...miðað við að EKKI sé dælt sandi í sumar.

landeyjar_eyjar  Og mennirnir ekki hálfnaðir

  með þessi "örfáu" tonn eða 180 þúsund

  í það heila, sem þeir áttu að dæla

  burt úr LandeyjahöfnW00t.

  Það er aldeilis.

  Setja upp "stöðvunarkyldu" á Markarfljót þar meðPinch?

  Og hvað, beina öllum sumarlægðum með

  "óvenjulegar" ölduhæðir beina leið

  til Betu bjútí bretanna í sumar, enda kona sú

  "há-öld-ruð! og munar ekkert um "háar öldur" við

  sína konunglegu landsteinaDevil?

  Jaso, lítil verk og löðurmannleg þá framundan hjá

  vegagerð okkar FrónbúannaWhistling.

  Aðeins dútlerí við að eiga við náttúruöflin,

  Markárfljót og veðurguðinaHalo.

  Hættir að moka í LandeyjahöfnGetLost!

  Komið nóg af helvískum sandaustri.

  Búið spil!

  Það var og.

  En húsfreyja spáir því að eðalferjan Herjólfur sigli

  eftir sem áður sína þriggja tíma leið í Þorlákshöfn,

  sumarlangt, hætti Skandalíu....ömmm fyrirgefið,

  Skandíumenn að dæla í maí.

  Og Landeyjahöfn verði lítt brúkuð, nema þá

  til að demba sér í ærlegan sundsprett í söltum sjó,

  þá ölduhæð er "venjuleg".....nú og ef enn fyllist

  höfn af aur og leðju, koma ætíð "hrísgrjónaakrar"

  upp í huga húsfreyjuTounge.

  Þá yrði sú höfnin aldeilis til einhvers nýt,

  fengju Landeyjarmenn nokkur tonn af

  hrísgrjónum í afrakstur að haustiCool.

  Verst að húsfreyja gæti trúað að

  seltan væri svona við efri mörk hvað varðar

  hrísgrjónarækt á þessum slóðum....en það má

  sjálfsagt leysa slíka smávægilega áskorun,

  ekki síður en "óvenjulegar"" ölduhæðir,

  og sand- og aurflytjandi smáfljót á SuðurlandiWhistling.

  Neipp, þvílíkt smotterí flækist ekki fyrir fólki

  í samgöngumálunum hér uppi á litla FróniPinch.

  Jamm.

  En eitthvað er húsfreyja að veltast með töluna 180 þúsund

  TONN í hausnum.

  Er enginn reiknishaus, húsfreyja, því síður fróð

  um viðráðanlegt sandmagn í höfnum við íslenskar strendur.Shocking

  En miðað við að Skandal...Skandia hefur aðeins dælt upp

  40 þúsund af þessum 180 þúsund tonnum sem þurfti að

  dæla upp úr Landeyjahöfn, og ekki er ætlunin að dæla meira,

  veltir húsfreyja fyrir sér HVAÐ hafi orðið af

  140 þúsund tonnunum sem eftir átti að dæla burtWhistling.

  Fóru þau eitthvaðErrm?

  Upp á eigin spýturShocking?

  Skroppin til Færeyja, kannskiTounge?

  Ný "eyja" myndast við FæreyjaklasannDevil?

  Hehehe... tarna er merkileg fréttLoL.

  Húsfreyja vonar Eyjamanna vegna,

  að sandælingu verði áfram haldið í Landeyjahöfn,

  hvenær sem ölduhæð er ekki "óvenjuleg" eða háHalo,

  og höfninni verði komið í siglingafært lag fyrir sumarið.

  Húsfreyja er þá ákveðin í að nýta sér eins og eina ferð

  þaðan út í Eyjar í sumar....víst ansi þægileg og flott

  siglingaleið....sé ölduhæðin ekki því "óvenjulegri"Sick!

  Góðar stundir og baráttukveðjur út í Eyjar.


mbl.is Óljóst hvað Skandia dælir lengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott SKÚBB þetta!

Skull_St_John_Baptist  Naglarnir fundnir!

  Sem brúkaðir voru til að negla upp

  Jesú frá NasaretW00t.

  Hallelúja!

  Benedikt sext... XVI hlýtur að hoppa hæð sína af hrifningu

  og andaktugri gleði yfir fundi þessumWhistling.

  Enn einar gersemarnar í helgigripasafn páfa.

  Munu sóma sér vel innan um "einhver tonn" af

  krossaflísum Krists, og "ótölulegum hauskúpum"

  Jóhannesar skíraraPinch.

  Talar ekki húsfreyja um alla líkklæðisstrangana,

  sem Jesú eru eignaðirLoL.

  Himnesk gleði og hamingja katólskra um alla ókomna tíðGrin.

  Gott ef sá sextándi bjallar ekki með hraði í Kára Stefáns.

  okkar Frónbúanna, og lætur rannsaka nagladásemdirnar

  og leita eftir DNA-sýnumHalo.

  Ekki amalegt að vera máske með erfðamengi

  þess krossfesta frá Nasaret í ofanálagJoyful.

  Húsfreyja er þess fullviss að ísraelir munu fúslega

  láta nagla þessa af hendi til hins háheilaga

  Páfadóms á Ítalíu.

  Nema auðvitað þeir þurfi að brúka þá í "naglasúpu"...Devil.

  Það er víst kreppa í Ísrael líkaErrm.

  Góðar stundir og munið:  Betra er "naglfast" útigrill,

  en "fljúgandi grill",  á ferð í mergjuðum vorlægðumTounge.head_of_st_john_chyrsostom

 


mbl.is Segist hafa fundið krossfestingarnaglana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flaut ekki upp?

  dzn_Harpa-Reykjav%C3%ADk-Concert-Hall-and-Conference-Centre-6Fleiri, fleiri tonn af steypu og járni?

  Átti það að geta flotið upp, blessað

  bráðnauðsynlega tónlistarhúsið okkar,

  Frónbúanna?

  Og hvað?

  Þá hægt að "sigla" því?

  Koma í staðinn fyrir Herjólf, máske?

  Senda það í siglingar milli lands og EyjaDevil?

  Eða átti það að geta dólað hringinn í kringum

  landið, með tónleika á nýjum áfangastað á hverju kvöldiGrin?

  "Hringleikahús með tónlistarlegu ívafi"Whistling?

  Hehehehe...stóðst ekki mátið, HúsfreyjaLoL.

  Gerir sér fulla grein fyrir þeirri miklu áskorun byggingaraðila, að

  reisa heilt tónlistarhús út í sjó.

  Hægt að lenda í allt öðrum málum, en þá byggt er á þurru landi.

  En byggingasmiðir okkar Frónbúa bísna snjallir, og þeim ekki fisjað

  saman..... þó að þurfi að rífa niður einhvern helvískan haug af

  stáli af og til vegna galla, og setja síðan upp nýtt betra,

  hvað er það?

  Fara létt með slíkt.

  Svo er annað mál, hvort brýn þörf hafi verið á

  þessari miklu tónlistarhöll hér úti í miðju

  ballarahafi, þegar kreppa og bankahrun herjar á,

  og kostar orðið meira en að reka bíl í ár, að koma börnum

  sínum í tónlistarmenntun?

  Stefnir allt í það að tónlistarmönnum okkar Frónbúa muni

  fækka á komandi árum, og þeir muni jafnvel verða sjaldgæfari en

  lundinn EyjamannaErrm.

  Það líst húsfreyju illa á, því hún telur fallega tónlist næringu fyrir

  sálina.

  En svo má ekki gleyma að blessuð stálgrindahöllin er

  einnig ætluð í ráðstefnuhald.

  Það væri þá ráð að demba sér í þrotlaust ráðstefnuhald á

  árum komanda.

  Halda 3-6 á dag LÁGMARK, Jól og Páskar ekki undanskilin

  og hafa þá einn herlegan logarauðan söfnunarbauk

  í andyrinu, vel merktan þurfandi og fátækum tónlistarmönnum

  á vonarvöl með hæfileika sína og listWhistling.

  Muna bara að merkja hann kyrfilega:

  NO ICELANDIC KRÓNAS, PLEASE!

  ONLY EUROS, DOLLARS OR POUNDSDevil!

  Ef í hart færi, og illa gengi að safna í baukinn,

  mætti bæta við:

  PAY OR WE'LL PLAY....ALL DAYTounge!

  En gleði að blessuð tónlistarmerkta stálhöllin skyldi

  ekki fljóta á haf út, og enn meiri bullandi hamingja að hún

  skyldi ekki leka.

  Þeir tónlistarmenn sem þrauka kreppuna á litla Fróni,

  geta þá aldeilis slegið um sig í tónleikahaldi í HÖRPU um öll

  ókomin ár..... séu þá ekki allir salir uppteknir af ráðstefnuhaldiWhistling!

  Húsfreyja óskar tónlistarfólki öllu velfarnaðar,

  óskar því til hamingju með nýja tónlistarhúsið.

  Megi þeir vel njóta...og við hin tónlistarinnar. 

  Góðar stundir.


mbl.is Harpa reyndist pottþétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En ekki hvað?

 2158576282_cf4a841602 Ísland á enn náttúruauðlindir sínar og mannauð,

  það hefur ekkert breyst.

  Þjóðin er ekki dauð, þó hún hafi hafnað

  kerlingarfálunni henni "Ísbjörgu".

  Langt því frá.

  Og við fylgjum innri sannfæringu og stöndum saman

  sem þjóð, í erfiðum jafnt sem góðum tímum í framtíð.

  Og greiðum skuldir eftir sem áður.

  Svo einfalt er það.

  Húsfreyja hefur nú kosið tvisvar um mál þetta

  í þjóðaratkvæðagreiðslu, og hennar von er að þurfa

  aldrei að kjósa um það aftur.

  Þetta er orðið gott, og nú fer það fyrir dómstóla þar sem

  það átti heima í upphafi.

  Hennar spá um þá útkomu?

  Tja.... ekki gott að segja, nema kannski:

  "ÍSBJÖRG ER DAUÐ"Devil!

  Tíminn vinnur með okkur, er trú húsfreyju.

  Svo mörg voru þau orð, og húsfreyja óskar þjóð sinni

  velgengni um alla ókomna tíð.

  Góðar stundir.


mbl.is Ísland getur greitt skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei, eða já....

  funny-lion-picture-4...af eða á...

  var sungið hér um árið.

  Og eflaust tekst okkur Frónbúum að finna svarið

  í þetta sinn, sem oft áður.

  Húsfreyja löngu búin að gera upp sinn hug,

  varðandi "kerlingarfáluna hana Ísbjörgu".

  Fyrir hana er valið einfalt og augljóst.

  Vonar innilega að sem flestir landar mæti á

  kjörstað og kjósi, þetta er mál sem varðar okkur öll,

  börnin okkar og framtíð þeirra.

  Svo er það bara stóra spurningin: NEI EÐA JÁ!?

  Ykkar er valið.

  Njótið svo dagsins og kvöldsins við kertaljós og

  notalegheit. 

  Húsfreyja ætlar að kveikja á kertum í litum Icesafe,

  og "brenna burt" argvítans málið huglægt.

  Hver sem niðurstaðan verður, er það þá horfið henni

  úr hugskotum og ekki lengur áhyggjuefni, aðalleiðindi

  og ergelsi.

  Góðar stundir á kosningadegi.


mbl.is Varar Íslendinga við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland er eitt af ríkustu löndum...

 funny-pictures-loud-cat-pickup-line ...heims".

  ("Iceland is one of the richest countries in the world")

  Norsaranum var mikið niðri fyrir.

  "You see the point here"!

  "You have a lot of money".

  "Hjálpi mér" hugsaði húsfreyja," bankahrunið og

  og fálan hún Ísbjörg hafa alveg farið fram hjá norsaranum"W00t.

  Norsarinn æddi áfram:

  "But you are not doing your work, you are not doing nursing".

  Norsarinn var orðinn heitur.

  Hann bunaði út úr sér langri ræðu á bjagaðri ensku,

  þar sem hann níddi störf vestrænna hjúkrunarfræðinga

  niður í svaðið, sagðist að vísu mundu aðeins níða okkur niður til að byrja með...

  "you see the point here"?

  Húsfreyja sá engan skrattans "point" neins staðar,

  nema þá bláleitan nefbroddinn á norsaranum, og svo beitt

  svipþungt andlit kollega síns nokkur sæti frá sérShocking.

  Sú kona þekkt fyrir ákveðni, fagmennsku og dugnað,

  ásamt stóru skapi.

  Eins gott að norsarinn gusaði stressuðum hlátri

  frá sér af og til, svo leit út fyrir að hann væri að mestu að gera

  beitt grín að áheyrendum.

  Húsfreyja glotti með sjálfri sér:  "Reverse psychology.

  Gott og vel.

  Snúa fólki á sitt band með því að

  fá þá til að gagnrýna sjálfa sig og störf sín í tætlur,

  koma þá með flottar nýjar lausnir, hrósa fyrir það sem vel er gert,

  og hvetja til að "kaupa"  hjálpartæki sem bæta gæði vinnuWink.

  Húsfreyja fylgdist spennt með norsaranum.

  Hann var bísna fróður, og tættist víða um lönd með

  alls konar tölur um afspyrnu lélega hjúkrun.

  Reif heimaland sitt Noreg niður í tætlur "heilbrigðiskerfislega".

  "And we have a lot of oil-money, and still we don't take proper

  care of our old people".

  "AND YOU DO NOT TAKE GOOD CARE OF OLD PEOPLE HERE IN

  ICELAND" hrópaði norsarinn fagnandi.Pinch

  "Still you hve a lot of mony and plenty of time at work,

  but you have stopped nursing"!!!

  Ygglibrún kollega húsfreyju versnaði að miklum mun.

  Nokkrir aðrir áheyrendur slepptu frá sér taugaveikluðum

   vantrúaðarhlátri. 

  Deildarhjúkrunarfræðingurur í þriðju röð smitaðist af eldmóð

  norsarans, "JÁ  við erum hættar að hjúkra, sitjum fastar í

  pappírsvinnu alla daga" kallaði hún uppGetLost.

  "I LOVE YOU" hrópaði norsarinn upp af andakt og einskærri

  gleði yfir því að níðið skyldi svínvirkaTounge.

  Sú á þriðja bekk roðnaði í kinnum af ánægju.

  Húsfreyja kyngdi hlátrinum og muldraði í hljóði: 

  "HALLELÚJA"Halo!

   Varð hugsað til deildar sinnar, 25 manna deild, þar sem

  18 sjúkir heimilismenn eru hjólastólabundnir,

  hinir göngugrindafærir.

  Húsfreyja eina hjúkkan á vakt dag eftir dag, sinnir

  hjúkrun sinna skjólstæðinga, bæði líkamlegri og andlegri,

  tekur á bráðaveikindum, sér um að senda fólkið sitt

  í rannsóknir eða á bráðamótökur,

  sinnir deildarstjórastörfum á harðahlaupum, ræðir við

  starfsfólk, skipuleggur dagleg störf þeirra, ræðir við ástvini

  skjólstæðinga, fylgist með virkni deildar, vöntun á

  hjúkrunarvörum,  þvotti, lyfjum, annast lyfjagjafir,

  skiptir á þvagleggjum,  á magaslöngum, fylgist

  með breytingu á getu sinna heimilismanna,

  er stöðugt að meta líðan þeirra, er hjartabilun

  í uppsiglingu, lugnabólga, þvagfærasýking eða

  er jafnvel öldungurinn að búa sig undir að kveðja þessa jarðvist.

  "YOU SEE THE POINT HERE"Pinch!

  Norsarinn í ham.

  Húsfreyja hrökk upp frá hugsunum sínum.

  Var búin að tapa þræðinum hjá norsara.

  Einbeitti sér.

  Hann sem betur fer enn að níða vestræna hjúkrunarfræðingaFrown.

  Missti ekki af neinu merkilegu, húsfreyja.

  Norsarinn hvessti snörpum augum yfir hópinn.

  Hundrað og sextíu hjúkkuaugu mændu á hann.

  "DON'T TELL ME YOU DON'T HAVE TIME OR MONEY!

  "YOU HAVE BIG JEEPS IN ICELAND, AND FULL

  RESTAURANTS OF PEOPLE ON WEDNESDAYEVENINGS"Devil,

  þrumaði karl.

  "AMEN" hrópaði húsfreyja í huganum.

  Hún var komin með bullandi "Gunnar í  Krossinum-tilfinningu".

  Karl glotti og hélt áfram með ýmsan fróðleik, með dassi af

  hjúkkuníði hér og þar.  Skot á mikið ríkidæmi frónbúa.

  Loksins kom matarhlé.

  Það var grand.

  Íslensku sölustjórarnir höfðu vandað til verksins,

  allt var gott og hressandi

  Áttatíu hjúkrunarfræðingar snæddu og spjölluðu,

  einhver hvíslaði að það væri skrítið að sitja undir

  því að það sem við ynnum dags daglega væri ekki

  lengur talið "hjúkrun"Shocking!

  Húsfreyja reyndi að hughreysta viðkomandi,

  og sagði að nú væri líklega neikvæðu yfirhalningunni lokið,

  næst yrði karl ekkert nema jákvæðnin og gleðin, því hann vildi

  selja okkur ný og glæsileg hjálpartækiHalo.

  En NEI!

  Norsarinn demdi sér vissulega í mikla sölukynningu á

  "því besta sem völ er á í hjúkrun aldraðra", en hann hnýtti

  áfram í áheyrendur og var afspyrnu kaldhæðinn við

  annan íslenska sölustjórann..." oh, you're going to use you brain NOW".

  Norsari var farin að pirra húsfreyju undir lokin, og hún var þeirri

  stund fegnust að komast út í vor-slagveðrið.

  Hafði skyndilega fengið það á tilfinninguna, að norsarinn væri

  eitthvað spældur út í frónverska þjóð, jafnvel eitthvað bitur.

  Máske ekki búin að jafna sig á því, að við skyldum YFIRGEFA

  Noreg þarna um árið...874 eða þar um kringWhistling, því okkur hugnaðist

  ekki lengur lengur það land til búsetu.

  En það getur sosum verið vitleysa hjá húsfreyju,

  eigi að síður segir húsfreyja og skrifar...og stendur við það:

  LEIFUR HEPPNI VAR ÍSLENDINGUR OG VERÐUR

  ÆTÍÐ!Devil

  OG HANA NÚ.

  Góðar stundir.


Þrælar Hjörleifs....

  vikings...að trufla mokstur í LandeyjahöfnShocking?

  Altént beinahrönglið þeirraPinch.

  Jaso, og húsfreyja sem hélt að þeir þrælar hefðu

  flestir ef ekki allir flúið í Eyjar út og "Ingó fyrsti"

  landnámsmaður murkað úr þeim líftóruna

  seinna meir, með sínu liðiUndecided.

  Svo eru þeir bara að svamla um í Landeyjahöfn

  tólf hundruð árum seinna, og skapa Herjólfi, eðalferju,

  tjón, tjöru og ekkisens vandræðiAngry.

  SJÍSS.

  Ekki að furða, að Herjólfi gangi illa að komast inn í

  Landeyjahöfn!

  Hún er full af MANNABEINUMW00t!

  Andskotinn í grásúrri ostasósu!

  JARÐA þrælmeninn hið SNARASTA!

  Kalla til "allsherjargoðann" og fá hann til að

  rusla lýð þessum í "heiðinn haug", svo Herjólfur

  fái silgt í friði og andaktugri spekt inn í sína

  LandeyjahöfnDevil.

  Svo eru menn að kenna Eyjafjallajökli með sína smá

  gosspýju um að spilla siglingu inn í Landeyjahöfn.

  Og "smáfljótinu" Markarfljóti  með eitthvert tutl af sandiW00t.

  Ja svei!

  Fúlir "Hjörleifsmyrðandi" þrælar eiga hér greinilega alla sök,

  og til vansa að Herjólfur skuli hafa þurft að sigla

  í "þrælslegu beinahröngli" mánuðum samanBandit.

  Hefði strax verið mun skárra, ef þarna hefðu verið

  eðal "víkingabein" á ferð nú eða beinahröngl af pöpumToungeHalo.

  Hehehehe.....Fyrsti apríl er ágætis dagurGrin.

  Góðar stundir.

 


mbl.is Fornleifar í Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ekki flókið, eða hvað?

  539wSamkvæmt hinni helgu bók

  Sádanna, Kóraninum, þá eru

  konur þeirra frekar ómerkilegur pappír.

  Ekki gott að treysta á minni kvenna eða sannsögli....

  fyrir utan að þær eru allar í "prívat" eigu karla sinna.

  Auðvitað "eiga" flestir velmegandi karlkyns Sádar

  í það minnsta fjórar konur.

  Svo þegar kemur að "lýðræðislegum" sveitastjórnarkosningum

  í henni Sádi-Arabíu er ekki snjallræði að hinir "mark-á-takandi-

  minnugu-sannsöglu" karlmenn smelli einum "fimm" krossum fyrir

  framan val sitt, á atkvæðaseðlinum og málið er DAUTTDevil.

  Konurnar sleppa þá alveg við reyna að gera upp hug sinn,

  um það hvern af "mark-á-takandi-minnuga-sannsögula"

  frambjóðanda þær treysta best, geta setið í ró og næði

  heima yfir börnum og eldamennsku...ef þær rekur þá nokkuð

  minni til að eiga börn og að þurfa að gefa þeim og bónda að borða.

  Og ef í hart fer, ljúga þær bara og segjast ekki hafa haft tíma

  í að elda kjúllann ofan í karl sinn og barnaskarann, því þær hafi verið

  svo uppteknar að sauma ný dúkkuföt á Barbie og KenTounge.

  Hinir eðal "mark-á-takandi" karlar kjósa síðan sína

  "sannsöglu-minnugu" frambjóðendur,

  gleðjast í hjarta sínu að Allah hafi gefið þeim

  "lýðræðislegar kosningar" af sinni miklu náð.....en

  ljóta helvítið að sá "náðugi" skyldi klikka svona

  illilega á konum þeirra, þegar hann valdi þær handa þeimDevil.

  Hehehehehe...stóðst ekki mátið, húsfreyja.

  Makalaus ekkisens fornöld í gangi þarna í Sádí.

  Góðar stundir, og njótið kvöldsins.


mbl.is Konur fá ekki að bjóða sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farin!

  funny-dogsAsskoti er að heyr'etta.

  Atli og Lilja búin að flokka sig burt

  úr flokknumW00t.

  Flokklaus, óflokksbundin og á mergjuðum flokksflótta.Pinch

  Flokkurinn þeirra góði gengin á svig við öll fyrri markmið,

  orðin "Samfylkingeraður"Whistling.

  Jaso.

  Hvað er atarna?

  --RÆKNI

  Þetta er ekki þjóðrækni

  og þaðan af síður guðrækni

  heldur íslensk heiftrækni

  og helvítis bölvuð langrækni.

                                                          Káinn.

 

  VESEN!

  Vinstri grænt vesen.

  Jæja, stjórnin stendur...höllum fæti, en stendur.

  En auðvitað er eftir að kjósa um helvísku

  kerlingarfáluna hana "Ísbjörgu"Angry.

  Syndagjöldin

  Hlaðin sorgum heldur öld

  heim; þess margur geldur,

  er þeir borga ekki í kvöld

  og ekki á morgun heldur.

                                                     Káinn.

  Svo enn getur allt farið fjandans til, stjórnarfarslega.....

  ef það er ekki farið þangað nú þegarWhistling.

  Ef að horft er, allir sjá

  -eins og í varga hreysi

  þar er skortur öllu á

  öðru en bjargarleysi.

                                               Káinn.

  Jamm, ekki er það gæfulegt, en sjálfsagt að

  hver maður fylgi sinni sannfæringu.

  Lífsins skóli getur verið þungbær, og ekkert grín

  að fylgja bévítans "pólitíkinni" innan flokka

  frá A til Ö í kreppu og harðæri.....enda er það

  ljóta ekkisens tíkin....slagar hátt upp í fáluna hana

  "Ísbjörgu"Angry.

  En maður kemur í manns stað, og enginn er ómissandi,

  svo fari Lilja og Atli vel og gangi þeim allt í hag.

  Verst að húsfreyja er að hafa áhyggjur af blessuðum

  öðlingnum honum "Jóni Sigurðssyni", sem líklega verður

  ærður af tunnuslætti og djöfulgangi þarna niðri á

  AusturvelliErrm.

  Hann getur ekki einu sinni "mótmælt" djöfulgangi þessum

  og látum þar sem hann stendur á stalli sínum, þögull sem gröfinCrying.

  Þetta er dauðans sorgleg sjón,

  sjón og heyrn er farin;

  helvíti er að horfa á Jón!

  Hefur hann verið barinn?

                                                      Káinn.

  Sjálf er húsfreyja ágætlega bjartsýn á lífið

  og tilveruna, þrátt fyrir launalækkun og niðurskurð.

  Henni er það bara eðlislægtWink.

  Ég trúi því stöðugt, að tíðin sé góð

  og tímarnir hagstæðir núna.

  Suður í Kansas er fádæma flóð

  í Florida steikjandi helvítis-glóð,

  en taktu ekki frá mér trúna.

                                                           Káinn.

  Hitt er annar handleggur að húsfreyja er lítt hrifin

  af bankastjórum frónverskum og ofurlaunum

  þeirra, og finnst fjandi hart að þetta skuli viðgangast

  í kreppu og niðurskurðiGetLost.

  Góður, betri, bestur

  burtu voru reknir;

  illur, verri, verstur

  voru aftur teknir.

                              Káinn.

  Og sjálfsæðismenn sem fleiri pólitíkusar ötulir við

  að verja "ofurlaunin" og rífa kjaft í fjölmiðlum.Angry

  Þú ert sveitar svívirðing,

  sótugi eldhús-raftur.

  Aftan og framan, allt í kring

  ekkert nema - kjaftur.

                                       Káinn.

  Jamm, það er ýmislegt á seiði í þjóðfélagi voru

  uppi á litla Fróni, og ekki allt réttlátt eða gott.

  Húsfreyja hefur t.d ekki fengið launahækkun

  "vegna álags" líkt og dómarar fengu á dögunumShocking.

  Situr uppi með háþrýsting af stresssi og álagi,

  astmaskít og vöðvabólgu af sífelldu lyfjaryki,

  harðahlaupum, lyftum og aukinni ábyrgðErrm.

  Fær enga yfirvinnu greidda lengur, verður að

  taka út í fríi.....þegar stofnuninni hentar,

   en þraukar samt , húsfreyja.

  Jamm.

  En að lokum ein ágæt speki um lækna:

  Læknar eru svo heppnir,

  að sólin skín á lækningar þeirra,

  en mistökin eru grafin þrjár álnir í jörð.Tounge

                                                                             Sókrates.

  Og eitt smáskot til karlanna, sem ætíð virðast "rétthærri" en við konurnar:

  Því meira sem ég kynnist karlmönnum,

  því betur fellur mér við hundana.Devil

                                                   Madame de Sévigné.

  En góðar stundir öll sem eitt og kíkið á Káinn við tækifæri,

  margt hjá honum tær snilld.


mbl.is Segja sig úr þingflokki VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauðans matur...

hippo-funny-animals  ...húsfreyja, samkvæmt fréttinni sem hún las

  á Vísir rétt í þessu:

  "Þeir skapstyggu lifa lengur en glaðlyndir"Shocking.

  Andskotinn í grárri og súrri mysuAngry.

  Tarna var ljótt að heyra.

  Þeir hinir skörpu og knáu vísindamenn hins

  friðelskandi Obama Bandaríkjanna, hafa verið að

  gaufa við það í hartnær 90 ár að fylgjast með

  fimmtán hundruð einstaklingum, frá barndómi og

  fram á efri ár.

  Þeir súru og fúlu hafa vinningin!

  "Það lifir lengst sem lýðnum er leiðast" Pinch,

  sagði amma húsfreyju oft, og sagðist verða afgömul...

  og stóð við það og kvaddi 93 ára gömul þetta jarðlífHalo.

  Var reyndar skapstygg mín kæra amma, svo orð fór af,

  afspyrnu vinnusöm og vandvirk og lét ekki af störfum fyrr en

  kringum áttrætt.

  Svo hún virðist alveg smellpassa inn í rannsókn þessa.

  En ef rétt er, þýðir þetta auðvitað bara eitt.

  Húsfreyja er dauðans maturW00t.

  Verður að fara drífa sig hið snarasta að rita

  ERFÐASKRÁ, velja sér eðalflotta líkkistu,

  líkklæði og velja sálmana......ææææ... sálmarPinch.

  Húsfreyja getur talið á fingrum annar handar þá

  sálma sem henni finnast fallegirSleeping, og telur að

  ekki sé vinsælt að fólk sé jarðað undir jólasálmasöngiTounge.

  Ætli það myndi ekki duga að spila QUEEN-disk í botni,

  slatta af góðum Bubbalögum með dassi af þjóðhátíðarlögum

  VestmannaeyingaCool?

  "LÍFIÐ ER YNDISLEGT......"...nei, kannski ekkiDevil.

  Nú og svo verður húsfreyja að kanna fjárhagsstöðuna, til að sjá

  hvort hún hafi yfir höfuð "EFNI Á" að drepast

  fyrir aldur fram af einskærri gleði og gassagangiShocking.

  Kostar víst orðið milljón að hola manni niður

  í þokkalegt stæði í kirkjugarði, steindauðumAngry.

  Og allt í helvískum blankheitum og kreppukjaftæðiPinch.

  Í versta falli verður húsfreyja að hætta við að

  gefa upp öndina í miðju gleðikasti, gerast

  "gallsúrt meinhorn, fúllynd, vinnusöm og  hrikalega ergileg"GetLost.

  Já, og fresta starfslokum út í hið óendanlega.

  "ÞIÐ GETIÐ STUNGIÐ ÞESSUM DJÖ.... ELLILÍFEYRIR ÞANGAÐ

  SEM LJÓSIÐ ALDREI SKÍN"Angry!

  Verða elsta og arfafúlasta hjúkka í starfi sem sögur fara af.

  Hehehehe.....húsfreyja stóðst ekki mátið

  að grínast svolítið með frétt þessa.

  En hennar trú og mottó er og verður þrátt fyrir merkilegu

  rannsókn þessa:

  HLÁTURINN LENGIR LÍFIÐGrinWink.

  Góðar stundir og takið nú lífinu létt,

  þið lifið það hvort eð er ekki afDevil.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband