Alelda?

heart-on-fire  Hvurslags er þetta?

  Valhöll brann til kaldra kola.

  Lifrarbræðslan-Lýsi í Eyjum brann til kaldra kola.

  Og nú Krýsuvíkurkirkja.

  Þó að öllu hafi verið hleypt í bál og brand í okkar

  frónverska samfélagi undanfarið,

  með tilheyrandi slætti á potta og pönnur

  niðri á Austurvelli, sér húsfreyja enga ástæðu til

  að fara úr eldinum í bálið með því að brenna

  ofan af okkur!

  Hótel!

  Atvinnuhúsnæði!

  Kirkju!

  Hvað er í gangi?

  Ganga um litla Frón mergjaðir brennuvargar,

  sem vilja "ausa olíu á bálið" hjá kreppuþjáðri

  þjóðinni?

  Eða erum við Frónbúar bara orðnir svo uppteknir af

  "kerlingarfálunni henni Ísbjörgu" að við gleymum

  að huga að umhverfi okkar og öryggi?

  Eldvarnir og eldvarnarmál algjört AUKAATRIÐI, þegar

  menn vilja helst eyða jólafríi fyrir framan Bessastaði

  með logandi rauða kyndla á lofti.

  Organdi: NIÐUR með Ísbjörgu!

  Húsfreyja hefur misst heimili sitt í eldi...jarðeldunum í Eyjum 1973.

  Það er einhver sú skelfilegast upplifun sem fjölskyldur

  verða fyrir, að sjá heimili sitt fuðra upp.

  Verða að ösku.

  Allt horfið.

  Ekkert eftir nema minningar.

  Svo farið varlega með eldinn, kæru samlandar,

  og gleymið aldrei hættunni af honum, þó mikið

  gangi á í þjóðfélaginu.

  Góðar stundir.


mbl.is Krýsuvíkurkirkja brann í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband