Svipaður kaupmáttur og 2004?

100 3298  Jaso!

  Eitthvað snýst fjármálahjólið illilega skakkt í heilabúi

  húsfreyju, ef þetta er rauninShocking.

  Árið 2004, getur húsfreyja svo svarið að skuldir hennar

  voru mun lægri en nú, matarkarfan kostaði einnig minna og hún

  þurfti ekki að selja  nokkur eldgömul frímerki úr

  frímerkjasafni föður síns heitins í hvert skipti henni flaug í hug

  að skella smá skvettu af bensíni á bílinn, svo hún gæti

  vísiterað móður sína austur fyrir fjallGetLostl.

  Neipp!

  Man ekki betur húsfreyja, en að henni hafi meira að segja

  tekist að taka frá nokkrar krónur mánaðarlega frá 2004

  til 2006, fyrir utanlandsferð með sína herlegu fjölskyldu,

  sem farin var í mars 2006 til Kanaríeyja...og það í 2 vikur.

  Glætan að það væri möguleiki á því herrans ári 2011Angry.

  Síðasta ár er satt að segja eitt hið svaðalegasta sem húsfreyja

  hefur upplifað fjármálalega séðErrm.

  Þó var hún prúðasta á tímum góðæris, keypti aldrei STÓRGRÓÐA- hlutabréf,

  fjárfesti ekki í neinum "pappírs fyrirtækjum á Tortóla, og þrasaði

  vikum saman í bónda sínum um stórhættuleg myntkörfulán í bílakaupum,

 ( áður en hún gafst upp, og sagði honum að hann mætti að ráða þessu ....

  og bóndi var snöggur að taka eitt prímaflott myntkörfulán fyrir

  nýlegri Hondu, sem nú er að drepa hann að borga af Crying)

  og hún lamdi í borðið og sagði enga þörf á "flatskjá" inn á heimilið,

  44 tommu túpusjónvarpið væri alveg nógu gottWhistling.

  Bóndi gaf flatskjáinn eftir, fyrst hann fékk bílinn...Halo

  en það kom ekki í veg fyrir fóstursonur húsfreyju gæfist upp

  tæpum tveimur árum eftir hrun, á að borga af myntkörfuláni sínu

  fyrir einum herlegum flatskjá....bóndi sem hvort eð er var búinn að

  greiða eina og eina flatskjásgreiðslu til að reyna að hjálpa,

  tók þá yfir lánið og flatskjáinn, og uppi sat húsfreyja með

  myntkörfulán númer tvöPinch.

  Jamm...og flatskjáAngry.

  Neipp, 2011 telst seint til betri tíma með blóm í haga, batnandi

  fjárhags, dýrðar og dásemda og því síður SVIPAÐS kaupmáttar

  og árið 2004, hjá húsfreyju.

  Af og frá.

  En húsfreyja játar fúslega að hún er enginn fjármálasnilli,

  og verður seint talin vera reikningshaus, með allt að 23 aukastafi

  "pí" á tæru...veit ekki einu sinni fyrstu tvoPinch!

  En kannski var húsfreyja bara svona hrikalega ofursparsöm og séð,

  með peninga sína árið 2004, að henni finnst hún hafa verið

  með miklu betri auraráðWhistling.

 Sjálfsagt legið eins og ormur á gulli á launum sínum, húsfreyja,

  aðeins keypt salt í grautinn einu sinni á ári, verslað allan sinn

  fatnað hjá "Góða Hirðinum", gert við götótta sokka á hverju kvöldi

  yfir Kastljósinu, aðeins haft logandi á kertaljósum yfir veturinn

  með sprittkertum keyptum í Bónus og gefið öllum ættmönnum sínum og vinum

  afmælis- og jólagjafir keyptar í "hundraðkallabúðum"Cool!

  Sjálfsagt ekki verið með réttu ráði, húsfreyja allt árið 2004Shocking.

  Þjáðst það herlega ár af  "ofurnísku fjármálaóráði", og sofið upp

  við dogg, með kodda sinn fullan af seðlum.....hmmm....það

  er kannski þess vegna sem húsfreyja er nú að berjast við

  helvískan langvinnan hálsríg og mergjaðan verk í öxlumDevil?

  Hvað veit húsfreyja?

  Jamm, en merkileg frétt þetta, ekki síður en þegar Ólína Þ. sagði

  "kreppuna nefnilega búna" nú á dögunumTounge.

  Hleypa Marinó og Báru í kompjúterinn næst.

  Góðar stundir.

  


mbl.is Kaupmáttur svipaður og 2004
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband