Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

Helvískir ræningjar....

  funny-fish-lady3...þessir andsk... Frónbúar!Angry

  Hvernig í ósköpunum dettur okkur,  þessu rumpupakki og ruslaralýð að

  vaða í það að VEIÐA fiskinn, sem svamlar í sjónum í kringum

  land okkar.Shocking

  Mætti halda að við, þessir frónversku "þorskhausar" teldum

  fiskveiðar vera okkar aðal atvinnugrein, þegar ALHEIMUR veit,

  og sér í lagi norskir eðalsjómenn og evrópskir Makrílsnillar,

  að Frónbúar gera út á "Eldgos" og helvíska fylgikvilla þeirra, ergo truflanir á

 farþegaflugi, ásamt skyrframleiðslu og lopapeysudútli, þegar best lætur.Whistling

  Fiskveiðar bara "HOBBÝ" hjá þessu ruplandi og rænandi pakki uppi á litla Fróni.

  Og það er bara djö... kjaftæði, að Makríllinn hafi fundið upp á því sjálfur

  að synda inn í frónverska hafsögu.Angry

  Fylli þar alla firði og já, hafnir,

  svo að nóg sé að skella út spún á stöng af bryggjusporði,

  og BINGÓ, Makríll mættur á steikarapönnuna.Halo

  Króknaðir steinbítshausar og grámyglaðir skötukjaftar...þvílíkur vaðall.GetLost

  Ekkisens þjófahyskið upp á litla Fróni, sjálfsagt búið

  að uppgötva hvernig framleiða skal "Makríl-fermón"Devil úr

  djö.... eldfjallaösku, hveravatni og "dassi" af skyri, sem þeir

  dúndra síðan í þúsunda tunnutali í hafið kringum litla Frón og...

  VOILA!  MAKRÍLLINN MÆTIR!Tounge

  Og þjófabálkur sá er kallar sig sjómenn á litla Fróni, vílar heldur

  ekki fyrir sér að gefa skít í atvinnugreinina.W00t

  Þegar ALVÖRU fiskveiðimenn frá veldi norska kóngsins til dæmis, eru að veiðum,

  eru þeir allir uppáklæddir í skæran, níðsterkan og vatnsheldan hlífðarfatnað,

  á meðan þeir frónversku mæta jafnvel til sjós á gallabuxum, í

  duggarapeysum...og alverst, í andskotans frónversku lopapeysunum!Pinch

  Svo kallar þessi rummungalýður sig sjómenn og DIRFIST að veiða

  eðalfisk allra eðalfiska, sjálfan MAKRÍLINN!Angry

  Sjá andskotans Frónbúarnir ekki, að Makríllinn er vel og vendilega

  MERKTUR Norsurum, Skotum og fleiri skelegum evrópuþjóðum?

  Afhverju halda Frónbúar til dæmis, að Makríllin sé með RÖND á rennilegum

  skrokknum?Shocking

  Þetta er að sjálfsögðu nýjasta "strikamerki" norska kóngsins,

  sem ber að virða og akta með bugti og beygingum, og er

  vinsamleg "konungleg ábending" til allra sem fiskveiðar stunda,

  en eru svo ólánsamir að hafa

  eigi fæðst undir evrópskri óskastjörnu eða á norskri grund,

  um að snáfa 170 sjómílur til hægri á veiðiskipum sínum,

  sjái þeir glitta á Makríl á svamli.Whistling (Þá skárra að hæ. hlið skips,

  snúi eigi að LANDI....hehehehe).Devil

  Skiptir engu þótt veiðiskip ræningjalýðsins, séu í eigin

  fiskveiðilögsögu.

  Suman fisk MÁ ALLS EKKI VEIÐA!Angry

  Norskir EIGA HANN!

  MAKRÍLINN.

  ÖLL HELVÍSK ÞÚSUNDIN AF MAKRÍLTONNUNUM, sem í kringum landið

  lóna, í staðinn fyrir að snauta heim að Noregsströndum.GetLost

  Svo SKAMM, frónversku Makrílveiðiþjófar og bófar.

  Þið eruð að RÆNA arma og fátæka olíufrændur okkar fiskinum.Whistling

  Ja, svei.

  Tarna er ljóta fréttin.

  Góðar stundir og megi föstudagssoðningin bragðast vel.LoL


mbl.is Kallar Íslendinga ræningjaþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norskt ríkidæmi eða arga fátækt?

  Royal+family+Norway"Því fátækari og því minna sem fólk á,

  helst ekki bót fyrir rassgatið á sér,

  því betur líður því andlega og félagslega"!

  Vinkonu húsfreyju í Noregi var mikið niðri fyrir.

  "Alla vega virðist mér norska þjóðarsálin sigla

  hraðbyri í átt til brjálæðis mitt í öllum þessum

  olíugróða sínum.  Hér eiga allir skít nóg af

  peningum, en eru þeir hamingjusamirW00t?

  NEI!

  Kunna þeir að vinna skynsamlega úr sínum málum?

  NEI"!

  Vinkona húsfreyju, íslensk og læknir að mennt, var á innsoginu.

  Hefur búið síðustu 25 árin í Noregi og vegna starfs

  síns kemur hún víða við og þekkir marga.

  Hafði vinkona komið í sumarvinnu upp á litla Frón fyrir rúmu ári síðan,

  hafðið unnið í 3 mánuði, og séð hvernig íslenska

  þjóðin var að reyna að tækla sín mál.

  Bar svo saman þegar heim til Noregs kom.

  Norsararnir skítféllu í þeim samanburðiPinch.

  "Hér til dæmis skilja varla hjón lengur án

  nálgunarbanns, þriggja lögfræðinga, dauðra katta, ofbeldis

  skemmdra húseigna og skelfingu lostinna barna viðkomandi."Errm

  Vinkona var komin í ham.

  "Nú fer ég alvarlega að huga að því að koma mér heim aftur.

  Það er ekki búandi í þessu helvíti, þar sem hver höndin

  er upp á móti annarri.  Og fólk með massív fortíðavandamál

  veður uppi með óunna fortíð, og beitir börnum sínum

  fyrir sig á sérlega grimmdarlegan máta"

  Vinkonu var mikið niðri fyrir, " og svo er sífelldur SPARNAÐUR

  og NIÐURSKURÐUR í gangi í heilbrigðiskerfi einnar ríkustu

  þjóðar heims, og fólk jafnvel í vandræðum með að fá

  þá hjálp sem það þarfnastAngry.

  HVAÐ ER ÞAÐ"?

  Húsfreyja gat lítil svör gefið vinkonu sinni í símann,

  enda þekkir hún lítt til norsks þjóðfélags og uppbyggingu þess,

  og veit þar af síður hvað þeir gera við olíugróðann sinnShocking.

  En vinkona var rasandi á gangi mála Noregsmegin,

  enda gæðin ein að upplagi, vinnusöm, glaðlynd og skapandi í hugsun.

  Húsfreyja leyfði vinkonu sinni að tala sem mest,

  enda lá margt þungt á henni, búandi í miðju veldi

  norska kóngsins, með "brjálsemi" í kringum sig flesta

  daga, eins og hún orðaði þaðGetLost.

  "Ég les ekki krimma eða spennusögur lengur, nóg fyrir mig

  að lesa sannar "lífsreynslusögur" í norskum tímaritum,

  þau ekkert nema kærumál, krimmamál og dómsmál"Bandit!

  Vinkona dró djúpt andann.

  "Ég er búin að sjá, að það fólk sem á lítið sem ekki neitt

  af peningum hérna, heldur fullum sönsum,

  ber virðingu fyrir sjálfu sér og öðrum og

  verndar börn sín í lengstu lög.

  HINIR með nóg af peningum, gefa skít í allt og alla,

  jafnvel börnin sín".

  Vinkona hryllti sig í símann, enda barngóð og móðir sjálf.

  Húsfreyju fundust þetta slæmar fréttir af norskum

  "frændum" sínum og "frænkum", og fann til með

  vinkonu að vera á bólakafi í vondum málum fólksins

  í kringum sig.

   Og nú rúmum tveimur sólarhringum frá upphringingu

  vinkonu, kemur frétt þessi um að fimmta hver kona

  í norska hernum verði fyrir kynferðislegri áreitni.

  Tilviljun?

  Húsfreyja veit ekki.

  En vinkona hafði beðið húsfreyju að skella

  pistli inn á bloggið sitt um málið, og hér er hann kominn.

  Kemur upp í huga húsfreyju gamall málsháttur:

  Margur verður af aurum api.

 Svo mörg voru þau orð.

  Vonandi að norsarar tapi sér ekki alveg í olíuauðlegðinni,

  og temji sér virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.

  En afmæli framundan hjá húsfreyju og fjölskyldu.

  Ísakurinn sex ára, tíu ára djásnið ætlar að

  föndra afmæliskort.

  Húsfreyja ætlar í olíubað og svo út á sinn herlega

  sólpall í 20 stiga hitann Cool svolitla stund.

  Góðar stundir á sumarhlýjum maídegi.


mbl.is Fimmta hver kona áreitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HERINN!

funny-pictures-kitten-watches-over-soldier  Sá íslenski?

  Jaso.

  Það hlýtur þá að vera "ósýnilegi" herinn

  okkar hér uppi á litla Fróni,

  sem reykir allar "ósýnilegu" sígaretturnar

  sem Spaugstofan fjallaði um af snilld síðasta

  laugardagskvöldDevil.

  Já, og nýtur svona myljandi góðs trausts í ofanálagWhistling.

  En kemur sosum ekki á óvart, að menn af erlendu bergi

  brotnir hinum megin Atlandsála telji hér vera her.

  Hér hafa verið búsettir mergjaðir "hryðjuverkamenn",

  samkvæmt vísum, breskum mönnum, árum saman,

  eða allt frá því að "Ísbjörg gamla" fékk banvænt slag,

  steindó og gekk aftur með voveiflegum hættiPinch.

  Og þó að "vopn" okkar frónverskra teljist ekki beysin,

  mest bitlausir búrhnífar, skæri, ryðgaðir rjúpnabyssuhólkar og heykvíslar,

  þá eigum við altént megaflotta tunnuræfla og

  hrikalega flott barefli sem skapa skemmtilegan samhljóm

  við "undursamlegar" ræður þingmanna á Alþingi voru.

  Sprengjuhvellir, hvað?

  En gaman hefði húsfreyja að því,  að fá að líta eins og eitt

  "herkvaðningarbréf" augum fyrir ósýnilegan her þennan,

  svona bara til að vita hver eða hverjir komu honum á fót

  af okkar frónversku snillumCool.

  En auðvitað hafa öll slík bréf  verið "ósýnileg"....Tounge

  Hehehe, skondin frétt atarna, og grunar húsfreyju að

  eitthvað sé hún orðum aukin.

  Góðar stundir og góða helgi.


mbl.is 26% treysta íslenska hernum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýruhausar í and-Gaddafísku stuði?

  GaddafiAllah sé lof og dýrð...fyrir GaddafíWhistling.

  Hinn skarpvitri og friðelskandi

  "ekki-leiðtogi" Líbíu, Muammar Gaddafí

  er í öngum sínumShocking.

  Þarna er þessi elskulegi maður, Gaddafí

  sem "formlega ber ekkert embætti" í hinu

  undursamlega veldi Líbíu, búin að puða  og púla

  við uppbyggjandi "byltingarstörf" FJÖRUTÍU-ÁRA-BYLTINGARINNAR (síðan 1969, hefur hún

  verið í gangi... ÓGNARLANGA BYLTINGIN væri gott nafnDevil á hana)

  í þágu þjóðarinnar árum saman, og uppsker

  svo ekkert nema vanþakklæti og svívirðingar og grófar móðganir.

  Fékk ekki einu sinni embættiTounge!

  Mótmælendur mættir að mótmæla "ekki-stjórn" GaddafísPinch.

  Ó vei!

  Og slík svívirða frá hans eigin löndum!

  Og til að auka enn á skömmina eru þessir "Gaddafímótmælandi "samlandar

  hans á "mergjuðu sýrutrippi" frá morgni

  til kvöldsW00t, og telja sjálfsagt

  himininn appelsínugulan, sjóinn rauðan og skýin lillableikCool.

  Gaddafí er sár.

  Mættur undir regnhlíf, (svo ekki rigni á hann lillableiku

  regni og appelsínugulur himininn hrynji

  ekki ofan á haus honumGetLost)  og hann

  ekki flúinn af landi brott, með hina

  helgu stjórnarskrá Líbíu á lofti og les mikinnHalo.

  "Gaddafí-ósáttir sýruhausar réttdræpir, Allah sé lofaður".

  Eru hvort eð er á vegum djöfulsins, hinir "ofskynjandi" mótmælendur,

  og því öruggara að drepa þá alla sem fyrst, svo djöfullinn sjálfur

  með horn, hófa, hala og sinn hrikalega þrífork

  verði ekki næsti "óformlegi ekki-leiðtogi" Líbíu.Devil

  Já og Allah forði Líbíu frá því að "sá í neðra" verði næsti

  "yfirmaður ógnarlöngu-byltingarinnar"LoL.

  Jamm, vesalings Gaddafi  er móðgaður.

  Líbanskir sýruhausar kunna ekki gott að meta, því er verr.

  Hinir Gaddafí-elskandi Líbanir munu slá skjaldborg um sinn

  heittelskaðan "ekki-leiðtoga"  og berjast blóðugum bardaga

  til síðasta mannsErrm!

  Og þá og aðeins þá mun Gaddafí fá frið til að halda áfram LANGDREGNUM

  byltingarstörfum sínum og  að sinna "ekki-embættisskyldum" fyrir land sitt og

  þjóðWhistling, eða deyja öðrum kosti.... í LíbíuPinch!

  Jamm mikil er viska og réttlæti Gaddafís, Allah sé dýrð.

  Húsfreyja ætlar að redda kjúllanum úr ofninum.

  Góðar stundir.


mbl.is Gaddafi fer hvergi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband