Viti firrtir BRUÐLARAR!

bah-humbug  Frónbúar allir sem einn!

  Ekki satt Pétur Blöndal?

  Takandi  "ólögleg" gengislán fyrir bílum sínum,

  kaupandi flatskjái grimmt og demba sér

  í frí til útlanda í tíma og ótímaW00t.

  Ja, svei!

  Skítapakk er þetta, búandi hér uppi á litla Fróni, PéturSick!

  Krimmar!

  Glæponar!

  Svo bara vælir þetta lið, þegar hirða á af því kofana og

  bílana og krakkarnir fá ekkert að étaPinch.

  Heimtar leiðréttingu á kolólöglegum lánum,

  sem enginn hafði fyrir að vara það við...

  bara talið trú um að þetta væru bestu

  mögulegu lán í boðiShocking.

  Jaso!

  Asskoti "óheppilegt" hvað landinn er trúgjarn!

  Og með "óheppilegan" Hæstarétt, sem fellir

  "óheppilega" dómaPolice!

  Og bara fjandi "óheppilegt" að það hafi skollið

  á kreppa og bankahrun, og enn "óheppilegra"

  að einhverja aðgerðir og "óheppilega" dóma þurfi

  til, svo hægt verði að bjarga heimilum margra

  landsmanna hér uppi á FróniWhistling.

  Landsmanna, sem eru hvort eð er aðeins "vitfirrtir bruðlarar",

  sem ætíð pissa í skóinn sinn, þegar kemur að

  fjármálumPinch.

  Eru í allt of lágt launaðri vinnu!

  Eiga of barnmarga fjölskyldu.

  Keyptu húsnæði miðað við fjölskyldustærð og stöðuga innkomu,

  í stað þess að miða við kreppu, bankahrun og atvinnuleysi,

  og reisa sér aðeins 50 fermetra bílskúr við Rauðavatn,

  undir sig og familíuna, sem hefði verið "heppilegast"GetLost!

  JAMM!

  Menn skitu bóksaflega upp á bak í góðærinuAngry!

  Tóku "ólögleg" lán!

  Vilja jafnvel fara að ræða "verðtryggingu" á lánum!

  Ósvífni!

  HÚMBÚKK!

  Verðtryggingin er HEILÖG!

  Það veit hver heilvita maður!

  Bévítans óheppni allt saman!

  Húsfreyja er ein af "vitfirrtum og óheppilegum"

  ofurbruðlandi íbúum litla FrónsErrm.

  Altént hlýtur húsfreyja að stimplast

  sem einn slíkur með sitt "gengislán"

  á sinni herlegu bifreið og með einn flatskjá

  sem hún fékk í arf með láni og öllu saman,

  þegar fóstursonur gafst upp á himinháum afborgunum!

  Alltaf versnar það, hjá húsfreyju!

  Ekki nóg, að húsfreyja sé mergjaður "hryðjuverkamaður"

  og snaróður fjármálavitleysingur með kerlingarfáluna hana

  "Ísbjörgu" á bakinu,  sei, sei neiHalo!

  Nú er hún í kaupbæti orðin "óheppilegur bruðlari"Angry!

  KRÆST.

  Máske ráð að bjalla í danska kónginn og grátbiðja hann

  að "hertaka" aftur litla Frón og redda oss örmum og

  aumum "óheppilegum bruðlurum".....eða öðrum kosti

  "hertaka" ofursparsaman Pétur Blöndal einan og skella honum á "sparneytið"

  og ofurhagvæmt svínabú á Fjóni, svo hann losni

  við "bruðlandi ófögnuðinn" hér uppi á litla FróniTounge!

  En góðar stundir og vonandi eigið þið marga "óheppilega bruðltíma" á

  sólríkum júnídögumGrin.


mbl.is Bruðlurum bjargað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bzzzzzzzzzz...eða músík?

elephant-and-bee  Húsfreyja var komin í lazyboy-stól sinn.

  Dæsti af vellíðan.

  Bóndi í "læstri hliðarlegu" í sófanum,

  með "fótboltastjarfa" í augum og með

  múrað upp í báðar hlustirTounge.

  Brassarnir að fara að keppa við

  hágrátandi N-Kóreubúa.

  Húsfreyja fylgdist með af áhuga....alltaf

  gaman að pæla í samspili ólíkra liða.

  Bzzzzzzzzzz....!!

  Arfaergilegt flugusuð truflaði einbeitingu húsfreyju.

  Rauk upp úr sæti sínu.

  Andskotinn sjálfur í útlegð á Suður-heimskautalandinuAngry.

  Það hlaut að vera komin hersveit af déskotans

  vespum á sólpall húsfreyju...eða þaðan af verra

  heill "drottningaklúbbur" af geitungum.Pinch

  MAMMA MÍA!

  Húsfreyja þolir ekki geitunga og "stungugetu" þeirra!

  Dreif sig inn í stofu og kíkti á pallinn.

  Ekki eitt einasta flugukvikindi að sjá í 5 kílómetra

  radíusW00t.

  Hvað var í gangi?

  Húsfreyja snérist á hæl, fór aftur fram.

  Flugnagerið ærðist sem aldrei fyrrShocking!

  Húsfreyja snarstansaði.

  Skrattans suðið kom úr sjónvarpinu!

  JASO!

  Húsfreyja settist.

  Létti svolítið.....og þó!

  Pírði áhyggjufull á imbann.

  Déskotans vespuóáran var þetta hjá vesaling

  Suður-AfríkubúumErrm.

  Argvítans ekkisens flugnaplága á Biblíumælikvarða

  mætt á fótboltasvæðiðCrying.

  Og það á miðju H.M.-móti.

  Djísuss!

  Allt sjálfsagt vaðandi í helvískri flugnaplágu inni á

  sjálfum vellinum, og skrattans vespubúin þá staðsett

  tugum saman rétt við græjur hljóðupptökufólksPinch.

  Bzzzzzz....bzzzzz....bzzzzzz......!

  Húsfreyju klæjaði í hársvörðinn af pirraðri örvæntingu

  yfir flugnasuðinu og vorkenndi mótshöldurum ægilegaCrying.

  Öll sjúkrahús sjálfsagt uppfull af sundurstungnum

  fótboltabullum í andnauð!

  Kannski voru jafnvel "súper-bees" komnar á svæðiðW00t!

  Húsfreyja sendi kollegum sínum þar syðra samúðarkveðjur í

  huganum.

  Bzzzz....bzzzzz....bzzzzz...! 

  Uppgötvaði að hún var alveg búin að missa af öllum

  takti við fótboltaleikinn....gafst upp og skellti sér

  inn í rúm með "Ösku" eftir Yrsu, og svo Fréttablað

  og málgagnið.

  Var ekki búin að lesa lengi í blöðum, þegar hana rak í rogastans!

  Skrattans flugnasuðið var ekkert skordýraóhljóð eftir allt samanShocking.

  Sei, sei nei!

  Þeir Suðu-Afríkumenn eru að blása í "lúðra"Whistling!

  "Vuvuzela" heita gripirnir og eiga að túlka "fílshljóð"!

  Eru jafnvel spilað á hljóðfæri þessi með sinfóníuhljómsveitum

  þar syðra!

  Jamm!

  Bzzzz...bzzzzzz...bzzzzz!

  Mikið asskoti er að heyra þetta!

  FÍLAR!

  "Afrískir" fílar að suða líkt og FLUGUR gera upp á litla Fróni,

   eru bara ekki að slá í gegn hjá húsfreyjuAngry!

  Hélt að þeir væru með svona svipuð hljóð og Indverski fíllinn.

  Svona hvellt tututruuuuuut-hljóð.

  En hvað veit sosum húsfreyja!

  Máske eru afrískir fílar bara "flugur"...af stærri gerðinni,

  eyru þeirra þá "úrkynjaðir" flugnavængir....eða hvaðTounge?

  Veit Kári Stefánsson erfðasnilli af þessu?

  Jamm!

  Eða er mergjuð "hálsbólgu-og hóstapest" máske búin

  að vera í gangi hjá afríska fílastofninum árum samanLoL?

  Og hvað á "fíla-flugnasuð" sammerkt með H.M. og fótbolta?

  Skondið atarna.

  En góðar stundir og gangi ykkur vel að "suða" ykkur í gegnum H.M.Wink


mbl.is Eins marks sigur Brasilíu á N-Kóreu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Déskotans hundalíf...

owned_cat_by_bird  ...læða húsfreyju var bálillAngry.

  Hún gjóaði grænum glyrnum á

  "tvífættu hárlausu þjónustuna" sína

  og "mjarvraði" reiðilega.

  Sú "tvífætta, hárlausa" lét sem hún hvorki

  heyrði né sæi læðu og hélt áfram að stumra

  yfir niðurrigndum sumarblómum sínum á sólpallinum.

  "MJAVVRRRR" sýnu hærra en áður....nú yrði það sko 

  refsing upp á LANGT klór niður eftir berum kálfum

  þeirra tvífættu, hárlausu ef hún svaraði ekkiW00t.

  Húsfreyja rankaði við sér, með ónýta, regnblauta, gula

  blómaknúbba í höndunum....árans!

  Kötturinn búinn að vefja sér "þrisvar" utan um

  steinsúlunaPinch!

  DJÍSUSS!

  "Ertu að reyna að KYRKJA sjálfa þig fyrir hádegi á sunnudegi",

  húsfreyja vatt ofan af ketti.

  "ÞETTA" var ekki svaravert, að mati læðuGetLost.

  Hún settist sármóðguð á notalega hlýjan sólpallinn,

  gætti sín á blautum polli sem enn hafði ekki þornað í sólinni.

  Sólfíflarnir í grænu grasinu reyndu að brosa við sólinni, en ekkisens

  flugufans hafði ráðist á þá alla sem einn, og höfuð þeirra voru

  að sligast af þunganumErrm.

  Læða vorkennndi þeim EKKI NEITT!

  Þeir gulu áttu nefnilega einnig "tvífætta" en "fiðraða" þjónustu,

  en það "déskotans erkifífl" hafði ekki látið sjá sig ennAngry.

  Læðu rann enn meir í skap, og sló rófu sinni vonskulega

  í sólpallinn....."árans"...beint í bévítans pollinnPinch.

  Hún dæsti mæðulega, lagðist á þurran blett og hóf

  að þvo og þurrka skott sitt...."sá tvífætti fiðraði

  átti sko ekki von á góðu, þegar honum loks þóknaðist

  að sýna sig".

  Þytur í lofti.

  Læða stökk upp, krypplaði sig niður á magann....

  "var fiðraði skollinn mættur"?

  "Dirrrrrrrrindííí....dííííí....dííí"!

  Lóuherrann beindi "orðum" sínu til húsfreyju og

  kvartaði sáran yfir "nærveru og tilvist" kattar á hans

  yfirumráðarsvæðiWhistling.

  Húsfreyja hló að fiðraða herranum, og sagði róandi:

  "Hvaða, hvaða, hún er í bandi og nær ekki til þín, herra minn".

  Sá fiðraði róaðist samstundis, tók að vappa um í brekkunni

  og höggva skarð í skordýraflóruna þar....breyttist í

  "myndastyttu" þegar Veiðibjalla flaug yfirHalo.

  Læða var rasandi kolvitlaus af bræði.

  "Hvað var í gangi, hvernig dirfðist þessi fiðraði

  spjátrungur að kvarta við HENNAR "tvífættu, hárlausu"

  þjónustu...og undan HENNI sjálfri, konunglegri læðu

  og æðsta stjórnanda heimilisins"Angry!

  "MJAVVVVRRRRR"!

  Húsfreyja lægi nú DAUÐ úti á sólpalli, gætu

  eitraðar augngotur frá ketti drepið!Devil

  "Blííístr"!

  AHA!

  Læða gleymdi fílunni, "þjónusta" Sólfíflanna var

  loksins mætturHalo.

  Snaggaralegur Starrasnáði, með gult nef og glansandi

  svarta vængi, lenti með glæsilegu svifi..en stuttu, á

  miðri lóð.

  "COMPLETE STOP" á innan við sekúndubroti.

  "Já, og góðan daginn sjálfur", sagði húsfreyja og hló,

  "þessa flugtækni þyrftu framleiðendur flugþota að kynna sér"!

  Sá fiðraði svarti, horfði svörtum, skörpum augum í kringum sig...

  mat stöðuna hárréttWink.

  "Sú loðna, fjórfætta er bundinn í band...á að giska 3 metra  á lengd,

  svo ég byrja hér"!

  Starrapeyjinn skoppaði að gulum Sólfíflum í nákvæmlega 3 metra og

  3 sentimetra fjarlægð frá læðu og sólpalliHalo.

  Læða var að tryllast af spenningi...skottið sveiflaðist hægt og

  veiðilega...nú skyldi sá "tvífætti fiðraði fá að kenna á því"!

  Og svo STÖKK!

  VANTAÐI HEILA 3 SENTIMETRA UPP Á, að hún næði þeim arga þrjót.Whistling

  Starrapeyjinn skoppaði fyrir kurteisissakir 2 sentimetra upp í loftið,

  og brá sér að Sólfífli 10 sentimetrum fjær...tikk.tikk..tokk!

  Flugurnar voru "dauðans matur"!

  Áttu aldrei sjensFrown.

  En altént voru þær PAKKSADDAR á banastundLoL.

  Starrinn "hreinsaði" hvern einasta Sólfífil af fluguóværunni

  á lóð húsfreyju...valhoppaði á milli þeirra, glaðhlakkalegur

  og stríðnislegur...virti ekki læðu viðlitsTounge.

  Flaug yfir á næsta blett!

  Þrumuský yfir höfði læðu, skánaði ekki skapið fyrr en

  "tvífætta, hárlausa" þjónustan hennar kom og klóraði

  henni hressilega, og náði af henni lausum hárum,sem

  voru farin að pirra hana ógeðslegaPinch.

  Húsfreyja lauk blómalífgunartilraunum og kattarklóri, og bauð læðu að koma

  inn....læða fleygði sér makindalega á pallinn...afþakkaði pent!

  "Kannski að sá tvífætti fiðraði Sólfíflanna kæmi aftur....gleymdi sér

  á verðinum....og ÞÁDevil!

  Læða glennti út klærnar, teygði úr sér á sólpallinum

  og brosti vinalega til "tvífættu hárlausu"

  þjónustunnar, sem hvarf inn í hús að blogga.

  Heppin að vera ekki FIÐRUÐ, húsfreyja!Grin

  Þar úti á sólpalli er læða húsfreyju ENN.

  En sunnudagsbloggi húsfreyju er lokið.

  Góðar stundir á HM-sunnudegi!100 3298

 

          Branda Bárudóttir ....................................


Friðsamir friðarspillar?

_peacesign  Frónbúar manna friðelskastir, friðsamir

  og friðsælir, samkvæmt könnun þessariShocking.

  Aðeins Nýsjálendingar friðsamlegri.

  Jaso!

  Dettur þá húsfreyju í hug, "hvernig" alþjóðlegu

  könnunarsnillar þessir framkvæmdu könnun þessa,

  og fengu út þessa líka brilliant útkomuna?

  Fyrir oss arma, forsmáða, arfareiða og snarvitlausa

  fjármálavitleysinga hér úti í miðju ballarahafiErrmAngry.

  Hafi þeir bara bjallað og spurt menn beint út,

  er auðvitað von að niðurstaðan hafi verið svo

  "friðsæl" oss "Ísbjargarokuðum" þrælum litla FrónsWhistling.

  Það er vitað mál, að þjóð húsfreyju kann að "ljúga"

  og hefur gert frá örófum alda...sjáið bara Íslendingasögurnar,

  kirkjubækurnar og nú á síðustu árum "heilbrigðisvottorð"

  frónversku bankanna frá bæði Dabba og Fjármálaeftirliti!Pinch

  Enda eins gott lengi framan af, að ljúga GRIMMT þá

  Baunar voru hér við völd, því vor "friðsama" þjóð væri

  annars löngu útdauð....já, og útdauðari en "Geirfuglinn",

  því enginn danskur kóngsi hefði nennt að láta "stoppa upp"

  eitt eintak af ÍslendingiTounge!

  Svo auðvitað hefur hver einasi Frónbúi svarað því til aðspurður,

  að hann væri "friðsamari" en dauður hundur úti skurði á

  öskugráu túni undir EyjafjallajökliGrin!

  Jamm!

  En máske hafa Frónbúar ekki verið spurðir út í friðsæld sína,

  heldur aðeins barið á dyrum þeirra, og þeir beðnir

  um að sýna "alþjóðlegum könnunarsnillum" öll sín

  "beittustu og hættulegustu VOPN"Ninja!

  Þegar þeir svo mættu út á hlað með "sleifar, potta og pönnur",

  í bland við bitlausa búrhnífa og ryðgaða rjúpnabyssuhólka,

  hefur könnunin auðvitað steinlegiðLoL!

  Snillarnir hafa sett upp eitursnjalla formúlu með hraði:

  "VOPNLAUS MAÐUR ER FRIÐSAMUR MAÐUR"!

  Það var og.Whistling

  Greinilegt að könnunarsnillarnir hafa ALDREI lent í

  neinum hremmingum uppi á litla Fróni.

  ALDREI!

  Eins og að ÞRASA við Íslending um pólitík eða trúmálW00t!

  Eða að fá Frónbúa til að selja þeim "frímerkjasafnið" sittPinch!

  Reyna að fá Frónbúa til að LEYFA hundahald í ReykjavíkGetLost.

  Fá þá til að "tvöfalda" þjóðveg 1 "allan hringinn"Halo!

  Og svo mætti lengi vel halda áfram!

  Jamm!

  En friðsamastir allra friðsamlegra erum við semsagt

  á "alþjóðavísu"!

  HALLELÚJA!

  "Almættið" verður þá aldeilis að spýta í lófana og "hjálpa"

  öllum þeim þjóðum sem eru "ófriðsamari" en við!Halo

  Næsta víst, að þriðja heimstyrjöldin sé annars á næstu grösumCrying!

  En græja kjúlla næst í kvöldmatinn.

  En eigið friðsamar, friðhelgar, friðsælar og "friðlausar" góðar stundir í sumarLoL.


mbl.is Íslendingar eru friðsamir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjónvarpssorgir?

funny-pictures-cat-watches-cage-like-tv  Heilög stundin nálgaðist

  á heimili húsfreyju.

  Sjónvarpsfréttir.Halo

  Veifandi, aspa-hatandi Gnarr orðinn

  borgarstjóri og Dagur "víraður" að fá

  að spila meðWizard.

  Bóndi húsfreyju kengspenntur að fá fréttir

  af nýja "stjóranum" með viðtölum og alles

  í sjónvarpi.

  Djásnið með "heilögu" málin á tæru, komin með "heddfóna"

  fyrir framan kompjúterinn og horfinn á vit

  tölvuleiks með smávöxnum rauðum djöfli að

  skjóta málningarkúlurSideways.

  Húsfreyja náði í gömul málgögn sem

  henni höfðu áskotnast í vinnunni, og ákvað

  að hafa hjá sér í hægindastól sínum ef fréttirnar

  skyldu verða afspyrnu fúlar og leiðinlegar.

  Fréttir hófust...dududdd...þið kunnið stefið.

  Nýi borgarstjórinn mættur á skjáinn,

  síminn hringdiW00t.

  Húsfreyja greip tólið og heilsaði.

  Vinkona frá Noregi að bjalla.

  Húsfreyja flúði inn í stofu með tólið, því

  sjónvarpið hafði steindrepist, og bóndi

  var á háa séinu að leita að fjarstýringu sem

  mögulega húsfreyja "sæti á"..fann ekki, eða sem

  djásnið hafði af tómri stríðni slegið hnefa á alla takkaAngry!

  Fann ekki heldur.

  Bóndi krossbölvaði, var sjálfur með aðalfjarstýringuna.

  Djásnið varð vart við hamagang og læti bónda:

  "Pabbi, prófaðu að slökkva á öllu, og kveikja svo aftur"!

  Bóndi hlýddi...BINGÓ..það birtist myndWhistling!

  Hamingja!

  Gleði!

  En borgarstjórafréttin að klárast!Errm

  Húsfreyja lauk símtali, settist aftur í sinn góða stól.

  Kíkti á grein sem einhver heitur út í "trúða og ísbirni"

  hafði skrifað, og hvatt menn til að vera "ábyrgir" í kosningum:

  "Jahá, og kjósa gamla "bakstungu-bankastjóri-í-dag-liðið"Shocking,

  hugsaði húsfreyja og glotti.

  "Ekki gekk það í borgarbúa í þetta sinn"Tounge.

  Síminn hringdi.

  Húsfreyja greip símtólið við hlið sér.

  Tengdó í símanum.

  Bóndi var að tapa sérPinch!

  Sjónvarpið steindautt enn og afturAngry.

  Húsfreyja flúði í stofuna, en kom símanum

  til bónda eftir stutt spjall.

  Bóndi ræddi við foreldrana svolitla stund.

  Kvaddi.

  HeppinnJoyful!

  Íþróttafréttir að hefjast.

  H.M. og þjálfarar í djúpum skít.

  Síminn hringdi.

  Húsfreyja svaraði.

  Fóstursonur í símanum spurði eftir föður sínum.

  "Þegar ég næ honum niður úr ljósakrónunni"Devil

  svaraði húsfreyja glettin.

  Sjónvarpið steindautt...AFTUR, og bóndi hafði stokkið

  hæð sína í loft upp og hékk í ljósakrónunni af einskærri vonskuPinch.

  "Helv....djö.....drasl alltaf hreint", hvein í bónda.

  "Hva..voru þið ekki að skipta yfir í Símann með allt dótið"

  spurði fóstursonur, þegar húsfreyja útskýrði sjónvarpsraunir bónda.

  "Jú", húsfreyja varð að játa því, hún og bóndi voru nýbúin

  að skipta yfir úr "VOÐAFÓN" yfir í SímannCool.

  "Og á þetta ekki allt að vera pottþétt"? spurði þá

  fóstursonur.

  Hugmynd fór að fæðast hjá húsfreyju, er hún rétti bónda

  símann, og hún gekk í það að "slökkva á öllu og kveikja aftur"Woundering.

  Síðan illur grunur.Whistling

  Átti húsfreyja að láta bónda vita af grun sínum eftir samtalið

  við soninn, eða átti hún að bíða eftir að friður og sjónvarpsró

  færðust yfir bónda?

  Húsfreyja beið.

  Daginn eftir fór bóndi út að þrífa bílinn, enda helgi.

  Húsfreyja kveikti á sjónvarpi.

  Nú skyldi láta á reyna hvort grunur húsfreyju reyndist rétturHalo.

  Hún greip gemsa sinn og hringdi í "sjálfa sig", svaraði

  og sjónvarpið steindó!

  AHAGetLost!

  Húsfreyja gutlaði og gaufaði í húsverkum.

  Síminn hringdi, og sjónvarpið dó er húsfreyja svaraði!

  JASO.

  Bóndi mætti eftir mikinn bílaþvott enda öskufall hálfa vikuna á undan.

  Húsfreyja sagði bónda grun sinn:  "Síminn drepur á

  sjónvarpinu er við svörum"!

  Bóndi þreytulegur sagðist þurfa að skoða málin betur!

  Náði sér í fjarstýringu.

  "En við getum einnig beðið ættingja og vini að hringja ekki

  á fréttatima í okkur" Whistlingstakk húsfreyja upp á.

  Og bætti svo glaðhlakkalega við: "Og svona minnst á það

  í leiðinni, að það sé "dauðasök" að hringja á meðan

  fótboltaleikur er í sjónvarpinu"Devil.

  Beið svars en bóndi svaraði engu.

  Hann hafði fundi mann að sparka tuðru á SKY.

  Húsfreyja næstum heyrði steinsteypta hljóðmúrinn

  smella fyrir hlustir bónda, sá augu hans verða glaseyg

  og fjarræn, hann féll nánast hljóðlaust í sófannPinch.

  SLÖKKT!

  Einu merki þess að bóndi væri ekki í öngviti, eða hefði orðið örendur

  voru opin augun og andardrátturinnGetLost.

  Húsfreyja horfði á "sjónvarps-samsamaðan" bónda sinn

  stutta stund.

  "Jamm, ekki spurning: Hringing í miðjum fótboltaleik í sjónvarpinu.....

  ..DAUÐASÖK"!

  En njótið sumarkvöldsins og veðurblíðunnar....nú

  eða ef þið hafi góða sportrás og fáið fáar símhringingar...

  fótboltans í sjónvarpinu....heheDevilGrin!

  Góðar stundir.

 


Erum við á Íslandi?

main.php?g2_view=core  "Þessi staður er ekki í útlöndum"?

  spurði hugfangin 12 ára systurdóttir

  húsfreyju eitt sinn. 

  Húsfreyja hafði brugðið sér í Þórsmörkina

  með bónda, systurdóttur og fósturdóttur.

  Blíðviðri, með sólskini og 20 stiga hita tók

  á móti ferðalöngum í Þórsmörkinni.

  Systurdóttir sem var að koma í sitt fyrsta skipti

  í Þósmörk, átti bágt með að trúa að svo

  fagur staður væri til uppi á litla Fróni.

  Og varð alveg rasandi hissa þega húsfreyja

  sagði Þórsmörkina ekki einkaeign, heldur eign

  allrar þjóðarinnar, og þangað mættu allir koma og tjalda.

  Það var og.

  Eitthvað telur húsfreyja að ótöluleg tonn af grárri

  eldfjallaösku geti breytt upplifun manna í Þórsmörkinni.

  Skortur á tilbreytingu í litum, væri eitt.

  Annað sem gæti skipt máli inni í Þórsmörk væri að standa

  kolblár á öndinni, vegna öskufoks þá vind hreyfir.

  Og í þriðja lagi gæti verið bévítans basl að

  arka í hnédjúpri öskunni, og eiga að tjalda í

  sótgráum öskudamminum.

  En þrátt fyrir djöfulgang í Eldfjallajökli með glóandi

  hrauni, aurflóðum, öskuregni og hraunbombum

  á fljúgandi ferð, verður Þórsmörkin ætíð ein af

  okkar glæsilegustu og fegurstu náttúruperlum.

  Öskufjandinn mun hverfa smám saman út í veður og vind,

  verða jafnvel gróðri til góðs þegar fram líða stundir.

  Stórbrotið landslagið mun njóta sín sem aldrei fyrr,

  þegar afleiðingar af sjónarspili elds og íss blasa við.

  Þannig að þó að Þórsmörkin skarti ekki sínum

  fallegasta pels um þessar mundir, mun hún

  fljótt kasta af sér gráu kápunni og verða söm sem fyrr

  ...en samt svo stórkostlega breytt.

  Jökullinn mun hafa markað sín spor enn og aftur í

  Þórsmörk.

  En þannig á það líka að vera.

  Þórsmörk, Eyjafjallajökull, móðir náttúra... ein órofin stórbrotin heild.

  Lífið sjálft.

  Góðar stundir.


mbl.is Áfall að sjá ástand Þórsmerkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mergjuð skriffinnska!

shoes_umbrella 

 

 

 

Í Indlandi!

  Jæja, húsfreyja getur sosum ekki

  sagt að það komi sér á óvart.

  Lenti einu sinni á indverskum skósölumanni

  á ferð sinni um hin víðfeðmu ríki Obama.

  Sölumaður sá íbúi í Orlando Florida,

  hafði "liðugan" talanda, svo vægt sé til orða tekið.

  Talaði ágæta ensku...nema að húsfreyja lenti í bévítans vandræðum

  með orðið ..ABÚL sem sá indverski skreytti orðræðu sína

  grimmt með, á 4 sekúndu frestiW00t.

  Það var ekki fyrr en eftir 40 mínúta "ákafar"

  umræður um skó, Ameríku, Indland og staðsetningu

  Íslands, sem sá Indverski var kristaltær á að væri

  staðsett næst RúmeníuPinch  (theríss NÓ æland in the North-

  Atlantic ósjon, jú are "incomprehensABÚL" ), að húsfreyja kveikti á

  orðinu ..ABÚL!

  Þannig voru skórnir "comfortABÚL",

  okkur ferðavinkonum greindi á um lit á skóm

  og vorum þar með "disagreeABÚL",

  verslunin var aðeins með bestu "certifiABÚL" merki

  í skóm og skipti engu hvort hægt væri að bæta

  ..."able" við lýsingarorðið eður eiDevil.

  Þegar svo ræðusnillingurinn og skósölumaðurinn

  náði takmarki sínu, og seldi vinkonu húsfreyju

  eina herlega Nike-sportskó fór hann að afgreiðsludeski sínu

  og dvaldi þar góða stund við skriffinnsku í þríriti,

  svo skósalan yrði honum pottþétt reiknuð til teknaLoL.

  Vinkona skrifað svo undir allt saman, og gengu

  þær þrjár frónversku vinkonur út úr skóverslun þessari,

  allar "comfortABÚL", "agreeABÚL" og "certifiABÚL"Tounge....

  heilli klukkustund frá því að þær stigu inn í verslunina.

  Og vinkona á glænýjum Nikes!

  Jamm.

  En elskulegur var Indverjinn, það er ekki spurning...en

  merkilegt, að hann var fæddur í Ameríku, og hafði aðeins

  skroppið til Indlands í fjölskylduheimsóknir.

  Húsfreyja og vinkonur hafa aldrei, hvorki fyrr né

  síðar á tíðum ferðum sínum á erlendar grundir,

  lent í jafn "tímafrekum"  (timeconsumABÚL )og flóknum skókaupum,

  svo ekki sé minnst á "ofurhraðar og flóknar",

  "incomprehensABÚL" samræðurWhistling og í Orlando, Florida.

  En þá dettur húsfreyju í hug:

  Ætli starfsfólk T.R hafi ekki ALLT verið sent á eitt

  magnað "comfortABÚL", "disagreeABÚL", "incomprehensABÚL"

  og "certifiABÚL" skriffinnsku-námskeið til Indlands hér

  á árum áðurDevil?

  Og því tímafrekara/timeconsumABÚL því betra!

  Húsfreyja telur það svona fremur líklegt, því hremmingar hennar

  sem og annarra Frónbúa í "æðislegri skriffinnsku"

  Tryggingarstofnunar Ríkisins, eru martraðarvaldandi

  löngu eftir að samskiptum við starfsfólk T.R lýkur...

  árum saman! 

  "NightmareABÚL".....are you sure lady...they look

  very comfortABÚL to meDevil??

  Góðar stundir og njótið sólarinnar svo þið verðið fallega brún...

  "tanABÚL"CoolTounge!


mbl.is Indverjar að drukkna í skriffinnsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðleg pils...

syria-dating  ..siðlegar slæður,

  siðlegar andlitsblæjur,

  siðlegar búrkur með augnagluggum!

  Tarna eru ljótu "ólögin", sjaríalögin.

  Virðast ganga mikið út á það að "kúga" konur.

  Altént sér maður ekki mikið í fréttum að

  karlmönnum islama sé "refsað" harðlega

  fyrir að ganga í buxum, láta sól skína á

  frjáls höfuð sín eða ber andlit.

  Aðeins konum.

  Islamatrúaðir ættu að BANNA sjaríaólög þessi,

  því þau gera líf kvenna að kvöl,

  og uppskera aðeins fyrirlitningu umheimsins

  í garð islama.

  Já, því það er svo, að hófsamir islamar losna aldrei

  við svartan blett þennan út á við, á meðan sjaríalagaliðið

  getur vaðið uppi með kúgun, forneskjulegar reglur, refsingar

  og ofbeldi!

  Svo mörg voru þau orð.

  Góðar stundir.


mbl.is Siðlegum pilsum dreift til kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarftu að kjósa....

rummy_civil_defense  ...mamma"?

  Níu ára djásnið horfði spyrjandi

  á móður sína.

  Húsfreyja var í óða önn eftir notalegt

  bað, að skipuleggja daginn.

  "Huh....jú, eitthvað er nú skárra að ég mæti

  og kroti vilja minn á blað" svaraði húsfreyja.

  "En þú MÁTT alveg sleppa því ef þú vilt", djásnið

  gaf sig ekki.

  "Jú, auðvitað, má ég það" svaraði húsfreyja

  að bragði, "en þetta er nú einu sinni borgin okkar

  og ég vil fá að hafa eitthvað um stjórnun hennar að segja"GetLost!

  Djásnið hnyklaði brýr, en lét síðan gott heita...."en mamma,

  FYRST förum við í Húsdýragarðinn"Wink!

  Húsfreyju setti hljóða.

  DJÍSUSS!

  Hér var hún að telja níu ára djásninu trú um

  að kosningar hefðu einhver áhrif, þegar kæmi að borgarstjórnShocking.

  KRÆST!

  Ekki höfðu síðustu borgarstjórnarkosningar verið

  neitt til að hrópa húrra fyrirPinch.

  "Borgarstjóri í dag-leikur" með mergjuðum "samsærum" og

  "bakstunguplottum" tvist og bast, mánuðum samanPinch.

  Og síðan varð "kvennabréfavinur" númer 1, Hanna Birna

  stjóri, án þess að kjósendur hefðu nokkuð um málið að segjaNinja!

  JEMINN!

  "Ég hef ekki hugmynd um hvaða flokk ég á að kjósa,

  og kosningarnar eru Í DAG"W00t!

  Húsfreyju sundlaði af kosningaörvæntingu!

  "Við drífum okkur bara í Húsdýragarðinn" ákvað

  húsfreyja við níu ára djásnið í snarheitum.

  Gætti þess vel að taka ekki með sér nein

  "höfuðföt" húsfreyja, eins gott að ná sér í

  einn mergjaðan "sólsting" með meðfylgjandi

  "bjartsýnishausverk" í garðinum.Shocking

  Í garði dýra var ekki þverfótað fyrir "hárlausa

  tvífætta liðinu" eins og köttur húsfreyju nefnir

  það gjarnanDevil.

  Húsfreyja og djásn voru heppnar og fundu bílastæði

  tæplega kílómetra frá garðiLoL.

  Svo var rölt í góðviðrinu.

  Þar var mikil Stöðvar-2 hátíð komin af stað og ÖLL Reykjavík

  mætt á svæðiðW00t!

  Eitthvað voru miklar pælingar í gangi hjá

  yngra fólkinu, yfir því hve mikð

  BREYTT Solla stirða og Íþróttaálfur voru orðinWhistling,

  en hopp og hí og húllum hæ með Skoppu og

  Skrítlu.

  Húsfreyja og djásn náðu sér í fría pylsu á meðan

  regnskúr "grét" bévítans ónæðið hjá húsdýrum

  og öndum.

  En stuttu seinna skein "sú gula" sem aldrei fyrr,

  og Sveppi og Villi rauluðu lítil lög og skemmtu.

  Húsfreyja reddaði djásninu frírri fjólublárri  blöðru

  í lokin, var búin að redda sér einum herlegum

  sólsting, með tilheyrandi bjartsýnis-hausverk

  og þær héldu heim á leið, mæðgurnarTounge.

  Bóndi beið spenntur eftir því að komast á kjörstað.

  Húsfreyja var að sigla í þægilega "tilbúin-að-kjósa-

  hvað-sem-er"-höfuðpínu, og dreif sig á kjörstað.

  Þokukennd sjón hennar grillti tæplega alls konar

  nöfn og bókstafi á kosningaseðlinum, hlakkaði í henni

  er hún smellti x-inu nokkurn veginn á miðjan kassa...dududu..

  ...flokksins!

  Málið DAUTT!

  Aaaaa...þvílík sæla.

  Panodýl og kaffi svo að redda hausverknum,

  og nú er bóndi að grilla eðal steik, spjót,

  bakaðar kartöflur og alles.

  Namm!

  Svo ÆTLAR Hera að sigra í kvöld....máske að það

  verði...konan er mikil söngpípa, þó lagið sé lengi

  að venjast.

  Vonar samt húsfreyja að það verði ekki, þó hún óski

  löndum sínum góðs gengis.

  Það væri að æra óstöðugan að eiga að halda

  massíva og fokdýra Eurovision-keppni í

  hálfkláraðri tónlistarhöll út við sjó, með

  kerlingarfáluna hana "Ísbjörgu" á hælunum

  og snillana hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum "geltandi"

  skipanir um leið og þeir "bíta" í hælana á

  oss aumum "vitfirringum í fjármálum"Angry!

  Nah!

  Þá er skárra að sú volduga rauðglóandi Hera

  vermi 3- 20 sætið!

  Eða það er mat húsfreyju.

  En kæru samlandar gangið glaðir til kosninga,

  þær eru hvort eð er alltaf heilmikið grín....DÆSErrm!

  Og góðar stundir yfir Eurovision í kvöld!


mbl.is Fleiri kosið í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldrei má köttur...

funny-cat-on-a-tree  ...redda sér smá starrasteik í matinn

  uppi á þaki, án þess að allt brjálistErrm.

  Já, og það hálf Keflavík!

  Mannfólkið kemur æðandi babú-babú

  á heilum slökkvibíl með krana og körfur,

  djöfulgang, læti og alles, svo jafnvel mávarnir í bænum

  tapa sér í "samúðarflippi" og ráðast

  á sársvanga kisuAngry.

  Og akkúrat þegar kisi var búinn að fullkomna

  "húsþaka-tæknina"!

  Hnífbeittar ofurklær, kattliðugur skrokkur,

  rosalegur stökk-kraftur og mögnuð snerpa

  verið slípuð og æfð daglega, og svo loksins...

  UPP Á ÞAK!

  Nú skyldi sko kisi fá væna starraveislu!

  En nei!

  SVEI!

  Tóm afskiptasemi, mávatjón og mannatjara!

  Og kisi mátti beita ofurtækninni við það að klífa

  niður húsvegginn....matarlaus og ofursvangur!

  Það getur verið "hundalíf" að vera köttur uppi á þaki.

  Húsfreyja vonar að einhver góðhjartaður Keflvíkingur hafi

  splæst soðningu á ofurkisa þennan.

  Á það skilið, kisi, eftir allt erfiðið!

  Góðar stundir!100 1940


mbl.is Fuglar hröktu kisu ofan af þaki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband