Þar fór það.

black-and-white-chocolate-earth-funny-Favim.com-502499  Litla Frón sokkið, týnt og tröllum gefið, sjálfsagt

  ekki seinna en kl. 21:12 þann 21.12.2012.Angry

  Jamm og lönd öll og heimsálfur móður Jarðar...

  piff...paff... BÚIÐ SPIL!

  Húsfreyja og allt hennar slekt, ásamt jarðarbúum öllum (plús eða mínus 200 manns)

  flutt með hraði í "Sumarlandið" þar með.... ja, nema ef svo ólíklega vildi til,

  að henni lánaðist að kreista hálfrar milljón króna lán út úr

  bankastjóra sínum og skreppa í eina herlega "heimsendaspásferð"

  til litla þorpsins Bugarach í Frakklandi (íbúat. 200),

  með sína fjölskyldu korteri fyrir Jól.

  Þá betra að hafa flugmiðana "one way tickets", ef allar verstu spár rætast,

  og húsfreyja skyldi daga uppi í litla, franska þorpi þessu með

  skyldfólki sínu.Devil

  Bara einn hængur á.Crying

  Tvö hundruð hræðurnar í Bugarach vilja ekkert með húsfreyju og

  hennar líka hafa, í sínu þorpi síðustu vikuna fyrir Jól.Errm

  Biðja frönsk yfirvöld í lengstu lög að bægja frá óvelkomnum

  ferðalöngum, í leit að frestun á "Sumarlandsreisu"  og lengra

  og hamingjuríkara lífi á móður Jörð, frá þorpi sínu.

  Sjálfsagt búið að endurskíra öll stúlkubörn og drengi upp á nýtt

  þar uppi við Pýreneatinda; Evur og Adamar allt saman, svo

  afkomendur tvöhundruðmenningana verði verðugir arftakar mannkyns á jörðu.Halo

  Að vísu verður sjálfsagt eitthvað vesen í gangi fyrst eftir hinn

  "endanlega" dag hinna, sem ekki auðnaðist að fæðast í Bugarach, 

  svo sem rafmagnsleysi, matarskortur, sjúkdómar, pestarfár, kuldi og

  vosbúð, en það kippa hinir úrvöldu tvöhundruð sér ekki við.

  Neipp, græja þetta sjálfir upp á eigin spýtur.Cool

  Bara verra að hafa einhverja villuráfandi, ókunnuga fáráða, sem hvort eð er

  áttu pantaða ferð í "Sumarlandið", og sem jafnvel öllu myndu vilja ráða við

  uppbyggingu menningar og fjölgun á mankyni.W00t

  Svo líklega verður bara lokað fyrir "jólaösina" í Bugarach

  í seinni partinn í Desember.LoL

  Vegatálmar með alvopnuðum lögreglumönnum við

  þjóðveginn inn í þorpið, sem og við gönguleiðir um

  tinda og fjöll í nágrenninu.Whistling

  O, jæja. 

  Húsfreyja sekkur þá bara með litla Fróni...eður ei.

  Verður að viðurkenna, húsfreyja, að hún er ekki sérstaklega

  trúuð á "heimsenda" þ. 21.12.2012, kl.21:12Devil, fremur

  en nokkurn annan heimsenda sem spáð hefur verið,

  með reglulegu millibili, af og til allt frá því að

  mannkyn hætti að príla í trjám, og tók að yrkja jörð.

  Því þeir hafa komið og farið, hver "heimsendinn" af fætur öðrum...

  öld eftir öld...alveg hárnákvæmt dagsettir...en

  hér dólum við enn, þrátt fyrir það....."endalaust"Tounge.

  Mun líklegra að við séum að sigla inn í nýtt tímabil, hér á

  móður Jörð, þar sem mannkyn núllstillir sig aftur inn á

  "móðurina" og sínar eigin innri andlegu breytingar,

  eða það er tilfinning húsfreyju.

  Jú jú, það verða náttúruhamfarir eftir sem áður, enda "móðirin"

  orkubolti sem skekur okkur og hristir þá henni þóknast, og

  blæs eldi og eymyrju af og til af einskærri gleði yfir því að vera til.

  En mannkyn er ekkert að farast (plús eða mínus 200 hræðurTounge),

  þennan desembermánuð, fremur en nokkurn annan mánuð

  í fortíð, nútíð eða framtíð, telur húsfreyja...altént nokkuð

  örugg þar til slokknar á sól eða tungl tekur upp á því að

  hrynja niður á móður Jörð.

  Nema kannski að við þurfum að hafa áhyggjur af .....

 21.12.2021W00t!

  Góðar stundir og megi allir ykkar "heimsendar" verða friðsælir,

  og í guðanna bænum verið ekki að flækjast til Frakklands í

  Desember, það er bara endemis "Heimsendavesen"Devil! .


mbl.is Eini staðurinn sem stendur af sér heimsendi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband