Haba haba-kvöldið mikla.

  393538Tengdapabbi kominn með glundur í glas.

  Tengdamamma er skreytt íslenskum fánaTounge.

  Tíu ára djásnið sest við eldhúsborðið

  þess albúin að skrifa niður stig þau

  sem hún vill gefa lögunumJoyful.

  Bóndi búinn að ná í bjórdós og ygglir sig yfir Haba haba

  norsarannaWink.

  Húsfreyja sest við kompjúterinn.

  Hún telur að litla vinalega lagið hans Sjonna

  verði ekki hátt skrifað í kvöldErrm.

  Kannski mer það upp úr forkeppni.... og við finnum "ástríðuna"

  í albönskum stíl um leið og tíu ára djásnið hrópar fagnandi:

  "Mamma, SNAKK"LoL!

  Evróvisjón í algleymingi, þó húsfreyja fíli ekki

  ástríðufulla albani...tarna var leiðindalagið þó

  söngkonan væri ekki sem verst.

  Kötturinn tjúllast um leið og armenir byrja að raula

  sitt búm búm stjakka stjakka.....stekkur hringinn upp á

  vegg inn í stofu...æj...æj...æj skyldi þó aldrei vera komin

  með starrafló aftur, læðurófanGetLost?

  Húsfreyja ætlar að taka tyrki sér til fyrirmyndar og "live it up".

  ("Of rokkað" segir 10 ára djásnið og gefur tyrkjum "0" stigPinch.)

  Ætlar húsfreyja í sólpallsblómaleiðangur á föstudag, stunda innhverfa

  íhugun með indverskum orkusteinum, drekka eðal

  frónversk "urta-te" og spá sjálfri sér FULLKOMINNI HEILSUJoyful!

  Og er aldeilis ekki búin að SPÁ!

  Þetta verður frábært vor og sumar!

  Allt mun ganga upp!

  Allir góðir draumar munu rætast!

  Húsfreyja finnur þetta á sér...fær hlýja strauma um sig alla,

  bara við tilhugsuninaGrin.

  Er að verða dúndrandi fín spákona, húsfreyjaDevil!

  Eina er, að húsfreyja hefur sosum ekki myndað sér neina

  sérstaka skoðun á  Vinum Sjonna í Euro-keppninni.....Shocking

  Haldiði þá að við sitjum HEIMA í aðalkeppninniErrm?

  Æææææ!

  Húsfreyja spáir hér með Vinum Sjonna myljandi GLEÐI

  VELGENGNI og LUKKU í keppninni...ekki seinna vænnaHaloLoL.

  (BOY, eru serbarnir að pissa upp á bak...Pinch)

  En rússarnir eru bísna góði dansarar...aðalsöngvarinn

  eitthvað raddlítill...en flottur dans!

  Sviss er of "raularalegt" segir djásnið...eitt stigW00t.

  Og georgíumenn LEIÐINLEGIR...0 stig!

  Harður dómari sú stuttaWhistling.

  Gaman að þessu, fer að líða að voru frónverska framlagi.

  Góðar stundir á Evróvisjón-kvöldi...og ekkert kjaftæði,

  húsfreyja veit að það eru ALLIR að fylgjast með...heheheDevil.


mbl.is Evróvisjón-keppnin hafin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband