27.5.2010 | 18:19
Mikilvægar upplýsingar...
...þetta, um oddvitana í Reykjavík!
Og er nú alveg hreint á kristaltæru
hvaða flokk húsfreyja mun kjósa í
komandi kosningum!
Hefur verið í bévítans vandræðum, húsfreyja....eiginlega
hefur hún verið að bíða eftir "hugljómun".
Og nú sér hún í hendi sér,
að hana bráðvantaði "slagsmálaferils-upplýsingar" þessar
um oddvita borgarinnar.
Þetta eru auðvitað upplýsingarnar sem þjóðin
hefur "beðið eftir" og munu hjálpa hverjum og einum
kjósenda að gera upp hug sinn,
á degi örlaganna.
Ekki nokkur spurning!
Skiptir auðvitað höfuð máli að menn séu búnir
með "ofbeldiskvótann", hafi verið
sundurlamdir og handleggsbrotnir,
ætli þeir sér að verða borgarstjórar.
Gott væri einnig ef þeir hefðu lent
í mergjuðu einelti, orðið fyrir innbroti
með tjóni upp á hundruði þúsunda...
og langsamlega best væri auðvitað ef
allt hefði brunnið að minnsta kosti einu sinni, ofan af þeim.
Og valið verður oss kosningaþjáðum fjármálavitleysingum AUÐVELT!
Kjósum að sjálfsögðu þann vesalinginn sem við VORKENNUM mest!
Jamm!
Aldeilis brilliant að fá fréttir þessar af oddvitum vorum á silfurfati
rétt fyrir kosningar.
Húsfreyja var farin að örvænta!
Í ALVÖRU!
Góðar kosningastundir!
![]() |
Ólafur F. handleggsbrotnaði í slagsmálum við vin sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2010 | 18:12
Öskurok og sandbyljir.
Ekki lítur þetta gæfulega út.
Sei, sei nei.
Ófært á Sólheimasandi!
Og nýja höfnin Eyjamanna á Bakka?
Ætli þar sé allt "grænt og uppgróið",
hugggulegt, fínt og tilbúið fyrir vaxandi
umferð bíla, þá Herjólfur fer að mæta
þangað á klukkustundar fresti...í sumar?
Ætíð heiðskírt og bjart?
Máske búið að "spá" blankalogni og bongóblíðu
á Bakka og næsta nágrenni um "alla ókomna tíð"?
Einhverjir ægilegir veðurfræðingasnillar, jafnvel með málin á tæru?
Eða verða Eyjamenn og ferðalangar allir er með Herjólfi
ferðast, að fá sér eitt herlegt "GPS-tæki" í bílinn svo
þeir rati um Suðurlandið í brjáluðum öskustormi
og sandbyl?
Munu Eyjamenn máske ALDREI finna höfuðborgina við
sundin bláu aftur?
Ramba beina leið austur á Horn í Hornafirði,
á 12 kílómetra hraða, í gegnum öskusortann....
kolbikasvart helvíti, aðeins brotið upp af
draugalegum gráum hrossum norpandi við
öskugrafnar girðingar.....úúú!
Verður "Horn" máske nýja höfuðborgin Eyjamanna?
Verður "bílasprautun" aðalatvinnuvegur Hornfirðinga þar með?
Eða verða mattir, silfurgráir og vel "öskuskafnir" bílar "inn" í Eyjum?
Næstu 20-30 árin!
Verða bændur undir Eyjafjöllum RÍKIR menn?
Af því að selja Eyjamönnum sem og ferðamönnum öllum
"öskugráar" andlitsgrímur, úr eðalgrárri sauðarullinni?
Núll komma núll fimm grömm af ösku fylgir "FRÍTT" með hverri grímu!
Verða allar draugamyndir HOLLYWOOD teknar upp
undir Eyjafjöllum og nágrenni næstu 10 árin?
"RED AND BLOODY-BLACK SUNSET" 1-5 verða þá nýjustu
hryllings-drauga smellirnir frá Hollywood-smiðjunni
ár eftir ár.....ALLAR teknar upp á litla Fróni í mergjuðu
"öskuroki"!
Hætta bændur Eyjafjalla að hokra í öskusvartri sveit,
með baulandi gráar kýr og jarmandi kindur, nema sem hobbý,
og gerast allir sem einn, "aukaleikarar" í amerískum stórmyndum?
Jamm.
Margt á huldu í öskugrárri þoku framtíðar.
Ýmislegt sem birgir sýn!
Líkurnar á sunnlensku koppalogni árum saman,
eru álíka miklar og líkurnar á því að húsfreyja
skelli sér í ferð upp á Everest-tind í þessu lífi!
(Astmaveik kuldakreista, húsfreyja!)
Svo öskustormurinn blívur á Sólheimasandi, Bakka og víðar!
ÓFÆRT!
Hallelúja!
Góðar stundir.
![]() |
Sólheimasandur nánast ófær |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.5.2010 | 12:11
Down to earth raunveruleiki...
...getur verið erfiður og sár ýmsum.
Og raunin er sú að við búum öll
á "móður Jörð".
Og "móðirin" er sko alls ekki einhver steindauð
"kúla" á rólegu sveimi í kringum sólu.
Ó nei.
Bullandi virk eldfjöll þvers og kruss út
um allt á móður Jörð.
Heilu jarðarflekarnir á stöðugri hreyfingu og iði
undir okkur mannanna börnum, sem og öðrum
lífverum jarðar....allt á stöðugu ruggi og róli.
Jarðskjálftar, eldgos og flóðbylgjur eru skýr
skilaboð frá "Móðurinni" að hún sé langt frá því
að vera dauð úr öllum æðum.
Þvert á móti er hún bara asskoti hress og ern kerling,
sem hefur gaman að því að "hrista" upp í hlutunum.
Og af því að láta "okkur börnin hennar" vita, HVER ræður í raun!
Varðar hana lítið um grát okkar og angist yfir TAPI
á einhverjum seðlum, búnir til úr niðurhöggnum trjám hennar,
enda langt síðan hún "grét" missi sjálfra trjánna.
Og hún tekur sig til reglulega og minnir okkur á eitt, og eitt aðeins!
VIRÐINGU!
Virðingu fyrir ógnarkrafti hennar og hamförum.
Fyrir ægivaldi því sem hún hefur yfir okkur og
öllum þeim lífverum sem í hennar skjóli búa.
Ferðaþjónustufólk, ferðamenn og heimshornaflakkarar
verða eins og allir aðrir hér á jörð,
að gera sér grein fyrir "alvarleika" málsins,
þegar "Móðirin" blæs öskustrók upp í himingeiminn á einni
fjölförnustu flugleið okkar mannanna.
Grátur, gól, reiði, angist yfir töpuðu fé,
langtíma dvöl á flugstöðvum,
frestuðum ferðum, aflýstri eða mikið breyttri
ferðaáætlun hefur ekkert upp á sig nema leiðindi.
Mun betra að halda stóískri ró, líkt og öskugráir
Eyjafjallabændur, finna aðrar leiðir til að ferðast
yfir Atlandshafið og njóta þess vera þrátt fyrir allt
nokkuð öruggur í faðmi "móður Jarðar".......næstu
daga....eee...daginn í dag....altént þessa mínútuna.
Svo ef við jarðarbúar verðum að þjást tímabundið af smávegis
"pain in the ASH", so be it!
En húsfreyja ætlar "til ferða" í dag...á bifreið sinni,
á kaffiboð hjá systur í Þorlákshöfn.
Hefur heyrt því fleygt, húsfreyja að "móðirin" sé
eitthvað farin að róast þar uppi á jökli....
Góðar "ferðastundir" í sumar!
![]() |
Íslenskur öskuverkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.5.2010 | 18:46
Nú, bullandi sparnaður...
...þetta fyrir skánska kálgarðsbændur
!
Þeir spara sér auðvitað einhvern
helvískan helling af seðlum,
sem hefðu öðrum kosti verið eytt í að kaupa
rándýrt eitur á pöddur, lús og kálorma.
Nú "skjóta" bara bændur bévítans
kálmaðkana í tætlur með hríðskotarifflum,
brúka "napalm-bombur" á pöddurnar og lýsnar,
og sé þá eitthvað kvikt eftir í kálgarðinum...og
í 10 kílómetra radíus í kringum hann,
má þá klára dæmið með "handsprengjum"!
Selja svo þeir skánsku "pöddu-og ormalaust"
salat grimmt í sumar...og reyndar "vel napalm-grillað" líka.
Hehehe...skondin frétt!
Snjallir "útreiknarar" í sænska hernum, og sjálfsagt örlítið
litblindir líka, fyrst þeir rugluðust á "kálgarði" og "flugvelli"....
nema að flugvöllurinn í Rynkeby, sé "grasflugvöllur".
Máske jafnvel brúkaður sem "gólfvöllur" á sunnudögum og
Páskum.
Aldrei að vita.
En húsfreyja er komin í helgarfrí, svo
góðar stundir og góða helgi.
![]() |
Hergögnin lentu í kálgarðinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.5.2010 | 18:06
Lítill framboðsfundur....
...bara svona meira spjall við
fólkið í hádeginu" ? sagði
skrifstofustjórinn á vinnustað húsfreyju.
Húsfreyja gjóaði augum á frambjóðendur,
sem mættir voru með hvíta plastpoka.
"Jaso, RÚSÍNUFLOKKURINN bara mættur"
hugsaði húsfreyja.
Gaf leyfi húsfreyja og það stóð heima, frambjóðendur
byrjuðu á því að heilsa og deila út
"rúsínupokum" með kaffinu eftir hádegismatinn.
Húsfreyja nikkaði frambjóðendunum tveimur og
reyndi að beina þeim að borðum eldklára fólksins.
Kvenframbjóðandinn rataði strax á borð fullt af
eldklárum öldungum, en karlinn var ekki eins heppinn.
rambaði beint á borðið hjá þeim sem voru orðnir
all nokkuð gleymnir og sumir töluvert mikið, svo jaðraði
við minnisleysi.
Hann heilsaði fólki með virktum, og það tók vel undir,
á meðan frúin á eldklára borðinu, þurfti talsvert að
útskýra veru sína á svæðinu og stefnu flokksins,
og rökstyðja hví í ósköpunum öldungar ættu að kjósa
"rúsínuflokkinn" fram yfir aðra.
"Mikið ertu huggulegur og skemmtilegur maður" sagði
ein elskulega "svolítið farin að gleyma" frúin.
Maðurinn innti eftir áhuga annarra flokka að mæta á svæðið.
"Við höfum bara ALDREI séð nokkurn frambjóðanda hér
fyrr en þig" svaraði önnur frú töluvert mikið farin að gleyma.
"Hvað segirðu"?, frambjóðandi var rasandi.
"Já, svaraði frúin að bragði, þú ert sá fyrsti síðan ég kom hingað"!
Frú þessi hefur dvalist hartnær 8 ár hjá húsfreyju, og hitt töluvert af
alls konar frambjóðendum á tímum kosninga í landi voru.
Húsfreyja glotti en lét vera að leiðfrétta elskulega frú sína.
Frambjóðandi setti í gír og ræddi um stefnu "rúsínuflokksins"
í borgarstjórnarkosningum.
"Ég kýs þig, og þú verður forseti" sagði elskulegur
karl með langt genginn minnissjúkdóm við hlið frambjóðenda.
"Já, og ég skal sko kjósa þig, ef ég fæ hjá þér bækling" sagði
sú sem ALDREI hafði hitt frambjóðanda fyrr...hvorki þennan né nokkurn annan.
Frambjóðandi varð eitt bros, reyndi að leiðrétta "forsetaframboðið",
reif upp bæklinga úr poka sínum og rétti ALDREI-konunni.
Konan rýndi á forsíðuna, rétti svo bæklingin yfir til
"svolítið farin að gleyma frúnnar", "lestu þetta fyrir mig,
ég er alveg orðin blind"!
Svolítið farin að gleyma frúin tók glöð við bæklingi,
"ég skal svo sannarlega lesa þetta, hlýtur að vera
bæði hugguleg og skemmtileg lesning frá svona
myndarlegum manni eins og þér" og las síðan
í honum það sem eftir lifði hádegisverðar...í hljóði.
"Ertu læknir"? spurði gamli með langt gengna minnissjúkdóminn.
Frambjóðandi fór allur hjá sér, var eiginlega alveg í rusli,
þegar húsfreyja kom honum til bjargar.
Hún smellti sér í pælingar um næsta borgarstjóra,
hvort íbúar í borginni við sundin bláu myndu í
alvöru kjósa yfir sig "veifandi" borgarstjóra sem
býður upp á hlunnindi eins og FRÍTT í sund og
niðurskurð á "öspum"!
Frambjóðandi brosti glaður og feginn, og taldi að borgarbúar
héldu sönsum, og myndu skilja að grín væri grín,
og kysu "ábyrgt fólk" eins og er svo mikið af í
"rúsínuflokknum"!
Húsfreyja tók undir með frambjóðanda, enda fannst henni
ekki vert að bæta við hremmingar hans.
Kvöddu þau svo "rúsínuflokksframbjóðendur" öldunga
og starfsfólk með virktum, og fóru að hitta ellismelli
á öðrum deildum.
Jamm!
Hlakkar til að fá "pennaflokkinn", "barmmerkjaflokkinn", "blöðruflokkinn"
og "skera-niður-aspir-flokinn" í heimsókn næstu daga,
húsfreyja.
Verður stuð.
Er svo húsfreyja búin að skreppa með systur í Þorlákshöfn
á kosningaskrifstofur, að kynna sér stöðu mála þar í
sveitapólitíkinni.
Líst bara vel á.
En systir hefur verið dugleg að flakka á milli kosningaskrifstofa
að kynna sér málin.
Ein "dökkblá" frú í höfninni er heldur óhress með "ráp"
þetta á systur, húsfreyju og þriðju konu sem gjarnan slæst
með í för, og sagði þær vera "flokksskækjur"!
Húsfreyja glotti við tönn, og sagði það ekki verra að
"skæklast" og "skækjast" á milli flokka til að fá málin
á hreint, en að vera "svarblá" af heilaþvætti.
Jamm.
Víða heitt í kolum þegar kosningar fara í hönd.
Húsfreyja hefur lúmskt gaman að!
Góðar stundir og húsfreyja mælir með "rúsínuflokknum"....
í dag...Spurning hvað verður á morgun....hehehe!
![]() |
Framboðsfundi frestað vegna öskufalls |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2010 | 20:38
Allt er nú sem orðið SVART...
...ærnar, kýr og smalinn!
Já og strókurinn frá Eyjafjallajökli sást stefna
í austur, þá húsfreyja skrapp austur fyrir fjall
í dag með 9 ára djásnið.
Eyjarnar mistruðu í gráu skýi, hálf umkomulausar
og daprar að sjá.
Systir í Eyjum var í símanum við okkur í Þorlákshöfninni,
alveg rasandi á "öskugráum" skít og drullu, og rausaði villt og galin
í peyjum sínum að "fara úr fötunum ÚTI" á meðan
hún barmaði sér og sínum.
Heppin samt að þurfa aðeins að hugsa um 3 grútskítuga
peyja, einn drullugri hund og eina tandurhreina "neitar að
fara út í þennan viðbjóð"-móður.
Engar kindur, kýr, eða svín að hafa áhyggjur af.
Engin uppskerubrestur eða skortur á heyi.
En svo heppnir eru bændur undir Eyjafjöllum ekki.
Allt í sótsvörtu tjóni og ösku.
Vonar húsfreyja að "þeim í neðra" sé farið að leiðast
þar í jöklinum, og fari að huga að smá lúr...
og að fara í það að hrella Mister Brown fyrrum
"yfirhatt" í Bretlandi næst.
Kannski tapi sér í pípulögnum hjá Brown, og jafnvel
rústi hjá honum salerninu þá hann hyggur næst
á djöfulgang og læti.
Hvíla sig á eldgosum...tekur of mikla orku frá öllum.
En djásnið vill í kompjúterinn næst.
Góðar stundir.
![]() |
Allt orðið svart aftur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.5.2010 | 20:29
Send us CASH...
...and we'll send you "ash"
.
Líst vel á þetta, húsfreyju.
Eigum heilu helvítis tonnin af
henni í hrúgum og haugum
í kringum Eyjafjallajökul.
"Just don't eat the black shit,
or spread it around airports,
and you'll be fine...as well as the
proud owners of Icelands finest
volcano ash", væri samt öruggara
að skella utan á öskuílatin.
Svona til að fyrirbyggja meiri háttar
slys á erlendri grund.
Hehehe, stóðst ekki mátið húsfreyja.
En er auðvitað brilliant leið til að losa okkur
við öskuna...og "græða" smávegis aur upp
í déskotans Icesafe-skuldina í leiðinni.
Tæki jafnvel húsfreyja það að sér í "sjálfboðavinnu"
að troða ösku í flöskur fyrir "svarttúna" Eyjafjallabændur!
Er ömurlegt að upplifa "svart" vor, heyleysi og vandræðagang
í miðjum sauðburði.
Eyjafjallabændur eiga alla samúð húsfreyju.
Ekki síður íbúar í Vík í Mýrdal.
En "sá í neðra" verður að fá að blása úr sér
vonskunni yfir ofurbjartsýnum Frónbúum,
og örlítið skárra er að hafa hann þarna í Eyjafjallajökli,
í djöfulgangi, öskuhrati og eldglæringum en
í Kötlu gömlu.
Húsfreyja svo að koma að austan, skrapp
á kosningaskrifstofur með systur í Þorlákshöfn.
Leist húsfreyju ágætlega á "kosningaloforðin",
en spáir litlu um efndir.
Hér í höfuðborginni spáir húsfreyja hinsvegar
því, að nýr borgarstjóri verði "veifari" og
sé meinilla við "aspir", og gangi grimmt í að skera þær
niður eftir kosningar.
Vonar húsfreyja að það grínið verðið töluvert
skárra en "borgarstjóri í einn dag-grínið"
sem var í algleymingi hér í borginni við sundin bláu
rétt fyrir kreppu og bankahrun.
Húsfreyja svo að setja sig í "sólpallsgírinn" og er að
stumra ufir túlipönunum sem bónda tókst næstum að
drepa, með því að skella fargi ofan á túlipanapottana.
Finna falleg sumarblóm á pallinn næst.
Góðar snemmsumarsstundir.
![]() |
Askan selst eins og heitar lummur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 14.5.2010 kl. 13:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2010 | 18:33
Stjórnvöld svara ekki?
Hvurslags?
Eru frónversk stjórnvöld bara farin í fílu
við Sigurð, vegna smá bankahruns
og nokkurra milljarða taps?
Bara svona smotterí sem ekki kom í veg fyrir
á Sigginn gat flutt í sæmilega gott húsnæði
í hinu mikla veldi Bretadrottningar!
Hva? Hann átti NÆGAN AFGANG eftir bankahrunið,
bara hinir brjálæðingarnir hér uppi á litla Fróni,
sem allir klikkuðust í góðærinu og keyptu sér
"flatskjá" sem sitja í súpunni!
Ekki hans mál að þeir vesælu áttu eigi banka eða sátu í stjórn
einnar slíkrar stofnunar, og voru með eitthvað
"örlítið lægri" laun en hann sjálfur!
En máske er bara alltaf "á tali" hjá voru herlegu
stjórnvöldum vegna mergjaðra og heitra
símaviðræðna við breska og Niðurlendinga vegna
kerlingarfálu einnar er húsfreyja kallar stundum "Ísbjörgu"?
Allar símalínur landsins kannski bara rauðglóandi,
og Sigginn orðinn logarauður á hægra eyra, að hanga
svona í símanum með talsóninn suðandi,
og sjálfsagt kominn með legursár
á hægri olnboga eftir að hvíla símahandlegginn
á mahogany-skrifborðinu sínu.
Jamm.
Ill örlög þetta að geta ekki einu sinni fengið
"upplýsingar" frá stjórnvöldum um hvað málið varðar.
Hefur bara ekki "grænan grun" um hvað er í gangi,
blessaður bankamaðurinn, enda hann ekki framið nein lögbrot
við rekstur bankans....mesta lagi hægt að brígsla honum
um magnaða heimsku, skammsýni og því að klikka
ALGERLEGA í starfi sínu sem stjórnarformaður bankans!
Jamm!
Sér það líklega núna Sigginn, að hann hefur valið sér
ALRAGNT lífsstarf, þegar hann gerðist bankamaður!
Hefði aldrei nálægt banka átt að koma...nema þá kannski
til að skúra og tæma úr ruslafötum!
Gerast þá "ráðgjafi"?
Ráðgjafafyrirtæki?
Gleymið því!
Húsfreyja myndi ekki þiggja ráð frá fyrrum stjórnarmanni bankans,
um hvernig best væri að afhíða banana eða sjóða egg...
og allra síst treysti hún ráðgjöf hans í fjármálum!
Vonar samt húsfreyja að blessaður maðurinn finni
starf í veldi breskra, við hæfi, þó svo að eitthvað
fái hann lægri launin þar en í herlegum banka vorum.
En aumingja stjórnarformaðurinn fyrrverandi er
greinilega í vondum málum með upplýsingaflæði
og símtengingar.
Nær ekki í nokkurn mann hér uppi á litla Fróni sem
vill tala við hann.
Verður bara að treysta á verið sé að rukka hann um
skýringu á vangreiddum stöðumælasektum.
Nú svo gæti hann alltaf "skroppið" til Köben,
og síðan ljúfa siglingu með Norrænu hingað til okkar á litla Fróni...
þó það væri til þess eins að afla sér upplýsingar um
hvað sé í gangi og því oss frónverskum finnst
áríðandi að spjalla við hann.
Ekkert hægt að treysta á flugið hingað lengur.
"Sá í neðra" er bandbrjálaður yfir að hafa misst
haug af "svörtum sauðum" af landi brott, og hefur
hertekið Eyjafjallajökul í mótmælaskyni með djöfullegum
afleiðingum fyrir flugið!
Jamm.
Blessaður stjórnarformannsöðlingurinn að "lenda svona óvart" í þessu.
En grilla hammara næst og græja grænmeti.
Góðar stundir.
![]() |
Segist engin brot hafa framið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2010 | 19:07
Það sem augað sér.
Varla geta þetta talist
flunkuný vísindi.
Frá því að húsfreyja hafði vit og rænu til
hefur útlit skipt hana máli.
Og það á hverju sem er.
Líkt og húsfreyja hafi innbyggt "fegurðarskyn"
sem stjórnar hugmyndum hennar um hvað sé
gott, vont, ljótt, fagurt, sætt, súrt, beiskt eða salt.
Veit ekki hvaðan henni kemur viska þessi,
en man eigi að síður eftir að hafa ákveðið
að rúgbrauð væri óþverri sem lítill krakki,
vegna þess að brauðið "var forljótt"!
Og þegar húsfreyja seinna meir reyndi að
snæða girnilega rúgbrauðssúpu með þeyttum rjóma,
reyndist súpan sú "óþverri" á bragðið, hvað húsfreyju varðaði.
Getur enn þann dag í dag hvorki borðað rúgbrauð
né rúgbrauðsúpu!
BJAKK!
Og svona hefur þetta verið með flest allt í lífi húsfreyju.
Sæti strákurinn í menntó sem allar stelpurnar lágu flatar
fyrir, var eiginlega bara lala í augum húsfreyju,
en barnalegi ljóshærði gaurinn sem skvísurnar í bekknum
gerðu grín að, höfðaði mun meir til húsfreyju.
Enda er sá sæti að springa úr offitu í dag, og er
nýorðinn atvinnulaus, en sá barnalegi, ljóshærði
er vinsæll rithöfundur, grannur og spengilegur sem fyrr.
Jamm.
Það sem augað sér og skynjar er oft
víðtækara en maður heldur, og krakkar sem
fíla umbúðirnar af hollum mat eru mun líklegri að njóta
hans en hin, hefði húsfreyj talið.
Sjáið bara "listfengið" hjá meistarakokkum er þeir
raða á matardiskana eðalréttum.
Er iðulega konfekt fyrir augað, sem aftur eykur gæði
matarins fyrir bragðlaukana, og vellíðunina í maganum
er hann er snæddur.
Namm.
Mannskepnan er furðulegt fyrirbæri, og merkilegt
hvernig við upplifum, sjáum og skynjum lífið á misjafnan máta
hvert og eitt.
Þá húsfreyja var barn að aldri, vildi hún að fólk
fengi nöfn eftir "svipbrigðum" sínum...og var
alveg rasandi þegar að kona sem hreinlega
ÁTTI að heita Ingibjörg samkvæmt hennar tilfinningu
hét svo bara Ásta!
Og maðurinn sem henni fannst hljóta að heita Hermundur,
hét svo því stuttaralega nafni Gunnar.
Húsfreyju sem þá var lítil skotta, fannst þetta alveg
hroðalegt, hve fólk var óheppið með nöfnin sín.....
en svo var hún sosum ekkert heppin sjálf með nafn...
sat uppi með Sigríður, þegar hún ÁTTI að heita Elah Búga!
Eða Ellabogga eins og fullorðna fólkið í kringum hana bar það fram.
Kynnti sig lengi þannig, húsfreyja, sem barn, móður hennar
til mikillar armæðu og mæðu, enda bévítans mál að útskýra
"Elinborgar-nafngiftina" á barninu, og ekki eina einastu
Elínborgu að finna hvorki í móður- né föðurætt.
En svo átti líka húsfreyja sem barn, það til að klikka ALVEG sjónrænt,
og til dæmis hræðast fólk sem var "rangeygt" eða
"rytjulegt" til höfuðsins.
Telja það sorgmætt, ljótt eða jafnvel vont.....en oftast
samt bara dapurt.
Hafði ekki alltaf þroska til að úthugsa "sjónræna skynjun"
sína, sem skotta, og rangtúlkaði margt, enda heimur
fullorðna fólksins iðulega flókinn og snúinn.
En eitt lærði húsfreyja snemma á ævinni,
og það er að "augun" eru gluggar sálarinar....
og þau sjá og skynja mun meira en margur heldur.
Það er eins og maður hreinlega "andi inn" með augunum,
fallegu landslagi, svo húsfreyja taki nærtækt dæmi.
Eins og augun megni að fylla brjóstið af ljósgulu og bláu ljósi,
standand í miðri Þósmörkinni um sumar í blíðviðri.
Og hver hefur ekki upplifað að hreinlega "drekka"
með augum sínum fallegt barnsandlit baðað björtu brosi?
Fundið "eld kvikna í augum sínum" þegar aðlaðandi
einstaklingur af gagnstæðu kyni blikkar mann.
Jamm.
En svo mörg voru þau orð.
Ferð heim í borgina við sundin bláu næst, eftir sólardag
í Þorlákshöfn.
Góðar stundir
![]() |
Umbúðir skipta máli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 14.5.2010 kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2010 | 13:26
Dorrit... New York... og barningur...
...er þetta að komast að
kompjúternum með eina bloggfærslu"
hugsaði húsfreyja, um leið og hún
hlustaði á 9 ára djásn og bónda þrasa um
hvort þeirra hefði setið lengur við tölvuna.
Djásnið situr við "fésið" og leiki, og bóndi
við íþróttaleiki og fréttir.
Síðan þrasa þau og þrátta um þennan eina
tölvugarm sem til er á heimilinu.
Djásnið verður sárt, tárast og skellir hurðum,
bóndi pirrast yfir af hafa misst af marki hjá
"Úlfunum" og húsfreyja reynir að vera sáttasemjari
og fá málsaðila til að skipta tíma fyrir framan kompjúter
jafnt á milli sín.
Jamm.
Húsfreyja var aldrei mjög snjöll í vélritun hér
í den, hefði orðið GLATAÐUR einkaritari,
svo henni veitir ekki af minnst klukkustund til að
pistla smá á blogg sitt.
Hennar úthlutaði tími undanfarið við tölvuna er allt frá 30. sek.
upp í 15-20 mínútur á dag, en lengur fær hún sjaldnast
að dudda sér við "rafheilann"!
Svo pistlarnir fæðast og deyja í hugskoti húsfreyju,
og hverfa inni í óminni gleymskunar að eilífu með
jöfnu millibili.
En veit vart hvað hefur gerst í húsi sínu, húsfreyja í dag.
Hún er "ein" heima á laugardegi, djásnið horfið á vit dýralífs og
hoppandi skopps í Húsdýragarði en bóndi er farinn
að reyna "drekkja" þrálátum axlarverk í sundlaug
hér í borg.
Húsfreyja getur dundað sér við pistlaskrif að villd....
fram yfir hádegi og jafnvel lengur.
Og hvað?
Jú, allar hennar snilldarhugmyndir að pistlum eru
horfnar úr höfði húsfreyju.
Piff!
Draugalegur, hjáróma ómur sem bergmálar í hugskotum hennar,
af stöku hugmynd, meinlegri skoðun eða snjallri hugsun,
það eina sem eftir er.
Ætlaði að rita einn herlegan "hallelújapistil" um
bankastjóra sem skitu upp á bak og lentu síðan
inni á Litla Hrauni......í einangrun svo enginn annar
þurfi að þola af þeim ódauninn!
En nei!
Allt farið.
Ætlaði að skrásetja eitursnjallar hugmyndir
um tilurð eldgosa á borð við Eyjafjallajökulsgos,
með tilheyrandi djöfullegum brennisteinslýsingum
og eldglærum.
Púff!
Fuðruðu upp í frumeindir sínar, hugmyndirnar þær.
Öfugsnúinn déskoti!
Húsfreyja er súr.
Gallsúr!
Og svei því öllu saman....hún skrifar SAMT!
Þó ekki verði það allt gáfulegt...
Elskuleg og æruverð forsetafrú okkar Frónbúa
er ætíð að gera góða hluti fyrir "stórasta" land í heimi.
Nú er sú fína frú farin að styðja "öskusölu" í New York!
Eins og þeir hafi ekki nóg af skít og drullu í þeirri
herlegu borg þar fyrir.
Altént man húsfreyja ekki betur en allt væri
vaðandi í rusli og skít, brennandi öskutunnum,
og hrikalegu drasli þá hún rölti um sum hverfin
í þeirri dýrðarborg hér í den.
Og ekki gleymir hún vesalings fólkinu sem lá eins og hráviði
um allt, heimilislaust og allslaust.
Þurftir ekki annað en að skreppa nokkur skref
niður 42. stræti af fimmtu breiðgötu með öll sín æðislegu
flottheit, og voila!
Þarna var allt vaðandi í óhroða, eymd og skít.
En nú er sem sagt Dorrit farin að styðja öskusölu
í New York....eða svo segir Fréttablaðið...ekki lýgur það!
Fá New York-búar heimsenda fulla flösku af þá "líklega"
eldfjallaösku fyrir 20 dollara!
Jamm! Tuttugu dollara!
Nefndir eru til sögunnar tveir netkaupmenn sem
hingað til hafa selt sælgæti á vefnum (Nammi.is), en eru nú
komnir í bullandi "útrás" í öskunni.
Þykir húsfreyju líklegt að netherjar þessi verði að
MERKJA 20 dollara öskuflöskur sínar vel og rækilega,
svo New York búar hreinlega "éti" ekki drullugráa dýrðina.
VARÚÐ-BANEITRUÐ ELDFJALLAASKA!!
VARÚÐ- ASKA BEINT ÚR IÐRUM MÓÐUR JARÐAR!!
Eða bara :
FOR HEAVENS SAKE-DON'T EAT THIS SHIT!!!
Jamm, við eigum frábæra forsetafrú, og sú tekur sér
aldeilis ýmislegt fyrir hendur.
Verst að hún er alltaf í einhverju bévítans basli
með galakjólana sína, blessunin, og illt að
treysta forseta vorum að mæta með þá í flugi til Danmerkur,
spúi hér heill jökull eldi, eymyrju og ösku uppi á litla Fróni.
Alltaf gaman að frétta af forsetafrú vorri.
En fyrst húsfreyja er farin að skrifa um New York,
þá kemur henni ýmislegt í huga.
New York var á þeim árum sem húsfreyja vísiteraði
borgina, skreytt miklum "tvíburaturnum", WORLD TRADE CENTER.
Lagði húsfreyja ferð sína upp í þá miklu turna og barði
ægifagurt útsýnið þaðan augum.
Því New York er ekki einungis borg fátæktar, eymdar og rusls,
heldur einnig borg stórkostlegrar framkvæmdagleði, menningar,
arkitektúrs og merkilegs skipulags.
Þar er lifað hratt og mikið lagt upp úr félagslífi og skemmtunum.
Er suðupottur menningarheima og borg mikilla öfga.
Aldrei leiðinleg borg, þó ekki sé allt fallegt eða gott í henni.
Gælunafn hennar "the big apple" á vel við,
ef húsfreyja fær að notast við epli vondu stjúpunnar
í ævintýrinu um Mjallhvít og dvergana sjö.
Einn helmingur eplisins er skemmdur og baneitraður,
en hinn ekki.
Þannig upplifði húsfreyja einmitt New York á sínum tíma.
Nú kemst húsfreyja aldrei framar upp "tvíburaturnana"
fremur en nokkur annar á jarðríki.
Ellefti september 2001 strokaði þá út, og markaði
djúpt, svart sorgarspor í sál New York-búa.
Þætti húsfreyju merkilegt að vísitera nú aftur
"stóra eplið" og athuga hvernig New York-búar kæmu
hennir fyrir sjónir, en ekki er víst að kreppa og fjárhagur leyfi það.
En nóg að sinni, enda bóndi mættur úr sundi,
og þarf án efa að komast í kompjúterinn fyrst
9 ára djásnið er ekki heima.
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt 22.5.2010 kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)