Piff, paff og búið.

maelstrompirates 

  Og húsfreyja missti af öllu samanW00t.

  TýpísktPinch!

  Svaf stóratburð aldarinnar af sér, húsfreyjaSleeping!

  Múgur og margmenni, fylgjendur

  hins heittrúaða Harolds Camping

  sjálfsagt "gufað upp", um sexleytið í morgunWhistling.

  Hrifnir á brott upp til himna þarna úti í henni Ameríku.

  Eitthvert stórfelldasta "mannshvarfamál" EVER,

  komið inn á borð lögæslumanna þar meðTounge.

  Að vísu virðist herra Harold Camping ekki hafa verið

  brotthrifinn í morgun,

  en sjálfsagt fær að hann að vera eftir í 3-4 daga

  til að taka á móti Jesú Kristi, skreppa með honum

  í nokkrar skoðunarferðir, verslanir og á nokkra golfvelliLoL.

  Þarf auðvitað að ná áttum sá helgi frá Nasaret, eftir tvö

  þúsund ára dvöl í himneskum sölum föðurins, og

  þá er ekki verra að hafa öðling eins og herra Camping

  sér við hliðHalo.

  Herra Camping sjálfsagt með langa lista yfir eiturharða

  trúleysingja, sem munu hrökkva upp af jafnt og þétt

  fram til 21. okt....?

  (Merkilegt húsfreyja man ekki eftir að hafa séð ártal hérna.)

  En altént móðir jörð skal hreinsast af "óværu" þessari,

  er mannkyn kallast fyrir 21. okt eitthvert ágætt árið, gott ef það

  er bara ekki á þessu ári 2011Errm.

  Jamm, og húsfreyja missir af öllu strax í byrjunPinch.

  Sefur af sér upphafið á sjálfum HEIMSENDA, og er ekki

  einu sinni farin að pæla í hentugum "dánardegi" eða "dauðastund".

  Jæja, en hefur fram til 20. okt til að pæla í þessu.

  Væri líklega skást að hrökkva upp af svona 10-12 dögum

  fyrir "lokaútkall". 

  Þá búið að hola manni niður sómasamlega,

  með erfisdrykkju og alles,

  en reikningurinn fyrir öll herlegheitin enn ógreiddur, þá

  tuttugasti og fyrsti okt.  lítur dagsins ljós í hinsta sinnDevil.

  Já, það þarf að ýmsu að hyggja, sé maður svo ólukkulegur

  í sinni, að vera ekki fylgjandi herra Campings.

  Mergjaður trúleysingi þar með, og missir af "brotthrifnuninni",

  himnaríki og eilífri sanntrúaðri sælu.Errm

  Sitjum uppi með Jesú frá Nasaret verulega "pissed off" sjálfsagt,

  eftir síðustu meðferð, og "pottþétt okkar eigin andlát" einhvern daginn

  fram til 21. októberCrying.

  Jaso, tarna var ljóta.

  Og hver verður þá áfangastaður oss armra trúleysingja,

  fyrst himnarnir verða yfirfullir af sönnum trúendum herra Campings?

  Húsfreyja ætti máske að bjalla í herra Camping og spyrja

  örlítið nánar út í það, og svo auðvitað ræða "ártalið" á þessum

  21. okt.Tounge?

  Nah, ekki vert að vera trufla herra Camping á ferðum sínum

  um víðfeðm ríki Bandaríkjanna með þeim helga frá NasaretHalo.

  Húsfreyja á þá vissu, að hún eigi rými í  kærleiksríku "Sumarlandinu"

  þá hún kveður þessa jörð, sem og flestir hennar samferðamenn

  í þessu jarðlífi, og er ekkert á því að hún hefði fílað

  að vera "hrifin brott" á þessum líka óguðlega tíma klukkan sex

  í morgunPinch.

  En væri alveg til í að spjalla við Nasaretann í góðu tómiJoyful....., og þó

  hún hafi skrifað annað hér áðan í gríni, þá er hún þess fullviss að

  sá góði maður er langt frá því að vera "pissed off"Cool!

  Fyrigefning og kærleikur eru nú einu sinni hans einkunnarorðInLove.

  En, merkileg starfsgrein þetta, að vera HEIMSENDASPÁMAÐUR.

  Húsfreyja hefði haldið, að starf sem býður upp á svona

  "neikvæða" útkomu fyrir "stóran hóp" af fólki, yrði óvinsælt með

  afbrigðumWhistling.

  En, nei.  Alltaf einhverjir að dúkka upp sem taka að sér

  "þessa líku fínu" heimsendaspádómanaW00t.

  KLIKKA ALLIR!Devil

  HVER OG EINN EINASTI!

  Hvað með 2012 aztekana, spyr þá kannski einhver.

  Jú, húsfreyja telur afskaplega einfalda skýringu á því almannaksmáli.

  Blessaður almannaksritarinn og helsti framtíðarspámaður aztaka hinna fornu

  "DÓ"  þegar hann var komin svo langt í vinnu sinniHalo.

  Hafði láðst að þjálfa eftirmann sinn, þar sem menn með hans

  spáhæfileika voru af skornum skammti, þá sem nú.

  Skýring húsfreyju, þurfið ekki að vera sammála henniWink.

  En lúmskt gaman að þessu, og húsfreyja óskar herra Camping

  alls hins besta um öll ókomin ár....eða altént fram til 21. oktGrinWhistling.

  Góðar stundir á "fyrsta í heimsenda"Tounge.


mbl.is Heimsendapartý haldin víða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúlega ljótasta...

  pope_john_paul_ii... dýrðlingastytta sem húsfreyja

  hefur augum barið.

  Vesalings steindauði Jóhannes Páll páfiErrm.

  Stytta þessir minnir húsfreyju einna helst á

  fyrrum einræðisherra Ítalíu, Mussolíni....nýkrufinnSick.

  Æ, æ, ekki nóg að blessaður Jóhannes Páll II hafi verið

  skikkaður í dýrðlingahlutverkið og orðinn

  dýrðlegur eigandi að HELGU blóðglundri í flöskum í

  miðjum Páfagarði, heldur verður nú hinn elskulegi

  Jóhannes Páll að hanga í styttulíki á öðruhverju götuhorni

  og hverri einustu katólsku kirkju í hinu mikla veldi ítalaPinch.

  Og séu allar hinar styttur hans líkar þeirri sem var afhjúpuð

  fyrir framan eina helstu lestarstöðvar Rómar, er næsta víst

  að menn fari að ganga af trúnni þarna austur í RómW00t.

  Lágmark að "Hinn nýdýrðlegi" þekkist á styttum þessum,

  og minni ekki á líkkistur og krufningar hvað líkamann varðarAngry.

  Eða það hefði húsfreyja haldið.

  En hún telst víst seint katólsk í sinni trú, svo máske ekki alveg

  að marka hennar álit.

  En fögur er stytta Jóhannesar Páls II eigi að hennar mati,

  og ættu hinir heittrúuðu katólsku ítalir að koma

  stytturæskni þessu fyrir í hasti á afviknum og dimmum stað,

  svo lestarferðir leggist ei af frá lestarstöð þeirri

  sem um getur í fréttinniDevil.

  Svo geta ítalskir styttuunnendur katólskra dýrðlinga  brugðið

  sér í eina herlega reisu til litla Fróns, og skellt sér

  inn í St. Jósefskirkju og skoðað allar fallegu dýrðlingastytturnar þar.

  Það eru sko ALVÖRU dýrðlingastytturWink.

  Næsta víst að hinir ítölsku munu falla í stafi og

  fái dýrðlegan innblástur mikinn,

  og næsta stytta af heilögum Jóhannesi Páli II

  við ítalska lestarstöð verði þar með íðilfögur,

  honum lík og full af helgri andaktHalo.

  Góðar stundir og njótið "gluggaveðursins".

 

  P.S  Húsfreyja hefur alltaf verið hrifin af þessari mynd af

  Jóhannesi Páli páfa, því lengi vel hélt hún að hann væri

  með dökkan eyrnalokk í öðru eyranum á henni.Tounge


mbl.is Ekki hrifnir af styttu af páfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðir HÁRDAGAR...

  53604-bigthumbnail...þar með framundan í

  amerískri pólitíkDevil,

  fyrst Trump neitar framboði.

  Nema auðvitað að "hárgreiðsla" Trumps sé

  í bullandi tísku meðal forsetaframbjóðenda

  í henni AmeríkuPinch.

  Þá er bandarísk þjóð í djúpum skít, og næsta víst

  að alheimur liggi í flogakasti af hlátri, þá amerískir

  forsetaframbjóðendur mætast á skjánum

  þar vestra í kappræðumTounge.

  Gott ef frambjóðendur þeirra lenda ekki í hár saman,

  standa í tómum hártogunum og gerast

  gráir fyrir hærum langt fyrir aldur framLoL.

  Jamm, merkilegur maður, Donald Trump.

  Og hefur þokkalega gott sjálfsálit.

  Segist vera jafn vinsæll og Jesú frá Nasaret.

  Ekki amalegt það, en húsfreyja verður að viðurkenna

  að Donald Trump minnir hana lítt á þann heilaga frá

  Nasaret.

  Nei, þá var nú Jesú glæsilegri til höfuðsins, með eðal

  brúna og liðaða lokkaHalo.

  Satt að segja minnir herra Trump húsfreyju á annan

  fremur vandræðalega náunga og nafna hans.

  Nefnilega hinn matrósaklædda "Donald Duck"Devil.

  Góðar stundir á mánudegi,

  það er verið að grilla og kjúllinn er kominn

  á borðið í húsi húsfreyju. 

   Namm.


mbl.is Trump býður sig ekki fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

I'm coming home!!!

VinirSjonna-e1296145615383-570x320-460x280  SKO!

  Mörðu það á síðustu metrunum eins og Jóhanna!

  Og Sjonnavinir aldeilis EKKI á leiðinni heim strax!

  Húsfreyja óskar íslenska Evróvisjón hópnum til hamingju!

  Vel af sér vikið!

  Húsfreyja reyndist SANNSPÁDevil.  (Sjá færslu fyrir neðanWhistling)

  Góðar stundir.


mbl.is Ísland komst áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haba haba-kvöldið mikla.

  393538Tengdapabbi kominn með glundur í glas.

  Tengdamamma er skreytt íslenskum fánaTounge.

  Tíu ára djásnið sest við eldhúsborðið

  þess albúin að skrifa niður stig þau

  sem hún vill gefa lögunumJoyful.

  Bóndi búinn að ná í bjórdós og ygglir sig yfir Haba haba

  norsarannaWink.

  Húsfreyja sest við kompjúterinn.

  Hún telur að litla vinalega lagið hans Sjonna

  verði ekki hátt skrifað í kvöldErrm.

  Kannski mer það upp úr forkeppni.... og við finnum "ástríðuna"

  í albönskum stíl um leið og tíu ára djásnið hrópar fagnandi:

  "Mamma, SNAKK"LoL!

  Evróvisjón í algleymingi, þó húsfreyja fíli ekki

  ástríðufulla albani...tarna var leiðindalagið þó

  söngkonan væri ekki sem verst.

  Kötturinn tjúllast um leið og armenir byrja að raula

  sitt búm búm stjakka stjakka.....stekkur hringinn upp á

  vegg inn í stofu...æj...æj...æj skyldi þó aldrei vera komin

  með starrafló aftur, læðurófanGetLost?

  Húsfreyja ætlar að taka tyrki sér til fyrirmyndar og "live it up".

  ("Of rokkað" segir 10 ára djásnið og gefur tyrkjum "0" stigPinch.)

  Ætlar húsfreyja í sólpallsblómaleiðangur á föstudag, stunda innhverfa

  íhugun með indverskum orkusteinum, drekka eðal

  frónversk "urta-te" og spá sjálfri sér FULLKOMINNI HEILSUJoyful!

  Og er aldeilis ekki búin að SPÁ!

  Þetta verður frábært vor og sumar!

  Allt mun ganga upp!

  Allir góðir draumar munu rætast!

  Húsfreyja finnur þetta á sér...fær hlýja strauma um sig alla,

  bara við tilhugsuninaGrin.

  Er að verða dúndrandi fín spákona, húsfreyjaDevil!

  Eina er, að húsfreyja hefur sosum ekki myndað sér neina

  sérstaka skoðun á  Vinum Sjonna í Euro-keppninni.....Shocking

  Haldiði þá að við sitjum HEIMA í aðalkeppninniErrm?

  Æææææ!

  Húsfreyja spáir hér með Vinum Sjonna myljandi GLEÐI

  VELGENGNI og LUKKU í keppninni...ekki seinna vænnaHaloLoL.

  (BOY, eru serbarnir að pissa upp á bak...Pinch)

  En rússarnir eru bísna góði dansarar...aðalsöngvarinn

  eitthvað raddlítill...en flottur dans!

  Sviss er of "raularalegt" segir djásnið...eitt stigW00t.

  Og georgíumenn LEIÐINLEGIR...0 stig!

  Harður dómari sú stuttaWhistling.

  Gaman að þessu, fer að líða að voru frónverska framlagi.

  Góðar stundir á Evróvisjón-kvöldi...og ekkert kjaftæði,

  húsfreyja veit að það eru ALLIR að fylgjast með...heheheDevil.


mbl.is Evróvisjón-keppnin hafin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norskt ríkidæmi eða arga fátækt?

  Royal+family+Norway"Því fátækari og því minna sem fólk á,

  helst ekki bót fyrir rassgatið á sér,

  því betur líður því andlega og félagslega"!

  Vinkonu húsfreyju í Noregi var mikið niðri fyrir.

  "Alla vega virðist mér norska þjóðarsálin sigla

  hraðbyri í átt til brjálæðis mitt í öllum þessum

  olíugróða sínum.  Hér eiga allir skít nóg af

  peningum, en eru þeir hamingjusamirW00t?

  NEI!

  Kunna þeir að vinna skynsamlega úr sínum málum?

  NEI"!

  Vinkona húsfreyju, íslensk og læknir að mennt, var á innsoginu.

  Hefur búið síðustu 25 árin í Noregi og vegna starfs

  síns kemur hún víða við og þekkir marga.

  Hafði vinkona komið í sumarvinnu upp á litla Frón fyrir rúmu ári síðan,

  hafðið unnið í 3 mánuði, og séð hvernig íslenska

  þjóðin var að reyna að tækla sín mál.

  Bar svo saman þegar heim til Noregs kom.

  Norsararnir skítféllu í þeim samanburðiPinch.

  "Hér til dæmis skilja varla hjón lengur án

  nálgunarbanns, þriggja lögfræðinga, dauðra katta, ofbeldis

  skemmdra húseigna og skelfingu lostinna barna viðkomandi."Errm

  Vinkona var komin í ham.

  "Nú fer ég alvarlega að huga að því að koma mér heim aftur.

  Það er ekki búandi í þessu helvíti, þar sem hver höndin

  er upp á móti annarri.  Og fólk með massív fortíðavandamál

  veður uppi með óunna fortíð, og beitir börnum sínum

  fyrir sig á sérlega grimmdarlegan máta"

  Vinkonu var mikið niðri fyrir, " og svo er sífelldur SPARNAÐUR

  og NIÐURSKURÐUR í gangi í heilbrigðiskerfi einnar ríkustu

  þjóðar heims, og fólk jafnvel í vandræðum með að fá

  þá hjálp sem það þarfnastAngry.

  HVAÐ ER ÞAÐ"?

  Húsfreyja gat lítil svör gefið vinkonu sinni í símann,

  enda þekkir hún lítt til norsks þjóðfélags og uppbyggingu þess,

  og veit þar af síður hvað þeir gera við olíugróðann sinnShocking.

  En vinkona var rasandi á gangi mála Noregsmegin,

  enda gæðin ein að upplagi, vinnusöm, glaðlynd og skapandi í hugsun.

  Húsfreyja leyfði vinkonu sinni að tala sem mest,

  enda lá margt þungt á henni, búandi í miðju veldi

  norska kóngsins, með "brjálsemi" í kringum sig flesta

  daga, eins og hún orðaði þaðGetLost.

  "Ég les ekki krimma eða spennusögur lengur, nóg fyrir mig

  að lesa sannar "lífsreynslusögur" í norskum tímaritum,

  þau ekkert nema kærumál, krimmamál og dómsmál"Bandit!

  Vinkona dró djúpt andann.

  "Ég er búin að sjá, að það fólk sem á lítið sem ekki neitt

  af peningum hérna, heldur fullum sönsum,

  ber virðingu fyrir sjálfu sér og öðrum og

  verndar börn sín í lengstu lög.

  HINIR með nóg af peningum, gefa skít í allt og alla,

  jafnvel börnin sín".

  Vinkona hryllti sig í símann, enda barngóð og móðir sjálf.

  Húsfreyju fundust þetta slæmar fréttir af norskum

  "frændum" sínum og "frænkum", og fann til með

  vinkonu að vera á bólakafi í vondum málum fólksins

  í kringum sig.

   Og nú rúmum tveimur sólarhringum frá upphringingu

  vinkonu, kemur frétt þessi um að fimmta hver kona

  í norska hernum verði fyrir kynferðislegri áreitni.

  Tilviljun?

  Húsfreyja veit ekki.

  En vinkona hafði beðið húsfreyju að skella

  pistli inn á bloggið sitt um málið, og hér er hann kominn.

  Kemur upp í huga húsfreyju gamall málsháttur:

  Margur verður af aurum api.

 Svo mörg voru þau orð.

  Vonandi að norsarar tapi sér ekki alveg í olíuauðlegðinni,

  og temji sér virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.

  En afmæli framundan hjá húsfreyju og fjölskyldu.

  Ísakurinn sex ára, tíu ára djásnið ætlar að

  föndra afmæliskort.

  Húsfreyja ætlar í olíubað og svo út á sinn herlega

  sólpall í 20 stiga hitann Cool svolitla stund.

  Góðar stundir á sumarhlýjum maídegi.


mbl.is Fimmta hver kona áreitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steinhætt að snýta sér....

b1b0bda37e3b28c3_sick  ,húsfreyjaW00t!

  Þó úr nefi renni í stríðum straumi

  á köldum vetrardögum,

  FÆR ÞAÐ BARA AÐ RENNAPinch!

  Stórhættulegur andskoti, samkvæmt

  hollenskum vísindasnillum þessum.

  AÐ SNÝTA SÉR!

  Býður upp á HEILABLÓÐFALLFrown!

  Og stunda kynlíf og drekka kaffi

  eru vísast til bullandi áhættuþættir einnigCrying.

  Svo að súpa á kaffibolla í miðju "dodoi" með elskunni sinni,

  og snýta sér í leiðinni......gleymið því, gætuð gott eins tekið inn eiturPinch!

  DAUÐANS MATUR!, segja hinir snjöllu frá HollandiGetLost.

  (Og elskan yrði aldeilis ekki hress

  með svoleiðis gutl og gauf í miðju "dodoi" heldurDevil)

  Þetta líst húsfreyju ekkert á, og er miður sínErrm!

  Kynlíf viðheldur jú mannkyni, svo ekki sér hún fram á að

  okkur gangi að láta af slíku athæfiWhistling.

  Kaffidrykkju getur hún heldur ekki hugsað sér, að mannkyn

  geti gefið upp á bátinn.

  Án morgunkaffis síns, er húsfreyja hismið eitt frá því

  klukkan 07:30 til 12:00Sleeping, en líkamsklukka hennar

  hringir að öllu jafna RÆS á hádegi!

  Húsfreyja er ekta B-persóna, líkamsklukka hennar

  stillt á SVEFN frá 01:00 eftir miðnætti til 12:00 á hádegi.

  RÆS!  FRAMKVÆMA! og STUÐ! eru svo 3 stillingar hennar

  á líkamsklukkunni frá hádegi til rúmlega eitt eftir miðnættiWink!

  Þetta þýðir aðeins eitt:  Tíminn frá 07:30 til 12:00 var bara

  búinn að vera eitt stórt hrikalegt VESEN fyrir húsfreyju,

  þá hún mætti á morgunvaktir fyrstu ár sín í starfi.....Crying

  eða þar til hún uppgötvaði

  dásamlegasta drykk allra tíma:  BLESSAÐ KAFFIÐJoyful.

  Svefndrukkin grámoskulega vofan í líki húsfreyju,

  sem rorraði meðvitundarlítil á stólunum í morgunrapportinu,

  gjörsamlega gufaði upp við fyrsta kaffibollannCool.

  DING!  VÖKNUÐ! Í VIÐBRAGSSTÖÐU!

  Húsfreyja dýrkar kaffi, og getur ekki hugsað sér að

  láta af kaffidrykkju, enda vinnur hún nú eingöngu morgunvaktir.

  Kynlífið er ekki til umræðu, svo eftir stendur að hætta

  öllum SNÝTUM, heilaæðum sínum til björgunar og góðrar heilsuShocking.

  Jamm.

  Það er von húsfreyju að, hollensku vísindasnillar þessir,

  taki það að sér næst, að finna LÆKNINGU við KVEFI hið

  snarasta.

  Annars er næsta víst að fólk fari í umvörpum að drepast úr HORTounge!

  Góðar stundir á vorlegum föstudegi.


mbl.is Kaffi, kynlíf og snýtur hættuleg heilsunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slökkt!

  4270506-set-of-six-funny-suns-in-vector-illustrationHúsfreyja rýndi út um

  regnvota bílrúðuna.

  Sólin var heillum horfin,

  hulin dimmgrárri skýjakólgu

  og engu líkara en sveitarfélagsmenn og

  konur Borgnesinga hefðu fundið

  "slökkvarann" á henni einnig,

  og SLÖKKTAngry.

  Húsfreyja var að koma að norðan

  frá Akureyri með bónda, 13 stiga hita og sólskini

  og blíðu, og var nú stödd í Norðurárdalnum.

  Þar var hin norðlenska veðurblíða minning einErrm:

    Sólin,

    sólin var hjá mér,

    eins og grannvaxin kona

    á gulum skóm.

                                 Steinn Steinarr- Tíminn og vatnið (brot).

  "Andskotinn í súrri mysu" Angryhúsfreyja

  gjóaði nærsýnum augum sínum til himins.

  GrárErrm.

  Horfði til beggja handa á landslagið.

  GráttGetLost.

  Fram á þjóðveginn.

  GrárPinch.

  "Tarna er ljótt að sjá" hugsaði húsfreyja örg.

  "Hvurn fjandann hafði orðið um sunnlenska vorið"W00t?

  Húsfreyja dæsti af óþolinmæði Frónbúans sem þolað hefur

  myrkan vetur, þraukað snjóuga daga og helvískan

  bálandi vind slag eftir slag með vetrarlægðum.

  "Helvískur rigningargrámi, bleyta og aur", húsfreyja

  fussaði og sveijaði í huganum.

   "Hann rignir enn, hérna megin heiðar" sagði hún mildilega

  við bónda, sem sat og stýrði bifreið þeirra lipurlega

  á milli vatnsfullra hjólfara á veginum.

  Bóndi jánkaði.

  Húsfreyju varð hugsað til nýafstaðinnar jarðarfarar

  ungrar náfrænku bónda á Akureyri.

  Ung kona um fertugt að kveðja í blóma lífsins.

  Kannski grétu himnarnir henni til heiðurs.

  Nefndi það við bónda.

  "Ég vissi ekki að hún hefði trúlofað sig svona ung,

  og hefði eignast sitt fyrsta barn 18 ára gömul", bóndi

  hugsandi.

  "Stundum er eins og fólk viti, að það eigi ekki langt

  líf fyrir höndum" svaraði húsfreyja.

  "Lífið sem við fáum að láni er stutt,

  en minningin um líf sem vel var varið,

  er eilíf".  Marcus Tullius Cicero (106-43 f. Krist)

  Frænka bónda hafði eignast þrjú börn, átti einn ömmustrák,

  lærði til kennara og starfaði sem slíkur árum saman.

  "Ekki mikið verið að sólunda tíma sínum, frænka þín"

  sagði húsfreyja.

  Bóndi var því hjartanlega sammála.

  "Tíminn er sá auður

  sem menn skyldu síst sóa".

                         Laertius Diogenes (þriðja öld)

 

  Húsfreyja skammaðist sín, fyrir að hafa bölvað

  regninu og grámanum, var allt gott og gilt í

  nátturunni og kemur nýgróðrinum til góða.

  Jamm, en skammast sín ekki neitt lengur í dag, húsfreyjaGetLost.

  Fékk nærri því slag, húsfreyja er hún leit

  út í morgun, er hún vaknaði

  SNJÓKOMA!

  Og það snjóaði bróðurpartinn af deginumW00t!

  Sólpallur húsfreyju er snjóaður í kafPinch.

  Sólin!?

  Ekkert bólað á henni, helvískri.

 

  -Hangir þarna gráum skýjum ofar og glottir,

  púar vindla frá Kúbu,

  snyrtir neglur sínar annars hugar;

  "Kannski ég skreppi seinni partinn í maí

  í smá vorkönnunraleiðangur, og láti ljós

  mitt skína yfir frónverskar mannsálir".

  Blæs á logarauðar neglur sínar, hallar sér

  aftur og leggur sig.

  Vekjaraklukkan er stillt á 20 maí-

 

  Húsfreyja er að flippa af óþolinmæði eftir

  sól og vori.

  Til hvers er að eiga herlegan sólpall, húsgögn og grill,

  ef ekkert er hægt að brúka slíkt fyrir

  argvítans snjó, bleytu og vosbúðErrm.

  Dugir ekki húsfreyu að eiga einn drukknandi túlipana

  í keri úti á sólpalli, sem hangir á grænum snjóskreyttum

  blöðum sínum á kerbarminum af einskærri þrjósku

  og lífslöngun.

  Vill SÓL, SUMARBLÓM, GRILL og langa bjarta, hlýja og þurra daga.

  En húsfreyja hefur alltaf verið kona með kröfur....Whistling

  En aldeilis brilliant hugmynd hjá Borgarbyggðarfólki að

  slökkva ljós yfir bjartasta tímann, ef þeirri "gulu" skyldi þóknast að

  láta sjá sig í sumarbyrjunDevil.

  Ættum að taka þau okkur til fyrirmyndar....nema auðvitað það

  snjói í allt sumarAngry.

  Góðar stundir, húsfreyja er farin út

  að renna sér á rassaþotu 10 ára djásnsinsDevil....í maí-byrjun!


mbl.is Spara lýsingu í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hehehe...misheppnaðir karlar í kálhausavanda!

  e34a3_funny-pictures-head-of-cabbage-catÞetta mætti túlka sem svo að hér á

  jörðu væri algjörlega "öfugsnúið" mannkyn.

  Eða bara hreinlega SAMKYNHNEIGT!

  Hommar allt saman!

  Allir sem einn!

  Allt fullt af körlum skotnum í "misheppnuðum" körlum,

  og flestir hinir misheppnuðu karlarnir hommar sömuleiðis!

  Skotnir í körlumLoL.

  Hehehe...kitlaði hláturtaugina húsfreyju, frétt þessiTounge.

  Sér hún fyrir sér heilu hersveitirnar af "mislukkuðum" körlum

  í "kálhausaræktinni" sitjandi dag og nótt á salerninu,

  símígandi, á meðan gæludýr allra heimila eru dauðans

  matur og "greftruð" í akkorði í dýrakirkjugörðum á 28 daga fresti

  þá "misheppnuðu" karlarnir á heimilinu eru á blæðingumDevil.

  Hehehehe...gaman að þessu.

  En það telur húsfreyja næsta víst,

  að heldur viti karlmenn meira um konur sínar í dag,

  en Albertus Magnus þessi....

  altént nóg til að þurfa ekki að DREPA þærDevilLoL.

  Góðar stundir og verði ykkur "sumarkálið" að góðuJoyful.


mbl.is Konur séu misheppnaðir karlar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blóðglundur í glasi...

snow-angels  ..aldeilis eitthvað, sem

  þörf er á að blessa, á

  þessum síðustu og verstu tímumPinch.

  Svo segir hans háæruverðugi heilagleiki,

  Benedikt, sá sextándi í RómHalo.

  Þar með gutlinu úr sáluðum páfa,

  elskulegum Jóhannesi Páli, komið

  fyrir meðal allra hauskúpanna af Jóhannesi

  skírara, krossaflísum þess frá Nasaret upp á

  nokkur tonn og ekki má gleyma  BLESSUÐUM nýfundnu

  "nöglunum" sem brúkaðir voru til að

  negla upp NasaretannTounge,

  sem einhver snjall kvikmyndagerðamaður

  datt oná í Ísrael nú á dögunum.

  HELGIR DÓMAR!

  HALLELÚJA!

  Hvorki meira né minna.

  Jamm, orðinn að "dýrðlingi" blessaður

  sálaði pólverjinn, sem gengdi störfum páfa

  á efri árum, ferðaðist grimmt um allar trissur,

  komst jafnvel í það að smella kossi á "malbikið"

  á flugbrautinni inn í henni Keflavík okkar FrónbúannaCool.

  Hefur sjálfsagt skilið eftir á malbiksbút þessum

  munnvatn sitt og svita sá dýrðlegi páfi,

  okkur Frónbúum til dýrðar og heillaHalo.

  Og svona líka rosalega "heilagir" líkamsvessar að

  leka niður á frónverskt malbik, að það hálfa væri nógW00t.

  Húsfreyju finnst nú kjörið tækifæri, að koma

  vel "páfakysstu malbiki" þessu í verð, og bjóða

  þeim sextánda að kaupa og koma fyrir í

  sölum sínum innan um aðra "helga dóma"Whistling.

  Ekki mikið mál að finna nákvæmlega,

  hvar "sá dýrðlegi" hné niður á kné sín á frónversku

  malbiki, hér um árið, (sjálfsagt sjálflýsandi míní-

  GEISLABAUGUR á sveimi fyrir ofan þann helga staðTounge)

  skella loftpressunni á blettinn  og mæla út,

  (10x10x10 t.d),  ná upp í heilu lagi og

  senda þeim sextánda í ábyrgðarpósti.

  Rukka heilagleikann hóflega fyrir "helga dóminn",

  200 þúsund kall á hvern centimetra eða svoWhistling.

  Myndi aldeilis sóma sér vel, grásvart frónverskt

  malbikið innan um morknaðar hauskúpur, blóðglundur í glösum og

  ryðgaða nagla þarna austur í RómLoL.

  Ekki spurning.

  En matur næst á heimili húsfreyju;

    Átti ég forðum áform glæst

    eina von sem ei gat ræst.

    En nú er sú mín hugsjón hæst

    hvenær verður étið næst.Devil

                         (Húsfreyja veit ekki höf.)

  Góðar og "helgar" stundir í Páskalok.


mbl.is Blóð úr páfa helgað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband