Lítill framboðsfundur....

Black%2520Raisins  ...bara svona meira spjall við

  fólkið í hádeginu" ? sagði

  skrifstofustjórinn á vinnustað húsfreyju.

  Húsfreyja gjóaði augum á frambjóðendur,

  sem mættir voru með hvíta plastpoka.

  "Jaso, RÚSÍNUFLOKKURINN bara mættur"Joyful

  hugsaði húsfreyja.

  Gaf leyfi húsfreyja og það stóð heima, frambjóðendur

  byrjuðu á því að heilsa og deila út

  "rúsínupokum" með kaffinu eftir hádegismatinnCool.

  Húsfreyja nikkaði frambjóðendunum tveimur og

  reyndi að beina þeim að borðum eldklára fólksins.

  Kvenframbjóðandinn rataði strax á borð fullt af

  eldklárum öldungum, en karlinn var ekki eins heppinn.

  rambaði beint á borðið hjá þeim sem voru orðnir

  all nokkuð gleymnir og sumir töluvert mikið, svo jaðraði

  við minnisleysiWhistling.

  Hann heilsaði fólki með virktum, og það tók vel undir,

  á meðan frúin á eldklára borðinu, þurfti talsvert að

  útskýra veru sína á svæðinu og stefnu flokksins,

  og rökstyðja hví í ósköpunum öldungar ættu að kjósa

  "rúsínuflokkinn" fram yfir aðraPinch.

  "Mikið ertu huggulegur og skemmtilegur maður" sagði

  ein elskulega "svolítið farin að gleyma" frúinInLove.

  Maðurinn innti eftir áhuga annarra flokka að mæta á svæðið.

  "Við höfum bara ALDREI séð nokkurn frambjóðanda hér

  fyrr en þig" svaraði önnur frú töluvert mikið farin að gleymaHalo.

  "Hvað segirðu"?, frambjóðandi var rasandi.

  "Já, svaraði frúin að bragði, þú ert sá fyrsti síðan ég kom hingað"!

  Frú þessi hefur dvalist hartnær 8 ár hjá húsfreyju, og hitt töluvert af

  alls konar frambjóðendum á tímum kosninga í landi voru.

  Húsfreyja glotti en lét vera að leiðfrétta elskulega frú sína.

  Frambjóðandi setti í gír og ræddi um stefnu "rúsínuflokksins"

  í borgarstjórnarkosningum.

  "Ég kýs þig, og þú verður forseti" sagði elskulegur

  karl með langt genginn minnissjúkdóm við hlið frambjóðendaShocking.

  "Já, og ég skal sko kjósa þig, ef ég fæ hjá þér bækling" sagði

  sú sem ALDREI hafði hitt frambjóðanda fyrr...hvorki þennan né nokkurn annan.

  Frambjóðandi varð eitt bros, reyndi að leiðrétta "forsetaframboðið",

  reif upp bæklinga úr poka sínum og rétti ALDREI-konunni.

  Konan rýndi á forsíðuna, rétti svo bæklingin yfir til

  "svolítið farin að gleyma frúnnar", "lestu þetta fyrir mig,

  ég er alveg orðin blind"Wink!

  Svolítið farin að gleyma frúin tók glöð við bæklingi,

  "ég skal svo sannarlega lesa þetta, hlýtur að vera

  bæði hugguleg og skemmtileg lesning frá svona

  myndarlegum manni eins og þér" og las síðan

  í honum það sem eftir lifði hádegisverðar...í hljóðiGrin.

  "Ertu læknir"? spurði gamli með langt gengna minnissjúkdóminnPinch.

  Frambjóðandi fór allur hjá sér, var eiginlega alveg í rusli,

  þegar húsfreyja kom honum til bjargar.

  Hún smellti sér í pælingar um næsta borgarstjóra,

  hvort íbúar í borginni við sundin bláu myndu í

  alvöru kjósa yfir sig "veifandi" borgarstjóra sem

  býður upp á hlunnindi eins og FRÍTT í sund og

  niðurskurð á "öspum"Whistling!

  Frambjóðandi brosti glaður og feginn, og taldi að borgarbúar

  héldu sönsum, og myndu skilja að grín væri grín,

  og kysu "ábyrgt fólk" eins og er svo mikið af í

  "rúsínuflokknum"!

  Húsfreyja tók undir með frambjóðanda, enda fannst henni

  ekki vert að bæta við hremmingar hans.

  Kvöddu þau svo "rúsínuflokksframbjóðendur" öldunga

  og starfsfólk með virktum, og fóru að hitta ellismelli

  á öðrum deildum.

  Jamm!

  Hlakkar til að fá "pennaflokkinn", "barmmerkjaflokkinn", "blöðruflokkinn"

  og "skera-niður-aspir-flokinn" í heimsókn næstu daga,

  húsfreyjaLoL.

  Verður stuð.

  Er svo húsfreyja búin að skreppa með systur í Þorlákshöfn

  á  kosningaskrifstofur, að kynna sér stöðu mála þar í

  sveitapólitíkinni.

  Líst bara vel á.

  En systir hefur verið dugleg að flakka á milli kosningaskrifstofa

  að kynna sér málin.

  Ein "dökkblá" frú í höfninni er heldur óhress með "ráp"Angry

  þetta á systur, húsfreyju og þriðju konu sem gjarnan slæst

  með í för, og sagði þær vera "flokksskækjur"W00t!

  Húsfreyja glotti við tönn, og sagði það ekki verra að

  "skæklast" og "skækjast" á milli flokka til að fá málin

  á hreint, en að vera "svarblá" af heilaþvættiWink.

  Jamm.

  Víða heitt í kolum þegar kosningar fara í hönd.

  Húsfreyja hefur lúmskt gaman að!

  Góðar stundir og húsfreyja mælir með "rúsínuflokknum"....

  í dag...Spurning hvað verður á morgun....heheheDevil!

 


mbl.is Framboðsfundi frestað vegna öskufalls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband