Það var og.

 nurses-week-forms Margt er skrýtið í kýrhausnum eins og kerlingin sagði.

  Til eru fyrirtæki hér á landi, sem launa undirmönnum sínum (fagfólki) tryggð við fyrirtækið,

  þrotlausa vinnu, meiri ábyrgð, fleiri verk á lægri launum á tímum

  kreppu og bankahruns, af stakri náð og einskæru þakklæti.

  Og hvernig þá?

  Jú, að sjálfsögðu svona:

  Stöðulækkun ásamt launaskerðingu, fyrir sömu erfiðu ábyrgðarstörfin og áður,

  ásamt fækkun á starfsfólki þeirra.Angry

  Allt í nafni niðurskurðar, aðhalds og og BRÁÐRAR nauðsynjar á

  því að spara þar sem þegar er búið að skafa inn að beini og

  mergsjúga.Errm

  Þar sem mannauðurinn má síst missa sín, ákveða stjórnendur að

  skera niður.....án þess þó að það MEGI bitna á GÆÐUM þjónustu

  við kúnnana.Crying

  Og þar með fjölgar þeim einstaklingum í fyrirtækjunum sem fá vinnu við að útbúa allskonar

  "gæðavísa", "gæðaplön" og "reglupappíra" sem niðurskornum,

  launalækkuðum undirmönnum er ætlað að fylla út, framfylgja og

  láta fækkandi starfsfólk sitt fara eftir, hvort sem að tími er til slíks eður ei,

  þar sem staffið er allt á harðahlaupum, svo ekki tapist niður GÆÐI á "grunnþjónustu"

  til kúnnanna.Pinch

  Sér enginn þörf á því að "skera niður" hjá pappírsvinnslufólki....sei,sei nei.

  Enda hverjir ættu annars að koma með allar hugmyndirnar um HVAR er

  brýnast að skera niður og koma þeima á BLAÐ, nema "pappírspésafólkið"!Whistling

  Gjörsamlega ÓMISSANDI þetta blessaða pappírsfólk.

  Þá er bara að SKAFA beinin hinna betur og MERGSJÚGA enn betur.

  Jamm, fínt þakkæti þetta til fólks sem sinnir störfum sínum af hugsjón,

  dugnaði, fagmennsku og tryggð.Pinch

  Hefur flest niðurskorna mannfólkið fyrir fjölskyldu að sjá eins og allir aðrir og

  berjast ötullega við að lifa kreppuna af fjárhagslega, en sættir sig við lægri laun

  í þeirri von að einhvern tímann muni  fyrirtækið þeirra

  kunna að meta það og launa þeim að verðleikum.GetLost

  Ó, já, að verðleikum.

  Því miður eru mörg þessara fyrirtækja með þjónustu fyrir veika og aldraða

  hér á landi, og að halda því blákalt fram að "svona niðurskurður"

  bitni ekki á GÆÐUM þjónustu, er hreinn og klár vaðall og ekkisens

  kjaftæði, að mati húsfreyju.Angry

  Svo mörg voru þau orð.

  Húsfreyja örvæntir á sínum svörtustu dögum um heilbrigðiskerfi sitt,

  og kvíðir því að verða gömul kona.

  Er það framtíð hennar sem annarra er eldast og gamlir verða,

  að verða "annars flokks" Íslendingur, með lágmarks heilbrigðisþjónustu...

  og ENGA fagþjónustu?

  Er þetta það sem við viljum í velferðarríkinu , Íslandi, þegar kemur að

  heilbrigðisþjónustu við aldraða og sjúka?

  Nei, húsfreyja bara spyr.

  Góðar stundir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband