Færsluflokkur: Bloggar
13.2.2010 | 18:34
Bongóblíða og helgardans.
Það var bongóblíða á norðurlandinu
síðustu helgi, þá húsfreyja mætti
með 9 ára djásnið, Ísak næstum 5 ára og bónda
í Vestur-Húnavatnssýsluna.
Hrútafjörðurinn var lygilega spegilblár,
og ekki var Miðfjörðurinn síðri.
Ísakurinn var örþreyttur eftir ægilegustu
og lengstu bílferð, sem hann hafði nokkurn tíma farið
og neitaði að snæða kvöldverð hjá langömmu og langafa,
þó sársvangur væri.
Níu ára djásnið hristi höfuðið af vandlætingu yfir veseni í peyjanum,
og snæddi svið af bestu lyst.
Ísak laumaði nokkrum sviðarbitum í munn sér,
þegar hélt að enginn fullorðin horfði á,
og lýsti sig pakksaddan eftir 15 mínútna borðhald.
Eftir kvöldmat, sjónvarp og spjall hjá fullorðna fólkinu,
en Ísak og djásn fóru í leik.
Voru bæði með helling af smádóti og svo Ísak
með eina allstóra flugvél.
Bardagar brutust út.
Ísak vildi hafa bæði "bílskúr og flugskýli" þar sem
djásnið hafði sett upp "stofu og barnaherbergi".
Djásnið kom niður í stofu eitt þrumuský, var búin að
flytja barnaherbergi og stofu þrisvar sinnum fyrir
Ísak, en allt kom fyrir ekki.
Flugvél hans ætíð komin ofan á "sófann í stofunni"
hjá djásninu, og bíllinn upp í "barnarúmið".
Djásnið krosslagði arma bálreið..."það er ekkert hægt að
leika við Ísak, hann skemmir alltaf allt fyrir mér"!
"Svo sparkar hann í mig og potar"!
Krattsjú....BANG!
Hurðin upp á loft, skelltist með látum að veggnum.
"AMMMMMMMMA, hún Bára vill ekki leika við mig"!
Ísak á háa séinu og einni áttund betur.
Liðið háttað, sjöttlað niður með ís og ró og friður féll
á, og svo kom friðsæl nóttin með góðan nætursvefn.
Afi djásnsins og langafi Ísaks dæmdist í sundlaugarferð
snemma laugardagsmorgun, með bæði tvö.
Heppinn að verða ekki að "sveskju" karlinn í heita
pottinum, því Ísakurinn vildi alls ekki upp úr aftur,
það var svo gaman.
Húsfreyja tók að sér stríðsaðila eftir hádegið og
skrapp í fjöru-og gönguferð með þau.
Veðrið var himneskt og fjaran með öllum sínum
leyndu gersemum heillaði.
Samt lítil hrifning beggja á "beinagrind"
löngu étins þorsks, sem lá í fjörunni skammt frá
bryggjunni.
"Oj, mamma, þetta er eins og fiskakirkjugarður hérna",
djásninu mikið niðri fyrir.
"Já, og ég drap hann ekki" hrópaði guttinn alvarlegur í bragði.
Húsfreyja flúði með liðið í hreinni fjöru.
Vinaleg brún hæna, sem kom kjagandi úr hænsnahúsi niður hól
og niður í fjöruna, vakti stormandi lukku.
Ísak vildi klappa henni, en djásnið bannaði allt slíkt,
enda gat hænan goggað í smáa fingur og
svo gat hún "truflast alvarlega" við það, og hætt að
verpa eggjum, yrði hún hrædd.
"Og þá fáum við bara engin egg að borða, Ísak"
djásnið var mynduleg og systurleg í orðum við frænda sinn.
Húsfreyja glotti með sjálfri sér að djúpri visku
dótturinnar, og sá að ekki þýddi að hætta á að
hænur Hvammstangabúa yrðu "alvarlega truflaðar",
og kom liðinu upp með á og undir brú.
Þar áin víða botnfrosin, svo hægt var að ganga þurrum
fótum yfir.
Djásnið vildi "renna" sé að sléttum ísnum, en Ísakurinn
rauk þá í það að hoppa og stappa á ísnum
og mylja hann og brjóta.
Djásnið setti í brúnir.
Þrumuveður í aðsigi og bardagar lágu í lævi þrungnu loftinu.
Húsfreyja ákvað að láta slaga standa og ruslaði liðinu heim
í ömmu- og afakot.
Vala 5 ára var mætt með foreldrum sínum.
Stelpurnar ruku upp í leik með smádótið,
Ísak elti.
Fullorðna fólkið fékk sér kaffi og spjallaði.
Ísaka mætti fjórum sinnum niður, tvisvar organdi
tvisvar klagandi.
Valan mun stífari en Báran að halda sínum hlut,
og gaf ekkert eftir í pústrum, poti og spörkum,
þegar guttinn reyndi að fá sínu fram á þann veginn.
"Auga fyrir auga"..... .
Ömmurnar reyndu að hugga pilt, og bentu honum á,
að það væri betra að "vera með", og láta stríðni,spörk
og pot eiga sig.
Sá stutti ekki á því.
"Ég vil BARA leika við Báru", strákur fúll.
Stelpurnar komu niður þyrstar.
Strákur elti þær fram í eldhúsið.
"Hvenær ætlaðu eiginlega að fara heim, stelpa"?,
peyjinn ekki alveg klár á nafni Völu.
Húsfreyja hló með sjálfri sér, þar sem hún
reddaði glösum og vatni handa skvísunum.
"Þetta er nú hún VALA frænka þín" sagði hún
glettnislega við pilt.
"Vala! Ætlarðu ALDREI að fara heim"? Ísak
ákveðinn og fylginn sér.
En Valan svaraði engu, þakkaði aðeins fyrir vatnið,
og aftur hurfu frænkurnar upp í leik og fjör.
Peyjinn varð að láta sér duga flugvélina sína
niðri góða stund, en fór svo út á róluvöll
með frænkunum síðdegis.
Bara vesen!
Svona og svona samkomulagið litla guttans við
frænku sína Völu og móðursystur, djásnið.
En afi reddaði öllum þrem í sund á sunnudeginum,
hvorki drukknaði né varð að sveskju, þó honum
dveldist lengi morguns með liðið.
En fyrsta ferð Ísaks norður, foreldralaus, gekk bara bísna vel,
svona miðað allt og allt.
Í dag lenti húsfreyja svo í all háskalegum dansi
með 9 ára djásninu og Elinórunni.
Skellti sér á skautasvellið í Egilshöll með skvísurnar...
á skauta!
Húsfreyja hélt að þetta yrði ekki mikið mál,
enda "alvön" að skauta á Vilpunni í Eyjum á
gömlu skutunum hennar múttu sinnar hér í den.
Hva? Þó að hún hafi ekki stigið á skauta síðan
stuttu eftir 12 ára afmælið sitt!
Iss.
Bara spurningin um að finna jafnvægið á ísnum.
Rææææt!
JAFNVÆGIÐ!
Vóóóv!
Húsfreyja greip dauðahaldi í vegginn.
Þar hafði hurð skollið nærri hælum.
Húsfreyju fannst sem hún heyrði bergmálið af nístandi
brothljóði í beinum sínum, og fékk hroll upp og niður
með viðkvæmum hrygg sínum.
Kannski ekki alveg nógu góð íþrótt fyrir konu með
"mergjaðan ellihrumleika" í baki.
"Mamma, þú verður að leiða MIG, þú kannt þetta miklu
betur en ég" djásnið hékk á handlegg húsfreyju.
Hallelúja!
Mamma mía!
Nú voru góð ráð dýr.
Ekki gat múttan játað sig sigraða, og gert sig að algerum
aumingja í augum djásnisins.
En HAMINGJA?
Hvað var þetta?
"Göngugrind" fyrir "vesalinga" á skautum??
JESS!
Húsfreyja reddaði djásninu einni lágri grind
í einum helv...hvínandi hvelli, og sjálfri sér
annari heldur hærri.
Sæla!
Elinóran löngu komin út á ísinn með eina grind.
EKKI MÁLIÐ!
Húsfreyja "skautaði" þvers og kruss um ísinn,
örugg í sinni göngugrind í tæpa tvo tíma.
SNILLD!
En þær slepptu svo allar grindum sínum síðustu
40 mínúturnar, húsfreyja, djásnið og Elinóran,
enda allar búnar að finna einhvern snefil af ekkisens
"jafnvæginu" sem þarf til að geta skautað á hálum ís.
En ekki hægt að segja að þær væru vel stöðugar.
Húsfreyja datt einu sinni niður á hnén,
en skvísurnar duttu hlæjandi af og til á botninn
og skemmtu sér konunglega.
Jamm.
Þær vilja fara aftur að skauta Á MORGUN!
Húsfreyja er enn með hjartslátt yfir því
að hafa þorað að skauta "göngugrindarlaus"
stutta stund.
Hefur ef til vill náð að safna nægum kjarki
í aðra skautaferð næsta laugardag!
Kannski!
Það er svona hugsanlegur möguleiki....!
En alveg örugglega ef það er fullt tungl næsta laugardag, regnbogi
á himni klukkan 11 um morgunin og frónbúar
hafa náð farsælum samningum um "Ísbjörgu"
við breska og niðurlenska.
"ÞÁ" fer sko húsfreyja pottþétt að skauta.
Góðar stundir og góða helgi.
Bloggar | Breytt 22.2.2010 kl. 09:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2010 | 14:35
Hin mikla náð Alla!
Konur margar islamatrúaðar,
eru huldar óhrjálegum svörtum
pokum frá hvirfli til iljar, og sumar jafnvel
með svart net fyrir "augnglugganum"!
Karlar þeirra eru hinir ánægðustu með
þetta fyrirkomulag, samanber "hvert sjáanlegt
konuhár er sem rýtingur beint í hjartað á karlmanni"
( "Aldrei án dóttur minnar").
Og konur jafnvel hýddar á almannafæri
í ýmsum þjóðfélögum islama séu andlit þeirra ber,
eða sjáist örlítið í úlnlið eða ökkla......já og Alli forði oss frá
þvílíkri svívirðu, ef kona klæðist "síðbuxum"!
En Alli karl er sniðugur karl/kona/guð?, og snýr iðulega
á karlrembusvínin sem berja konur til hlýðni og dæma
í forljótar pokadruslur.
Forðar sá hái margri konunni frá hörmulegu hjónabandi
með smá viðsnúningi karlanna á þeirra eigin ólögum.
Megi enginn karl berja ógifta konu augum, þýðir það
að "þú" verður að kvænast konu þinni, "óskoðaða og óséða"
af "þér sjálfum".
Komi svo í ljós á ögurstund, að konan hefur 3 hárugar
vörtur á nefi ( sem konan hefur líklegast "verslað á E-bay",
og fest á sig með dyggri aðstoð kynsystra sinna, og farðað vel)
og hressilega þverkrossuð augu ( líklega af völdum AUGNDROPA,
sem sjálfsagt er hægt að nálgast á E-bay líka),
þá er það eina í stöðunni fyrir hinn "svikna"
brúðguma að "ógilda" hjónabandið samstundis.
Sér húsfreyja fyrir sér að Alli skelli sér á lær í himnasölum sínum,
og hlægi dátt og lengi að óförum forpokaðra karla
sem líta á konur sem falleg húsdýr,
eingöngu brúkleg til undaneldis og þjónustu.
Telur húsfreyja að kona þessi hafi sloppið vel,
og muni eigi syrgja eigimann þennan að
nokkru ráði.....ef þá nokkuð.
Fer henni kannski líkt og skáldinu sem orti:
Um gamla Teit skal grafskrift sú
gerð er sveitir heyra:
Hann át og skeit sem ég og þú.
Ekki veit ég meira.
Sigurður Breiðfjörð.
Góðar stundir á blíðum föstudegi.
![]() |
Fékk að skila rangeygðri konu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2010 | 22:39
Lærisveinarnir tólf?
Minnir frétt þessi húsfreyju, all hressilega,
á aðra 12 menn sem frægir eru í sögunni...
eða réttara, kristinni trúarbragðasögu.
Óneitanlega læðist sá
voveiflegi grunur að húsfreyju,
að heldur séu þeir fleiri en einn,
og fleiri en tveir, fégráðugu Júdasarnir
í þessum 12 manna hóp okkar frónbúanna.
Altént töluvert fleiri en hinum fyrri,
þá Jesú frá Nasaret var verðlagður á
þrjátíu peninga silfurs eftir þokkalega
gott matarboð.
Og telur húsfreyja líklegt að "þrjátíu sinnum
þrjátíu" milljarðar hafi bara verið fínar og flottar
tölur á pappír, nær daglega hjá "Júdusum"
21. aldarinnar......og "grand dinnerar" verið lágmark
annan hvern dag til að fagna "nýjum hæðum"
í milljarðatalningunni, þá búið var
að kaupa banka, verslunarkeðjur og
og stofna leppfyrirtæki fyrir vitaverðlausa pappíra......
Jamm.
Er máske íslenska þjóðin hangandi á "bankahruns-Golgata"
á flísóttum "Ísbjargarkrossi"?
Er þá yfirskriftin þjóðarinnar I.N.R eins og hér í den?
"Illilega Nautheimskir Ratar"?
Eða máske komin ný yfirskrift?
B.S.N?
"Bankarnir Skulda Núll"?
Eða bara Þ.E. L. F.?
"Þið Eruð Ljótu Fíflin"?
Ekki gott að segja.
Enda hvílir "leynd" yfir öllu málinu.
Engin nöfn gefin upp.
Ekki hefur þjóðin gott af því að vita
hverjir hafa "í mesta ógáti, og vegna tæknilegra mistaka"
STOLIÐ peningum frá landi sínu og þjóð.....nú eða já
í versta falli "túlkað frjálslega" lög og stofnað heldur mörg
leppfyrirtæki.
Sei, sei, nei.
Er hvort eð er allt, einn heljarinnar helvískur miskilningur,
sem er allt of flókinn fyrir "Illilega.Nautheimska .Rata" að skilja.
Kreppa HVAÐ?
Góðar stundir.
![]() |
12 hafa fengið bréf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2010 | 12:09
Hryssingslegur febrúarmorgun- ljóðrænar pælingar.
Húsfreyja var árrisul þrátt fyrir
frídag.
Kom 9 ára djásninu í skóla,
smellti sjálfri sér í stórþvott í baðkarinu,
og þvoði af sér áhyggjur og stress gærdagsins.
Einn háaldraður öðlingur hafði loksins fengið
farseðilinn sinn í "Sumarlandið" um nóttina, svo
að í nógu var að snúast hjá húsfreyju í vinnunni.
Sá gamli hafði fengið prest til sín daginn áður,
til að reka endahnútinn á jarðarfarartilhögun sína,
þrátt fyrir að hann væri alls ekki fárveikur, aðeins með kvef.
Húsfreyja hafði þá þau orð við öldung, að hann væri svo hress,
að varla færi hann að yfirgefa hana.
Henni þætti svo notalegt að hafa hann á deild sinni.
En gamli virðist hafa vitað lengra nefi sínu,
í fyrradag, og svaraði að bragði:
"Sigríður mín, enginn getur lifað að eilífu".
Og viti menn.
Næsta morgun var hann allur.
Æfina teygir enginn par
allt helveginn skundar,
kóngar deyja og kotungar,
kattagrey og hundar.
Eyjólfur Stefánsson Ytribrekkum.
Svo húsfreyja mátti kalla til lækna,
kalla til ættingja,
kalla til djákna
og síðast en ekki síst "útskrifa" sinn elskulega
öldung.
Hans verður sárt saknað á deildinni, enda
öðlingur mesti.
Húsfreyja svo nýkomin frá sínum sjúkraþjálfara.
Fékk nudd og höfuðhnykkingar...mesta furða að haus hennar
hangir enn þá fastur við búk.
Allt í hnútum, bólgum og verkjum frá herðum upp í hnakka.
En húsfreyja skrapp svo í fjöruna eftir hnykkina.
Þar arfareiðir og sárir æðarfuglar sem "úuðu" og púuðu
á húsfreyju, fyrir það að mæta "brauðlaus" á svæðið.
En veðrið var frískandi og sjávarorkan góð.
Veðrið er hvorki vont né gott,
varla kalt og ekki heitt.
Það er hvorki þurrt né vott.
Það er svosem ekki neitt.
Jónas Hallgrímsson.
Húsfreyja kíkti svo aðeins yfir fréttir er heim kom.
Heldur var það allt dapurlegt.
Fiskveiðimálin:
Það er ekki þorsk að fá
úr þessum firði.
Þurru landi eru á
og einskis virði.
Páll Ólafsson.
Svo voru það kreppan, kerlingarfálan hún Ísbjörg og
stjórnmálaþrasið:
Satt og logið sitt er hvað,
sönnu er best að trúa.
En hvernig á að þekkja það
þegar flestir ljúga?
Páll Ólafsson.
Svo var sitt af hverju um konuskort í fréttamennsku,
ömurleg frétt um 16 ára stúlku sem var grafin
lifandi í Tyrklandi og íslensku meðferðarheimili lokað
vegna kynferðisbrota á stúlkum:
Heimskra manna háttur er
að hæða konur í orðum,
útaf þeim þó allir vér
erum komnir forðum.
Jón Bjarnason Presthólum.
Er svo á norðurleið, húsfreyja, með sína litlu
fjölskyldu.
Kíkt skal í vísiteringu til tengdó yfir helgina.
Kötturinn finnur ýmislegt á sér, og er komin
í felur undir sófa.
Verður sú ferfætta dregin undan honum af hörku og
miskunarleysi rétt fyrir brottför, því 9 ára djásnið
hreyfir sig ekki af bæ nema kattarrófan fylgi með -DÆS-.
Góðar stundir og eigið öll ljúfa og góða helgi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2010 | 18:15
Illur grunur....
...læðist nú að húsfreyju.
Frónverskir bankar eru grunaðir
um að vera "ótýndir glæpabankar",
með ýmislegt miður fallegt í pokahorninu.
Það er maðkur í mysunni.
Mjölið ormétið.
Kaldur hrollur hefur löngum hríslast upp eftir baki húsfreyju
frá bankahruni, þá hún legið hefur í þungum þönkum yfir
frónverskum bankamálum og kreppufjanda.
Hafa henni fundist skýringar fyrrum bankastjóra á
málum fyrir hrun vægast sagt ískyggilegar.
Óljósar.
Með eindæmum vitlausar.
Eða hrein og klárt óskiljanlegar.
"Það átti engin von á ÞESSU", hefur verið
afspyrnuvinsælt orðtak þeirra vísu bankamanna.
"Það fór bara ALLT til helvítis" önnur eftirlætis setning.
"ÞETTA", þar með orðið helvískur óskilgreindur skaðvaldur
á heimsmælikvarða, þegar kemur að fjármálum bankanna.
Og af hverju "ALLT" ákvað allt í einu upp á eigið eindæmi
að demba sér í óafturkræfa salibunu til kölska gamla í neðra,
veit enginn bankafjármálasnillinganna fyrrum.
Það er "dálítið á huldu".
"Örlítið óljóst"!
En nú er samt ýmislegt að koma í ljós.
Áttmenningarnir sem settir voru í það að skoða bankamálin
eru að átta sig á því að "stæki stenkurinn" sem hefur
alla verið að kæfa og drepa hér fjárhagslega uppi á litla Fróni,
á sér skýringar.
Og nú liggja bankarnir undir grun.
Jamm.
En þá læðist sá illi grunur að húsfreyju,
að það séu aðeins "gömlu steindauðu" og
löngu AFSKRIFUÐU bankarnir okkar frónbúanna
sem liggja undir grun.
"Flunkunýju" bankarnir okkar með silfurtæra orðsporið og nýju nöfnin,
sem tókst á svo snilldarlegan og næstum yfirnáttúrulegan máta
að BJARGA skuldum okkar frónbúa frá því að leysast upp í
gufu afskrifta og réttlætis, þeir verða ekki sóttir til saka.
Sei, sei nei.
Þar er allt í góðum gír.
Allir "happy", heiðarlegir og hjálpsamir.
Enda allir frónverskir bankar, "nýjir jafnt sem gamlir"
alveg brilliant snjallir í að "standa að framkvæmdum skattalaga"!
Góðar stundir og gangi ykkur vel að safna til "hörðu áranna"!
![]() |
Gruna banka um skattalagabrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2010 | 18:45
Ferfættur gjaldmiðill.
Eitthvað finnst húsfreyju
vísundar vera "óþjáll" gjaldmiðill,
og svona dálítið fyrirferðamiklir í því hlutverki.
En sjálfsagt veður ekki almúginn
í Malasíu í peningum um þessar mundir, frekar en
"Ísbjargarokaðir" Frónbúar uppi á litla Fróni,
svo vísundar sem "sekt" er máske besta mál
fyrir smá "dodo-brot".
Jamm.
En svona þegar húsfreyja fer að hugsa málið,
þá er þetta máski framtíðin, hvað gjaldmiðla varðar,
hér uppi á Fróni.
Krónan er klikk, krúnk og botnsokkin sem gjaldmiðill.
Evran stendur höllum fæti, og vor íslenska, "alvitra"
Vikuvölva spáir henni mergjuðu "hruni" á árinu 2010...
og ekki lýgur hún frekar en Dabbi og Mogginn.
Það veit hver heilvita maður.
Dollarinn rambar á fjármálabarmi brasks og stríðshelvíta
vestan hafs, milli þess sem hann dúndrar niður í
sér amerískt fjármálavíti, sem tíð
rosatjón af fellibyljum og illa öfugsnúið opinbert
kerfi valda reglulega.
Svo ekki eru það vænlegir kostir í "gjaldmiðilskrísunni"
hér hjá oss þjáðum af bullandi "útrásarkveisu"og
"bankahrunsdrullu".
Ó, sei, sei nei!
Máske það verði þá ofan á að fara aftur út í hrein og klár
"vöruskipti".
Húsfreyja röltir þá væntanlega öll næstu mánaðarmót
út í sinn "fébanka" og fær útborgaða 8 og hálfan "sauð"
fyrir störf sín....8 lifandi á fæti, einn hálfan, frosinn og steindauðan.
Sá frosni fer í skottið, en svo röltir hún bara með hina 8 í Bónus.
Skiptir á 3 þeirra fyrir 10 rúllur af skeini, 2 fernur af mjólk (gulri),
dollu af Smjörva, skyrdós, brauði og matarkexpakka frá Frón.
Fer svo með hina fimm sem eftir eru á útsölurnar í Smáralindinni,
fær úlpu á 9 ára djásnið, sokka á bóndann og pils á sjálfa sig í Debenham fyrir 2 þeirra,
og kaupir bland í poka, örbylgjupopp og smávegis af gosi ásamt
Vikunni, Séð og Heyrt og Lottó fyrir 1 sauð.
Heill sauður fer svo í að fylla helvískan bensíntankinn,
og kemur svo húsfreyja við hjá "skattmann" á heimleiðinni og skilar
honum síðasta lifandi sauðnum.
Sá hálfi frosni í skottinu er svo steiktur, sneiddur og étinn
þegar heim er komið.
Meeehheeee.
Góðar stundir.
P.S. Verð að skella hér einni góðri í lokin:
Það er dauði og djöfuls nauð
að dygðasnauðir fantar
safna auð með augun rauð
en aðra brauðið vantar.
Sigurður Breiðfjörð.
![]() |
Gert að greiða vísunda í sekt fyrir hjúskaparbrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 4.2.2010 kl. 17:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.1.2010 | 18:16
Baráttujaxlar....
...í myljandi góðum gír.
"Strákarnir okkar"!
Vel af sér vikið, strákar.
Þið eruð komnir í undanúrslit.....YESSSS!
Frábært!
.... .... .... .... .... .... .... ..... .....
Húsfreyja kvaddi vinnufélagana
í fyrra fallinu í dag því systir úr Eyjum
var mætt að læknast.
Smellti leiknum á í útvarpinu í sinni herlegu bifreið.
Fór á límingunum....14:16....skipti á Léttbylgjuna
til að róa taugarnar.
Náði í systur í Spöngina, og 9 ára djásnið á
frístundaheimilið.
Brennt af stað í Rúmfatalagerinn.....þar útvarp í botni....
16:19....húsfreyja reyndi að ná fyrir hverjum á meðan
afgreiðsludaman skar niður plastdúka í gríð og erg
fyrir systur í Eyjum.....úúú þraut og pína!
Niður á flugvöll, systir aftur á leið til Eyja með
flugi klukkan 16:45.
Ekki nokkur maður að tékka sig inn......
Ekki nokkur maður á desknum að TÉKKA INN.
Grímur Þórðar/Hallgrímur Þórðarson frændi húsfreyju,
söngmaður, lífskúnstner og Eyjamaður af lífi og sál
hentist inn um dyrnar.
Heilsaði húsfreyju með kærleikum....leit í kringum sig.
Tók strikið inn í innri sal.
Húsfreyja, djásn og systir á eftir.
Þar sat haugur af Eyjamönnum á leið út í Eyjar.....
sumir inntékkaðir aðrir ekki.
Leikurinn á fullu í litlu sjónvarpstæki.
Það var dramatísk, spennuþrungin þögn.
Nokkrar mínútur eftir af leiknum.
Okkar menn tveimur mörkum yfir.....og tæpar10
mínútur í flugtak út í Eyjar.
Húsfreyja kannaðist við marga.
"Þið eigið eftir að missa öll sem eitt af fluginu",
sagði hún glaðhlakkalega yfir hópinn.
Hlátur og fliss.
"Skítt með eitt flug", svaraði síðan karlmaður,
"aðal málið að klára leikinn"!
"Það má alltaf hanga á flugvélavængjunum" hvíslaði
húsfreyja að konu einni...sem var farin á límingunum og
horfði á leikinn með "hnakkanum"!
Farþegar allir sátu sem fastast......aaaargh leikhlé.
Og þegar sigur var loks í höfn, voru 3 mínútur
í brottför.
Vélin var ekki komin í loftið þá húsfreyja ók frá
flugstöðinni rétt fyrir klukkan fimm, og glotti illyrmislega
er hún hugsaði um skerminn á stöðinni, þar sem hafði allan tímann staðið:
FLUG-VESTMANNAEYJAR.........."Á ÁÆTLUN"!
Handboltinn hjá strákunum okkar er altént á áætlun,
þó margur Eyjamaðurinn hafi mætt í seinna lagi í sína heimabyggð.
Góðar handboltastundir.
![]() |
Ísland í undanúrslit á EM |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2010 | 18:36
Flórland?
Hlaut að koma að því að harðnaði verulega á dalnum
hjá þeim sem hafa verslað kannabis sem grimmast hér uppi á litla Fróni.
Kreppan segir til sín víða.
Svo nú eru kannabisneytendur komnir
í bullandi gróðurhúsabíssness, með
hjálp "billegu" orkunnar frá Orkuveitunni.
Nema laganna verðir eru á útkikkinu þá
lesið er af rafmagni, og vísitera þá reglulega
sem fara úr "venjubundnu lágorkuverði" í "svimandi hátt" verð.
Og PÚFF!
Öll uppskeran "handtekin"!
Gerð upptæk!
Send í gjöreyðingu í Sorpu.
"Gróðurhúsabændur" færðir til yfirheyrslu.
Rannsakaðir!
Hirtar af þeim ljósagræjur.
Standa uppi slyppir og snauðir.
Kannabislausir!
Jamm.
Það er misjafnt sem ergir mannanna börn.
En nú sér húsfreyja fyrir sér að þar sem
stendur til að "endurskipuleggja rekstur hins opinbera
frá grunni, til þess eins að ná fram jöfnuði í ríkisfjármálum
ekki seinna en árið 2013", með tilheyrandi niðurskurði
og "tali um" uppbyggingu, væri lag að byrja nú einu
sinni endurskipulagninguna í "Landbúnaðarmálaráðuneytinu".
Jú, því þá það?
Hér á landi er allt á myljandi uppsiglingu hvað varðar
"hlýnun jarðar"....eða svo segja flestir spakir vísindamenn og "grænt" þenkjandi fólk.
Enda Frónbúar verið með vorveður allan janúarmánuð,
og sér vart fyrir endann á blíðviðrinu.
Nú ætti því hæstvirtur landbúnaðarmálaráðherra að
"skilgreina" litla Frón og ræktun þess alveg upp á nýtt.
Láta gera víðtækar kannanir á jarðvegi um allt land,
og láta meta hvað grær "best" á hverju landshorni
fyrir sig, þegar HLÝTT og NOTALEGT fer að verða
nær allt árið um kring hér á norðurhjara.
Skipta jafnvel landshlutunum upp í "gróðrarreiti".
Þá gætu málin litið svona út, ímyndar húsfreyja sér:
Drífum okkur í bullandi samkeppni við þá hollensku í túlipanaræktinni á Vestfjörðunum,
ásamt fjörukálsrækt, rófurækt og radísum.
Ráðumst svo í brjálaða samkeppni við enska um
rósarækt í Þykkvabænum, svona meðfram kartöfluræktinni.
Á austfjörðum er það svo ekki spurning: Við ræktum BRÖNUGRÖS
í stórum stíl...í heilu andskotans breiðunum svona til að mynda
jafnvægi við alla skógana sem spretta þar tvist og bast, svo vart verður þverfótað.
Norðurlandið verður svo með eðal "villta" flóru litla Fróns
á sínum snærum....sólfíflana, holtasóleyjarnar, fjallagrösin,
bláklukkurnar, vallhumalinn og arfann....eitthvað verðum
jú að eiga af íslenskum jurtum í öll jurtakremin, sem seljast
svo grimmt til túrista.....og nokkurra þokkalega vel efnaðra Frónbúa.
(Við hin notum NIVEA úr Bónus eftir sem áður)
Vesturlandið utan fjarða verður svo með "graskerarækt"
ásamt melónum, appelsínum, eplum og sítrónum.
Hvergerðingar fara út í "ofurtómata" og "súpergúrkur",
eingöngu.
Í Vestmannaeyjum verður hægt að versla sér poka af SÖL,
í nesti á gólfvöllinn.



![]() |
Kannabis víða ræktað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2010 | 21:41
Verndarenglar.
Það er skaðræði að lenda í
hálku og missa stjórn á bifreið sinni.
Það var vel að Johnsen slasaðist ekki,
og gott að hann trúir á sína verndarengla.
Þeir hafa svo sannarlega staðið vaktina með
Johnsen hér, og reddað sínum manni.
Húsfreyja á nokkra ágæta verndarengla.
Og þó hún hafi ekki barið þá augum, þá finnur
hún iðulega fyrir návist þeirra og vernd.
Faðir húsfreyju sagði oft þá húsfreyja var barn
að aldri, að "verndarenglar" hennar
hefðu í nógu að snúast.
Húsfreyja er innilega sammála föður sínum,
enda fór hún í gegnum alla sína bernsku og unglingsár
með einn olnboga úr lið og einn sprungin botnlanga.
Þó hékk hún af og til sem lítil skotta á annarri hendi á nibbu
uppi í Dalfjalli með brimurðina 200 metrum fyrir neðan
fætur sér, og ekkert á milli hennar og urðarinnar
nema súrefni og kolvetnissambönd.
Hún stóð margoft á miðjum leikvelli í hringiðu mergjaðs
"grjótkastleiks" stærri drengjanna, þar sem sauma
þurfti "sundurskotin" andlit á öðrum hverjum manni
á eftir, án þess að svo mikið sem eitt grjót kæmist í tæri
við hana.....nema auðvitað þessi óláns smásteinar sem
rötuðu oní strigaskóna hennar.
Hún fór í "eltingaleik" við Allan og Ellu vini sína uppi á
tveggja metra uppslætti á nýbyggingum.....datt aldrei.
Óð á fleygiferð niður skriðuna í vestari öxl Helgafells
í niðamyrkri, á leiðinni heim í Grænuhlíð frá Unni vinkonu...
og kom ætíð heim heilu og höldnu.
Jamm.
Verndarenglar eru bara snilld.
Því trúir húsfreyja.
Var svo fyrir austan fjall með 9 ára djásnið í regninu
í dag.
Vísiteraði múttu sína og systur í Þorlákshöfn, á meðan djásnið
tapaði sér í fjöri og leik með frændsystkynunum.
Vinkona múttu var mætt í kaffisopa einnig og spjall.
Myndir voru skoðaðar af ferð mikilli til London á því herrans ári
1990.
Þangað höfðu húsfreyja, mútta hennar og systir í Þorlákshöfn
ásamt Sóleyju vinkonu systur, skroppið að berja dýrð
bretadrottningar augum...og kannski versla smá.....systir og
Sóley voru í búðarham!
Vinkonu múttu fannst gaman að sjá myndirnar og heyra
ferðasöguna , þó gömul væri...og notaði óspart orðin "lekkert"
og var þetta ekki "draumur" til að lýsa hrifningu sinni.
Þegar myndaskoðun var lokið fékk mútta húsfreyju hugljómun.
Tuttugasti og þriðji janúar er jú einn minnisstæðasti dagurinn
í sögu Eyjanna á síðustu öld,
og í dag eru því nákvæmlega 37 ár frá upphafi eldgoss í Eyjum.
"Já, dóttir góð", segir húsfreyja hátt og snjallt, "í dag eru heil 37 ár
síðan við sigldum á Danska Pétri frá Eyjum".
"Já, og var það ekki alveg DRAUMUR"? segir vinkonan að bragði,
enn með hugann við skemmtireisur og siglingar.
Múttan leit á húsfreyju og húsfreyja á múttuna...svo
brjáluðust þær báðar af hlátri.
Sex klukkustunda sigling í æluveðri og brælu, um hánótt,
með kjaftfullum fiskibáti af Eyjamönnum
sem voru mismikið ælandi og hundveikir,
og með sjónina af eldspúandi sprungu rétt fyrir ofan Kirkjubæina
brennimerkta í sálina, var svona ekki hugmynd þeirra mæðgna um
"draumasiglingu"!
Vinkonan leit furðu lostin á mæðgurnar sem veinuðu af hlátri.
"Hva, kom eitthvað upp á þarna"!
Múttan missti sig alveg í gassahlátrinum, en húsfreyju tókst
að stynja upp: "Hahahaha..já, það má segja það..hehe..eitt
lítið eldgos nánast í bakgarðinum hjá okkur".
Vinkonan náði ekki alveg gráglettninni, en brosti þó.
Kvaddi svo um síðir og systir skutlaði henni heim.
Systir hringdi svo út í Eyjar í dótturina og varð tíðrætt um
"draumasiglinguna" okkar eyjamanna þarna fyrir 37 árum,
og það um hánótt á fiskikoppi.
Svo húsfreyja glotti meinlega, og sagði að líklega
hefðu eyjamenn ekki getað búist við neinu betra í svona
"snöggri hoppferð"!
En eitt er húsfreyja alveg með á tæru.
"Verndarenglar eyjamanna allra" stóðu sig aldeilis brilliant flott
þessa örlagaríku nótt.
Verst að þeir gleymdu að ræða við "veðurguðina" um skárra
sjóveður.
En góðar stundir og megi þið ætíð njóta verndar ykkar góðu engla.
![]() |
Árni Johnsen velti bíl sínum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.1.2010 | 17:52
Sandkorn og sögur í eilífðinni.
Kristín mín er mesta gull
mannleg jafnt í hönd og sinni.
Við skulum bæði vakna full
vina mín, í eilífðinni.
Stálminnið húsfreyju hrökk í gírinn.
Hún hafði náð vísunni.
Eftir að hafa heyrt hana einu sinni.
Hún kvaddi þá öldnu eftir stutt orðaskipti.
Gamla konan brosti glettin og rölti áfram eftir ganginum.
Húsfreyja hafði verið að ræða við þá öldnu
um mannanöfn, og minnst á það að móðir hennar
bæri hið góða nafn Kristín.
Og sú gamla hafði mælt vísuna af vörum skýrt
og með blik í auga.
Hikaði einungis er húsfreyja innti hana eftir nafni skálds,
og mundi ekki.
"Minnissjúkdómar eru óhræsi" hugsaði húsfreyja,
og sagði það í góðu lagi þó ekki myndi hún nafn skáldsins.
En vísan er bísna góð, þó ekki kunni húsfreyja skil á
höfundi hennar, og vonar að ekki komi að sök þó
hún prýði pistil sinn með henni.
Móðir húsfreyju, Kristín kenndi húsfreyju marga
vísuna og ljóðið þá húsfreyja var lítil skotta.
Gladdist móðirin ætíð yfir því hve fljót litla skottan
hennar lærði ljóð, vísur og þulur.
Dásamaði stálminni dótturinnar, og þakkaði það
arfi frá föður og föðurafa skottu, enda þeir
fljótir að grípa á lofti stökur, ljóð og vísur og dunduðu
sér við að semja slíkt sjálfir af og til.
En það var ekki alltaf dans á rósum hjá Kristínu að eiga
stálminnuga litla skottu, því sú stutta mundi einnig
"heilu samtölin" yfir kaffibolla, ef því var að skipta.
"Leynilegu samtölin" fullorðna fólksins ekki undanskilin.
Og sú stutta var einnig spjallari mikill, og þurfti
að fá hlutina á hreint, ræða við mann og annan.
Afi og faðir húsfreyju rifjuðu iðulega upp eftirfarandi sögu:
Kristín hafði fengið eina ágæta konu í heimsókn
í eldhúsið á Eiðunum snemma sumars.
Kona sú var mikið gæðablóð, en hafði ætíð mikinn
áhuga á málum annarra, og fylgdist grannt með
gjörðum þeirra.
Þurfti síðan að ræða málin og brjóta þau til mergjar.
Og nú var sko aldeilis mikið sem þurfti að spjalla.
Kaffið rauk í bollanum, og konan stöð á öndinni af og til
í frásögninni.
Skottan hafði tyllt sér undir eldhúsborðið, með Brúna bangsa,
Hvíta bangsa og Lubba, smávegis af Gleyméreyjum og Sólfíflum
og duddaði við að skreyta "tuskuleikfélaga" sína.
Hlustaði af athygli.
Þegar faðir skottu kom heim úr vinnu stóð kona upp,
blikkaði móðurina, setti fingur á varir og hvarf á braut.
Daginn eftir á laugardegi, var öll fjölskyldan svo heima nema afi.
Önnur yngri kona, sem Kristín þekkti frá því að hún hafði
starfað í Vinnslustöðinni, mætti í þrjúkaffið.
Konan var kölluð Didda (nú verða flest öll nöfn tilbúningur einn),
og fljótlega barst talið að skemmtilegum dansleik í Samkomuhúsinu
helgina á undan.
Skottan sem var að reyna að kvelja nágrannaköttinn Spægó
á gólfinu, sperrti eyrun.....Didda....ball....vann í fiski....!
BINGÓ!
Reis upp með hraði.
"Mamma, er þetta hún Didda í fiskinum, sem fór á ballið
og kyssti hann Góa manninn hennar Jóu...og..og Jóa varð
svo reið að hún sló háhælaskónum sínum í hausinn
á Góa...að það kom ægilega mikið blóð og svo varð
læknirinn að sauma á honum hausinn...ha, mamma?
Didda var orðin blóðrauð í andliti.
Faðir húsfreyju var kominn með mergjaðan kverkaskít...
hóstaði og ræskti sig.
Móðirin, Kristín, hafði gripið hönd fyrir hjarta sér, og
horfði bænaraugum á mann sinn, sem virtist vera að kafna
á eldhúsbekknum.
Skottan leit hvasst á föður sinn, "er ekki lagi með þig, pabbi"?
"Jú..hrrummppp..huu.hu.."stundi faðirinn upp.
Didda stóð snöggt upp.
Sagðist verða að flýta sér heim.
Kristínu tókst að stama einhverju þakklæti fyrir komuna.
Foreldrarnir fylgdu Diddu fram í forstofugang.
En skottan var ekki búin.
Var ekki á þeim buxunum að láta Diddu sleppa svona vel.
"Mamma, af hverju var Didda að kyssa mann sem hún
átti ekkert sjálf".
Didda þeystist út um dyrnar á Eiðunum, og fór á blússandi
fart niður sundið að gömlu rafstöðinni og hvarf von bráðar
sjónum.
Skottan hljóp fram í dyragættina og horfði furðulostin á eftir Diddu.
"Mikið voðalega var hún Didda að flýta sér, mamma"!
Leit við.
Móðirin stóð með aðra hönd fyrir munni sér, en hin var
komin upp á enni.
Horfði örvæntingafull á 4 ára skottuna.
Faðirinn veinaði upp, og hélt um kvið sér í keng,
þar sem hann reyndi að standa á fótunum við
stofugættina.
Skottuna var farið að gruna að pabbinn væri að hlæja.
Hún varð eitt spurningamerki.
"Pabbi, sagði Didda eitthvað sniðugt"?
Faðirinn grét af hlátri og kom ekki upp orði.
Móðirin reyndi stutta stund að halda virðingu sinni í stöðunni,
en gafst upp og skellti upp úr.
"Hvað er svona skemmtilegt" vildi nú skottan fá að vita.
"Við erum bara svona glöð og kát" flissaði faðirinn á
milli hlátraskalla og þá tók skottan undir, því hlátur
pabba var svo smitandi.
Svo hlógu þau öll vel og lengi.
Afi skottu fékk svo að heyra alla sólarsöguna,
er hann kom heim af vakt í "Brasinu" um kvöldið.
Það krymti í afa er hann hló, og svo fékk "lambið hans afa"
hálfan Tópaspakka til eignar frá honum, fyrir það að
"taka svona vel á málunum"!
Skottan hafði ekki hugmynd um hvað afi hennar var að tala,
en það var aldeilis fínt að fá allt þetta Tópas.
(Húsfreyja man svo ekki eftir því að Didda hafi komið aftur í
heimsókn á Eiðana, á meðan hún bjó þar.)
En faðirinn greip skottuna í fang sér, fleygði hennir upp í loft
og sagði glaðhlakkalega: "Betri er belgur hjá, en barn"!
Skottan hafði ekki heldur hugmynd um hvað faðirinn var
að tala, en var ánægð með alla athyglina.
Já, stálminni getur komið sér vel á stundum.
En það getur verið vandfarið með slíka náðargáfu
og ætíð skyldi aðgát höfð í nærveru sálar.
Góðar stundir
Bloggar | Breytt 23.1.2010 kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)