Færsluflokkur: Bloggar

Við verðum bara að þrauka....

funny_387  ....úr því sem komið er", dæsti

  öldungurinn mæðulega við matborðið.

  "Fyrst þessi óráðsíumaður á Bessastöðum

  gat ekki skrifað undir"Errm.

  Og þrekinn öldungurinn strauk ístru sína, og

  stundi mikinn enn og aftur.

  "Nú er hann ekki "farlama", eftir enn eitt

  fallið af hestbaki, og algjörlega óskrifandi

  þar með" hvessti grannvaxin karl sig vel roskinnWhistling.

  "Þýðir ekkert að láta mann með mölbrotna öxl

  vera að pára eitthvað á þetta "æsí"-skjal....grannvaxni

  ekki alveg með "Icesafe-nafnið" á tæru.

  "Nei, hann gat alveg skrifað nafnið sitt undir" virðuleg

  frú með alhvítt hár fyrir utan einn gráan lokk á miðri

  hægri hlið, blandaði sér í umræðuna.

  "Hann vill bara leyfa "fólkinu í landinu" að ráða þessu",

  Virðulega frúin lagði þunga áherslu á á orð sín.

  Það hnussaði í þeim íturvaxna með ístruna..."ja,

  það þarf þá að vita eitthvað um málin, fólkið í landinu....

  þessi málaflutningur á þinginu er búinn að vera verra fjaðrafok

  en í hæsnakofa sem minkur hefur sloppið inn í"Shocking!

  Öldungur snýtti nef sitt rækilega hélt áfram: "Þetta hefði

  aldrei farið svona, væri sjálfstæðisflokkurinn ekki orðinn eins og

  reitt hæna, og vinstri menn sígalandi eins og snaróðir hanar".

  "Nú ég hélt að þú værir sjálfstæðismaður, góurinn" gall

  í þeim hvassa, grannvaxna, "ertu máske orðinn

  samfylkingarmaður....eldheitur aðdáandi Jóhönnu"??

  Grannvaxni tók bakföll af hlátri og sló sér á lær.

  "Nei"!  Gamli með ístruna setti í brýrnar.

  "Þá andskotans "furðufugla" er ekkert hægt að tjónka við.

  Vita ekki hvað snýr upp né niður í flestum málum....þó

  Jóhanna sé nú með skásta móti og oft ágæt"!

  Grannvaxni dró auga í pung og glotti.

  "Furðufuglar segirðu.....já það er kannski rétt hjá þér,

  sjálfstæðismenn og vinstri eru þó altént HÆNSNI og þá

  fugla kunnum við á"LoL!

  Nú hlógu þau öll.

  Og gamla virðulega frúin sagði glaðhlakkalega:  "Já,

 við eldum þannig fiðurfé og ÉTUM þaðTounge.

 Þrjúhundruð og tuttugustu umræðu um Icesafe

  var þar með lokið, og öldungar tóku að snæða fiskinn í hádeginu

  af bestu lyst.

  Húsfreyja er svo vel "yfirlýst" í Icesafe-málinu,

  hefur gjört "sáttargjörð" við guð og menn og

  telur sér trú um að það sé afspyrnu skemmtilegt að

  spjalla við breta og Hollendinga....um veðriðTounge.

  ....  ...... ..... .... .... ....

  Kerlingarfálan hún "Ísbjörg" verður svo "vistunarmetin"

  fljótlega, og dæmd algjörlega "óhæf" til að bjarga sér upp

  á eigin spýtur.

  Verður kerla send í "langtímavistun" til skapara sinna, er hreiðrað

  hafa um sig erlendis, með klósett-upphækkun, göngugrind,

  og bleyjurWink

  Þeirra er sköpunin, þeirra verða skítverkin.

  Íslenska þjóðin situr hins vegar uppi með

  vinstri og hægri "hæsnfugla"( ÆTATounge) og svo

  "furðufugla -óæta fjanda" á Alþingi um alla

  ókomna tíð.

  Góðar stundir.


mbl.is Stefnt að fundi í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sextándinn....á nálum?

fun_birthday_cake_card-p137853911390053926tdtq_400  "En mamma, ég er ekkert orðin

  9 ára á morgun!  Ég er ennþá bara

  8 ára".

  Djásnið var með grátstafinn í kverkunum.

  Húsfreyja reyndi að sjöttla málið.

  "Já, en afmælið verður tvískipt, gullið mitt.

  Vinkonur og skólafélagar á morgun þann 15.

  en fjölskylda og vinir á sjálfan afmælisdaginn 16. jan."

  "Já, en mamma þetta er AFMÆLIÐ mitt, og það er ekki eins og það

  sé á HVERJU ári"Devil.

  Svo skellihlógu þær báðar mæðgurnar, og húsfreyju tókst að

  stynja upp, að afmæli væru jú á HVERJU áriLoL!

  Djásnið vildi þá að afmælið skiptist yfir á laugardag

  og sunnudaginn 17. jan, en það var ekki inni í

  myndinni hjá foreldrunum.

  Hvíldardagurinn skyldi "heilagur" og afmælislaus!Halo

  Lágmark að þau hefðu einn dag til að "jafna sig"

  gömlu hróin eftir gestagang, veisluhöld og stuð,

  en það nefndi húsfreyja ekki við djásniðWhistling.

  Djásnið lét segjast.

  Fjósrtán skvísur sátu afmælisveisluna föstudaginn

  15. jan.

  "Ísöldin 3" reddaði miklu, og vakti stormandi lukku.

  Eltingaleikur, feluleikur og blöðruleikir fóru svo af stað

  eftir sýningu með miklum atgangi og látum.

  Læðan lá bálreið inni í hjónarúmi, og mjavraði á skvísur

  sem vildu fela sig þar inni.

  Hennar umráðasvæði í afmælum, hjónaherbergið.

  MJAAAVRRRRAngry!

  Skvísur létu mjavr og reiðilega sveiflu á skotti

  ekkert á sig fá og földu sig tvist á bast.

  Mikið fjör.

  Mikið stuð.

  Upp úr sex tók að fjara út gestagangur hjá

  foreldrum, og sá síðasti kvaddi um kvöldmat.

  -DÆS-

  Foreldrar sælir að hafa lifað af skvísuhremmingar,

  kattarofnæmi og fjör.

  Níu ára djásnið...mínus 1. dagur var alsælJoyful.

  Daginn eftir mættu svo ættmenni öll úr Þorlákshöfn,

  þrátt fyrir að systir í Þorlákshöfn hefði spáð veðravíti með

  mergjaðri ofankomu, snjóhríð og fárviðriDevil.

  Ekki mjög hrifin af ferðum í höfuðborgina við sundin bláu,

  systir í Þorlákshöfn, að vetrarlagi.

  Lét sig samt hafa það þrátt fyrir hrakviðrisspár...sem

  virtust eingöngu hafa heyrst í fjölmiðlatækjum systurLoL.

  Enda regn, hlýtt og smá gola í höfuðborginni afmælisdag

   9 ára djásnsins.

  Einar besti vinur mætti að sjálfsögðu, og hann endurnýjaði

  kynni sín við frændur djásnsins og Svöluna.

  Það var myljandi stuð í barnaherberginu.

  Ljós öll slökkt og "draugagangur" með mesta móti

  enda draugaleikur í gangi.

  Húsfreyja rauk óvart inn í myrkrið með myndavél á lofti

  og baulaði hressilega þegar hún sá ekki glóru.

  Öllu litla liðnu brá all hressilega, og skrækti upp og veinaði

  svo af hlátri, þegar það uppgötvaði að "baulandi vofan"

  var bara húsfreyja í síðu svörtu pilsiTounge.

  Systur 9 ára djásnsins mættu báðar, og Erla og Siggi

  vinafólk úr Þorlákshöfn komu síðdegis.

  Bróðir djásnsins og hans heittelskaða mættu svo í leifar

  í dag, og telja nú foreldrar að "hátíðarhöldum"

  stórafmælis þessa sé opinberlega og formlega LOKIÐGrin.

  Þriggja daga stuð...þetta er eins og Þjóðhátíð í Eyjum...enda

  mætti Johnsen hinn eini og sanni "konungur brekkusöngsins"

  stutta stund í gær (16.) til að ræða við móður húsfreyju um

  málverk eftir listmálara úr EyjumWink.

  Bara svona spjall.

  Níu ára djásnið er nú eftir kaffi

  löggst "undir feld" (bleikt prinsessu-flísteppi),

  með gulan frostpinna úr Bónus, sem ekki gekk út í

  afmælinu og horfir á barnaefni á SKY.

  SPENNUFALL!

  Húsfreyja gleðst í dag sem ævinlega yfir því

  að hún þurfi aðeins að hafa EITT barnaafmæli á ári hverjuWizard,

  enda þarf sterkar foreldrataugar í 3. daga þrotlaust fjör.

  Húsfreyja svo búin að vera hjá sjúkraþjálfa,

  sem telur að vænlegt sé að reka "nálar" á kaf í hold

  húsfreyju, í einhverja "punkta" sem svíða meira undan

  nálinni, en þegar húsfreyja brenndi hálfa hönd sína á logandi

  eldavélahellu hér um áriðW00t.

  Svo "SNÝR" þjálfinn helvískum nálunum í kviku þessari líkaPinch!

  Jamm.

  Hrifning húsfreyju á náladóti þessu er við neðri mörk aðdáunarskala hennar

  á sjúkraþjálfun....svona rétt fyrir neðan og í kringum

  "núllpunktinn"Pinch.

  En er víst allt saman bráðnauðsynlegar "aðgerðir"

  svo húsfreyja megi aftur heilsu ná í mjóbaki sínuErrm.

  -DÆS-

  Húsfreyju fellur alltaf eitthvað til.

  Góðar stundir í vorblíðum janúarmánuði.

 


Nej, fo' fanden!

doha12  Norsarar okkar helstu bandamennPinch.

  Okkar yndislegu olíu-ríku norsku frændur og vinir!

  Sem lána okkur örugglega haug af seðlum...EF..

  ..kannski....mögulega....við Frónbúar leysum

  æseiv...mumlemumle...dei...hrrrmphf!

  "Vi er so gode mod vores islanske venner.....

   bare de löser.. mumle...æseiv....mumle....först".

  Og svo síðar....

  "Ja...men NEJ, Icesave har INGENTING med

  vores hjælp til vores gode islanske venner at göre!

  Aldrig i livet!

  Det har vi ALDRIG sagt....men mumle ...mumle...

  ...æseiv....presidenten deres, sente hele nationen ned

  i det sorteste helvede....mumle...mumle".

  Húsfreyja hefur ef satt skal segja, frekar lítið álit

  á þegnum hins herlega norska kóngs, sem bjargvættum

  og bandamönnum Frónbúa.

  Þessar elskur virðast hafa haft mun meiri áhuga á því

  að gera Leif Heppna norskanAngry,

  og koma sér svo í góða aðstöðu til að græða "smá"

  skyldi "svarta gullið", olían, dúkka upp á yfirborðið við

  strendur litla FrónsWhistling.

  Eða það er mat húsfreyju.

  En máske er húsfreyja bara hundfúl og leiðinleg

  út í sína norsku frændur.

  Hefur engan skilning á "góðsemi" þeirra,

  "gæsku" og "almennilegheitum" í garð

  okkar Frónbúanna.

  Kannski er lánið frá góðfrændum okkar Norðmönnum

  bara löngu komið í hús....þeir máske að tala núna

  um að lána okkur MEIRAWhistling....en þá aðeins

  ef okkur tekst að leysa "Ísbjargarklúðrið" fyrst.

  Og ef til vill er löngu búið að "klóna" Leif Heppna,

  og hann til í mörgum eintökum víða um jarðir...ekki síst

  í hinu dýrðlega veldi norska kóngsinsGetLost.

  Eða hvað?

  Jamm.

  Húsfreyja vill að Frónbúar treysti sem mest á eigin mátt og megin....

  og þeir eigi gott samband við sanna bandamenn eins og Færeyinga.

  Við "hina bandamennina" er betra að vera

  í hóglátu, varkáru og vandlega yfirveguðu sambandi.

  Muna að "auga fyrir auga", "tönn fyrir tönn"-hugsunin

  er rík í millilandasamskiptum.....og þegar fjármál eru

  annars vegar: "Augu fyrir auga" og "tennur fyrir tönn"....

  enda fylgir hverri skuld "vextir og vaxtavextir og vextir

  líka af þeim"Shocking!

  Þessi síðustu samskipti okkar Frónbúa við norska eðalfrændur

  minnir hana á ljóð eitt ágætt:

  Tjaldið lyftist.  Stólar, bekkur, borð.

   Til beggja handa dyr, en gluggi á stafni.

   Kona, sem mælir nokkur orð

   og ávarpar sinn mann með fullu nafni.

   Hann svarar dræmt og tottar tóma pípu.

   Hún þýtur um og þrumar, stygg og pratin.-

   Þau eru hætt að kyssast fyrir matinn.-

   Í þessu kemur þriðji maður inn

   og þykist segja nokkur orð af viti.

   Á meðan er konan mjúk sem eltiskinn,

   en manninn hennar grípur snöggur hiti.

   Þriðji maður fer- og þögn um stund.

   Svo þýtur konan upp og slær í borðið,

   kastar um stólum, kallar mann sinn hund.

   Hann kippist við,- svo biður hann um orðið.

   Hún hvæsir hátt og æsist við hans orð.

   Hún opnar skúffu...Hundabyssuhvellur.

   Morð-

   og tjaldið fellur.

                    "Leiksýning" e. Davíð Stefánsson.

   

  Það er orðið langt síðan að vor íslenska þjóð

  hætti að kyssa þá norsku á munninn fyrir matinn!

  Góðar stundir.


mbl.is Ísland eitt og yfirgefið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrjóskir, ósveigjanlegir, ósanngjarnir...

viking_warrior-765290  ...ræningjar og hryðjuverkamenn!

  Frónbúar allir!

  Jaso!

  Það er aldeilis.

  Við bara "ótíndur rumpulýður" hér úti

  á skeri úti við nyrstu mörk hins byggilega heims.

  Forfeðurnir húsfreyju samkvæmt þessu, ræningjar og glæpamenn,

  og húsfreyja þrjóskur, ósveigjanlegur og ósanngjarn

  hryðjuverkamaðurPinch.

  "Asskoti er að heyra þetta" hefði afi húsfreyju sagt,

  "en "Tjallinn" hefur nú aldrei stigið í vitið, þegar

  kemur að samskiptum við aðrar þjóðir", og afi hefði

  dregið upp rauðköflóttan vasaklút og snýtt sér hressilega.

  Húsfreyja veit ekki betur en að hinir rænandi og ruplandi

  fornu víkingar, hafi bæði "rænt" fólki frá Írlandi og Bretlandseyjum,

  til að hafa með sér sem þræla til Íslands.

  Og að langt er síðan þrælahald var lagt af hér

  uppi á litla Fróni, enda þjóðin löngu orðin blanda

  afkomenda víkinga og þræla.

  Húsfreyju virðist þá nokkuð ljóst að "ræningjagenið"

  hafi við Frónbúar erft frá víkingum,

  á meðan Írar eru dæmdir til að hafa látið

  til falla "hryðjuverkagenið"...samanber IRA og

  Sin FeinWhistling.

  En máske að við höfum svo fengið meingallað "gen" frá

  bresku þrælunum, sem gerir okkur svona ósveigjanlega,

  þrjóska og ósanngjarnaDevil.

  Enda breskurinn ekki þekktur fyrir sveigjanleika og

  sanngirni þegar kom að nýlendustefnu þeirra hér

  áður fyrr.

  Neipp!

  Þá var það mottóið að "drottna og kúga" sem gilti.

  En húsfreyja verður að játa, að það fer okkur ekki vel,

  Frónbúum, að lifa við kúgun og undirokun.

  Fáum grænar reyni einhver að "drottna" yfir okkurSick.

  Búin að reyna það með norskum fyrst og síðan

  með helvískum Baununum öldum saman.

  Lá við að við yrðum "útdauð" sem þjóð þá

  hans hátign danski kóngurinn "drottnaði"

  yfir oss.

  Enda taldi sá hái herra og undirsátar hans

  að myglað og rottuétið mjöl væri fullgott ofan í okkurPinch.

  Eigi að síður þraukuðum við sult og seyru, pestir og náttúruhamfarir

  á þrjóskunni og seiglunni.

  Tækifæri til að vera ósveigjanlegir og ósanngjarnir

  voru enginn hér uppi á litla Fróni lengi vel.

  Svo máske hefur þetta meingallaða "breska gen"

  legið í dvala í okkur þar til núWhistling?

  En er nú "upprisið" með mergjuðum látum og djöfulgangi,

  enda verið vakið til lífsins af argvítans argintætunni

  henni "Ísbjörgu" með djöfullegum peningagræðgiþulum

  og "alþjóðagjaldeyrissjóðssæringum".Bandit

  Þrjósk þjóð?

  Ekki spurning!

  Ósveigjanleg?

  Ósanngjörn?

  Eða einungis að reyna að læra að

  berjast fyrir lífi sínu í hinum stóra suðupotti

  "drottnandi" ríkja og kúgaðra ríkja?

  Ekki gott að segja.

  Fyrst að bæði "ræningagenið" og "hryðjuverkagenið"

 virðast vera í FULL SWING hjá þjóðinni líkaDevil.

  Eða það meinar "Tjallinn"!

  Góðar (ó)sveigjanlegar og (ó)sanngjarnar stundirLoL.

 


mbl.is Hinir þrjósku Íslendingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mister Grímsson.

crop_500x  Var ægilega flottur á því.

  Synjaði lögum um kerlingafáluna

  hana "Ísbjörgu"!

  Við, "pöpullinn" í landinu eigum að ráða,

  segir Mister Grímsson.

  Svona einu sinniWhistling.

  Nema að byrjað verði upp á nýtt í þinginu

  að semja um "kerlingarhelvítið"Angry!

  Þá fer annað ár í ekkisens, árans kjaftavaðal.

  Og þá þurfum við sauðsvartur almúginn ekkert

  að kjósa, frekar en um fjölmiðlafrumvarpið

  eina og sanna.

  Jamm.

  Aftur á "núllpunkt" með óhræsiskerlinguna.

  Nema elskulegir norskir frændur okkar

  segja okkur fara LAAANGT niður fyrir núlliðW00t.

  Beina leið í efnahagslegt SVARTHOL!

  Tóm fokking tjón og tjara í peningamálum frónverskra,

  og allt út af Ísbjörgu.

  Var ekki búið að gefa það út af ÖLLUM mikilsvirtum aðilum,

  bæði norskum, breskum, hollenskum og hvað ekki,

  að kerlingarherfan hún Ísbjörg skipti ENGU,

  þegar kæmi að lánum frá AGS, Skandinavíu

  og fleiri góðum ríkjum til handa vesælum frónbúumW00t?

  Neipp!

  Ekki aldeilis, eftir þessu að dæma!

  Mister Grímson sendi okkur eina herlega salibunu beina leið í

  SVARTHOLIÐ segja yndislegir norskir frændur vorir.

  Ó, vei!

  Vesöld!

  Volæði!

  Blankheit!

  Gjaldþrot!

  Krísa!

  Þraut og pína.

  Jamm.

  En Mister Grímson var flottur, fínn og strokinn í sjónvarpinu.

  Góðar stundir.


mbl.is Segja efnahagslegt svarthol blasa við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonin og ég.

flower                     

                 

 

 

 

 

 

 

               

               Ég.

 

  Hvernig get ég fullyrt,

  að ég sé ég?

  ég, sem hvorki þekki

  minn dag né veg!

 

  Ég greini forhlið mína

  og grýttan stig,-

  en geng að mestu leyti

  á bak við mig.

                              Þorsteinn Valdimarsson.

 

                    Vonin.

 

  Vonin styrkir veikan þrótt,

  vonin kvíða hrindir,

  vonin hverja vökunótt

  vonarljósin kyndir.

 

  Vonin mér í brjósti býr,

  besti hjartans auður.

  Vonin aldrei frá mér flýr,

  fyrr en ég er dauður.

                                          Páll Ólafsson.

 

 

 

Alelda?

heart-on-fire  Hvurslags er þetta?

  Valhöll brann til kaldra kola.

  Lifrarbræðslan-Lýsi í Eyjum brann til kaldra kola.

  Og nú Krýsuvíkurkirkja.

  Þó að öllu hafi verið hleypt í bál og brand í okkar

  frónverska samfélagi undanfarið,

  með tilheyrandi slætti á potta og pönnur

  niðri á Austurvelli, sér húsfreyja enga ástæðu til

  að fara úr eldinum í bálið með því að brenna

  ofan af okkur!

  Hótel!

  Atvinnuhúsnæði!

  Kirkju!

  Hvað er í gangi?

  Ganga um litla Frón mergjaðir brennuvargar,

  sem vilja "ausa olíu á bálið" hjá kreppuþjáðri

  þjóðinni?

  Eða erum við Frónbúar bara orðnir svo uppteknir af

  "kerlingarfálunni henni Ísbjörgu" að við gleymum

  að huga að umhverfi okkar og öryggi?

  Eldvarnir og eldvarnarmál algjört AUKAATRIÐI, þegar

  menn vilja helst eyða jólafríi fyrir framan Bessastaði

  með logandi rauða kyndla á lofti.

  Organdi: NIÐUR með Ísbjörgu!

  Húsfreyja hefur misst heimili sitt í eldi...jarðeldunum í Eyjum 1973.

  Það er einhver sú skelfilegast upplifun sem fjölskyldur

  verða fyrir, að sjá heimili sitt fuðra upp.

  Verða að ösku.

  Allt horfið.

  Ekkert eftir nema minningar.

  Svo farið varlega með eldinn, kæru samlandar,

  og gleymið aldrei hættunni af honum, þó mikið

  gangi á í þjóðfélaginu.

  Góðar stundir.


mbl.is Krýsuvíkurkirkja brann í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2009...

2010_new_year_resolutions_funny_t_shirt-p235184442056247915umhi_400  .."þú veist að þetta verður töff ár hjá

  þjóðinni" þrumaði konan og hló

  stórkarlalega.

  Húsfreyja sat í byrjun árs 2009,

  hjá konu einni með mikla hæfileika, stóra rödd

  og enn stærri hlátur.

  Jú, húsfreyja gat sosum samsinnt því, enda

  bankahrun í algleymingi.

  "Já, hélt sú vísa áfram, það er talan 11,

  sem þvælist fyrir fólki".

  "Nú"?, húsfreyja kom af fjöllum.

  "Sjáðu til vinkona", sú með stóru röddina iðaði í skinninu

  af fróðleik, 2+0+0+9 gerir jú 11, og þeir sem

  ekki hafa unnið baki brotnu að því að talan

  11 verði þeim sem jákvæðust, lenda í í djúpum skít"!

  "Er svona komið að skuldadögum hjá mörgum", konan

  glotti.

  "Jeminn" hugsaði húsfreyja.

  Ekki hafði hún pælt neitt í því að talan 11 gæti komið

  aftan að henni, með skuldadaga og djúpan skít.

  Því síður kunnað að vinna baki brotni til að snúa

  áhrifum ellefunnar sér í hag.

  Bara unnið sín störf eins samviskusamlega og henni

  var unnt, sinnt uppeldi dóttur og stússað fyrir bónda

  og stórfjölskylduna....og notið lífsins í leiðinni.

  "Djísuss, er þetta þá bara allt dauði og djöfull hjá mér

  í ár" spurði hún spákonu.

  "Vð skulum nú sjá" sagði kona drjúg, og lagði spil á borð.

  En sjá!

  Spilin voru bísna happadrjúg.

  Upphefð í starfi og betri laun....húsfreyja varð deildarstjóri.

  Heilsublikið þokkalega gott, með smá bakslögum....nýrnagrjót

  og ellihrumleiki í baki.

  Átta ára djásnið að brillera.....fékk íslenskuverðlaun Menntaráðs.

  Bóndi öruggur í starfi....ekki fengið uppsagnabréf enn, enda

  pottþéttur verkefnastjóri.

  Engin uppboð á húseign eða flutningur.....eins gott því

  húsfreyja á svo fínan sólpallTounge.

  Mútta húsfreyju í góðum gír, ekki að hrökkva upp af á árinu....

  og sá um verkstjórn í smákökubakstrinu hjá húsfreyju í desemberGrin.

  Systur húsfreyju að komast út úr erfiðu tímabili báðar tvær

  á árinu 2009.....horfa fram á bjartari tíma, sól og gleði á nýju ári.

  Fósturbörnin öll að finna innri styrk og getu, þó það hafi kostað

  skilnað við maka hjá eldri fósturdótturinni, sundur-saman-tímabil

  hjá þeirri yngri við sinn kærasta, og fóstursoninn flutning norður.

  Tengdó bæði þokkaleg til heilsunnar...Kanaríeyjaferð í spilunum

  hjá þeim í febrúar að venjuWhistling.

  "En það verður BRJÁLAÐ að gera hjá þér, ef þú hættir ekki

  á þessum vinnustað þínum" konan sprengdi næstum hljóðhimnur

  húsfreyju með raddstyrk sínum.

  "Hætta"!

  "En þetta er það eina sem ég kann" húsfreyja var rasandi.

   "Get ekki bara hætt sisona, í miðju bankahruni og

  kreppufári"!

  Spákona dró auga í pung.

  Dæsti.

  "Jæja, en það verður þá albrjálað að gera hjá þér,

  og alveg fram á vor og sumar 2010".

  "Og þú myndir alveg fá vinnu strax annars staðar,

  þó þú hættir þarna....þú ert þannig karakter"!

  Kona talaði svo hátt, að hár húsfreyju lyftist upp í loft upp eins

  og væri hún stödd í 12 vindstigum á StórhöfðaDevil.

  "Hugsaðu þetta allavega" skipaði spákona hátt og snjallt og

  hló svo tröllslega.

  "Þú ferð nefnilega á "fjarkaár" sem er ár

  mikillar vinnu og erfiðis, með tómum hindrunum og

  hömlum, næsta afmælisdag þinn, svo þú skalt gæta

  vel að heilsunni" hrópaði sú fjölfróða.

  Húsfreyja skakkalappaðist nær heyrnalaus

  út frá spákonu.

  Jamm.

  Húsfreyja varð svo stjóri í vinnunni í lok apríl,

  mundi orð spákonunnar hinnar stóru og bað um og fékk

  talnaspekibók mikla eftir Lafleur í afmælisgjöf.

  Jú mikð rétt. 

  Byrjaði fjarkaár 30.08. 2009!

  En merkilegt nokk, þegar húsfreyja lagði saman fyrst,

  gerði hún það á þennan máta:

  3+0+0+8=11 og síðan 2+0+0+9=11.

  Og svo 11+11=  22.

  Og þó að 22 verði síðan að árstölunni 4,

  þá er 22 einnig meistaratala samkvæmt Lafleur.

  Svo samkvæmt því er húsfreyja einnig á ári

  samúðar og vinskapar.

  Ári tilfinninga, hjálpar og gjafaInLove.

  Er skemmst frá að segja að gjöfum hefur

  nánast rignt yfir húsfreyju frá því í ágústJoyful.

  Frá ólíklegasta fólki.

  Og allir hafa verið einstaklega "vingjarnlegir"

  við húsfreyju í nýju starfi, hjálpsamir og gæðalegir

  við hanaSmile.

  Húsfreyja veit vart í hvorn fótinn hún á að stíga

  af gleði og þakklæti.

  Brjálað að gera?

  Sei, sei jú!

  En ekki óyfirstíganlegt.

  Og þarf aðeins að þrauka álagið fram

  til 30.08.2010, þegar ár breytinga og

  VELGENGNI hefst hjá húsfreyjuWink.

  Ef það ár gengur betur en kreppuárið

  2009 hjá húsfreyju, er næsta víst að hún svífi skýjum

  ofar fram til 30.08.2011LoL.

  Góðar stundir og GLEÐILEGT "ÁT"...hehehe meinleg villa þetta...

  ÁR 2010Grin.

  Megi öll ykkar ár verða góð ár.

 


Blah!....

2649  ..."háttvirtur þingforseti!

  Við drulluðum upp á bak í

  þessu fokking "Ísbjargarmáli" háttvirtur

  þingforsetiPinch.

  Og það finnur bara ekki nokkur maður

  í neinum stjórnmálaflokki

  "skeinpappír" í þessari endanleysu,

  svo við bara stöndum hér og röflum og

  röflum....

  og röflum...háttvirtur þingforseti".

  "Erum verri en staðir asnar, herra þingforseti

  í málaflutningnum...og getum auðvitað alls

  ekki greitt atkvæði um "fokking Ísbjargasamninginn"

  í kvöld...það er algjörlega óásættanlegt, herra þingforseti"!

  "Og sökkvum dýpra og dýpra í Ísbjargardrulluna

  með hverri BLAH-RÆÐUNNI af fætur annarri, herra þingforseti"!

  "Þetta eru ótrúleg vinnubrögð, herra þingforseti...og

  allt kommúnistastjórninni að kenna, herra þingforseti"!

  Djísuss!

  Veit þetta fólk í imbanum að röfla niður á þingi,

  hvernig það kemur fyrir?

  Og síðan hvenær urðu stjórnir sjálfstæðisflokks

  og framsóknar/sjálfstæðisflokks og samfylkingar annars vegar,

  og samfylkingar og vinstri grænna hins vegar, "kommúnistastjórnir"?

  En þetta eru einu flokkarnir sem hafa verið við

  stjórn síðustu 20 ár, eftir því sem húsfreyja best veitGetLost.

  Og þeirra er frjálshyggjan, með bankaeinkavæðingu og útrás....

  og svo seinna bankahruni, "Ísbjargarkreppudans" og kreppufári.

   Er einhver leynilegur "kommúnistaflokkur" á Íslandi í dag?

  Sem sestur er í stjórn landsins í óþökk við guð og frónverska þjóð?

  Og þá máske "nasistaflokkur líka"Shocking?

  Sjíss!

  Húsfreyja er farin inn í rúm með góða jólabók,

  konfektmola og eyrnatappaDevil.

  Neitar að hlusta á svona kjaftæði, þrugl og

  endaleysu.

  Skiptir engu hvaða flokkur/flokkar stjórnar.

  Ísbjargardrullan er komin til að vera...þökk sé

  ofurfrjálshyggju, einkavæðingarugli og útrásarspillingu

  síðasta áratuginn eða tvoSick.

  Á þinginu geta svo menn og konur gert sig að fíflum

  með dómsdags bulli um að "stjórnin" á litla Fróni

  sé búin að fokka öllu til helvítis ALEIN.

  Sök bítur sekan.

  Kjaftavaðall..."og ekki benda á mig", dylur þá staðreynd ekki.

  Húsfreyja verður því þakklát til æviloka,

  að hafa ekki orðið "þingforseti"Devil!

  Góðar stundir.

 

 

 


mbl.is Icesave-umræðu lýkur í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ó, heilagi banani!

laughing-jesus  Og svo var hann bara étinn.

  Ó vei!

  Ætli æðsti biskup breta og öll hans klerkastétt liggi ekki

  í yfirliði yfir vondum örlögum Jesú-bananansGrin?

  Er máske páfinn búinn að frétta af þessu?

  Verða bananar helgir gjörðir, og bannaðir til

  átu um gjörvallan heimHalo?

  Svona "hreinn" matur, sem yrði þá andsvar kristinna

  við "óhreina" svínakjötinu annarra trúfélaga?

  Hvað veit maður?

  En húsfreyja vonar að sú breska hafi haft rænu

  á að geyma bananahýðið, því ekki alls fyrir

  löngu seldist "sultubrauðsneið" með MYND

  af "heilagri Maríu"  í sultunni, á morð fjár...samt var búið

  að bíta í hanaDevil.

  Og einhver mannvitsbrekkan í henni Ameríku

  fór líka með "steikarapönnuna" sína drulluskítuga

  í fjölmiðla ekki alls fyrir löngu,

  því í fitugumsinu birtist mynd af

  Jesú þá búið var að steikja hammarana.

  Jamm!

  Húsfreyja er með myndir af Jesú, Maríu og

  Davíð Oddsyni inni á baðherbergisgólfi sínu.

  Það sjá allir heilvita menn sem nenna að

  dást nokkra stund að gólfflísum hennar þá

  þeir skila af sérTounge.

  Bara blasa við í mynstrinu!

  Dabbinn að vísu töluverða "vegalengd" frá

  þeim heilögu hjúumWhistling.

  En reyndar eru þar líka myndir af úlfalda,

  einhyrning og lúðu svo fátt eitt sé nefnt.

  Humm!

  Húsfreyja ætti máske að plokka upp eitthvað

  af sínum baðherbergisgólfflísum og skella

  til sölu á netinu?

  Þessar líka fínu myndir!

  Þó varla reikni hún með svo mikið

  sem krónu fyrir myndina af DabbaPinch.

  Já!  Og einu sinni birtist þessi líka flotta

  mynd af Geir Haarde á kavíarbrauðsneið

  húsfreyju..... húsfreyja flýtti sér að

  snöfla henni í sigDevil.

  En gaman að þessu.

  Dást að baðherbergisflísunum næst.

  Góðar stundir.

 

 

 


mbl.is Jesús birtist á banana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband