Færsluflokkur: Dægurmál

2011 versus 1971.

 funny-dog-pictures-baff-ready Húsfreyja var að glugga í dagbók sína.

  "Humm...hálf flatneskjulegt ár 2011...hvorki gekk né rak

  í einu eða neinu".

  DÆSErrm.

  "Tómur barningur á öllum sviðum, meira eða minna" hélt

  hún áfram þönkum sínum.

  Icesafe-sagan endalausa hélt velli-"Engin Jól án Icesafe" og "ekki

  er stefna stefna nema pottþétt- Icesafe, sé"Tounge.

  Heilbrigðiskerfið niðurskorið, sneitt og nagað inn að merg, með verri

  gæðum þjónustu í kjölfariðAngry:

  Gamla fólkið skorið niður, öryrkjar skornir niður, sjúklingar

  að bera gífurlegan kostnað af lífsnauðsynlegum aðgerðum. t.d

  konur með brjóstakrabbameinW00t.

  Bankasukksagan "óáþreifanlega" og óendanlega hélt sömuleiðis áfram....

  virðast innmúraðir og steyptir fastir í sama gamla spillingarsvínaríinuPinch.

  Herjólfur sigldi í Sand....nei Land...nei Þorlákshöfn meira eða minna

  allt árið.  Í Landeyjarhöfn sigldi aðeins aska, aurburður, drulla og skítur...Sick

  "in og út um HÖFNINA og alltaf sömu leið"!Grin

  Húsfreyja vill láta breyta Landeyjarhöfn í hrísgrjónaakur.Devil

  Johnsen skemmti landanum með Skálholtsveseni og fornaldar kirkju-

  byggingum en sérstakur saksóknari var staurblankur miðað

  við allan þann fjölda mála sem hann þurfti að rannsaka og kæra.

  Evran fékk "krónuveikina" og dúndraði niður í víti bankaspillingar, hruns

  og kreppu.

  Gnarrinn skeit upp á bak í skólamálum, og hóf að sameina og búa til

  stærri barnaskólabákn, með minni yfirsýn og verri kennslu fyrir

  nemendur í höfuðborginniErrm.

  En Harpan sló í gegn hjá þeim sem enn eiga nóg af peningum,

  og VIP-partýin voru haldin grimmt og galið þar niður við höfn...GetLost

  en engin partý haldin fyrir fólkið sem er að BORGA fyrir Hörpuna.W00t

  Þá sjaldan sem einhverju af litla fólkinu tekst að aura saman fyrir

  tónleikaferð í Hörpuna, er því refsað grimmilega með

  mörg þúsund króna stöðumælasekt, vegna háleynilegra

  neðanjarðabílastæða, með borgunarkössum á vel földum

  stöðum, sem ekki einu sinni bílastæðaverðir Hörpunnar vita hvar

  eru.Pinch

  Stjórnin.....ja stjórnin, er stjórnin og Jóhanna, og svo eru auðvitað

  "djöfulsins snillingarnir" í stjórnarandstöðunni-gullin af bláu mönnunumFrown.

  Orð Haarderans: "Guð blessi Ísland" plús viðbót frá

  húsfreyju: ..."með þessa alþingismenn" eru orð í tíma töluð...skrifuð?Halo

  En merkilegt nokk gekk árið þokkalega upp hjá húsfreyju sjálfri.

  Sumarið var frábært, sumarfríið og ferðalögin um landið best.

  Engin dó eða veiktist alvarlega, sem er fyrir mestu.

  Vinnan var klikk...en það hefur hún verið árum saman, svo þar er ekkert nýtt.

  Fjárhagurinn bévítans basl og óréttlæti, en sömuleiðis eins og venjulega.

  Svo húsfreyja þokkalega ánægð með sitt ár, en fór þá að hugsa um árið

  1971 á því herrans ári er hún varð ellefu ára.

  Hvað vorum við Frónbúar að brasa fyrir 40 árum?

  Þá bjó húsfreyja enn í Eyjunum sínum í Grænuhlíð 20, alsæl í faðmi

  grösugra fjalla, blás himins, sægræns sjávar og yndislegrar og

  áhyggjulausrar bernsku, svart/hvíts sjónvarps-sumarfrí í 3 mánuði og ALDREI-

  sjónvarps á fimmtudögum.  Talva? I-Pad hvað?

  Samt var ýmislegt á seiði í þjóðfélagi Frónbúa.

  "Opinber rannsókn á reikningum Rannsóknaráðs ríkisins".

  Þar allt í óreiðu með síma, ferðakostnað og risnu.....eitthvað

  kunnulegt við þetta allt, er mat húsfreyju, þó hún hafi ekki hugmynd

  um, hvaða störf Rannsóknaráð ríkisins vannWhistling.

  Handritin mættu heim frá Danmörku, og Baunarnir flögguðu í

  hálfa stöng, er íslensku handritin voru sett um borð í herskipið

  á leið til ÍslandsShocking.

  Jaso, hve margir Baunar skyldu hafa vitað um forníslensku handritin og

  innihald þeirra, eða haft getu til að lesa þau?FootinMouth  Skyldu þeir enn sakna

  handritanna, minnast þeirra og draga Dannebrogen upp í hálfa 19. maí?Whistling

  Svo var það Saltvíkurhátíðin alræmda í byrjun júní '71- um Hvítasunnu.

  Hófst sem hátíð "friðar, sátta og samlyndis", en tókst sem betur fer

  að snúa henni í hátíð "leðju, ölvunar, roks og rigningar".-Saltstokk '71?LoL

  Landinn fékk léttan stresshroll í apríl. '71, þegar nokkrir frónverskir sveinar ákváðu

  að stofna "skæruliðasamtök" uppi á litla Fróni, og ætluðu að sprengja

  mann og annan með stolnu dýnamíti Angry.

  Hippamenningin blómstraði, en sturlaður maður myrti konu sína

  fyrir norðan og lubbi var bannaður af KSÍ, fékk enginn "lubbi" að

  keppa með landsliðinu við Frakka, það áriðFrown.

  Hárskerar kvörtuðu um atvinnuleysi...enda enginn maður með

  mönnum árið 1971 nema með axlarsítt hár og toppinn oní augu.Devil

  Geysir í Haukadal gaus....sápulaust.Wink

  Bretar urðu brjálaðir enn og aftur út í Frónbúa, vegna hundabanns

  í höfuðborginni við sundin bláu.  Töluðu um "geðsjúka hundahatara"Tounge

  í fjölmiðlum, Tjallarnir..

  Svíarnir tóku í sama streng "Leyfið hundunum að lifa"- Lat hundene leva!

  Hasshundurinn hinn fyrsti kom til landsins.....hann fékk að lifaLoL.

  Tollverðir berháttuðu Færeyinga..Shocking.

  Eyjamenn fylltu eyjuna af loðnu.

  Þjóðartekjur jukust um 10,5 %.

  Uppstoppaður geirfugl var keyptur inn í landið á 1.9 milljónir.

  Glaumbær brann og fólkið fann sér annan samastað.....osfr.

  Jamm, aðrir tímar árið 1971 en Frónbúar samt alltaf einhvað að brasa.

  Betri tímar?

  Húsfreyja lætur aðra um að meta slíkt.

  Góðar stundir og gleðilegt ár 2012.


Að lokum sigursæl þjóð.

 victorious Margt hefur verið misjafnt sagt um "heilaga" Jóhönnu og

  ríkisstjórn hennar, en það má hún eiga að hún hefur róið

  "lífróður" til þess að bjarga því sem bjargað varð í hruninuHalo.

  Og þó húsfreyju sem öðrum Frónbúum gangi illa að finna

  "skjaldborgina" heimilanna, þá viðurkennir húsfreyja fúslega,

  að hún hefur það yfirleitt  þolanlegt og svo bara nokkuð ágætt af og til. 

  Á nóg að bíta og brenna, þó lífið hafi verið bæði auðveldara

  og fjárhagslega tryggara fyrir hrun.

  Hefur þjappað þjóðinni saman, að lenda í þessum hremmingum.

  Við styðjum við bakið á þeim sem minna mega sín, eftir sem áður...

  skiptir engu þó fjárhagurinn sé almennt bágari.

  Mottó húsfreyju er: "Ég er jafndauð fjárhagslega, þó ég

  gefi einhverjar 10- 15.000 krónur í hjálparsamtök eða líknarfélög

  tvisvar eða þrisvar yfir árið".

  Húsfreyja telur næsta víst að hennar ágæta frónverska þjóð

  muni lifa hrunið og kreppuna af, líkt og flestar aðrar hremmingar sem

  á hana hafa skollið.

  Við höfum lag á því að sigrast á flestum okkar erfiðu áskorunum með

  seiglunni, fúllyndinu, kaldhæðninni, samstöðunni og lífsgleðinniTounge.

  Stundum detta ríkisstjórnir okkar niður á snjallar lausnir,

  og síðan rata þær einnig í tómar ógöngur, spillingarsukk og svínarí.

  Og þegar illa fer er velferðarsamfélagið okkar skorið niður....og skorið niður.

  Hagur okkar versnar um tíma og þjónustunni hrakar.

  Við erum þessu alvön.

  Spýtum í lófana.

  Borgum brúsann.

  Bölvum helvísku skítapakkinu á Alþingi.

  Hötum fjórflokkana.

  Erum brjáluð út í gjörspillt bankakerfið og stjóra þess með einhverja

  djö.... verðtryggingu á lánum, sem hvergi þekkist á nokkrum stað

  á jarðarkringlunni nema hérAngry.

  Sendum fégráðugum og spilltum pappírssnepla-víkingum tóninn-

  glataður orðstýr þeirra vinnst ekki aftur.

  Og við lifum AF.

  Sigurinn er okkar, því við erum kjarni þjóðarinnar, ísinn og eldurinn,

  hugarorkan og framkvæmdaraflið.

  Góðar stundir.


Slökkt!

  4270506-set-of-six-funny-suns-in-vector-illustrationHúsfreyja rýndi út um

  regnvota bílrúðuna.

  Sólin var heillum horfin,

  hulin dimmgrárri skýjakólgu

  og engu líkara en sveitarfélagsmenn og

  konur Borgnesinga hefðu fundið

  "slökkvarann" á henni einnig,

  og SLÖKKTAngry.

  Húsfreyja var að koma að norðan

  frá Akureyri með bónda, 13 stiga hita og sólskini

  og blíðu, og var nú stödd í Norðurárdalnum.

  Þar var hin norðlenska veðurblíða minning einErrm:

    Sólin,

    sólin var hjá mér,

    eins og grannvaxin kona

    á gulum skóm.

                                 Steinn Steinarr- Tíminn og vatnið (brot).

  "Andskotinn í súrri mysu" Angryhúsfreyja

  gjóaði nærsýnum augum sínum til himins.

  GrárErrm.

  Horfði til beggja handa á landslagið.

  GráttGetLost.

  Fram á þjóðveginn.

  GrárPinch.

  "Tarna er ljótt að sjá" hugsaði húsfreyja örg.

  "Hvurn fjandann hafði orðið um sunnlenska vorið"W00t?

  Húsfreyja dæsti af óþolinmæði Frónbúans sem þolað hefur

  myrkan vetur, þraukað snjóuga daga og helvískan

  bálandi vind slag eftir slag með vetrarlægðum.

  "Helvískur rigningargrámi, bleyta og aur", húsfreyja

  fussaði og sveijaði í huganum.

   "Hann rignir enn, hérna megin heiðar" sagði hún mildilega

  við bónda, sem sat og stýrði bifreið þeirra lipurlega

  á milli vatnsfullra hjólfara á veginum.

  Bóndi jánkaði.

  Húsfreyju varð hugsað til nýafstaðinnar jarðarfarar

  ungrar náfrænku bónda á Akureyri.

  Ung kona um fertugt að kveðja í blóma lífsins.

  Kannski grétu himnarnir henni til heiðurs.

  Nefndi það við bónda.

  "Ég vissi ekki að hún hefði trúlofað sig svona ung,

  og hefði eignast sitt fyrsta barn 18 ára gömul", bóndi

  hugsandi.

  "Stundum er eins og fólk viti, að það eigi ekki langt

  líf fyrir höndum" svaraði húsfreyja.

  "Lífið sem við fáum að láni er stutt,

  en minningin um líf sem vel var varið,

  er eilíf".  Marcus Tullius Cicero (106-43 f. Krist)

  Frænka bónda hafði eignast þrjú börn, átti einn ömmustrák,

  lærði til kennara og starfaði sem slíkur árum saman.

  "Ekki mikið verið að sólunda tíma sínum, frænka þín"

  sagði húsfreyja.

  Bóndi var því hjartanlega sammála.

  "Tíminn er sá auður

  sem menn skyldu síst sóa".

                         Laertius Diogenes (þriðja öld)

 

  Húsfreyja skammaðist sín, fyrir að hafa bölvað

  regninu og grámanum, var allt gott og gilt í

  nátturunni og kemur nýgróðrinum til góða.

  Jamm, en skammast sín ekki neitt lengur í dag, húsfreyjaGetLost.

  Fékk nærri því slag, húsfreyja er hún leit

  út í morgun, er hún vaknaði

  SNJÓKOMA!

  Og það snjóaði bróðurpartinn af deginumW00t!

  Sólpallur húsfreyju er snjóaður í kafPinch.

  Sólin!?

  Ekkert bólað á henni, helvískri.

 

  -Hangir þarna gráum skýjum ofar og glottir,

  púar vindla frá Kúbu,

  snyrtir neglur sínar annars hugar;

  "Kannski ég skreppi seinni partinn í maí

  í smá vorkönnunraleiðangur, og láti ljós

  mitt skína yfir frónverskar mannsálir".

  Blæs á logarauðar neglur sínar, hallar sér

  aftur og leggur sig.

  Vekjaraklukkan er stillt á 20 maí-

 

  Húsfreyja er að flippa af óþolinmæði eftir

  sól og vori.

  Til hvers er að eiga herlegan sólpall, húsgögn og grill,

  ef ekkert er hægt að brúka slíkt fyrir

  argvítans snjó, bleytu og vosbúðErrm.

  Dugir ekki húsfreyu að eiga einn drukknandi túlipana

  í keri úti á sólpalli, sem hangir á grænum snjóskreyttum

  blöðum sínum á kerbarminum af einskærri þrjósku

  og lífslöngun.

  Vill SÓL, SUMARBLÓM, GRILL og langa bjarta, hlýja og þurra daga.

  En húsfreyja hefur alltaf verið kona með kröfur....Whistling

  En aldeilis brilliant hugmynd hjá Borgarbyggðarfólki að

  slökkva ljós yfir bjartasta tímann, ef þeirri "gulu" skyldi þóknast að

  láta sjá sig í sumarbyrjunDevil.

  Ættum að taka þau okkur til fyrirmyndar....nema auðvitað það

  snjói í allt sumarAngry.

  Góðar stundir, húsfreyja er farin út

  að renna sér á rassaþotu 10 ára djásnsinsDevil....í maí-byrjun!


mbl.is Spara lýsingu í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband