5.7.2012 | 19:05
Heyrðu vinur, þú ert að drukkna við...
...KOLRANGT strandsvæði
!
Það þýðir ekkert fyrir þig að garga á hjálp
þarna hægra megin við baujuna....geturðu ekki reynt að
svamla þér hérna yfir á MINN strandhluta, og drukkna þar?
Ég skal sko svoleiðis redda þér í einum hvínandi hvelli bara ef
þú fleytir þér eins og 10 metra til suðurs, ha?
...... .... .... .....KOMA SVO!
Með krampa og að fara í fjórða sinn á bólakaf.....déskoti er heyra þetta,
og þú algjörlega svaðalega VITLAUST STAÐSETTUR Í SJÓNUM, VÆNI MINN.
Reyndu nú bara að láta strauminn bera þig hingað yfir á mitt svæði, félagi...
ég drösla þér síðan í land og málið er dautt!
Í alvöru!? Í ALVÖRU!?
Ætlarðu að láta mig MISSA VINNUNA, vinur?....vinur.....VINUR"!!!?
HANG ON! I'M COMING"!
Hehehehe stóðst ekki mátið, húsfreyja.
Hefur aldrei áður heyrt, að maður í lífsháska á hafi úti við sólarströnd,
geti verið svo "illilega vitlaust staðsettur" í sjónum, að ástæða sé til
að reka björgunarfólk úr starfi, komi það honum til hjálpar!
Alveg með ólíkindum, eða er til einhverjir aðrir kostir í stöðunni en
þessir tveir?
Í fyrsta lagi, koma manninum til hjálpar og bjarga honum, eða
þá öðrum kosti hreinlega láta hann DRUKKNA, rangstæðan og
villusvamlandi?
Neipp!
Frétt þessi sannar enn og aftur fyrir húsfreyju, að orðtakið góða:
"Kaninn er Klikk" á töluvert mikinn rétt á sér.
Góðar stundir, og í guðanna bænum reynið að verða ekki "rangstæð"
í sjónum við strendur Florida, liggi leið ykkar þangað í frí.
![]() |
Bjargaði mannslífi en var rekinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 19:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.6.2012 | 18:03
Rasandi hissa....
...húsfreyja
, á því stórfurðulega undri
að Harpan sé að orðin fjárhagslegur
HRAKFALLABÁLKUR hér niður við sundin bláu
höfuðborgarinnar.
Undur og stórmerki!
Hvernig má þetta vera?
Með alla þessa" moldríku" frónversku listamenn
búandi í landinu, sem allir eiga sæg af seðlum og
fengu ekki einu sinni bankahrunsverk í litlu tána,
þarna um árið sem Geir bað Guð fyrir alla muni að
blessa Ísland, og sem hafa ALLIR sem einn "efni" á því að
"leigja út sal" í Hörpunni undir sjálfa sig og list sína.
Já og með alla "enn ríkari" Frónbúana, sem sækja
tónleika og aðra listræna viðburði grimmt..helst
þrisvar á það sem er í boð í Hörpunnii.
Já, vellauðugu Frónbúana sem tóku hrunið í nefið og finnst orðið sjálfsagt
að snýta heldur blóði, en að spara við sig í tónleikaferðum,
málverkaglápi og listaverkakaupum.
Kunna að forgangsraða "rétt"!
Neipp, húsfreyja er rasandi forviða og undrandi á, að
Harpan þurfi jafnvel frekari framlög frá skattgreiðendum...og
er það ekki algjörlega ÝKT klikkað að rekstraráætlanir hennar séu
á veikum grunni reistar?
Hvað með það þó einn ágætasti lagasmiður og trúbador Frónbúa,
Bubbi Morthens telji fráleitt að greiða SMÁPRÍS fyrir
tónleikahald í Hörpunni....var hann ekki bara að fara að
halda fermingarveislu, brúðkaupsveislu og jarðaför allt á sama
tíma, svo lausafjárstaða hans hefur verið örlítið erfið.
Ekki fór hann illa út úr hruninu og kreppuæði fremur en nokkur
annar listamaður uppi á litla Fróni.......
eða hvað?
Hehehe... húsfreyja stóðst ekki mátið.
Hún hefur tvisvar komið í Hörpuna síðan þar var opnað.
Í fyrra skiptið í fría skoðunarferð, í seinna skiptið á
frían fyrirlestur um Parkinson- og Alzheimerslyf.
Þokkalega huggulegt hús, það vantar ei, en ekki er
húsfreyja á leiðinni þangað á nokkurn þann listrænan viðburð
sem þarf að greiða fyrir.
Hefur hana þó langað á þá nokkra tónleikana þar, t.d. Mugison.
Fjárhagur hennar leyfir ekki slíkan lúxus.
Hennar helsti framtíðaruggur varðandi Hörpuna er,
að þangað komi ungur maður að nafni Justin Bieber með
tónleika....og þá er húsfreyja í djúpum!
Ellefu ára djásnið lifir og andar Justin Bieber og tónlist hans.
Fyrirgæfi móður sinni ekki einu sinni á grafarbakkanum,
fengi hún ekki að mæta á tónleika hans.
Jæja, húsfreyja gæti kannski tekið út annað veð í íbúð sinni,
mæti Bieberinn í Hörpuna, svo djásnið fengi að berja goð sitt augum.
En hvíla lúin bein næst.
Góðar "listrænar" stundir í sumar.
![]() |
Hrakspár vegna Hörpu að rætast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 28.6.2012 kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.6.2012 | 18:51
Fengsæl mið í Hafravatni?
Því er ekki búið að segja húsfreyju frá þessu fyrir löngu?
Húsfreyja er lélegur veiðimaður, sjálfsagt einn af þeim
lélegustu sem ráfar um jörð þessa í leit að æti.
En hún er samt ekta rándýr og þykir allt kjötmeti, sem og fiskmeti flest,
hið mesta lostæti.
Þrátt fyrir þetta, er eitt það versta sem hendir húsfreyju,
þá hún danglar spún á veiðistöng ofan í vatn eða á, að
fá FISK.
SKELFING!
"AUMINGJA DÝRIÐ! HANN ER STÓRSLASAÐUR! NEI! NEI!
EKKI BERJA GREYIÐ Í HAUSINN! AAAAARRRGH! MORÐINGI"!
Svona eru samskipti húsfreyju við bónda, fái hún fisk....og því miður
er hún glettilega fiskinn og bóndi vill gjarnan fá hana á veiðar með sér.
Það er nefnilega húsfreyja sem hleypur um í öngun sínum sumarlangt,
með glös á lofti að BJARGA flugum úr gluggum út, stígur ALDREI á
járnsmiði né heldur banar hún forljótum kóngurlóm.
NEIPP.
Aldeilis ekki.
Pöddulíf blómstrar allt og dafnar í kringum heimili húsfreyju sumarlangt...fær að
vísu vægt taugaáfall af hræðslu, húsfreyja, verði hún að redda mmmmmarg-...
..hrollur...fætlu út úr húsi....úúúff hvernig datt Almættinu í hug að
skapa svona HRYLLING?
Og húsfreyja lifir í mergjaðri afneitun, þegar kemur að
lambakjöti...engin huglæg tenging hjá henni við litlu
fallegu hvítu lopahnoðrana sem skoppa um tún og upp til
fjalla, og æðislega bragðgóðu lambagrillsteikurinnar á disk hennar.
Neipp. Húsfreyja er helst á því, að lambakjöt sé af "jurtaætt"
all sérstakri, ræktað á fínum stórum ökrum, og líkist ræktun
sú helst "bómullarrækt"!
Jepp!
AFNEITUN TOTALIS!
Já, húsfreyja telst seint snjall og útsmoginn veiðimaður.
Getur ekki einu sinni drepið húsflugu.
Hins vegar gæti húsfreyja vel hugsað sér að skella sér á
"auraveiðar", því bévítans auraleysið hefur verið landlæg plága
á heimili hennar frá hruni og kreppufári.
Líst henni því afspyrnu vel á frétt þessa, og ætlar nú með hraði
að sækja um veiðileyfi í Hafravatni, og mæta þangað með sína
öflugustu veiðistöng og bestu spúna!
Er bara eitt....ætli aurapokar taki betur á "flugu" en spún....?
En það verður þá að koma í ljós, og húsfreyja mun aldeilis ekki
víla sér við að "grjótrota" aurapokana, nái hún að fanga nokkra,
veiðiklóin sem hún er.
En elda hakk og spaghetti í snarhasti næst, og síðan
halda með hraði á veiðar á Hafravatni eftir kvöldmatinn.
Góðar stundir og góða veiði í sumar!
P.S.(Húsfreyja kann Íslandsbanka þakkir fyrir "aurarækt" þessa
í vatninu...aldeilis brilliant hugmynd)!
![]() |
Fundu peningapoka í Hafravatni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.6.2012 | 00:08
Hann þarf að komast á vinstri löppina....!
.....,sjónvarpsmanni var mikið niðri fyrir, er hann
mælti þau fleygu orð.
"Þvílík háheilög sannindi" hugsaði húsfreyja hróðug og glotti grimmt,
þar sem hún sat og "hlustaði" á lýsingu fótboltafróðra
manna á kreppu-flatskjánum sínum.
Húsfreyja ELSKAR að "hlusta" á lýsingar fótboltaleikja á skjánum.
Þar þeysa menn um víðan völl í orðsnilld og íslensku tungutaki,
svo unun er á að heyra.
- "Englendingar standa og veifa hendinni", sjónvarpsmenn létu hvergi
deigan síg í lýsingunni.
"Og Englendingar eru þá allir "handalausir" nema einn,
sem aðeins hefur EINA" hló húsfreyja hið innra með sér, "og henni
veifa þeir grimmt....allir sem einn".
- "Mér finnst að skyttur eigi að "hitta" markið þegar þeir eru
komnir inn fyrir marklínu", sjónvarpsmaður sár yfir getuleysi leikmanns
við að skora.
Húsfreyja veinaði af hlátri.
- "Carrol er að reyna að koma inn í leikinn".
"Ekki seinna vænna", hugsaði húsfreyja, "seinni hálfleikur hafinn,
og andskotans maðurinn inni á vellinum, en utan leikjar"!
- "Þeir verða að "taka boltann niður", þeim hefur tekist það
einu sinni á síðustu 10 mínútum", sjónvarpsmaður ábúðarfullur.
"Ljótt ef boltinn er bara á sveimi yfir höfðum leikmanna", húsfreyja
var rasandi á 10 mínúta flugi fótboltans.
En boltinn hélt áfram að fljúga samkvæmt lýsingu:
- "Boltinn er að rísa yfir markið...margar mannhæðir".
"Þeir hafa líklega dælt "gasi" í helvíska tuðruna" var álit húsfreyju.
- "Englendingar aldrei líklegri til að" búa eitthvað til" þarna frammi",
sjónvarpsmaður, reyndi að vera jákvæður um frammistöðu breskra.
Húsfreyja var að míga á sig af hlátri......"hvað voru breskir
að bardúsa í miðjum fótboltaleik?
-"Hann er allt of HEITUR", húsfreyja missti af því hvort verið
væri að ræða boltann eða leikmann.
- "Menn hafa átt erfitt með að "fóta" sig allan leikinn",
húsfreyja var komin í keng af hlátri...."atvinnumenn
í FÓTbolta í erfiðleikum með að FÓTA sig"!
-"Balotelli er dálítið hissa"....."engin furða" hugsaði
húsfreyja, "ef færustu fótboltamenn heims fóta sig ekki
á fótboltavellinum"!
- "Þarna er MAAAAARK......hann er rangstæður, já" mæðan
í rödd sjónvarpsmanns var nánast áþreifanleg!
- "Englendingar búnir að vera mjög "þéttir" í leiknum".
Eina hugsun húsfreyju við þessa yfirlýsingu var:
"Einhvern tímann var sungið á öldum ljósvakans:
"NÚ ER ÉG ÞÉTTUR, OG ORÐINN FURÐU LÉTTUR,
ÉG ER Í OFSASTUÐI OG ELSKA HVERN SEM ER".
En leikurinn var ekki búinn.
Og sjónvarpsmenn fóru á kostum:
- "Hér kom stórkostlegt skot, sem leit kannski ekki út
fyrir að vera það".
Og síðan: -" Þarna er hann kannski ekki að "miða" á markið"!
"Heldur HVERT og á HVAÐ"??, húsfreyja náði vart andanum svo mikið
hló hún.
Þegar sjónvarpsmaður skellti sér síðan í lýsingu á
"arkitekt" sem skyndilega birtist á vellinum og hóf
að teikna upp "sóknina", var húsfreyju allri lokið,
svo hún lagði á flótta inn á bað og fór í sturtu.
Það síðasta sem hún heyrði var:- "Hann tekur sér nægan
tíma í markinu, án þess að vera of augljós að tefja tímann...."
Fótbolti er tær SNILLD!
Að lýsa fótboltaleik sérstök NÁÐARGÁFA.
Húsfreyja vill þakka íþróttasjónvarpsmönnum RÚV kærlega fyrir
sérdeilis frábæra kvöldstund!
Góðar fótboltastundir.
![]() |
Ítalir höfðu betur í vítaspyrnukeppni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 00:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2012 | 21:44
Af fótboltafári, óvissum endastöðvum og forsetaframboði.
Þar datt hann á rassinn, hann Slatan,
á miðjum vellinum sat'ann.
Skorað ei mörkin gat'ann,
bölvaði grimmar en Satan,
því vinstri fót hafði hann ei eitrAÐAN.
Heimili húsfreyju er "fótboltaserað" um þessar mundir.
Í sjónvarpi hennar eru menn uppteknir mjög af réttum
"leiklestri", eitruðum vinstri fótum og einni vesælli
boltatuðru sem velkist manna í millum, og ratar
stöku sinnum í netgirðingu á sitt hvorum enda
fótboltavallarins.
Svo eru menn með nöfn eins og "Slatan" að spila
fótboltann.
Jamm.
Ellefu ára djásnið er kengspennt á hverju kvöldi,
nötrar af spenningi og dæsir af hamingju í hvert skipti
sem "hálfleikur" skellur á.
Vippar sér glaðhlakkalega sú ellefu ára, að "fjarstýringunni"
sem losnað hefur tímabundið um, í krampakenndu taki
föður hennar, nær henni af honum "má ég aðeins"
og skiptir snarlega og með ofurhraða um rás.
"Spurningabomban er að byrja", gjóar augum ábúðarfull
á föðurinn..."þú getur horft á leikinn í tölvunni, pabbi"!
Felur fjarstýringuna í skyndi undir blaðabunka í stól húsfreyju.
Bóndi sættir sig við stjórnsemi ellefu ára djásnsins,
enda finnur hann ekki fjarstýringuna.
Já, alltaf stuð í fótboltanum.
Það gladdi annars hjarta húsfreyju ósegjanlega,
að lesa um pólska ellismellinn, sem rataði
óvart í óvissuferð alla leið á strendur litla Fróns,
þegar hann ætlaði í raun að vísitera víðfeðmar
lendur norska kóngsins að hitta mann og annan.
Þetta finnst húsfreyju bráðskemmtileg frétt.
Sá gamli fær "gratís" ferð fram og til baka, getur
smellt sér í eina herlega útsýnisferð "Gullna hringinn"
og seinkar ekki nema "um viku" í heimsókn
til ástvina búandi í hinu mikla veldi norskra.
Nú er húsfreyja þekkt að því að geta verið
dálítið utan við sig, þá skjaldskirtilskvikindi hennar
tekur upp á því að sveiflast í mergjaða lægð,
svo eigi duga hormónatöflur til að bæta.
En það hefur aldrei flökrað að húsfreyja að þetta mætti
nota sér til tekna.
Sér hún nú fram á, að í næstu skjaldkirtilsniðursveiflu
kaupi hún sér flug til Noregs, og í stað þess að
berjast við að halda athygli og skarpri hugsun í
Leifsstöð, leyfi hún sér bara að ráfa um
í hugarþoku og svima og "villist" síðan beina
leið upp í flugvél á leiðinni til Ítalíu.
Flott að rápa um götur Rómar í sumarsól og blíðu
í nokkra daga,
snæða spaghetti bolognese, kíkja á
hús páfa í Páfagarði og fá svo frítt flug heim aftur.
Aldeilis brilliant!
En að forsetaframboði.
Tveir yndislegir öldungar ræddu forsetakosningarnar,
báðir farnir að gleyma töluvert, en annar samt heldur meira:
-"Ég ætla nú bara að kjósa hann.....hérna....aftur...hann...
Grímsson..já, Ólafur heitir hann.
-Ég er svo innilega sammála" svaraði sá gleymnari, "ég kýs..ööö...
....."gamla" forsetann aftur"!
-Þá förum við saman niður að kjósa" sagði sá minnugri,
"og þú manst að krossa á réttan stað við Ólaf, en ekki við
Ara Trausta veðurfræðing eða hina frambjóðendurnar", sá
minnugri að gulltryggja Ólaf.
Sá gleymnari samsinnti því ánægður, sá síðan að
húsfreyja hafði fylgst með spjallinu,
nikkaði til hennar og sagði: "Ég ætla sko aldeilis að kjósa
"Ara Trausta" veðurfræðing sem forseta"!
Dásamlegt fólk á vinnustað húsfreyju.
Hún svo á leið út í Eyjar um helgina
Taka sautjándann þar með stæl.
Góðar stundir og njótið helgarinnar.
![]() |
Hælspyrna Welbecks tryggði Englandi sigur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.6.2012 | 18:55
Jaso! Nú er ég fullur ræfill og róni...
...var sungið fullum hálsi á dansleikjum upp til sveita
sem víðar, þá húsfreyja var ung.
Þykir henni það slæmt afspurnar, ef satt væri að"ballstemning"
sé að stinga sér niður á sjálfu Alþingi Frónbúa.
Sýnist húsfreyju sem eitthvað myndi Alþingi setja niður, siti menn þar að
sumbli næturlangt, þá alvörumálin litla Fróns eru rædd.
Þykir henni þá fara að styttast í að drykkjugleði með
tilheyrandi spangóli og látum, brjótist út meðal þingmanna,
svo landsmönnum er á hlýða, súrni í munni og svíði í eyru.
Veit húsfreyja vel að margir eru alþingismenn glaðir í sinni og
hreifir, slá á létta strengi og gleðjast yfir þægilegu og vel launuðu
starfi sem að jafnaði krefst ekki meira" líkamlegs erfiðis" í
þingsölum, en að lyfta vísifingri til að styðja á hnapp- JÁ eða NEI.
Aðeins erfiðara siti þeir hjá í atkvæðagreiðslu og þurfa þá jafnvel að snara
sér upp í púlt og gera grein fyrir "afstöðuleysi" sínu....en ekki mikið þyngra verk.
DING! Bjallan sér fyrir því slíkt taki fljótt af.
Jamm, hljótar að vera glaðsinna menn og konur, í þingsölum, sem hallar sér aftur í
sætum sínum daglangt og fram á nótt, og
lygna aftur augum af einbeitingu er þau hlusta á kollega
sína ræða af stakri snilld og ráðkænsku framtíð þjóðar vorrar.
Blaða í mesta lagi hljóðlega í "málgagninu" til að sjá hvort
Davíð sé eitthvað hnýta í fyrrum flokksfélaga sína, eða
til að fá nýustu fréttir af "kjarabaráttu" útgerðarmanna á heljarþröm
og með kvótaþynnku.
Já, færi sjálfsagt ekki gleðibrosið af andliti húsfreyju,
hefði hún tryggt sér svo notalegt innistarf sem þingmenn hafa.
Mesta argapúlið í þingstörfunum er sjálfsagt að berja saman vitrænt frumvarp,
og þurfa að standa í pontu kófsveittur að reyna koma því í gegn.
En huggun harmi í, þá er iðulega hægt að stofna þægilega NEFND
um málið, þar sem fín laun eru í boði fyrir fundarstörf, með fríu kaffi
og heitum rjúkandi kleinum í þægilegum og hlýlegum fundarsölum.
Þó húsfreyju finnist ánægjulegt að alþingismenn
þjóðarinnar séu glaðir og hamingjusamir í starfi,
þykir henni fjarstæðukennt og kolrangt að menn séu í glasi á Alþingi.
Svona álíka gáfulegt, og ölóðir skipstjórar og ökumenn undir stýri á blússandi ferð.
Vill hún minna á "ráðamenn þjóðarinnar-" og "stjórnendur landsins"-stimpilinn, sem
gjarnan fylgir með, þá rætt er um alþingismenn.
Nei, má hún þá heldur biðja um allsgáða þingmenn.
En vel ef ölvun þingmanns í frétt þessari er uppspuni einn og mergjaðar ýkjur,
og vonar húsfreyja að vort frónverska blávatn sé ætíð vinsælasti drykkur
þingmanna á Alþingi, þá þeir eru að störfum.
Hvort þeir velja að fá sér einn kaldann... eða tvo, eftir vinnu...
er þeirra mál.
Aðeins ef þeir skella sér síðan ölvaðir undir stýri á bifreið og vefja henni utan um
ljósastaur, lenda þeir í djúpum.
Húsfreyja óskar þingmönnum Alþingis öllum farsældar í starfi
og allsgáðrar framtíðar.
Góðar stundir.
![]() |
Sagði alþingismann vera drukkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2012 | 23:16
Stóra Beta í stað stóra Benna?
Einhvern veginn gengur þetta ekki alveg upp,
að breyta nafni Stóra Benna/BIg Ben í
"Betuturn", að mati húsfreyju.
Svona eitthvað ónotalegt við það.
Álíka ónotalegt og ef við Frónbúar
ákvæðum að skíra "Hallgrímsturn" upp á nýtt,
og kalla hann "Davíðsturn" til dæmis....
eða verra "Geirsspíruna"!
Og Perlan yrði í framhaldinu "Jóhönnuskel" og
Harpan "Gnarrtromman".
NEIPP!
Þá kann húsfreyja betur við þau nöfn sem við nú
brúkum, og þykir afleitt ef breskurinn er að missa sig
í "Betudýrkun".
Breyta nafninu á Big Ben...ja svei.
Afhverju skíra þeir ekki fremum Buck'inham Palace
upp á nýtt?
Þar er jú Beta Bjútý bretanna ábúandi, og ætti að
vera auðvelt um vik að finna glænýtt ekta fínt nafn á höllina.
Já og hvers konar nafn er Buck'ingham eiginlega á drottningarhöll?
Húsfreyja fletti einu sinni uppí sinni ensku orðabók,
og komst að því að vænlegasta þýðingin á Buck'ingham Palace væri
"Höll Dádýrstarfsþorpsins".
Verri þýðing væri Höll Dádýrstarfs-skinkunnar"!
Nú hefur húsfreyaj oft og iðulega vísiterað Lundúnarborg þeirra
bresku, og aðeins einu sinni...segir og skrifar EINU SINNI,
hefur hún rekist þar á sprelllifandi dádýrstarf.
Það var í dýragarðinum þeirra bresku., sem er í töluverðri
fjarlægð frá Buck'ingham Palace.
Því heitir þá blessuð drottningarhöllin þessu ónefni?
Væri ekki mun skárra að skíra drottningarhöll þessa upp á nýtt?
Þar er jú Beta Bjútý ábúandi, svo það ætti að vera auðsótt að breyta
nafni hallarinnar henni til heiðurs.
"The palace of Beta Bjút'ingham" til dæmis...eða "The Grand and
Excessive Home of Beta Bjút'ingham"! Ekkert þorp neitt!
Nú eða ef breskir vilja endilega hafa "turna" inn í dæminu: "Hin æðislega en
turnlausa HÖLL Betu Bjútý"/"The Magnificient but Towerless Palace of Queen Elisabeth"!
Eða bara "The Towerless House of Beta Bjútý"!
Nei, bara svona hugmyndir á laugardagskveldi, eftir góða steikingu
í sólinni í Þorlákshöfn á Hafnardögum.
Þar fyrir austan fjall stukku frændurnir Aron og Sigurður Freyr (12 ára) VILJANDI og
fagnandi í sjóinn, og Svala(13ára) svona meira óviljandi," en ég get þetta alveg líka"
sömuleiðis í sjóinn.
Alex( 8 ára) gerðist réttlátur og heiðarlegu buissnesmaður,
og lét Marinó (6 ára) hafa sínar 250 krónur,
en Árn (11 ára)i var alveg steiktur og fékk sólarexem en Báran(11 ára)var bergnumin
af kanínuungum systur í Þolló og vildi gerast
"dvergkanínuræktandi...og rækta eingöngu hvítar kanínur.....ef hún þyrfti EKKI að
ÞRÍFA búrin þeirra.
Kanínurækt út þar með!
Síðan fékk trambolínið að kenna á því hjá krökkum, en
"fiskeldið" í plastsundlaug systur í Þolló var eitthvað slappt.
Mútta var bísna hress, pældi í afmælum og gleði, en Sigurvin
bakaði eðaltertu.
Bísna góður dagur í bísna miklum hita og sólskini.
Góðar stundir.
![]() |
Stóri Ben verði Turn Elísabetar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 23:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.5.2012 | 10:58
Nú ertu búin að hlaða allt of miklu niður!
"Og kemst ég ekkert inn á netið".
Húsbóndi horfði verulega pirraður á
dótturina.
Ellefu ára djásnið leit særðum augum á
föður sinn: " En ég hef engu "dánlódað" lengi, pabbi".
"Af hverju kemst ég þá bara inn á Moggann, og ekkert meir"?,
það var byrjað að hvessa í bónda.
Húsfreyja pírði augum á skjáinn í litlu ferðatölvunni,
kom djásninu til bjargar: " Hér stendur nú að það sé bilun
í netkerfinu hjá Símanum".
Algjört "standstill" varð í sunnudagsmorgunþrasinu, og ellefu ára
djásnið leit full réttlátar reiði á föður sinn með einu
þöglu "SKOOOO".
"Jú það gæti líka verið ástæðan", bóndi varð að bakka,
"en það eru samt takmörk fyrir því hvað þú getur hlaðið miklu inn"
stranglega mælt við djásnið.
Alltaf betra að eiga síðasta orðið.
Djásnið sem nýbúið er að læra máltækið "Sá vægir sem vitið hefur meira"
hjá móður sinni, þagði og þóttist skyndilega mjög upptekið af
barnaefni fyrir 3- 8 ára smáfólk í sjónvarpinu.
Húsfreyja glotti með sjálfri sér, alltaf smá stress í gangi fyrir
ferðalag.
Rýndi á fréttir.
Jú Svíarnir sigursælu í söng voru á forsíðu.
"Ætli kerfið hafi brunnið yfir í símakosningu Evrópu í gær"?
hugsaði húsfreyja, um leið og hún reyndi að muna
upphafstóna Euphorialagsins sigursæla.
Neipp, ekkert að gera sig, mundi bara "oh, oh, oh euphoria".
Fínt lag samt og eitt það besta í keppninni, og átti svo
sannarlega sigurinn skilinn.
Reyndi að rifja upp Serbíulagið og Aserbædjangaulið.
Neipp!
En hún gat þó léttilega raulað DANCE-viðlagið
rússnesku babúskanna.
Svoooooo miklar dúllur!
Ein lélegasta lagasmíð allra tíma var svo Macedóníulframlagið,
að mati húsfreyju, þó söngkonan bjargaði því sem bjargað var
með ágætri rödd sinni.
Reyndar mörg léleg lög í kepninni í gær en, Macedónía......
HROÐBJÓÐUR!
En er að detta í ferðlag, stutt þó, húsfreyja.
Góðar stundir og gleðilega Hvítasunnuhelgi.
![]() |
Bilun í netkerfi Símans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 28.5.2012 kl. 19:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.5.2012 | 21:54
Stóra lagið frá litla Fróni komst áfram-BRAVÓ!
Húsfreyja og systurdóttir héldu
pizzuveislu í tilefni af sönglagakeppninni.
Marinó og Bára pældu í hraða og fjöri, á
meðan systurdóttir hafði mest gaman af "stuttpilsakeppninni"
sem er ætíð hliðarkeppni í Eurovision.
Húsfreyja sjálf reyndi að meta hrynjanda, takt, söng
texta og framkomu.
Hefur nú GLATAÐ sínu viðkvæma tóneyra, húsfreyja, á
einu kvöldi, og örvæntir um að það sé henni að eilífu týnt og að
henni takist aldrei að finna það aftur.
Í þetta sinn voru það ísraelir sem misþyrmdu
hlustum húsfreyju allhressilega með lagi sem
óneitalega minnti húsfreyju á "Lína litla ballerína" sem
Katla Marý söng hér á árum áður inn á barnaplötu.
Má þá húsfreyja frekar biðja um "Habanibía búe be".
HRIKALEGT!
Barnalagið hennar Kötlu mun skárra en þessi afbökun.
Veit Katla Marý af þessu?
En húsfreyja var ánægð með flutning Grétu, Jónsa og kó.
Þau voru grand og skiluðu þesu stóra lagi listavel.
Um aðra söngva og söngvara vill húsfreyja lítt tjá sig, nema babúskurnar
voru krútt, og 11 ára djásnið var hrifið af silfruðu englunum frá Írlandi, en
gaf það út að önnur lög keppninnar væru hálf-leiðinleg.
Húsfreyja óskar íslensku flytjendunum innilega til hamingju með
komast áfram.
Góðar Eurovisionstundir.
![]() |
Ísland komst áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2012 | 17:08
Júdóþema á árshátíð blankra bankahrunsmanna og kreppuvíkinga?
Eða máski verið að stofna nýja
"júdódeild" meðal grískra og ískra innflytjenda
uppi á litla Fróni, sem eru víst þær þjóðir sem komu
öllu verr út úr kreppunni en Frónbúar...
ef það er þá mögulegt?
Nú eða máske vantaði bara fallega og " ljósa gardínustrimla" með svörtu ívafi,
í gluggana á Ráðhúsinu, núna í sólbjörtu vorinu
og Gnarrinn er að "samnýta" gallana með júdódeild KA,
því hann er búinn að SAMEINA borgarstjórn og júdódeildina.
Gleymdi bara að láta þá KA-menn í júdó vita, Gnarrinn!!
Eða hvað?
Hví stela menn "júdógöllum"??
Ekki er auðvelt að selja slíkan varning á svörtum hér á landi.
Eftir því yrði tekið, ef einhver færi að spássera um í
brúkuðum júdógalla frá KA.
Selja þá út úr landi?
Kannski.
En þetta er fatnaður með beltum og alles.
Fatnaður tekur pláss, og 20-30 gallar eru nokk að skila einhverjum
kílóum inn á vigtina í farangri, þá farið er erlendis.
Og hvar er að finna markað fyrir STOLNA júdógalla erlendis?
Er kannski myljandi eftirspurn eftir júdógöllum á svörtum
mörkuðum þar úti?
Ef ekki, hvað vilja menn þá með stolna júdógalla?
Ekki eru þeir vænlegir til áts.
Því síður að klippa þá niður í ræmur og sjóða út í te.
Jú, einhverjir sniðugir að endurvinna fatnað, gætu
hugsanlega "hannað" slatta af hvítum eyrnaböndum með svartri stjörnu í miðju,
og selt túristum á leiðinni að týnast upp á Vatnajökli, grimmt.
Eða hannað nýja línu í fangabúningum: Hvítan "júdólíkan" galla,
með svartri rönd langsum niður frá hálsmáli niður að mitti.
Svarta línan væri síðan mælistika, þar sem fangelsisstjóri,
merkti með rauðum tússi þvert á þá svörtu, hve mörg ár,
fangi væri búinn að sitja inni.
Nei, bara svona hugdetta.
Húsfreyja hefur ekki hugmynd, hví menn stela júdógöllum frá KA,
í hvaða tilgangi eða af hvaða hvötum.
Er til júdódellufók, sem SAFNAR júdógöllum, kaupir þá grimmt á
netinu, kembir útimarkaði og vílar sér jafnvel ekki við að
stela eins og 20-30 stykkjum, til að ná safninu upp í
500 galla slétt?
Hvað veit húsfreyja.
En eitt er hún með alveg á tæru:
Júdógallaþjófar þessir hafa alls ekki gert sér grein
fyrir því, í hvílíkan rosa GALLAÞVOTT þeir voru að
koma sér!
Margra daga þvottur í venjulegri heimilisþvottavél!
Eins gott að þjófa þessir búi á næstu slóðum við Europreis,
svo þeir fái þvottaefni ódýrt....já og muna að þvo beltin sér,
svo gallarnir verði ekki allir gráir.....en máske er það einmitt meiningin...hmmmm!
Einhverjir orðið varir við, að verið væri að selja "gráa" íþróttagalla með frönskum,
"nýásettum" rennilásum?..... svartar eðalmjúkar hundaólar fást FRÍTT með?
Húsfreyja stóðst ekki mátið..hehehe.
Þykir henni þjófnaður þessi furðu gegna.
Góðar stundir á sólríkum sunnudegi.
![]() |
20-30 júdógöllum stolið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 17:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)