Allt er nú sem orðið SVART...

19224d1241115170-cute-cats-funny-cats-0152-1-  ...ærnar, kýr og smalinn!

  Já og strókurinn frá Eyjafjallajökli sást stefna

   í austur, þá húsfreyja skrapp austur fyrir fjall

   í dag með 9 ára djásnið.

  Eyjarnar mistruðu í gráu skýi, hálf umkomulausar

  og daprar að sjá.

  Systir í Eyjum var í símanum við okkur í Þorlákshöfninni,

  alveg rasandi á "öskugráum" skít og drullu, og rausaði villt og galin

  í peyjum sínum að "fara úr fötunum ÚTI" á meðan

  hún barmaði sér og sínum.

  Heppin samt að þurfa aðeins að hugsa um 3 grútskítuga

  peyja, einn drullugri hund og eina tandurhreina "neitar að

  fara út í þennan viðbjóð"-móðurPinch.

  Engar kindur, kýr, eða svín að hafa áhyggjur af.

  Engin uppskerubrestur eða skortur á heyi.

  En svo heppnir eru bændur undir Eyjafjöllum ekki.

  Allt í sótsvörtu tjóni og ösku.

  Vonar húsfreyja að "þeim í neðra" sé farið að leiðast

  þar í jöklinum, og fari að huga að smá lúr...

  og að fara í það að hrella Mister Brown fyrrum

  "yfirhatt" í Bretlandi næstWhistling.

  Kannski tapi sér í pípulögnum hjá Brown, og jafnvel

  rústi hjá honum salerninu þá hann hyggur næst

  á djöfulgang og lætiDevil.

  Hvíla sig á eldgosum...tekur of mikla orku frá öllum.

  En djásnið vill í kompjúterinn næst.

  Góðar stundir.

 


mbl.is Allt orðið svart aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er rigning og myrkur......

Bubbi kóngur (IP-tala skráð) 16.5.2010 kl. 20:43

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

..og meinlegir skuggar...sammála Bubbi!

Sigríður Sigurðardóttir, 16.5.2010 kl. 23:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband