HERINN!

funny-pictures-kitten-watches-over-soldier  Sá íslenski?

  Jaso.

  Það hlýtur þá að vera "ósýnilegi" herinn

  okkar hér uppi á litla Fróni,

  sem reykir allar "ósýnilegu" sígaretturnar

  sem Spaugstofan fjallaði um af snilld síðasta

  laugardagskvöldDevil.

  Já, og nýtur svona myljandi góðs trausts í ofanálagWhistling.

  En kemur sosum ekki á óvart, að menn af erlendu bergi

  brotnir hinum megin Atlandsála telji hér vera her.

  Hér hafa verið búsettir mergjaðir "hryðjuverkamenn",

  samkvæmt vísum, breskum mönnum, árum saman,

  eða allt frá því að "Ísbjörg gamla" fékk banvænt slag,

  steindó og gekk aftur með voveiflegum hættiPinch.

  Og þó að "vopn" okkar frónverskra teljist ekki beysin,

  mest bitlausir búrhnífar, skæri, ryðgaðir rjúpnabyssuhólkar og heykvíslar,

  þá eigum við altént megaflotta tunnuræfla og

  hrikalega flott barefli sem skapa skemmtilegan samhljóm

  við "undursamlegar" ræður þingmanna á Alþingi voru.

  Sprengjuhvellir, hvað?

  En gaman hefði húsfreyja að því,  að fá að líta eins og eitt

  "herkvaðningarbréf" augum fyrir ósýnilegan her þennan,

  svona bara til að vita hver eða hverjir komu honum á fót

  af okkar frónversku snillumCool.

  En auðvitað hafa öll slík bréf  verið "ósýnileg"....Tounge

  Hehehe, skondin frétt atarna, og grunar húsfreyju að

  eitthvað sé hún orðum aukin.

  Góðar stundir og góða helgi.


mbl.is 26% treysta íslenska hernum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband