Færsluflokkur: Umhverfismál

Heimsendir mætti...

 IMG 1612 ...en eingöngu á einn stað á jörðu",

  móður húsfreyju var mikið niðri fyrir í símanum.

  Húsfreyja nuddaði stírurnar úr augunum,

  svaraði rámri röddu: "Nú, og hvar þá"?

  "Á litla Fróni, Vatnajökli, nánar tiltekið Grímsvötnum"

  svaraði múttan ákveðin.

  "Stendur strókurinn upp af landinu, eins og pabbi þinn

  sagði við þig hérna um árið, þegar þú skrappst til London"W00t.

  Húsfreyja mundi vel þá reisu, og að hafa hringt heim

  frá London að kanna stöðuna eftir að hafa séð fregnir í

  enskum dagblöðum um eldgos í Vatnajökli.

  "Þú ert ekki fyrr búin að þvælast af landi brott", hafði

  pirraður faðir hennar þrumað í símann, "en að eldstrókurinn

  stendur upp af landinu"Angry.

  Húsfreyja hafði svarað föður sínum mildilega. " Það er nú kannski

  lítil tenging milli minna ferðalaga og eldgossins í Vatnajökli, pabbi".

  En það var faðirinn ekkert svo viss um, og taldi nánast að

  rekja mætti allar náttúruhamfarir litla Fróns síðustu ár við "ferðalög

  húsfreyju á erlendar grundir"Devil.

  "Svo er allt vaðandi í ösku og skít, en hér er hún mamma þín"

  voru kveðjuorð föðursins til húsfreyju.

  Þær mæðgur veinuðu af hlátri í símann, svarti pirringurinn í

  yfirlýsingaglöðum föður húsfreyju kitluðu hláturstaugar þeirra

  verulegaTounge.

  "Ja, margt hefur þú á samviskunni, dóttir góð", voru orð móðurinnar

  þegar þær loks náðu andanum fyrir hlátri.

  Nú er þetta annað gosið á stuttum tíma þarna í jöklum

  Suðurlands, en húsfreyja getur svo svarið að hún hefur ekki

  hreyft sig af landi brott síðan hún

 skrapp til Prag á haustdögum 2008Halo.

  Svo húsfreyja sagði móður sinni að þessu elgosi núna gæti hún

  ekki bætt ofan á sína samvisku, fremur en gosinu í Eyjafjallajökli

  á vordögum í fyrraWink.

  Eftir hressilegan hlátur ræddu þær málin mæðgurnar.

  Þær voru sammála um að litla Frón sé þekkt fyrir að

  vera vel búið "virkum eldstöðvum" og þær eldstöðvar muni gjósa

  reglulega hvað sem öllum heimsendaspám líður Pinch.....

  en vert væri að halda þessu opnu með tengingu eldgosa á

  litla Fróni við utanferðir húsfreyjuWhistlingDevil.grimsvotn

  Jamm, húsfreyja hefur orðið fyrir því að vakna með

  eitt stykki eldgos nánast úti í bakgarði heima hjá sér,

  og mælir ekki með slíkri lífsreynslu.

  Hún er fegin því að gosið er fjarri mannabyggð,

  og um leið óskar hún þess að vindátt snúist, svo

  askan valdi ekki skaða á bæjum í kring.

  En við erum vön að berjast í svona málum hér uppi á

  litla Fróni, og allt tekur þetta enda fyrr eða síðar.

  Húsfreyja beitir óspart húmornum, þegar erfiðar

  minningar tengdar gosi í Eyjum 1973 koma upp í hugann,

  henni eðlislægt.

  Baráttukveðjur til allra sem búa í nálægð öskufalls.

  Góðar stundir í "míní-heimsenda"!Devil


mbl.is Eldingar í gosmekkinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband