyju við þessa yfirlýsingu var:

  "Einhvern tímann var sungið á öldum ljósvakans:

  "NÚ ER ÉG ÞÉTTURLoL, OG ORÐINN FURÐU LÉTTUR,

  ÉG ER Í OFSASTUÐI OG ELSKA HVERN SEM ER".

  En leikurinn var ekki búinn.

  Og sjónvarpsmenn fóru á kostum:

-  "Hér kom stórkostlegt skot, sem leit kannski ekki út

  fyrir að vera það".Shocking

  Og síðan: -" Þarna er hann kannski ekki að "miða" á markið"!Pinch

  "Heldur HVERT og á HVAÐ"??, húsfreyja náði vart andanum svo mikið

  hló hún.Grin

  Þegar sjónvarpsmaður skellti sér síðan í lýsingu á

  "arkitekt" sem skyndilega birtist á vellinum og hóf

  að teikna upp "sóknina", var húsfreyju allri lokið,

  svo hún lagði á flótta inn á bað og fór í sturtu.

  Það síðasta sem hún heyrði var:- "Hann tekur sér nægan

  tíma í markinu, án þess að vera of augljós að tefja tímann...."Whistling

  Fótbolti er tær SNILLD!

  Að lýsa fótboltaleik sérstök NÁÐARGÁFA.

  Húsfreyja vill þakka íþróttasjónvarpsmönnum RÚV kærlega fyrir

 sérdeilis frábæra kvöldstundWink!

  Góðar fótboltastundir.


mbl.is Ítalir höfðu betur í vítaspyrnukeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Súrnar nú norskum...

  spanner_3abooo2005287 .. í geði, og gerast þulir þeirra tapsárir og tannhvassir.Errm

  Skiljanlegt.

  Alltaf fúlt að tapa.

  Húsfreyja nagaði naglabönd sín af æsingi og

  spennu, og reitti hár sitt af örvæntingu lengi vel

  yfir handboltaleik þessum millum Frónbúa og

  Norðmanna í gærkveldi.

  Taugar hennar voru úrbræddar og  maginn í hnút.

  En svo komu "srákarnir okkar" með það sem hún hafði

  beðið eftir:  Myljandi baráttugleði og snilldartakta á

  síðustu mínútunumCool.

  Húsfreyja er langt frá því að vera snilli í handboltareglum,

  en eigi gat hún séð, að maður sem snéri baki í markið,

  ætti víti skilið.Shocking

  En hvað veit hún?

  Kannski eru reglur breyttar og dómarar danskir að

  skíta upp á bak, með því að dæma ekki norskum

  "afturábak-mönnum" víti?Whistling

  Baunar í dómarastétt þar með gengnir "þeim í neðra"

  á hönd, og farnir leyfa "þrælaþjóðinni og óbermunum"

  uppi á litla Fróni að berja á "eðal herraþjóðinni" ,Norðmönnum og sigra

  þá, með því að hafa af þeim víti....eða hvað?Devil

  Ekki gott að segja .

  Sjálf telur húsfreyja, að "strákarnir okkar" hafi hreinlega

  tekið norsarana í nefið á síðustu mínútum leiksins,

  og sigurinn því þeirra, hvað sosum öllum "afturábak-vítum" líðurTounge.

  Góðar stundir og njótið handboltakvöldanna.


Að þjappa sér saman í andlitinu?

14  "Hvað sagði Eiður Smári" húsfreyja var farin að halda

  að hún hefði orðið fyrir heyrnartjóni, þegar hún mætti á Melavöllinn

  nú á dögunum, að fylgjast með leik ÍBV og KRShocking.

  "Það á bara ekkert að tapa fyrir leiðinlegu norsku liði"Angry,

  bóndi sár yfir tapi sinna manna.

  "En sagði Eiður Smári að "þeir yrðu að þjappa sér saman í

  andlitinu......hvað þýðir það eiginlega"??,  húsfreyja var engu nærShocking.

  Bóndi svaraði ekki svona " skiptir ekki nokkru máli-spurningu" húsfreyjuWhistling.

  "Djö... hugsaði húsfreyja, ekki nóg að ég er hundsvekkt yfir

  tapi strákanna okkar, ég er líka hætt að skilja hvað þeir segja"Pinch.

  "Hvað getur það bætt fótboltaleik okkar manna, að verða

  "þéttari, þrýstnari eða útroðnari" í ANDLITINU"W00t, hugsaði

  húsfreyja örvæntingafull.

  Hún gjóaði augum á bónda sinn....ætti hún að reyna að spyrja

  hann betur út í þetta að "þurfa að þjappa sér betur saman í andlitinu"Sick?

  Neipp, bóndi var horfin á vit frétta af rosalegum fellibylum og flóðum í henni

  Ameríku.  Fimmtíu dánir í því fárviðrinu.  Köld hönd dauðans strauk eitt

  augnarblik yfir hjarta húsfreyju...brrrrrrr...Errm.

  Neipp, ekki vert að vera að trufla bónda, enda farinn að ræða við 10 ára

  djásnið um Hrútatungurétt, þar sem hann hafði á árum áður með Sigurði afa

  sínum mætt, og tekið fé traustu taki og dregið í dilkaJoyful.

  Húsfreyja ákvað að kíkja í orðabók sína.

  Sei, sei jú, hún hafði munað rétt þýðingu sagnarinnar að þjappa.

  En rak síðan augun í þjappa að e-u sem þýðir að þjarma að

  e-u eða kreista e-ð eða e-n óþyrmilegaPinch.

  "Jeminn, varla vill Eiður Smári að liðsmenn berji hvorn annan óþyrmilega

  í andlitið, eða kreisti, til þess eins að þeir nái að taka sig saman í andlitinu,

  þjappa sér saman og sigra norsara í fótbolta eftirleiðis og um alla

  ókomna tíð"Shocking!

  Húsfreyja var við það að fá höfuðverk yfir þankagangi þessum.

  "Það yrði þá ljóta liðið sem keppti fyrir hönd okkar Frónbúa"

  hélt húsfreyja pælingum sínum, "allir bláir og marðir í andliti,

  með fjólublá glóðaraugu og sprungnar varir"W00t.

  "Jæja, þeir hætta þá kannski við helvískan "lesturinn"

  í miðjum leik, ef augu þeirra eru stokkbólgin og þrútin,

  og dunda sér við að lesa orðið "leikinn" RÉTT uppi í rúmi,

  þegar þá tekur að syfja"( sbr. "hann er að lesa leikinn rétt"...Tounge

  vinsæl setning hjá snjöllum fjölmiðlamönnum), hugsaði húsfreyja

  með sjálfri sér og glotti.

  Hehehehehe..... húsfreyja stóðst ekki mátiðLoL.

  Hefur bísna gaman að málfari fótboltakappa og þeirra sem

  fótboltaleikjum lýsa í fjölmiðlumWink.

  Orðaleppar þeirra eru algjör snilld, og oft æði snúið að

  ná að tengja þá við FÓTBOLTALEIK/KNATTSPYRNUTounge.

  Gaman að þessuDevil.

  En húsfreyja vonar eigi að síður, að Eiður Smári láti vera

  að berja mann og annan í andlitið í okkar frónverska liði,

  og vonar að hann hafi aðallega verið að ræða um,

  að hann og strákarnir okkar yrðu að "þjappa sér betur saman"

  og jafnvel að "taka sig saman í andlitinu"

  til að eiga einhvern sjens á að sigra norska frændur voraLoL.

  Góðar stundir og góða helgi, og í guðanna bænum þjappið ykkur ekki saman

  í andlitinuHalo.


mbl.is Grátlegt tap fyrir Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband