7.5.2012 | 20:19
Einföld tæknileg mistök...
...áreiðanlega að hrekkja fólk hér í bókhaldinu
.
Tómur misskilningur, klaufaskapur og seinagangur
sem auðvelt ætti að vera að kippa í liðinn.
Þorláksbúðarfólk sjálfsagt búið að sitja sveitt við
að reikna, og reikna en fær svo ekki tölvufjandann
til að "staðfesta" þegar þeir reyna að senda
ársreikninginn til Ríkisendurskoðunar.
Það öfugsnúna vandamál kannast húsfreyja vel við,
því hún hefur nokkrum sinnum dundað sér við að kaupa sér flugmiða
"rafrænt".
Jafnvel eytt heilu kvöldunum við þá iðju, þar sem hún brasar við
það með tunguna í munnvikinu á sínum snigilshraða,
að skrá allt NÁKVÆMLEGA, kennitölur, dagsetningar, áfangastað,
nöfn, heimilisföng, netfang..og netfang aftur, til þess eins að fá:
" Ekki var hægt að staðfesta kaup á flugmiðum, því þetta flug er UPPSELT".
Einhver tölvusnillinn búinn að stökkva á síðustu flugsætin, á
fjórðungi þess tíma sem tók húsfreyju að skrá netfangið...tvisvar.
Aaaaaarrrggh!!
En húsfreyja hefur trú á Þorláksbúðarfólki, og telur að það
eigi eftir að koma út í myljandi plús....jafnvel sendi inn 5
ársreikninga ár hvert, til þess eins að bæta fyrir klaufaskapinn.
Skáli Þorláksbúðarfólk síðan grimmt í Skálholti fyrir Þorláksbúð og
nýrri "biskupskutlu" á sumri komanda, og gleðjist yfir
renneríi af ferðamönnum borgandi snarhækkandi "skoðunargjald",
þá ný "búð" hefur opnað á svæðinu.
Góðar stundir og gangi ykkur öllum vel með ykkar reikninga.
![]() |
Ámælisverður klaufaskapur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.5.2012 | 17:38
Fyllerí í Bauhaus, akandi fíkniefni og Titanic-fundur?
Húsfreyja var að skanna fyrirsagnir, á milli þess sem hún
vaskaði upp, skellti þvotti í þvottavél, hengdi upp, tók af rúmum,
viðraði sængur og kodda úti á sólpalli, sópaði stofu og eldhús,
snöflaðði í sig flatköku með kæfu og þrasaði góðlátlega í
ellefu ára djásninu, sem botnar ekkert í því af hverju
EKKI er frí frá heimilisstörfum um helgar.
"Allt fullt hjá Bauhaus"!
"Það var og" hugsaði húsfreyja, " og ég sem hefði getað
rifið mig upp í býtið og mætt í happdrætti til þeirra klukkan sjö í morgun".
Kötturinn sem hafði gróið fastur við sólheitan sólpallinn,
mjálmaði skyndilega pirraður.
Stór og drottningarleg frú hafði villst inn í stofuglugga húsfreyju og suðaði
nú þar bálvond.
Læðan komst ekki að röndóttu frúnni, því hún var bundin.
Húsfreyja fauk í það að bjarga hinni konunglegu býflugu...úúú...
í stærri kantinum, úr stofuglugga sínum og út aftur.
Tók úr þvott vél aftur, hengdi upp.
"Já, Bauhaus", hugsaði húsfreyja, " kannski alveg eins gott að
ég svaf á mínu græna eyra, fyrst allt er FULLT hjá þeim.´
Kíki frekar á morgun, þegar þeir "kaupdrukknu" í dag liggja heima
í "eyðsluþynnku"!
Svo var eitthvað um "fíkniefni sem fundust eftir fíkniefnaaksstur".
"Ja hvur asskotinn, fíknefnin farin að aka um eða"......?
Neipp, mannfólk á ferð undir áhrifum vímuefna, hættulegat sjálfu sér
og öðrum. "Sorglegt hve margir leyfa vímuefnum að hertaka
líkama sitt og líf, þola eyðileggingu á líkama sinn og sál af þeirra
völdum og missa loks allt tak af veruleikanum og týna sjálfum sér
sem og öllum sínum ástvinum" hugsaði húsfreyja svört.
En hvað var þetta með Titanic?
Frétt frá stríðsárunum. Skipalest frá Rússlandi að sigla á
tundurduflagirðingu úti fyrir Vestfjörðum 1942.
Húsfreyja áhugakona um Sögu fór strax í sögubækur sínar.
Lítið að finna. Brúarfossmenn jú að bjarga fólki af af flutningaskipinu
Daleby og áhöfnin á Skaftfellingi bjargaði þýskum kafbátsmönnum,
og svo bara svona almennt um stríðið.
Greinilega allt háleynilegt og Bretinn lítt fyrir að setja svona slys í blöðin.
En merkilegt þetta, og fróðlegt að fá meiri fregnir af atburði þessum.
Alltaf gaman að glugga í fyrirsögnum og fréttum.
En húsfreyja er á útleið.
Það er ætlar að ganga rösklega í klukkustund eða svo áður en hún
skellir í sig kvöldmatnum.
Góðar stundir.
![]() |
Allt fullt hjá Bauhaus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2012 | 23:07
Guð minn góður.....
..... oh my God", erlenda konan grét hástöfum og réri í gráðið.
Húsfreyja stumraði yfir henni og reyndi að hugga.
"Can I call your husband and ask him to come for you"?,
húsfreyja vildi
koma erlendu kófdrukknu konunni sem "næstum því"
hafði drukknað í Bláa Lóninu í öruggar hendur sem fyrst.
Erlenda konan reisti sig upp og hristi leðjugráa lokkana
ört og nánast orgaði: Noooooo!
"No, no, no, no, dont call him...nononono"...orðin hurfu í mikil ekkasog.
Húsfreyja var eitt spurningamerki.
Botnaði ekki baun í málinu.
"Ok I´ll ask your friend to stay with you, until you feel strong
enough to walk out to the car with him".
"NOOOOOOOOOOOOHHH! SEND HIM AWAY......NOW"!!!
Öskur hálfnöktu, næstum því drukknuðu konunnar voru nærri því
búin að sprengja báðar hljóðhimnur húsfreyju.
"Vinurinn" kom hlaupandi inn á slysastofuna.
Ungur maður um þrítug, a.m.k 15 árum yngri en nærri því
drukknaða frúin.
"Clara are you ok", íslenski framburðinn á enskunni heyrðist vart.
" OUT"!!!, erlenda konan gargaði á unga manninn, sem
hrökklaðist út aftur, um leið og frúin hóf aftur að selja upp
gruggugu Bláa Lóns-vatni í bland við hreinan vodka.
Húsfreyja hafði snör handtök og skellti ælubakka
undir stærstu gusuna, vafði köldu þvottastykki um höfuð
frúnnar og hélt við.
"Ég er svoooo glötuð...I´m so useless" grét erlenda konan hátt,
um leið og hún kokaði og kúgaðist.
Húsfreyja var í standandi vandræðum.
Læknir var horfin á braut, hafði sagt húsfreyju að það mætti
útskrifa nærri drukknuðu konuna í hendurnar á manni sínum.
Bara eitt: Læknir hafði talið þann þrítuga vera mann konunnar,
og þann mann vildi frúin kófdrukkna, en ódrukknaða ekki
sjá nálægt sér.
Og ekki mátti húsfreyja heldur hringja í mann hennar,
en hann var erindsreki og vann fyrir erlent sendiráð,
eftir því sem húsfreyja komst næst.
"You'r dead if you call him.....snökt..org...I´m dead...."!
Ekki gat húsfreyja heldur skilið erlendu frúna eftir niðri á slysó,
á meðan hún sinnti sínum 22 sjúklingum á deildinni á næstu
hæð fyrir ofan á sjúkrahúsi Keflavíkur.
Húsfreyja vippaði sér fram og ætlaði að ræða við þann
þrítuga, þegar ægilegt org barst frá slysastofunni, og svo:
"DO NOT TALK TO HIM! SEND HIM HOME"!
Sá þrítugi yppti öxlum, "ég tek bara taxa í bæinn",
og svo var hann horfinn.
Og uppi sat húsfreyja með háorgandi erlenda konu
og bifreið hennar parkeraða í stæði fyrir sjúkrabíla.
Gleði.
Nú voru góð ráð dýr.
Húsfreyja hugsaði hratt.
Fór inn á slysastofu, þar sem næstum því drukknaða
konan var að úthúða sjálfri sér, á milli þess sem
hún ældi í ruslafötuna....."I'm so lame"!
Húsfreyja gaf frúnni í skyndi ógleðistillandi stíl,
mældi lífsmörk og súrefnismettun.
Allt í fínu lagi.
Frúin grenjaði hástöfum á háa séinu.
Húsfreyja beið færis, þegar heldur hljóðnaði
grátur, og spurði um vinkonu sem frúin treysti
og gæti náð í hana.
Frúin virtist ætla að róast við upp ástunguna, þegar:
"Ooooorrrrrgh...but what about the car......it's my
husbands......"?
Nú greip erlendu konuna einhver fítonskraftur,
hún hentist á fætur og æddi um eins og ljón í búri...
"I've to drive back to Reykjavik myself..." hrasaði
við, slangraði að stól, stóllinn datt og frúin með í gólfið.
Eftir hálftíma org á gólfinu, tókst húsfreyju loks að
ná símanúmeri vinkonu upp úr henni.
Hálftíma seinna náði hún svo frúnni upp úr gólfinu,
og bíllyklum hennar frá henni.....komin með
hellur fyrir bæði eyru af skerandi grátnum.
Reddaði bílnum fína frá inngangi slysó svo
sjúkrabíll kæmist að.
Vinkona erlendu konunnar mætti síðan með
sínum ektamaka og þau
sáu um að koma þeirri næstum því drukknuðu og
bifreið hennar til höfuðborgarinnar við sundin bláu.
Húsfreyja orðaði ekki þrítuga "vininn" við þau,
enda lá líf hennar við... "you are dead if you tell them
about him".
Ítrekaði aðeins þörfina fyrir að fylgjast vel með
frúnni næsta sólarhringinn og bað þau vel að lifa.
Og frúna sá hún síðan á síðum dagblaðanna nokkrum
vikum seinna í hóp af fínu fólki við einhverja opnun
í ráðhúsinu, svo hún hefur plummað sig flott eftir
reddingar húsfreyju og læknis.
En mikið hrikalega var húsfreyja sein með öll sín
verk á deildinni sinni þessa kvölvakt í júní fyrir
allmörgum árum síðan....og eins og hálf heyrnarlaus
í þrjár vikur á eftir.
Þessi sundlaugakonusaga minnti húsfreyju á þetta
sérstaka atvik þarna í Keflavík um árið.
Góðar stundir og gangið hægt um gleðinnar dyr.
![]() |
Kom að fyrrverandi í sundlauginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2012 | 21:15
ENGAR fermingatertur?
Húsfreyja horfði undrandi á systur sína og
fyrrum mág.
"Við erum ekki búin að fá þær ENN, bara þessa einu
í gærkveldi", þrumaði fyrrum mágur og var að fara á límingunum,
svitnaði og fölnaði á víxl af angist og stressi.
Varir systur í Þorlákshöfn voru eitt strik af áhyggjum og einbeitingu.
KORTER í fermingu Svölunnar og spennan var áþreifanleg.
Systir í Þorlákshöfn, móðir fermingabarnsins, skipulagði ferð út á gólfvöll
í einum" hvínandi hvelli", þar sem bakarinn vann öllu jafnan hörðum höndum,
við að stússa í kringum gólfara í sandhólunum fyrir ofan Skötubótina.
Systurdóttir, elsta barn systur í Þolló, glotti ísmeygilega til húsfreyju,
hafði lúmskt gaman að af vandræðagangi móður sinnar
og fyrrum sambýlismanns hennar.
Húsfreyja stakk upp að hún sjálf , mútta hennar og systurdóttir tækju eitt
"Skraf" (= leik í Scrabble), á meðan verið væri að leysa dularfulla kökuhvarfið.
Ygglibrún foreldra fermingabarns varð myrkari en 21. desember í
rafmagnsleysi um kvöldmatarleytið þess dags.
"Er ekki pylsuvagn þarna út frá, sem hægt er að redda sér á, ef allt
fer á versta veg"?, húsfreyja var vægðarlaus.
"Sigga, stopparðu ekki í sjoppu, svo maður getið fengið sér eitthvað að éta fyrst"?,
systurdóttir gaf húsfreyju ekkert eftir í miskunnarleysinu.
En skötuhjúin, systir og fyrrum mágur, voru horfin á vit golfvalla, "téa" og gólfara að leita
fermingaterta og meðlætis með kaffinu eftir kirkju, svo þau heyrðu
ekki skensið.
Mútta húsfreyju fór að ókyrrast og systir úr Vestmannaeyjum einnig
stuttu seinna.
Systir úr Eyjum ruslaði sínum peyjum út í bíl ásamt systurdóttur,
og húsfreyja tók einnig sitt ellefu ára djásn, Marinó, múttu og
gest með í för upp í kirkju.
Þar var hátíðleg og myljandi skemmtileg ferming í bland við sálamsöng í gangi
næsta einn og hálfa tímann.
Húsfreyja sat á öðrum bekk með allri sinni slekt....fyrrum mágur
sat á þeim aftasta...of stressandi að sitja framar eftir kökuklúðrið
.
Sérann aldeilis stórgóður blaðandi í bókum og pésum,
klikkaði hvergi, og hélt frábæra ræðu þar sem simpansar komu við
sögu sem og góð heilræði til handa yndislegu ungu fólki að fermast.
Gaman að þessu.
Eftir kirkjuferð var þess vendilega gætt að Svalan hefði ekki "óvart" orðið eftir
á kirkjutröppunum, endurraðað í bíla og haldið í T-húsið skammt frá
Strandakirkju.
Þar höfðu fermingarkökurnar góðu "dúkkað upp" fyrir einskæra eljusemi og
dugnað systur í Þolló og fyrrum sambýlismanns hennar.....
og gólfvallarferð!
Gesti dreif að, gestir villtust og hringdu örvæntingafullir í systur:
HVAR er eiginlega þetta T-hús?, og gestir glöddust með fermingarbarninu
og komu færandi gjafir.
Fimmíu og tveir gestir mættu...ættingjar og vinir.
NÝ-fundnar fermingatertur snæddar af góðri lyst með kaffi, pönnslum,
flatkökum og alles.
Svalan var alsæl.
Fékk margt fallegt og var glimrandi flott í fjóluðum kjól með
hvítar stjörnur í hári.
Húsfreyja smellti myndum af fólkinu, spjallaði og skemmti sér hið besta.
Fékk aðeins nettan kvíðasting í magann einu sinni, húsfreyja,
þegar henni varð hugsað til þess að hún þarf að ferma djásnið
eftir tæp þrjú ár......sjíss..... eins gott að engar fermingatertur
týnist þá.
En góð byrjun á Páskum hjá húsfreyju, norðurferð í spilunum á morgum.
Góðar stundir og gleðilega Páska.
![]() |
Á fimmta þúsund fljúga innanlands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 21.4.2012 kl. 00:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.3.2012 | 21:21
Svipaður kaupmáttur og 2004?
Eitthvað snýst fjármálahjólið illilega skakkt í heilabúi
húsfreyju, ef þetta er raunin.
Árið 2004, getur húsfreyja svo svarið að skuldir hennar
voru mun lægri en nú, matarkarfan kostaði einnig minna og hún
þurfti ekki að selja nokkur eldgömul frímerki úr
frímerkjasafni föður síns heitins í hvert skipti henni flaug í hug
að skella smá skvettu af bensíni á bílinn, svo hún gæti
vísiterað móður sína austur fyrir fjalll.
Neipp!
Man ekki betur húsfreyja, en að henni hafi meira að segja
tekist að taka frá nokkrar krónur mánaðarlega frá 2004
til 2006, fyrir utanlandsferð með sína herlegu fjölskyldu,
sem farin var í mars 2006 til Kanaríeyja...og það í 2 vikur.
Glætan að það væri möguleiki á því herrans ári 2011.
Síðasta ár er satt að segja eitt hið svaðalegasta sem húsfreyja
hefur upplifað fjármálalega séð.
Þó var hún prúðasta á tímum góðæris, keypti aldrei STÓRGRÓÐA- hlutabréf,
fjárfesti ekki í neinum "pappírs fyrirtækjum á Tortóla, og þrasaði
vikum saman í bónda sínum um stórhættuleg myntkörfulán í bílakaupum,
( áður en hún gafst upp, og sagði honum að hann mætti að ráða þessu ....
og bóndi var snöggur að taka eitt prímaflott myntkörfulán fyrir
nýlegri Hondu, sem nú er að drepa hann að borga af )
og hún lamdi í borðið og sagði enga þörf á "flatskjá" inn á heimilið,
44 tommu túpusjónvarpið væri alveg nógu gott.
Bóndi gaf flatskjáinn eftir, fyrst hann fékk bílinn...
en það kom ekki í veg fyrir fóstursonur húsfreyju gæfist upp
tæpum tveimur árum eftir hrun, á að borga af myntkörfuláni sínu
fyrir einum herlegum flatskjá....bóndi sem hvort eð er var búinn að
greiða eina og eina flatskjásgreiðslu til að reyna að hjálpa,
tók þá yfir lánið og flatskjáinn, og uppi sat húsfreyja með
myntkörfulán númer tvö.
Jamm...og flatskjá.
Neipp, 2011 telst seint til betri tíma með blóm í haga, batnandi
fjárhags, dýrðar og dásemda og því síður SVIPAÐS kaupmáttar
og árið 2004, hjá húsfreyju.
Af og frá.
En húsfreyja játar fúslega að hún er enginn fjármálasnilli,
og verður seint talin vera reikningshaus, með allt að 23 aukastafi
"pí" á tæru...veit ekki einu sinni fyrstu tvo!
En kannski var húsfreyja bara svona hrikalega ofursparsöm og séð,
með peninga sína árið 2004, að henni finnst hún hafa verið
með miklu betri auraráð.
Sjálfsagt legið eins og ormur á gulli á launum sínum, húsfreyja,
aðeins keypt salt í grautinn einu sinni á ári, verslað allan sinn
fatnað hjá "Góða Hirðinum", gert við götótta sokka á hverju kvöldi
yfir Kastljósinu, aðeins haft logandi á kertaljósum yfir veturinn
með sprittkertum keyptum í Bónus og gefið öllum ættmönnum sínum og vinum
afmælis- og jólagjafir keyptar í "hundraðkallabúðum"!
Sjálfsagt ekki verið með réttu ráði, húsfreyja allt árið 2004.
Þjáðst það herlega ár af "ofurnísku fjármálaóráði", og sofið upp
við dogg, með kodda sinn fullan af seðlum.....hmmm....það
er kannski þess vegna sem húsfreyja er nú að berjast við
helvískan langvinnan hálsríg og mergjaðan verk í öxlum?
Hvað veit húsfreyja?
Jamm, en merkileg frétt þetta, ekki síður en þegar Ólína Þ. sagði
"kreppuna nefnilega búna" nú á dögunum.
Hleypa Marinó og Báru í kompjúterinn næst.
Góðar stundir.
![]() |
Kaupmáttur svipaður og 2004 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 7.5.2012 kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2012 | 20:46
Ógnin mikla....eða óværan mikla?
Fer nú kaldur hrollur um nágranna okkar,
á eyju einni er kennd er við breska.
Breska þjóðin hímir nú hrædd og hnuggin,
grá og guggin, og nötra henni tennur í munni
af ótta við ógnina miklu: Eldfjallaeyjuna litla Frón.
Þjóðaröryggi breskra er í uppnámi, enda eyríki þetta
í vestri til tómra vandræða með sín eldspúandi jökla og fjöll.
Og svo skítlegt er eðli þessara frónversku eldfjalla,
að þau spúa næstum aldrei eldi, eimyrju og ösku nema
í myljandi vestanátt, þá nokkrar milljónir breta ætla að
skreppa með næsta flugi til Parísar ( "gay Paris"- lesist "gei pari)
í eðal ostrudinner með frönskum fljóðum og sjarmatröllum,
eða að vísitera íðilfagrar breskar lendur á Falklandseyjum.
Og þá...einmitt þá brjálast allt uppi á litla Fróni.
Fer allt til helvítis!
Gýs í Vatnajökli....eða á Fimmvörðuhálsi....eða Heklu...
eða djö.... ósegjanlegum Eyjafjallajökli.
EYJAFJALLAJÖKULL!
Hvaða hálfvitum datt þetta í hug, að setja "fjögur ell" í
sama orðið?
Hvernig er hægt að ætla eðal-enskumælandi Bretum að
bera fram svona óhroða?
ÆDJAFJALDAJOKUL!
"Sounds like somebody throwing up in HELL", las húsfreyja
hjá einum þegna Betu bjútí á fésinu.
Já, litla Frón er fjandi töff og ógnandi við granna sína, Breta.
Og til að bæta gráu ofan á svart, er djö...óværan
sem kallar sig Frónverska þjóð, aldeilis búin að
velgja Bretum undir uggum.
Fyrst vorum við ekkert nema frekjan og leiðindin
á miðunum, þegar breskir reyndu að veiða sér nokkra þorska í soðið.
Æddum um á litlum varðskipskoppum á miðunum og
KLIPPTUM á alla togvíra breskra- svúss...helvískt trollið
og allur aflinn hvarf í hafið.
Djö...skemmdavargar, þessir Frónbúar.
Ekki skánaði það þegar Frónbúar ákváðu að vera með einhvern
derring, þegar þeir skitu upp á fjármálabak og neituðu að borga
fyrir kerlingafáluna hana Ísbjörgu.
TERRORISTAPAKK!
Jamm, það er margt sem ógnar Bretum og hrjáir þá.
Helvískir sólarstormar, pestarfár, hamfarir, hryðjuverk og svo verst af öllu..
..litla Frón og skítlegir íbúar þess.
Vesalings breskurinn.
Hann á ekki sjö dagana sæla.
Kemst ekki í flug nema frónverskum eldfjöllum þóknist svo.
Má ekki veiða sér soðningu lengur upp við
frónverska landsteina, sei sei nei.
Og ekkert að treysta á frónverska útrásarvíkinga með
alla vasa fulla af pappírspeningum, því síður á frónverska
þjóð til að borga fyrir all fjármálasukkið og svínaríið.
Rífur bara kjaft og segir NEI!
Já, ekki nema von að breskum renni kalt vatn á milli skinns og hörunds,
þá þeim verður hugsað til lítillar eldfjallaeyju vestur af þeim,
í miðju Atlandshafi.
Tarna er ljóta óværan á yfirborði jarðar!
Já, bretinn á bágt...ógnar bágt.
Máske væri réttast að stofna hjálparreikning hræddum og hrjáðum
Bretum til bjargar hér uppi á litla Fróni......svona til að bæta fyrir
alla eldfjallaöskuna sem við sendum þeim þarna um árið...var ekkert
annað en djö... hryðjuverk!
Gá til veðurs næst.
Góðar stundir.
![]() |
Íslenskar eldstöðvar ógna Bretum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 21.3.2012 kl. 19:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.3.2012 | 22:39
YFIR LIMGERÐIÐ eða ENDURHVERF VIÐSKIPTI?
...eða eins og Sigurjón J. Árna myndi orða það; Við bara lentum
"Over the Hedge" með "Hedge Funds"!
Altént var það málið fyrir Landsdómi í gær.
Var áminntur um að tala íslensku sá frómi, Sigurjón,
og tala um "Vogunarsjóð" en láta enska "limgerðið" lönd og leið.
Húsfreyja var engu nær, en glotti við tönn, þegar
hinn vísi Sigurjón sló því fram að "Bretar hefðu sett fullkomnlega
óraunhæfar kröfur gagnvart "tilfærslu" Icesafe"!
En Sigurjón skildi síðan ekki spurningu sem var varpað til hans um
"flutning" á Icesafe....og spyrjandinn ekki heldur!
Tilfærsla eitt og flutningur greinilega annað, þegar talað er á "bankamáli"!
Og ekki skánaði það í dag þegar húsfreyja las frétt um fund milli Haarde og Sigurjóns,
og Sigurjón lætur hafa eftir sér ,
að Landsbankinn hefði sótt sér "laust fé, með ENDURHVERFUM viðskiptum".
Endurhverf viðskipti??
Einhverra hluta vegna sá húsfreyja fyrir sér gargandi stokkendur
í oddaflugi yfir Tjörninni, og "hverfandi" síðan sjónum manna,
inn í sólarlagið við Háskólann,
þegar hún las um viðskipti þessi.
Erum við þá að tala um "laust fé" sem HVARF, en sem unnt var að hafa upp á,
til þess eins að láta það HVERFA aftur= ENDURHVERF viðskipti?
Eða máske "hvarf" ekki lausafé þetta, heldur er nú á "oddaflugi" yfir Landsbankanum,
á eilífu hringsólandi pappírsflögri, ósnertanlegt öllum Frónbúum, nema stöku
peningavítrum bankastjóra, sem veiðir slatta af því í háf af og til, snýr úr,
og brúkar í leynilegar stórafmælisveislur þar sem
Jagger og Lady GaGa syngja ástardúett afmælisbörnum til heiðurs?
Nei, húsfreyja er engu nær, þegar menn fara að tala á "banklensku".
En tarna er merkilegur dómur, "Landsdómur"!
Og öll vitni virðast innilega sammála um að Geir hafi ekki getað
gert neitt í neinu.....enda taldi hann að hinir spöku stjórnendur bankanna
"væru að gera eitthvað"!
Og allavega virðist Landsbankinn hafa verið á fullu
með laust fé í "endurhverfum viðskiptum" korteri fyrir hrun.
Sjálfsagt brjálað að gera hjá snjöllum bankastjórum Landsbanka
að TELJA allt þetta lausa fé, og tryggja að það "hyrfi" þeim ekki sjónum....
"aftur"?
Hafa varla mátt vera að því að fylgjast með einhverju neikvæðu voli um
yfirvofandi bankahrun!
Seðlabankinn og Dabbi hvað?
Og vesalings Geir gerði ekki neitt, af því að hann gat ekki gert neitt...
eða jú!
Hann gat "blessað" Ísland, og það gerði hann svikalaust.
Jamm, merkilegur þessi Landsdómur, og hrikalega skrítnar
og skondnar vitnaleiðslur.
Góðar stundir og Guð blessi ........Landsdóm og Haarderann!
![]() |
Tíst um andrúmsloft Landsdóms |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.2.2012 | 20:38
Gott og vel, nýr Herjólfur.
Eyjamenn orðnir langþreyttir að bíða eftir
nýrri ferju milli lands og Eyja, það skilur
húsfreyja vel.
En þá er það stóra spurningin:
Hvað ætlar Vegagerð ríkisins að gera í
Landeyjahafnarmálum?
Húsfreyja veit ekki betur en að Herjólfur
hafi nú verið í stöðugum siglingum á milli
"Þorlákshafnar" og Eyja á síðustu mánuðum, og
siglingar í Landeyjahöfn aðeins fjarlægar martraðir
í draumum ferðalanga og Eyjamanna á flakki út í Eyjar
og upp á land.
Og húsfreyja gerir sér engar grillur um að Vetur konungur sjái ekki um að
sandstrokan standi beina leið inn í Landeyjahöfn þennan veturinn,
frekar en síðasta.
Að Markarfljót skili ekki sínum aurburði samviskusamlega
til hafs, þar við mynni Landeyjahafnar,
sem "vandlega útreiknaðir" sjávarstraumar
sjá síðan um að skila inn í höfnina aftur með hraði.
Ætlar þá Vegagerðin að taka að sér "skilvirka" hreinsun og sanddælingu
í Landeyjahöfn, eða verða Eyjamenn að byggja stærstu
"flatbytnu" allra tíma til að tryggja að ferja þeirra komist
styttstu leið milli lands og Eyja inn í Landeyjahöfn?
Eru þá "flatbotnaðar" ferjur vel til fallnar að sigla úthafsölduna,
sumar, vetur, vor og haust?
Húsfreyja veit nákvæmlega minna en ekki neitt um
skipasmíðar, en hún spyr: Eru til haffærir "ferjuflekar",
klikki vegagerðarmenn illilega á því að dýpka Landeyjahöfn,
líkt og síðustu ár?
Eða er Vegaerðin kannski að plotta alveg nýjan ferðamáta til Eyja?
Koma upp eðal "slönguvað" í stærri kantinum og "slöngva" fólki
á milli..... í vatteruðum sérstyrktum álkúlum kannski?
Eða smella upp einum voldugum "kláf" og draga ferðafólk
i glerboxum yfir hafið til Eyja?
Moka svo bara yfir Landeyjahöfn, og gleyma því að hún
hafi nokkurn tíma verið byggð?
Nei, bara smá pæling.
Eyjamenn duglegt fólk, sem vill hafa samgöngur sínar
í góðu lagi, enda Eyjamenn mikið á ferð og flugi,
og Vestmannaeyjar einn af vinsælustu ferðamannastöðum landsins.
Verra að vita hvað Vegagerð ríkisins er að pæla.
En njótið kvöldsins í snjóhvítri fegurð vetrar.
Góðar stundir.
![]() |
Smíða sjálfir Vestmannaeyjaferju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.2.2012 | 21:07
Bragðgóður misskilningur þetta.
Húsfreyja lét ekki sitt eftir liggja við saltkjöts- og
baunasúpuátið í vinnunni í dag.
Þvílikt lostæti.
Ekki víst að kollegar húsfreyju hefðu tekið því vel,
hefði hún ætt um borðsalinn með "vígt vatn" á kókflösku
og skvett því yfir mann og annan, í stað þess að snöfla í
sig eðal saltkjöti og baunasúpu, líkt og Árni Björnsson
talar hér um.
Næsta víst að kokkurinnn hefði móðgaðst, og látið
vaða úr baunapottinu yfir húsfreyja til að hefna
fyrir vatnsausturinn.
Kollegarnir pantað salibunu á níuna á Kleppi fyrir húsfreyju.
Þar hefði góður matur farið fyrir lítið.
Stundum hafa forfeður okkar notið góðs af
afspyrnulélegri málakunnáttu hér í den, og við ekki síður
afkomendurnir.
Sprengen= Dreifa vígðu vatni.....!
Neipp, þá var skynsamara og "saðsamara" að tengja þetta við "sprenginn"
og að borða sig í spreng, það vissu okkar fornu feður.
Ergo, húsfreyja er södd og sæl, sölt og sæt og .....aðeins eitt:
Það er einhver "aftangustur" að næða af og til um húsið....
en það er nú bara vinalegt svona í vetrarmyrkrinu.
Góðar stundir og gleðilegan "Sprengentag".
![]() |
Sprengidagur er misskilningur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 29.2.2012 kl. 20:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2012 | 20:25
Nú, þetta var kannski Gnarrinn...
...sem húsfreyja sá skokka 15,99 metrana
að ruslatunnu hennar í morgun?
Ja, tarna er dásamleg þjónusta við borgabúana,
þegar sjálfur borgastjórinn er farinn að tæma
ruslið fyrir þá.
Húsfreyja er HRIFIN, það segir hún satt.
Ekki minna hrifin en þegar Gnarrinn kom á 16 metra reglunni.
Húsfreyja var þá fljót að vippa sér út, vopnuð sínu eðal
málbandi og mældi vegalengdina frá ruslatunnu sinni
að götu.
Nákvæmlega 7 metrar, 83 centimetrar og þrír fjórðu var
vegalengdin.
ÞRÍMÆLT!
Svo húsfreyja tók til sinna ráða og rúllaði hálfullri tunnu sinni
fjær götunni og mældi síðan aftur...hætti ekki fyrr en hún var
komin með fjarlægð upp á nákvæmlega 15,99 metra....
ÞRÍMÆLT!
Allt til að gleðja Gnarrann og starfsfólk hans.
"Við göngum svo léttir í lundu....".
Ekkert jafnast á við hressilega 15,99 metra göngu með
fulla ruslatunnu á köldum vetrarmorgni í myljandi snjóbyl
og 37 metrum á sekúndu.
Hehehehehe...stóðst ekki mátið, húsfreyja.
En flott hjá Gnarranum að vera í rusli.
Góðar stundir og megi allar ykkar ruslatunnur
vera mest 15,99 metra frá götu.
![]() |
Jón Gnarr í rusli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)