Réttarhöld?

althingishus  Yfir fólki sem ætlaði að rífa hressilega

  kjaft fyrir þjóðina, og vera með

  smá pottaslátt og pönnubarning

  uppi á svölum Alþingis?

  Í alvöru?

  Húsfreyja hefur heyrt því fleygt að

  í þingsölum erlendum, hafi það gerst

  að þingmenn hafi barist,

  eggjum, grautfúlum, verið kastað,

  en menn eigi að síður haldið áfram umræðumW00t.

  Hví á þá að lögsækja nokkra Frónbúa

  fyrir "hávaðasamar skoðanir" inn í sölum Alþingis?

  Húsfreyja fylgist stundum með "málaflutningi" sjónvörpuðum,

  niðri á Alþingi, þar sem þeir meiri fjöldi ræðumanna

  svona "suðar" ræðu sína "mónótón", á meðan aðrir "rymja"

  sig í gegnum hana, svo minnir á lélega upptöku af "Hamraborginni"

  frá því um 1920Pinch.

  Örfáir brýna raust sína, og láta hressilega í sér heyra.....

  og á þær ræður hlustar húsfreyja af athygli.

  Svo hún hefði haldið að "nímenningar" þessir, nú fyrir dómi, 

  hefðu aðeins verið eins og hressandi gustur í sölum Alþingis,

  sett svolítið fútt í umræðuna, og örvað menn til að

  láta að sér kveðaHalo.

  En neipp!

  En hvað veit sosum húsfreyja.

  Máske allt í stórtjóni á þingsvölum þennan dag,

  og verið að berja mann og annan.

  Ofbeldi á auðvitað ekki heima í þinghúsi, og rétt

  að koma ofbeldisseggjum út, en aðstæður í þjóðfélaginu

  voru mjög magnaðar á þessum tíma, og fólk

  bálreitt.

  Láta kyrrt liggja, eftir að búið var að rýma, hefði verið

  skynsamlegt að mati húsfreyju.

  Tekur það fram húsfreyja, að hún var ekki á staðnum,

  og þekkir ekki málsatvik.

  Svo mörg voru þau orð.

  Húsfreyja svo á leið í Kringluna með 9 ára djásnið.

  Taka nokkrar rússibanareisur í stigunum,

  kaupa kíwí, yddara og  sveskjur.

  Búin að þvo slatta af þvotti, húsfreyja,

  hengja út í vorblíðuna, týna kettinum...og

  finna hann afturWink.

  Sumarið lætur svo bíða eftir sér, þrátt fyrir að sumardagurinn

  fyrsti sé löngu liðinn.

  En við Frónbúar höfum sosum ekkert annað að gera,

  en að bíða eftir sumri.

  Það er svo "rólegt og huggulegt" að vera stödd í miðju kreppufáriDevil.

  Góðar stundir.  Kíwíkaup næst!


mbl.is Réttarhöldin blettur á réttarfarinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af verkum sínum....

judge  ..eru menn dæmdir.

  Hér eru 3 "athafnamenn"

  af frónversku ætterni dæmdir

  "núll og nix" af tímaritinu Time

  úti í henni Ameríku.

  Og þaðan af verra.

  Skyldu þessir þremenningar skilja

  að græðgi og eiginhagsmunapot blinduðu þá

  gjörsamlega, og fjölmargar gjörðir þeirra urðu að

  ómerkilegum "skítverkum", sem sköðuðu heila þjóð?

  Gert er grín að þeim erlendis,

  á sumum stöðum eru þeir hataðir,

  og hér á landi sýnist mörgum þeir bæði ærulausir

  sneyddir allri virðingu.

  Jamm.

  En máske þeir smelli sér í "góðærisafvötnun"

  allir þrír, og vindi ofan af sér sérhlífni, eigingirni og græðgi,

  og verði aftur nýtir þegnar í þjóðfélaginu.

  Aldrei að vita.

  Maður getur alltaf leyft sér að vona!

  Það væri vel ef svo færi, og ekki síst fyrir afkomendur þeirra,

  sem nytu góðs af batnandi mannorðinuWink.

  En merkilegt atarna,  að sitja í svona daunillum dammi,

  og ekki laust við að húsfreyja vorkenni þremenningum

  þessum.

  Glataður orðstýr, er eitt versta tjón í heimi.

  Góðar stundir.


mbl.is Áhrifalitlir útrásarvíkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjáls!

tumblr_kykqnuwjkw1qzs4bao1_500  Ayaan Hirsi Ali reit

  einmitt eina ágæta bók

  um baráttu sína við

  umburðarleysi og ofbeldi það,

  sem konur islama eru iðulega beittar.

  Húsfreyju var innilega sammála Hirsi Ali

  um islömsk þjóðfélög eftir lestur bókar hennar,

  og ekki síður eftir að hún náði í Kóraninn og

  dundaði sér við lestur hans.

  Eru vægast sagt "kvenfjandsamleg" þjóðfélög,

  mörg þeirra, og hvað varðar homma.....gleymið því!

  Og Kóraninn styður við allt umburðarleysið og ofbeldið.....

  sé hann er túlkaður bókstaflega!

  Sem hann iðulega er.

  Einna helst Tyrkirnir sem teljast margir hverjir

  "umburðarlyndir" islamar.....en alls ekki allir þeirra.

  Svo húsfreyju finnst þetta gott framtak hjá Ali.

  Og mikið asskoti er konan hugrökk að þora að

  gagnrýna islamatrúaða opinberlega!

  En njótið ykkar í tætlur í kvöld, eins og

  10 ára frændi húsfreyju myndi orða það.

  Góðar stundir.

 


mbl.is Lífstíll „ofbeldis“ og „óumburðarlyndis“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Terroriseraður Mister Brown?

mr_brown_blue_mountain_style_coffee  Máske rétt að senda Mister Brown

  hlutekninga-og samúðarkveðjur,

  vegna fjölmiðlaklúðurs þessa.

  "Véfréttin" á Bessastöðum gæti tekið það að sérHalo.

  Jamm, þetta er ógurlegt!

  Hrikalegt fyrir Mister Brown.

  Gamalli kerlu leyft að rekja úr

  honum garnirnarW00t.

  Standa reiknisskil á stefnu sinni og flokksins

  í mikilvægum málum við "öldung"!

  Ja, svei!

  Hvurslags er þetta eiginlega?

  Til hvers er eiginlega ætlast af

  vesalings Mister Brown?

  Á hann einn að svara fyrir svikin kosningaloforð?

  Verja ákvarðanir sínar og flokksins þegar á

  Stóra Bretland herjuðu kreppufár og viðbjóðslegir

  hryðjuverkamenn frá hinum ægilega litla Fróni?

  Svínslega svíðingslegt að lenda í þessu.

  Og það "í beinni"Pinch!

  Aumingja Mister Brown.

  Ósköp á hann bágt.

  Jamm.

  En kannski að hann geti reddað þessu,

  með því að skella einum herlegum "hryðjuverkalögum"

  á þaulspyrjandi og nöldrandi kerlu þessaDevil?

  Dæma gömlu bara "hryðjuverkamann, og gera hana

  útlæga til litla FrónsTounge.

  Okkur munar hvort eð er ekkert um einn "terrorista" í viðbótLoL.

  Sú gamla gæti máske kennt okkur að nota

  einhver önnur "hryðjuverkavopn" en eldfjallaösku, pappírsfyrirtæki

  og "veiðifæraklippur"LoL!

  Erum alveg hrikalega "lélegir" terroristar, Frónbúar,

  varla að við kunnum að brýna hnífa og skæriPinch....hvað

  þá að búa til sprengjur, eða brúka byssur.

  Þessir fáu frethólkar sem til eru í landinu

  eru eingöngu brúklegir til að skjóta gæsir....

  og "bannað-að-skjóta-nema-tvær-á-fullu-tungli-

  í-7-stiga-gaddi-á-þriðjudegi-rjúpur"Grin!

  Svo við verðum að ganga í það að ræsa "eldfjöll"

  hist og her um landið, til að eitthvað kveði að okkur

  í hryðjuverkunumNinja.

  Sendum svo ösku til Mister Brown, til að sýna að við erum

  "sannir hryðjuverkamenn" sem tökum hlutverk okkar alvarlegaWhistling.

  "Ash instead og cash" eins og gárungarnir segja!

  Jamm!

  Mister Brown á ekki sjö dagana sæla....og ekki margir

  pólitíkusar sem sæta "gamlingjaofsóknum" í beinniTounge.

  Ræfils ræfilstuskan, hann Mister Brown!Errm

  Góðar stundir og sendið nú Mister Brown hlýjar hugsanir.....

  með kolsvörtum öskustróknum yfir hafiðLoL.


mbl.is Axarskaft Browns rétt fyrir kjördag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fínt!

arklanding  Við Frónbúar skellum okkur

  þá í að kaupa hana þegar

  hún verður boðin til sölu á "e-bay"Grin.

  Veitir ekki af, okkur löndunum, að hafa nú

  vaðið fyrir neðan okkur, eftir það

  sem undan er gengið síðustu 2 árinErrm.

  Einkavæðingarhelvíti með pólitískri kreppu,

  bankahruni og útrásarpakki rænandi og rupplandi,

  var það fyrstaNinja.

  Í annan stað fóru svo öll heimilin í landinu

  á hausinn af því að þau höfðu öll fjárfest

  í "flatskjám"W00t ( Þjóðin bara "brjálaðist"

  í æðislegri eyðslu, sagði einn kreppusnillinn)!

  Og í þriðja lagi er "sótsvartur djöfull" hlaupinn

  í Eyjafjallajökul með tilheyrandi þrumum,

  eldingum, eldspýjum, hraunrennsli og

  öskuskítAngry.

  Næsta víst að að næst á dagskrá á litla Fróni

  verði helvískur "40 daga rigningaskúr" ala

  Gamla testamentið, með stórflóðum,

  úthafsöldum og vatnsfárviðrum í kjölfarið.

  Þá er skárra að hafa til taks sæmilegan "stóran bát"

  til að redda okkur "örmum fjármálavitleysingjum"

  úti í ballarahafi, sem vart eigum bót fyrir rassgatið á okkur,

  en eigum einhvern helvítis haug af flatskjámPinch.

  Getum við altént notað einhvern slatta af margtéðum flatskjám

  til að fylla í holur og göt sem kunna að vera á stórfleyi þessu,

  eftir ríflega 4000 ára dvöl upp á þurru landiWhistling.

  Lestum svo hross, kýr, kindur og gæludýr í "káetur"

  ljónanna, flóðhestanna og dúfnanna og getum við svo

  þjóðin gist fyrrum káetur fíla, gíraffa og strúta,

  en ríkisstjórnin, núverandi bankastjórar og aðalleikarar

  í "sótsvartri 3000 síðna skýrslu" gista káetur slanga,

  órangúta og asnaDevil.

  Restina af bátskelinni er svo öruggara að nota undir

  dýrafóður og eitthvað matarkyns fyrir oss vesæla.

  Nú svo er bara að njóta þess að vera á lúxus- "siglingu"

  næstu 40 daga....aldrei að vita hvenær hægt verður

  að skella sér í "siglingu" næstWhistling.

  Verður samt brjálað að gera um borð, því að í nógu

  verður að snúast við að fóðra allan dýraskarann

  og svo okkur sjálf, plús það að snúast í

  kringum ælandi og spúandi sjóveika farþegaSick.

  Hehehehe!

  Stóðst ekki mátið húsfreyja.

  En að lokum.

  Frétt þessi vakti upp gamla pælingu hjá húsfreyju:

  Ef Nói og frú, ásamt 3 sonum, eiginkonum þeirra og börnum,

  já, og kannski  nokkur hundruð auðtrúa sálir,

  voru einu mannverurnar um borð í örkinni,

  hvernig "í ósköpunum" tókst þeim að fóðra "öll"

  dýrin um borð í örkinni...tvö af hverri tegund

  sem hér á móður Jörð dvelja,  í heila 40 dagaW00t???

  Þúsundir landdýra í öllum stærðum og gerðum!

  Moka undan þeim skítnum?

  Halda lífi í "mauraætunum"Whistling?

  Og hver í ósköpunum um borð hafði áhuga á

  að bjarga tveimur "tarantúllum" frá því að deyja út?

  Jamm.

  Merkileg saga atarna.

  Kvöldmatast næst.

  Góðar stundir á þriðjudegi.


mbl.is Örkin hans Nóa fundin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Víst er það mál að yrkja....

kria_93  ..mamma, níu ára djásninu var mikið

  niðri fyrir.

  "Prófa ÞÚ bara sjálf"!

  "Sko, svona var okkur kennt, með

  upphafsstafi, og óþarfi að láta allt ríma....

  en mátt alveg láta ríma ef þú getur"!

  Húsfreyja hnyklaði brýr.

  Nú hafði hún kannski tekið heldur stórt upp í sig,

  þegar hún sagði dótturinni að það að yrkja

  ljóð væri "ekkert mál"Pinch!

  Jæja, gat altént látið á þetta reyna fyrst,

  rím, stuðlar og höfuðstaðir voru ekki

  aðalatriði.....alla vega ekki í níu ára bekk.

  Djásnið hafði krosslagt arma, horfði

  þungbrýn og ábúðamikil á húsfreyju og beið.

    Vorið er komið,

    orðið svo hlýtt og

    rauðbrystingur syngur blítt.

 

    Það kom í morgun klukkan átta,

    en mannfólkið svaf á sín grænu eyru,

    næstum fast í þungum svefndróma,

    uns kría í brjáluðu skapi fyrir utan glugga

    ræskti sig og gargaði: KRÍ!

 

    Svefndrukkið fólk tíndi á sig spjarir,

    inniskó og sokka.

    Gekk síðan glatt út í geggjað vorið.

  

  "Sko", sagði húsfreyja rígmontin.

  "Hrrrrmmmph, það er svo erfitt að semja ljóð

  um vorið, ef maður er krakki, mamma", djásnið

  ekki sannfært.

  Vesen.

  Húsfreyja varð hugsi, en lét svo flakka.

 

    Nammið búið.

    Ekki verður aftur snúið

    með sælgætisátið í gær.

    Nú verður út í búð aftur flúið,

    bland í poka,

    bland í poka!

    Má ekki loka

    versluninni einu á staðnum

    á laugardegi.

 

  Þetta leist djásninu mun betur á og settist niður við að yrkja:

 

    Nammið er búið.

    Alltaf klárast það.

    Mig langar í nammi,

    mikið nammi!

    Yndislegt nammi.    

I Love Candy

 

  "Sagði ég ekki" húsfreyja var ánægð með sitt

  níu ára djásn, þótt ekki hafi henni þótt sinn

  skáldskapur glæsilegur og hugsaði með sér

  að hún hlyti að geta betur.

 

    Í litunum býr ljósið.

    Bjart.

    Einstakt.

    Umvefjandi.

    Fullt af litum gleði,

    kærleika,

    sálarþroska.

    En þá svartur?

    Í honum býr sorgin.

    Sorgin dökka.

    Sorgin mjúka.

    Sorgin sem þroskar mannsálina,

    og gefur styrk.

    Svartur er líka góður litur.

 

  Húsfreyja verður víst að viðurkenna,

  að það er töluvert ERFIÐARA að yrkja

  ljóð, en hún taldi sjálfWhistling.

  Verður víst seint talin ljóðskáld.

  En máske leirskáld?

 

    Kannski maður fljúgi

    suður með sjó.

    Tali við steinana

    í fjörunum við vitana.

    Svekki síðan útverði kríanna.

    Krí, krí, krí!

    Veifandi höndum,

    veifandi vængjum.

    Mikið djöfull vantar mig nýja gönguskó.

 

  Jamm!

  Bullandi leirskáld í síðatómískum stílDevil.

  Skáldatilraunum húsfreyju lokið.

  Djásnið þarf í kompjúterinn.

  Njótið kvöldsins.

  Góðar stundir. 








Seigur Johnsen!

rni_johnsen__jpg_550x400_q95  Ekki af Johnsen skafið,

  að hann fær fólk til liðs við sig,

  og lætur verkin tala.

  Verður albrjálað að gera í vorverkum

  hjá Eyjafjallabændum í þetta sinn,

  þar sem öskufall er mest.

  Svo það er ljúft að fá góða sjálfboðaliða

  sem taka til hendinni og létta störfin.

  Sumarbros dagsins fær Johnsen frá húsfreyjuSmile.

  Góðar stundir.


mbl.is Einn kom með veghefil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjandakornið!

2189012  Tarna eru furðuleg "vísindi"!

  Að Móðir jörð hristi sig og skaki

  af hryllingi og bræði, við það

  eitt að kona stígi nöktum fæti á grund

  og beri axlir á heitum sumardegi?

  Þá "nötrar" líklega jörð stöðugt í öllum

  "nektarnýlendum,"  upp á 8,0 á Richter,

  og mesta furða að þær nýlendur skuli ekki allar í jörðu sokknar af

  hristingnum.....og máske að þetta sé örsökin fyrir því

  hve "láglent" er í hinum miklu veldum Dana og HollendingaTounge.

  Heilu suðrænu baðstrendurnar skjálfa sjálfsagt svo ört,

  að menn verða að vefja sig utan um pálmatré

  til þess eins að halda jafnvægi.

  Kemur þar skýringin, því menn sækja svo stíft

  í "áfenga drykki" á suðrænum sólarströndum....þeir

  eru að reyna að leiðrétta "sjónrænar truflanir"

  af völdum jarðskjálfta, og í annan stað,

  að reyna að "drekkja" ótta sínum  við stöðugar jarðhræringarDevil.

  Svo verða menn auðvitað mun minna varir við

  að allt gangi í bylgjum, séu þeir rallhálfir, finnst þetta

  bara eiga að vera svonaLoL.

  En reyndar ættum við hér á norðlægum slóðum

   að vera nokkuð örugg með okkur þegar

  kemur að jarðhræringum, skipti klæðarburður kvenna eða

  "skortur" á honum máli.

  Hér sést ekki í bera kvenmannshönd svo mánuðum skiptir

  á veturnar, og varla að það mói í logarauðar

  konukinnar þá naprir vindar blásar.

  Allt hulið treflum, húfum og vettlingum.

  Berar axlir kvenna eru bara ekki "inn" á köldum

  dögum hausts og veturs hér uppi á litla Fróni...

  og sjaldnast næst nógu hlýr dagur til þess að bera þær

  á vorin.

  Svo hér á landi ætti allt að vera "pollrólegt".

  Kyrrt!

  "Hreyfingarlaust"!

  Jarðskjálftar ættu einungis að finnast,

  þegar stútur á leið úr veislu vefur sér utan um ljósastaurW00t.

  En nei!

  Ekki aldeilis.

  Reykjanesið er búið að skjálfa meira og minna árum saman.

  Jörð skelfur kringum Kötlu, Heklu, Grímsey....jamm og Eyjafjallajökul,

  sem er hreint og klárt sótsvartur og "nötrandi" af

  eldfjallabræði akkúrat núnaErrm.

  Mætti þá halda að konur á litla Fróni hefðu gengið

  um "allsberar" árum saman....jafnvel ekki klætt

  sig í nokkrar tuskur svo öldum skiptiPinch, samkvæmt

  snilldar-speki hins íranska klerks.

  Að frónverskar berar konur yrðu þá "úti í vetrarkuldum"

  í þúsundatali á Laugaveginum, þá líða tæki að

  jólainnkaupum.

  Færu í "sjálfsmorðsleiðangra" á skíði í

  Bláfjöllum og Hlíðarfjalli, kviknaktarW00t.

  Jamm!

  Furðulegur déskoti þetta.

  Húsfreyju rekur ekki minni til að hafa séð axlaberar eða

  berrassaðar konur Eyjafjallasveitar í fjölmiðlum

  nýverið, en telur að slíkt hefði aldeilis þótt

  fréttnæmt hér í nepju og svalviðri vetrar og vors.

  Og ekki man hún heldur að "nekt kvenna" hafi verið

  "yfirþyrmandi" á litla Fróni rétt fyrir Suðurlandsskjálfta

  aldamótaárið 2000.

  En eigi að síður skelfur og nötrar jörð hér undir oss

  frómum og "mikið vel klæddum" frónverskum konum....

  og körlum.

  Merkilegt að það hristist jafnt á vetri sem sumri hjá okkur.

  Jamm.

  Mikið er "vald" naktra kvenna, samkvæmt vísum

  írönskum klerki. 

  Skekjum móður jörð og hristum að villd....eins gott

  að hafa okkur góðar....og í guðanna bænum, konur,

  reynum að venja okkur af því að "kasta af okkur

  klæðum" daglega, til þess eins að fara í sturtuDevil.

  JUST IN CASE, að sá íranski hafi rétt fyrir sérWhistling

  Getur verið STÓRHÆTTULEGTLoL!

  Góðar stundir og "klæðið ykkur nú vel" í norðannepjunni.

 


mbl.is Kennir fáklæddum konum um jarðskjálfta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryðjuverk!

5597-Funny-Turkey-Family-Standing-And-Sitting-Around-Watching-TV-Clipart-Illustration  Húsfreyja var í senn rasandi æst

  og full örvæntingar.

  Fyrir framan hana voru "fjarstýringar"

  sjónvarps og "fylgikvilla" þessPinch.

  "Vil bara fá að kíkja á einn uppáhaldsþátt

  á Stöð 2" mælti húsfreyja stillilega við bónda,

  sem þeystist um víðan völl fótbolta í

  kompjúternum.

  "Nú STILLTU þá bara á stöð tvö" kom pirrað

  svar frá bónda.....hann leit ekki einu sinni upp frá tölvu sinni.

  Húsfreyja svitnaði og sortnaði fyrir augum af örvæntinguCrying.

  Hún gjóaði augum vonleysislega á allar fjarstýringarnar "sex"!W00t

  Jamm!   SEX!

  Hverja átti hún að velja?

  Þessi gráa hér var áreiðanlega bara sjónvarpið....

  eða var það HIN gráa fjarstýringin.............?

  En nú voru komnar 2 nýjar svartar fjarstýringar,

  ein eftir að flakkarinn kom á heimilið,

  og svo sú allra nýjasta sem fylgdi Símaafruglaranum.....

  hver var þá munurinn á henni og svörtu fjarstýringunni sem

  fylgdi DVD-tækinuUndecided?

  Og hvað með þessa fjórðu svörtu ....var hún ennþá bara

  Sky?

  Húsfreyja néri saman höndum í angist sinni,

  og fann "fjarstýringakvíðann" hellast yfir sigErrm.

  Á ríkinu var maður að hella úr skálum reiðar sinnar

  vegna "skýrslunnar" og var við það að brjálast

  yfir vesaldómi stjórnmálamanna og spillingu

  bankamanna....það sló í þyngslin um hjartarætur

  húsfreyju og hún logaði af ákvörðunarkvíðaPinch.

  Hún tók eina fjarstýringuna hikandi í hönd sér,

  setti gleraugun upp enni, ýtti á takka.

  Núll!

  Ekkert gerðist!

  Ýtti á annan takka, sama niðurstaða.

  Húsfreyja setti fjarstýringuna frá sér,

  tók upp þá næstu skjálfandi höndum.

  Rýndi góða stund á + - , skip, epg, atv, p, dtv,

  menu, mode, enter, ok og önnur óskiljanleg

  merki.

  Dæsti!

  "Nú missi ég af þættinum" hugsaði hún örg.

  Lét slag standa og sló fingri enn og aftur

  á takka.

  Piff!

  Bzzzzzzzzzzzz...sjónvarpsskjárinn sýndi

  ekkert nema rafmagnaðar gráar og hvítar truflanirWoundering.

  Hjartað í húsfreyju datt ofan í inniskóna hennarW00t.

  SjittAngry!

  Ýtti í panikk á annan takka....vonandi var þessi betri.

  Ekkert gerðist.

  Gráhvíta snjókoman hélt áfram.

  "Andskotinn, varla voru sjónvarpsmenn farnir

  senda beint frá öskufallinu undir Eyjafjöllum"...húsfreyja

  var að tapa sérShocking.

  Bóndi húsfreyju varð var við " skort á background-sounds"LoL

  og snéri sér frá kompjúternum.

  "Hvern fjandann varstu að gera?  Ertu búinn að rugla öllu"?

  Húsfreyju krossbrá.

  "Nei, ég ýtti bara á þennan hér og þennan hér...."Whistling

  "Er ekki í lagi með þig?  Þú átt ekkert að vera að

  vesenast með þessa fjarstýringu...nú ertu búin

  að breyta öllum stillingum á afruglaranum, og

  ég man ekkert á hvað hann var stilltur"Angry.

  Svartur strókur stóð upp af höfði bónda, er hann reif

  fjarstýringarnar af húsfreyju.

  HryðjuverkNinja!

  Skemmdarverk!

  Sabotage!

  Hann var með 3 fjarstýrangar í höndunum

  og sveiflaði þeim í áttina að sjónvarpi og

  fylgikvillum af stakri snilld,

  svo minnti á sverðasveiflu Luke Skywalker í Star Wars.Cool

  Húsfreyja ákvað að hætta frekari "hryðjuverkastarfsemi"

  með vísifingri sínum, gaf þáttinnn upp á bátinn og

  fór inn í rúm og kíkti í bókHalo.

  Bóndi duddaði sér við "sverðasveiflur" um nokkra stund,

  með fjarstýringar að vopni og náði einhverri mynd á

  tækið. 

  Bóndi og níu ára djásn þrösuðu síðan um

  fjarstýringar, sjónvarp og dagskrá fram eftir kvöldi

  en "terroristinn" húsfreyja var stikkfríDevil.

  Í dag er bóndi svo búinn að ganga í það að fækka

  "fjarstýringum" niður í 5, svo "öskugjóskufall"

  verði ekki eina sjónvarpsefnið hér á heimilinu

  næstu vikurnar.Whistling

  En kíkja á "sjónvarpið" næst....svo ansi fínar myndir af

  "öskufallinu" undir Eyjafjöllum að sjá þarCool.

  Góðar stundir.

 


Og ekki í fyrsta sinn....

bush_turkey  ... sem Eyjamenn fá yfir sig

  ösku....veit ekki húsfreyja um

  íbúa í Höfn í Hornafirði.

  En í Eyjum grámaði jörð þá Surtsey

  sprengdi sér leið upp úr sjó, ekki alls fyrir löngu ('63),

  og Eyjamenn voru síðan mörg ár að hreinsa

  Heimaey eftir gosið í Eldfelli 1973 af

  biksvartri öskuErrm......fóru að endingu

  með "tannbursta" yfir fjallshlíðar og tún

  svo ekkert yrði eftir af léttri gjóskunni

  í jarðsverðinum. 

  Sú svarta var nefnilega fislétt og lítið gaman að lenda

  í "öskubyl" þá eitthvað hreyfði vind á

  StórhöfðaPinch....en það vill henda að stormasamt

  verði á þeim höfðanumDevil.

  Og nú eiga Eyjamenn enn og aftur von á

  "ösku" í massavís út í Eyjar.

  Ekki er það gæfulegt....nema þá að Johnsen

  og hans snjöllu fylgifiskar sjái sér leik á borði,

  og safni saman "öskudraslinu"  og komi því í verðWhistling.

  Löngum verið útsjónasamir Eyjamenn þegar

  kemur að eldgosum....og reyndar flestu öðruWink.

  Má þar nefna hraunhitaveituna þeirra einu og sönnu,

  sem dugði þeim fyrir billegum hita í hús sín

  í tugi ára....það var bara snilld!

  Og einhvern slatta seldu þeir af "vikri" líka

  út um víðan völl og á erlendar grundir, sem var vel.

  Svo aldrei að vita nema þeir geti gefið

  bændum austan Eyjafjallajökuls "góð" ráð

  varðandi öskuna þegar fram líða stundir.

  Jamm, oft snjallir Eyjamenn...og svo stundum

  "eitursnjallir"Devil!

  Og svo eitthvað fleira sé nefnt til sögunnar

  af stakri snilligáfu Eyjamanna, Johnsens og fleiri

  má gjarnan minnast á risastóra"hvalakví" fyrir

  aldraða drápshvali sem "drukkna" síðan

  við NoregstrendurHalo.

  Fjölmiðlar heimsins ærðust af gleði.

  Og þegar lundinn blessaður brást og ekkert mátti veiða,

  var Johnsen fljótur að redda því og flutti bara í

  úteyjarnar slatta af "kalkúnum"....enda veit hver maður

  að kalkúninn er mjög "áþekkur" lundanum bæði

  að stærð, útliti og bragðgæðumToungeWhistling!

  En mun auðveldara samt að "veiða" kalkúna en lunda,

  bara hægt að sparka þeim fram af björgunum

  og ofan í "lundaháfa" sem að sjálfsögðu hafa verið

  sérhannaðir í "oversize"LoL.

  Húsfreyja ærðist af gleði.....er hún las

  kalkúnafréttina hér á sínum tímaDevil.

  En vonandi verður ekki mikið tjón af völdum ösku

  hér uppi á litla Fróni....höfum nóg að gera

  með tjón af völdum kreppuliðs, þó hitt bætist ekki við.Crying

  En 9 ára djásnið þarf í kompjúterinn.

  Góðar stundir.Tounge


mbl.is Búa sig undir öskufall í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband