15.3.2011 | 18:38
Heilt ár fyrir búðarhnupl?
Þá eru það spurningarnar:
Hversu langa dóma fá menn fyrir
rjúfa skilorð eftir síendurtekið heimilisofbeldi?
Eða fyrir síendurteknar kærur um ofbeldi eða nauðganir?
Er það þá einnig "brot " á skilorði?
Eða fyrir að vera endurtekið tekinn akandi á bifreið undir
áhrifum vímuefna og brennivíns?
Er máske búið að lengja allan refsitímann eins og leggur sig,
allt eftir alvarleika brota?
Jamm, merkilegt atarna, og hélt húsfreyja satt að segja að
fangelsi vor hér uppi á litla Fróni væru yfirfull af dópkrimmum,
morðingjum, nauðgurum, útrásarvíkingum og bankasnillum.
En máske eru sísvindlandi, gráðugir útrásarvíkingar allir og vinalegir
"vorum-ekki-með neinar-innherjaupplýsingar-bankasnillar" enn í
"rannsókn", "verið að undirbúa kæru á þá...eða ekki", eða þá
allir á "skilorði", svo enn er nægt pláss er fyrir
"kardimommudropahnuplandi" glæpakvendi í steininum?
Jaso!
Húsfreyja vonar þá að kardimommufrúin fái að taka með sér
eins og eitt, tvö glös af dropunum góðu (ódrukkna) í fangelsið....má þá
altént hræra í eina góða jólaköku í fangelsiseldhúsinu,
marmarateru og fleira gómsætt.
Halda "kardemommu-veislu" með stæl og skála í botn fyrir íslenska
dómskerfinu.
Já, mikið er réttlæti þess og viska.
HALLELÚJA.
Góðar stundir, og munið að kardemommudropar eru bísna
góðir í kökubaksturinn...í hófi.
![]() |
Árs fangelsi fyrir að stela kökudropum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.3.2011 | 22:07
Hláturinn lengir lífið?
Hér er tveir gamlir og góðir:
Þegar ég var á leiðinni upp Ártúnsbrekkuna í morgun
leit ég til hliðar og þar var kona á splunkunýjum BMW.
Hún var á svona 120 kílómetra hraða með andlitið
upp í baksýnisspeglinum og var á fullu að sminka sig
með meik-up græjurnar í sitt hvorri hendinni með
annan olnbogann á stýrinu.
Ég leit fram á veginn eitt augnablik, og næst þegar
ég leit á hana var bíllinn hennar á leiðinni fram fyrir
mig í mína akrein, og samt hélt hún áfram að mála
sig eins og ekkert væri sjálfsagðara.
Mér brá svo mikið að ég missti rakvélina mína
ofan á roastbeef-samlokuna, sem ég hélt á í vinstri
hendi.
Í panikkinu við að afstýra árekstri við konuhelvítið
og ná stjórn á bílnum sem ég stýrði með hnjánum,
datt gemsinn minn úr hálsgrófinni á mér ofan í
kaffibollann sem ég var með á milli fótanna.
Það varð til þess brennheitt kaffið sullaðist á
"besta vininn" og "tvíburana tvo".
Ég rak upp öskur og missti við það sígarettuna
úr kjaftinum og brenndi hún stórt gat á sparijakkann
minn og ég missti af mikilvægu símtali.
HVAÐ ER AÐ ÞESSUM HELV... KELLINGUM?
Hjón fóru á fæðingardeildina á Landspítalanum,
konan að fæða fyrsta barn þeirra.
Jónas læknir sagði þeim að alveg nýtt tæki
hefði verið keypt inn á fæðingardeildina, sem
færði hluta af fæðingarverkjum móðurinnar til
föðursins.
Þau hjón vildu ólm prófa tækið.
Jónas læknir byrjaði á 10% verkjaflutningi til
eiginmannsins, þar sem það væri líklega meiri verkur en
en hann hefði nokkru sinni upplifað.
En eiginmaðurinn bar sig bísna vel, og eftir því
sem leið á fæðinguna sagði hann lækni að hækka
í tækinu.
Læknir hækkaði í 20% og síðan í 50%.
Og enn var eiginmaður stálsleginn og sagði Jónasi
að flytja alla verki hinnar fæðandi móður yfir á sig.
Fæðingin gekk síðan brilliant vel og móðirin
fann ekki nokkurn hlut fyrir neinum verkjum.
Og sömuleiðis eiginmaðurinn, hann var hinn hressasti.
Um kvöldið fengu hjónin að fara heim með frumburðinn,
og þá fundu þau bréfberann steindauðan á tröppunum
fyrir framan hús þeirra.
Jamm, víst er gott að geta hlegið dátt, eða í það minnsta glott
út í annað.
Sjálf var húsfreyja á ferðinni í dag.
Þurfti í Rúmfatalagerinn að ná sér í ódýra prjóna.
Taldi happasælast að skreppa í Smáralindina, því þar rataði hún
einna best um verslunina.
Jamm.
Auðvitað var búið að hafa endaskipti á versluninni, svo húsfreyja
vissi ekki hvað sneri upp eða hvað sneri niður.
En prjónana fann hún samt.
Týndi svo ýmislegt smálegt með í körfu.
Gáfaði ungi maðurinn með dökku spangargleraugun,
var að ræða við sína heittelskuðu fyrir aftan húsfreyju
þegar þau biðu afgreiðslu við kassa.
Líklega rúmlega tvítug bæði tvö.
Hans heittelskaða, einnig með dökk spangargleraugu
horfði svolítið fljótandi augum á kærastan, enda ung og
ástfangin.
"Við verðum að kaupa okkur slatta af þessum hér, þegar
við fáum íbúðina okkar afhenta" sá gáfaði sýndi kærustu eldhússvampa,
10 saman í búnti.
Kærasta kinkaði spekingslega kolli, og hristi ljósan hárlokk sem hafði
fallið fram yfir dökku spangargleraugun.
"Já, hélt sá ungi gáfaði áfram, "kannski get ég líka reddað
500 grænum svona, frá kunningja mínum, fyrir lítinn pening,
hann er með heildsölu".
Kærastan tók upp eina lengju af eldhússvömpum,
velti henni á milli handa sér.
Spurði svo: "Til hvers er ÞETTA eiginlega notað"?
Húsfreyja skellihló inni sér á meðan hún greiddi fyrir prjónana.
Hlustaði á unga herrann reyna að útskýra þrif á eldhúsi
fyrir ungu dömunni sinni, sem áreiðanlega hafði aldrei þrifið
eldhús, hvað þá heldur komið við klósettbursta á allri sinni
stuttu ævi.
Já, það fara margir að búa, ÁN ÞESS AÐ KUNNA AÐ BÚA.
En allt lærist það á endanum.
Síðan var skroppið austur fyrir fjall í kaffi og kleinuhringi
til múttu eftir hádegið.
Mikið spjallað og PRJÓNAÐ.
Svalan svo með til baka og ætlar að bíóast og fleira með Bárunni
yfir helgina.
En góðar stundir og góða og hláturmilda helgi.
![]() |
Hlegið að Íslendingum í Færeyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 12.3.2011 kl. 01:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.3.2011 | 20:26
Skandall að Skandia...
...sé fengin til landsins að
dæla sandi úr Landeyjahöfn,
geti ekki sinnt sínum störfum dögum saman
vegna "ölduhæðar",
og stranda svo sjálft í höfninni...
í sandinum sem það á að dæla á brott.
Hvurslags vinnubrögð eru þetta?
Hvers eiga Eyjamenn að gjalda?
Ef búið var að sjá fyrir þörfina á reglulegum
sanddælingum og dýpkunum í Landeyjahöfn,
því splæstu ekki ráðamenn í "sanddæluskip"
sem ræður við aðstæður hér uppi á litla Fróni?
Getur ekki sinnt dælingu dögum saman vegna
"of mikillar ölduhæðar"!
STRANDAR sjálft í höfninni!
Er þetta boðlegt Eyjamönnum á ferðinni upp á land og heim aftur,
á tímum niðurskurðar í heilbrigðiskerfi, menntakerfi,
atvinnuleysi og annarri óáran sem dunið hefur yfir?
Í Eyjum sem annars staðar.
Lágmark að menn komist ferða sinna til að bjarga
sér í læknisskoðun, til framhaldsnáms, til starfa uppi á landi
í heimsókn til vina og vandamanna, nú eða bara til þess
að smella sér að sjá Justin Bieber í bíó.
LÁGMARK!
Óskapa vandræðagangur er þetta.
Þeir sem fengu "Skandalíu", eins og Spaugstofumenn
kalla skipið, til landsins, hljóta að hafa kynnt sér
ölduhæð við suðurstrendur landsins....eða hvað?
Hefði dugað að spyrja sjómenn.
Margir sjómenn bæði úr Eyjum og víðar, er fiska
á miðum sunnan lands, hefðu getað frætt
"Skandalíumenn" þessa um öldurhæð, strauma og
og sjávarföll við Landeyjasand.
Ekki málið.
Jamm, merkilegur fjandi þetta.
Svo er verið að "bjarga" dýpkunarskipinu,
sem á að tryggja greiðar ferðir Herjólfs milli lands og Eyja.
Redda reddaranum.
Jæja, en greiðlega gekk að draga dallinn á flot,
svo vonandi dælir hann nú sandi úr höfninni sem aldrei fyrr...
...svona rétt á meðan að "ölduhæðin" er rétt fyrir hann.
Þegar að "ranga" ölduhæðin mætir aftur á svæðið,
er það þá bara landlega, öllari og "ölduhæðaspár"
fyrir áhöfn "Skandalíu".
Góðar stundir, góða færð og góðar samgöngur.
![]() |
Skandia festist í sandinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 20:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.3.2011 | 22:49
Syndaaflausn?
Blessaður öðlingurinn hann
Benidikt XVI er búin að gefa það
út að gyðingar eigi ekki sök á dauða Jesú.
Já, það var aldeilis.
Og af hverju gefur sá heilagi sextándi það út núna?
Hefur einhver verið að leita þeirra einstaklinga
sem bera sök á dauða Jesú, nýverið?
Er kærumál í uppsiglingu?
Húsfreyja hefur lengi talið að allt í kringum dauða
Jesú hafi verið vendilega fært til bókar, og ekki nein vandkvæði að
sjá hverjir stýrðu málum, og hverjir stuðluðu að og
sáu um krossfestingu hans.
Húsfreyju rámar í að Kaífas æðsti prestur ásamt fleirum af hans
prestum og öldungum, og sömuleiðis Heródus og Pontías Pílatus með sína
rómversku hermenn, hafi allir eitthvað verið við málið riðnir.
Jamm, og svo auðvitað hinn armi Júdas...svona í upphafi máls.
Að þjóð sú er nefnast gyðingar í dag, beri þar einhverja sök
hefur aldrei komist inn höfuð húsfreyju nema sem rugl og óráðsía.
Enda Jesú og allir hans lærisveinar gyðingar sömuleiðis.
Svo hvað er málið með andaktugar páfayfirlýsingar í dag?
Hlýtur allt þetta krossfestingarmál Jesú löngu að vera FYRNT,
og of seint að sækja nokkurn til saka fyrir það...allir með
réttarstöðu grunaðara, steindauðir.
Eða hvað?
Ekki alltaf gott að henda reiður á hugleiðingum katólskra páfa.
En húsfreyja hefur löngum haft áhuga á andlegum
málum, enda trúuð kona á Guð og góða verndarengla, en lítt
trúuð á trúarrit, trúarbrögð og trúarkreddur, enda slíkt
allt frá mönnum komið.
Hefur dundað sér síðustu vikur og mánuði að glugga í
Kóraninn, og tarna er furðulega lesningin.
Eru mikils trúandi á brennandi helvíti í því ritinu,
og virðist Múhameð spámaður nánast taka helvítis-hugmyndir
Gamla Testamentisins beint upp og gera þær að sinum og Allah,
og gott betur.
Einnig virðist Allah vera tvíburabróðir Guðs gyðinga í
Gamla testamentinu...auga fyrir auga, tönn fyrir tönn osfr.
Allah blessaður er einnig ansi herskár:
"Spámaður, herja þú á hina vantrúuðu og hina hræsnifullu,
og beittu þá hörku. Víti skal vera þeim athvarf, og er það takmark allillt"
9.Súra 73.
Allah reynist einnig grimmur "refsari" við lestur þennan.
Einn hinn harðasti dómari sem um getur, og boðar að
hann beri að óttast sem og refsingar hans.
Elskar boð og bönn til mannanna barna... og setur þeim
óspart lög og reglur.....lögum sem jafnvel er ennþá
fylgt í dag, hversu forn og ómannúðleg sem þau eru.
Jamm, ekki mjög kærleiksrík trúarbrögð, nema ölmusufólki,
munaðarlausum og sjúkum.
Konur ekki merkilegur pappír í bók þessari, og eiga dætur til dæmis ekki
sama rétt til arfs eftir foreldra sína, sem bræður þeirra...og þær eru EIGN
eiginmanna sinna.
Samt er í sífellu tönnlast á því að Allah sé alvitur og mildur,
í gegnum allan Kóraninn.....jafnvel eftir hinar hroðalegustu lýsingar
á fólki sem Allah refsar og sendir til Vítis í sjóðandi vatn, svo
holdið bráðnar af beinum.
Jamm, nokkuð merkileg lesning, Kóraninn, en niðurdrepandi á heildina litið.
Svo húsfreyja smellti sér í meira upplyftandi efni af andlegum toga,
eftir Kóraninn, og veitti ekki af.
Ég segi yður: Þannig verður fögnuður með englum
Guðs yfir einum syndara, sen gjörir iðrun.
Lúkas 15:10
Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist.
Jóh. 14:27
Bodhisattvinn elskar allar lifandi verur sem væru þær
hans eigin afkvæmi.
(Vimalakirtinirdesha sutra 5) Búdda.
Megi ótti og kvíði ekki sigrast á mér.
(Majjhima Nikaya 6.8) Búdda.
Strax skárri boðskapur, þegar stöðugur ótti og hræðsla er ekki
málið í trúarbrögðunum, heldur kærleikurinn.
En alltaf fróðlegt að skoða málum frá nýjum sjónarhóli.
og þó Kóraninn fái ekki háa einkun sem trúarrit hjá húsfreyju,
er hann áreiðanlega fínn fyrir árásargjarna karla þarna austur um
sem vilja "eiga" margar konur, fíla að lifa í stöðugum ótta
við reiði og refsingu Allah, eru lítt fyrir þjóðfélagsframfarir
og hafa gaman af krjúpandi bænahaldi frá morgni til kvölds.
Svo mörg voru þau orð.
Góðar stundir og góða nótt. Guð og góðir englar "ykkar" geymi ykkur.
![]() |
Hreinsar gyðinga af dauða Jesú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
4.3.2011 | 16:49
Karlmenn hugsa EKKI UM NEITT annað...
...en kynlíf
!
Svo segir einn spakur bókarhöfundur,
Simove að nafni í hinu víðfeðma veldi
Betu bjútí bretanna.
Og það eftir "margra ára rannsóknir".
Fo´fanden!
Fjandakornið!
Þetta líst húsfreyju ekkert á.
Hér treysta konur heilu kynslóðunum af körlum fyrir
því að stjórna löndum, bönkum, fyrirtækjum, flugþotum,
skipum og ekki síst bifreiðum ár eftir ár.
Eru mikilvæg ábyrgðarstörf, og hvað farartæki varðar, oft
hrein og klár spurning upp á líf og dauða, hvernig tekst til
við stjórnunina.
Svo eru allir þessir herramenn bara ekkert að pæla, hvað
þeir eru að gera.
NEIPP, segir hinn vísi Simove.
KYNLÍF er heila "heilamálið" karlmannanna.
Og EKKERT annað!!
Jaso.
Anskotinn kvenmannslaus í útlegð á Suðurheimskautalandinu!
Er Simove hér búin að uppgötva skýringuna á
því, hví allt hefur farið til helvítis í fjármálaheiminum síðustu
ár og aldir?
Hví hér á móður Jörðu logar allt í styrjöldum, drápum og upplausn,
og það á tímum sem karlar hafa að mestu haldið um valdataumana?
Körlum þá skítsama um verk sín, skynsemi bak við verkin, útpældar
uppgötvatnir, rökréttar ályktanir og mannúðlegar hugsjónir, jafnvel
hvern þeir þurfa að drepa, bara ef næsta "dodo" er HUGSANLEGA í uppsiglingu,
eða hægt er að velta sé upp úr blautlegum þankagangi um
síðast "dodo" eða jafnvel mögulegt að hugsa eingöngu um ímyndað "dodo?
Helvíti er að heyra þetta og sjá.
Kannski þá ekki að furða, ef allt dúndrar niður í
myrkustu iður helvítis hér á Jörðu reglulega.
Helmingur mannkyns má bara "ekkert vera að því" að
HUGSA um uppbyggingu, uppgötvanir, menntun, vísindi,
stjórnun, barnauppeldi, mannúð, kærleik, stjórnun farartækja,
skipulag, jafnrétti, listir, efnahag, náttúrufegurð, afkomu eða afþreyingu....
ja, nema auðvitað að afþreyingin sé "kynlíf".
Neipp.
KYNLÍF er það eina sem þessi karlkyns-helmingur mannkyns pælir í
og brýtur til mergjar, segir Simove.
Jaso, húsfreyja er í öngum sínum.
Pælir jafnvel í því að taka bílinn alfarið af bónda sínum,
reynast staðhæfingar hins snjalla Simove réttar.
Er þá húsfreyja mest rasandi á, að vesalings kynlífsþenkjandi ratarnir skuli ekki
lenda í árekstrum daglega á leiðum sínum frá áfangastað A til B.
Hér ættu þotur að falla af himnum ofan annan hvern dag,
skip að stranda tvist og bast, fyrirtæki að fara á hausinn vikulega,
mæður í haugum að ala börn sín upp einar í nútímaþjóðfélögum,
ríkistjórnir allra landa að vera rústir einar, efnahagsmál
þeirra skotin, brennd og urðuð....öö.. þetta er nú reyndar
svínsleg staðreynd í flestum löndum Jarðar í dag.....æææ.
Bjalla í bónda næst og bjóða honum "far" heim úr vinnunni.
Það er þá ekkert bílastjórnunarkjaftæði að trufla hjá honum "þankaganginn"
á meðan.
Góðar stundir, og kæru herrar, munið að það er fleira til í jarðlífi
en kynlíf, matur og fótbolti.
![]() |
Það sem hver karlmaður hugsar um að kynlífi undanskildu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 12.3.2011 kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.2.2011 | 16:48
HERINN!
Sá íslenski?
Jaso.
Það hlýtur þá að vera "ósýnilegi" herinn
okkar hér uppi á litla Fróni,
sem reykir allar "ósýnilegu" sígaretturnar
sem Spaugstofan fjallaði um af snilld síðasta
laugardagskvöld.
Já, og nýtur svona myljandi góðs trausts í ofanálag.
En kemur sosum ekki á óvart, að menn af erlendu bergi
brotnir hinum megin Atlandsála telji hér vera her.
Hér hafa verið búsettir mergjaðir "hryðjuverkamenn",
samkvæmt vísum, breskum mönnum, árum saman,
eða allt frá því að "Ísbjörg gamla" fékk banvænt slag,
steindó og gekk aftur með voveiflegum hætti.
Og þó að "vopn" okkar frónverskra teljist ekki beysin,
mest bitlausir búrhnífar, skæri, ryðgaðir rjúpnabyssuhólkar og heykvíslar,
þá eigum við altént megaflotta tunnuræfla og
hrikalega flott barefli sem skapa skemmtilegan samhljóm
við "undursamlegar" ræður þingmanna á Alþingi voru.
Sprengjuhvellir, hvað?
En gaman hefði húsfreyja að því, að fá að líta eins og eitt
"herkvaðningarbréf" augum fyrir ósýnilegan her þennan,
svona bara til að vita hver eða hverjir komu honum á fót
af okkar frónversku snillum.
En auðvitað hafa öll slík bréf verið "ósýnileg"....
Hehehe, skondin frétt atarna, og grunar húsfreyju að
eitthvað sé hún orðum aukin.
Góðar stundir og góða helgi.
![]() |
26% treysta íslenska hernum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 6.3.2011 kl. 23:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2011 | 18:52
Sýruhausar í and-Gaddafísku stuði?
Allah sé lof og dýrð...fyrir Gaddafí
.
Hinn skarpvitri og friðelskandi
"ekki-leiðtogi" Líbíu, Muammar Gaddafí
er í öngum sínum.
Þarna er þessi elskulegi maður, Gaddafí
sem "formlega ber ekkert embætti" í hinu
undursamlega veldi Líbíu, búin að puða og púla
við uppbyggjandi "byltingarstörf" FJÖRUTÍU-ÁRA-BYLTINGARINNAR (síðan 1969, hefur hún
verið í gangi... ÓGNARLANGA BYLTINGIN væri gott nafn á hana)
í þágu þjóðarinnar árum saman, og uppsker
svo ekkert nema vanþakklæti og svívirðingar og grófar móðganir.
Fékk ekki einu sinni embætti!
Mótmælendur mættir að mótmæla "ekki-stjórn" Gaddafís.
Ó vei!
Og slík svívirða frá hans eigin löndum!
Og til að auka enn á skömmina eru þessir "Gaddafímótmælandi "samlandar
hans á "mergjuðu sýrutrippi" frá morgni
til kvölds
, og telja sjálfsagt
himininn appelsínugulan, sjóinn rauðan og skýin lillableik.
Gaddafí er sár.
Mættur undir regnhlíf, (svo ekki rigni á hann lillableiku
regni og appelsínugulur himininn hrynji
ekki ofan á haus honum) og hann
ekki flúinn af landi brott, með hina
helgu stjórnarskrá Líbíu á lofti og les mikinn.
"Gaddafí-ósáttir sýruhausar réttdræpir, Allah sé lofaður".
Eru hvort eð er á vegum djöfulsins, hinir "ofskynjandi" mótmælendur,
og því öruggara að drepa þá alla sem fyrst, svo djöfullinn sjálfur
með horn, hófa, hala og sinn hrikalega þrífork
verði ekki næsti "óformlegi ekki-leiðtogi" Líbíu.
Já og Allah forði Líbíu frá því að "sá í neðra" verði næsti
"yfirmaður ógnarlöngu-byltingarinnar".
Jamm, vesalings Gaddafi er móðgaður.
Líbanskir sýruhausar kunna ekki gott að meta, því er verr.
Hinir Gaddafí-elskandi Líbanir munu slá skjaldborg um sinn
heittelskaðan "ekki-leiðtoga" og berjast blóðugum bardaga
til síðasta manns!
Og þá og aðeins þá mun Gaddafí fá frið til að halda áfram LANGDREGNUM
byltingarstörfum sínum og að sinna "ekki-embættisskyldum" fyrir land sitt og
þjóð, eða deyja öðrum kosti.... í Líbíu
!
Jamm mikil er viska og réttlæti Gaddafís, Allah sé dýrð.
Húsfreyja ætlar að redda kjúllanum úr ofninum.
Góðar stundir.
![]() |
Gaddafi fer hvergi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 6.3.2011 kl. 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2011 | 12:34
HÆKKUN!?
Vegna "tímabundins álags og kreppu"
urðu vinnuveitendur húsfreyju að
"lækka" laun allra hjúkrunarfræðinga
á öldrunarheimilinu, þar sem hún starfar.
Sú LÆKKUN tók gildi frá og með 1. jan 2011.
Og áfram er verið að ráðast á hjúkrunarfræðinga!
Frá og með 1. apríl verða engir aðstoðardeildarstjórar
við störf á stofnun þeirri er húsfreyja starfar á, búið
að leggja "aðstoðardeildarstjórastöður" við stofnunina niður.
Að vísu smá pikkles í gangi með einn aðstoðardeildarstjóra
sem á rétt á biðlaunum, og hennar afsögn dregin til baka
en sjálfsagt bara "tímabundið"!
Og stofnun húsfreyju er sjálfsagt ekki eina
öldrunarstofnunin, sem er í bullandi vandræðum með
niðurskurð upp á tugi milljóna um þessar mundir.
Alls staðar kreppir skóinn að, og allir starfsmenn heilbrigðisstofnana
skilja vel að yfirmenn þeirra eru undir gríðarlegu álagi,
því þeir eru undir sama massíva álaginu sjálfir.
Launalækkun og launaskerðing þýðir fyrir húsfreyju enn meiri kreppu og aðhald
í heimilishaldi, erfiðleika við að greiða skuldir á réttum tíma
og "niðurskurð" í matarinnkaupum, fatakaupum, bensínkaupum,
og allri almennri velferð.
Húsfreyja ferðast ekki erlendis lengur, og eru nú 5 ár
síðan hún brá sér í ferð til útlanda.
Hún hefur einnig sniðgengið verslanir allar sem selja "óþarfa",
og veit ekki lengur hvar slíkar verslanir er að finna,
nema þær sem hægt er að ganga fram hjá í stórum
verslunarhúsum, á leiðinni í Bónus eða Hagkaup.
Þannig gæti hún ekki vísað nokkrum manni á skartgripaverslanir,
bókaverslanir, leikfangaverslanir, tómstundaverslanir,
verslanir með merkjafatnað, og gjafavörubúðir lengur.
Átti sér á árum áður sínar uppáhaldsbúðir, þar sem
hún gat leyft sér 1-3 á ári að gera vel við
sjálfa sig, en mest þó við ástvini og vini, og gefa vandaðan
"óþarfa", en slíkt er löngu liðin tíð.
Blóm eru hennar gjafir í dag, og nógu eru þau dýr,
afskorin og steindauð.
Ef satt skal segja, hefur húsfreyja aldrei, segir og skrifar
ALDREI, upplifað góðæri innan heilbrigðiskerfisins.
Boðskapurinn þar í nærri 30 ár, hefur verið
aðhald og niðurskurður.
AÐHALD OG NIÐURSKURÐUR!
Sínkt og heilagt sami söngurinn.
Í upphafi þurfti veikt fólk ekki að greiða fyrir
heilbrigðisþjónustu sína, nema fyrir stöku recept,
nú á dögum "kostar", að verða veikur.
Þrátt fyrir þetta, er heilbrigðiskerfið á hvínandi kúpunni,
og greiðslur fyrir þjónustu veitta, greinilega ekki að skila
sér nema í vasa örfárra einstaklinga.
Ekki hafa þær birst í launaumslagi húsfreyju, það er á tæru.
Þvert á móti hefur launaupphæðin rýrnað og rýrnað,
en álagið og ábyrgðin aukist jafnt og þétt.
Og hjá húsfreyju og hennar kollegum, er ekki búið að
vera um neitt "tímabundið aukið" álag að ræða!
Sei, sei nei.
Hjúkrunarfræðingar hafa unnið undir stífustu djö.... "pressu"
árum saman, undirmannaðar, launalágar en "ábyrgar"!
Kjarabarátta?
Jú jú, víst reyna hjúkrunarfræðingar að fá laun sín leiðrétt
miðað við hrikalegt vinnuálag, niðurskurð, og aðhald.
En erfitt um vik.
Verkföll út, því alltaf verður að sinna "lágmarksþjónustu" við
sjúka og aldraða...en það er því miður AKKÚRAT sú þjónusta
sem hefur verið í boði á Íslandi árum saman í heilbrigðiskerfinu.
Síðan er sett á "þjóðarsátt" á hjúkrunarfræðinga sem aðrar stéttir,
og þær hafa mátt hlaupa hraðar, vinna meira og bera meiri
ábyrgð fyrir lélegri og lærri laun en til dæmis margir skrifstofumenn.
Það að hjúkrunarfræðingar eru með mannslíf í höndum
sínum nánast daglega, og þjónusti "fólk" sem getur litla eða
enga björg sér veitt vegna veikinda eða aldurs,
virðist ekki hátt skrifað hjá ráðuneyti heilbrigðis.
Jamm.
En svo hækkar Kjararáð laun hæstaréttardómara og dómara
um hundrað þúsund kall, bara sisona, vegna þess að
þeir eru að sligast undan "álaginu"!
Og það "tímabundna" álaginu"!
Á tímum kreppu, aðhalds og niðurskurðar!
Húsfreyja á eitt orð og eitt orð aðeins um þessi líka
stórkostlegu vinnubrögð Kjararáðs!
SVEI!
Góðar stundir í sólríkri borg við sundin bláu.
![]() |
Dómarar fá 101.000 kr. launahækkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.2.2011 | 18:26
Tollverðir tóku stinningarlyf..
.. í Arnarfellinu, stóð í frétt Vísis.
"Og til hvers voru þeir að taka stinningarlyf
þar um borð" hugsaði húsfreyja rasandi hissa.
"Varla hefur Arnarfellið verið að koma með
heilan skipsfarm af "tollvarðaelskandi" skvísum
til landsins og þeim ætlað að þjónusta þær"?
En neipp, húsfreyja hafði gjörsamlega misskilið
fyrirsögnina.
Tollararnir voru ekki að brúka stinningarlyfin
sjálfum sér eða þurfandi meyjum á ferð
með Arnarfellinu til ánægjuauka.
Þeir voru að leggja hald á stinningardótaríið
ásamt brenninvíni og öðru ólöglega innfluttu
drasli.
Jamm.
Stinningarlyf njóta sífellt meiri vinsælda uppi á litla Fróni,
og menn jafnvel farnir að smygla þeim til landsins og selja á svörtum.
Illu heilli.
Og það veit húsfreyja fyrir satt.
Húsfreyja lenti eitt sinn á næturvakt á laugardegi á einum af sínum
herlegu vinnustöðum úti á landi fyrir all mörgum árum.
Komið var með ungan hálfþrítugan mann upp úr miðnætti
aðfararnótt sunnudags niður á slysadeild
í mikilli sálarangist og hrikalegri vanlíðan.
Sá hafði lent í miklu og fjörugu partýi á föstudagskvöldið áður,
og skellt í sig af einskærri lífsgleði "nokkrum" pillum
af Viagra með bjórnum og pizzunum.
Þrátt fyrir að kærasta unga mannsins væri þrælhress og kát
ung stúlka, og tilbúin að dunda sér við "dodo" lengi
nætur og fram á miðjan laugardag, fékk piltur
enga "lausn" á endalausri stinningu sinni.
Honum reis og reis og reis.
Og reis.
Kærastan þegar hér var komið, búin á því og sagði PASS.
Piltur reyndi þá "sjálfshjálp" í gríð og erg,
þangað til hann var kominn með strengi í báðar
hendur og var orðin nánast farlama í handleggjum
af áreynslunni.
Ekkert gekk.
Ástandið bara versnaði, og sá partýglaði kominn með
sára verki í "vikvæmt líffærið" auk þess sem að hann
var kominn með "brunasár" af núningi á "besta vininn" og
í lófana.
Jamm.
Illt var í efni og sálarkvöl unga mannsins jóks og jókst.
Þá loks kom kærastan sínu ástkæra til húsfreyju á slysó,
góður vinur hjúanna ók þeim.
Með "besta vininn" vafinn inn í teppi.
Neitaði að gefa upp nafn í fyrstu, ungi maðurinn, logarauður
í andliti, stynjandi af sársauka og horfði stöðugt hægra megin við vinstra
eyra húsfreyju.
Minntist ekkert á að hafa tekið inn stinningartöflur
við húsfreyju.
VANDRÆÐALEGT?
Aha, ó já! Með upphafsstöfum!
Húsfreyja bjallaði í lækni.
"Risvandamál, hvað"?, læknir ekki alveg að grípa
neyðarástand málsins.
"Má þetta ekki bíða til morguns, hann verður áreiðanlega
hressari þá", læknir að miskilja eðli vandans.
"Nei, ekki vandamál að ná upp líffærinu, læknir góður,
heldur að koma því "niður", húsfreyja reyndi að halda
svip sínum hátíðlegum og grafalvarlegum.
ÞÖGN í símann góða stund.
Svo kom hálf taugaveiklaður hlátur: "Og á ÉG að gera
eitthvað í því"?, en læknirinn var karl, þriggja barna faðir, tæplega fimmtugur.
"Ja, ekki býð ég mig fram, þó pilturinn sé hinn
myndarlegasti" svaraði húsfreyja að bragði, "því kærastan
yrði vægast sagt óhress með mig, gott ef hún biti ekki
af mér höfuðið".
Læknir dreif sig í föt, og mætti niður á slysó.
Ungi maðurinn muldraði eitthvað um "Viagra" í hálfum
hljóðum við lækninn, sem hafði lyft teppinu og horft
í forundrun á "besta vininn", og klórað sér í höfðinu.
"Hvað segirðu, Viagra", læknir hvass?
"Hve margar"?
Piltur hvíslaði einhverju sem húsfreyja heyrði ekki.
"Andskotinn", læknir bað húsfreyju að draga upp lyf
í sprautu, og lét síðan nálina vaða beint í nárann á partýljóninu.
"Besti vinurinn" féll hraðar en nýskotin gæs, dauð í miðju oddaflugi.
Það voru lúpuleg og vandræðaleg hjú sem kvöddu lækni og
og húsfreyju rétt fyrir eitt þessa nótt, eftir meðal langan
fyrirlestur frá lækninum um skaðsemi þess að nota lyf,
sem engin er þörf fyrir, "bara til að prófa"!
Jamm, fólk veit ekki alltaf hverju það er að bjóða heim,
með tilraunastarfsemi á líkama sínum, með sterum, dópi
eða stinningarlyfjum.
En bara svona til að gera lesendum ljóst hversu
furðuleg staðan var, þá er þetta í eina skiptið á
ævinni, í starfi sínu sem hjúkrunarfræðingur,
sem húsfreyja varð að spyrja eftirfarandi spurninga:
"Ertu búinn að reyna allt"?
"Samfarir"?
"Sjálfsfróun"?
"Kalda sturtu"?
"Hugsa um Egil Helgason í G-streng"?
En húsfreyja sá skötuhjú þessi aldrei framar,
hvorki á vinnustað sínum né utan hans.
Hana grunar að þau hafi flutt til Tíbet eða
Alaska stuttu seinna, þegar vinahópurinn sem
fylgst hafði spenntur með gangi mála, var búinn að
leka stinningarsögunni um allan bæ.
En elda kartöflur og sjóða fisk næst.
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt 16.2.2011 kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2011 | 20:24
Konunglegar kýr?
Nú er lag!
Þeir flugvísu félagsins Kulula í S-Afríku
vilja senda Kötu kú, eða jafnvel slatta af kúm,
ef ekki heila kúahjörð í tilefni
af því að hún ætlar að ganga í hjónaband með
Villa krónprins þeirra bresku.
Jaso.
Verður þá hennar hátign Beta bjútí að byggja eitt
herlegt konunglegt fjós, við hlið Buckingham hallar,
fyrir konunglegar beljur þessar, þá sonarsonur hennar hefur
bundist hinni íðilfögru Kötu?
Ráða til sín konunglegan kúahirðir, sem tæki að sér að reka
kýrnar Kötu á beit til skiptis í Hyde Park og St. James Park og
heim aftur?
Kúadelluslóðin ilmandi af "lífrænum" fjóshaugum langar leiðir?
Verður aldrei framar mjólkurlaust í höllu drottningar, eftir
kýrlegt og konunglegt brúðkaup þetta?
Ætíð spenvolg mjólk á borðum Betu?
Og Kötu iðulega að finna við að strokka
smjör í konunglegu eldhúsi sinnar blátignuðu tengdamóður?
Ó, hvílík konungleg dýrð og alsæla með feitar og sællegar
kýr úti á túni kóngafólks, gæti þetta orðið
um alla ókomna tíð í hinu mikla veldi breskra.
Búsældarlegt að sjá feitar konunglegar kýr með breska
fánann bundinn við halann, og með gylltar kórónur á
hornum sínum sumarlangt á rölti um stræti Lundúnaborgar.
Ferðamannabransinn þeirra bresku myndi brjálast!
Suður-Afríkubúar einir myndu flykkjast þrisvar á ári í milljóna
ferðamannatorfum að berja beljudýrðina augum.
Þetta yrði sko "Hasar" með stóru H-i, og "konungleg kúamjólk"
yrði söluhæsta vara allra minjagripaverslana árum saman.
Jamm.
Merkilegt að bretunum hafi aldrei dottið þetta í hug sjálfum,
að endurvekja "stórbóndann" eða "bóndakonuna" í sjálfri Betu bjútí.
En máske eru Suður-Afríkubúar að ráða bót á því núna.
En góðar stundir og munið að mjólk er góð fyrir tennur og bein.
![]() |
Vilja gefa Kate Middleton kúahjörð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)