Slökkt!

  4270506-set-of-six-funny-suns-in-vector-illustrationHúsfreyja rýndi út um

  regnvota bílrúðuna.

  Sólin var heillum horfin,

  hulin dimmgrárri skýjakólgu

  og engu líkara en sveitarfélagsmenn og

  konur Borgnesinga hefðu fundið

  "slökkvarann" á henni einnig,

  og SLÖKKTAngry.

  Húsfreyja var að koma að norðan

  frá Akureyri með bónda, 13 stiga hita og sólskini

  og blíðu, og var nú stödd í Norðurárdalnum.

  Þar var hin norðlenska veðurblíða minning einErrm:

    Sólin,

    sólin var hjá mér,

    eins og grannvaxin kona

    á gulum skóm.

                                 Steinn Steinarr- Tíminn og vatnið (brot).

  "Andskotinn í súrri mysu" Angryhúsfreyja

  gjóaði nærsýnum augum sínum til himins.

  GrárErrm.

  Horfði til beggja handa á landslagið.

  GráttGetLost.

  Fram á þjóðveginn.

  GrárPinch.

  "Tarna er ljótt að sjá" hugsaði húsfreyja örg.

  "Hvurn fjandann hafði orðið um sunnlenska vorið"W00t?

  Húsfreyja dæsti af óþolinmæði Frónbúans sem þolað hefur

  myrkan vetur, þraukað snjóuga daga og helvískan

  bálandi vind slag eftir slag með vetrarlægðum.

  "Helvískur rigningargrámi, bleyta og aur", húsfreyja

  fussaði og sveijaði í huganum.

   "Hann rignir enn, hérna megin heiðar" sagði hún mildilega

  við bónda, sem sat og stýrði bifreið þeirra lipurlega

  á milli vatnsfullra hjólfara á veginum.

  Bóndi jánkaði.

  Húsfreyju varð hugsað til nýafstaðinnar jarðarfarar

  ungrar náfrænku bónda á Akureyri.

  Ung kona um fertugt að kveðja í blóma lífsins.

  Kannski grétu himnarnir henni til heiðurs.

  Nefndi það við bónda.

  "Ég vissi ekki að hún hefði trúlofað sig svona ung,

  og hefði eignast sitt fyrsta barn 18 ára gömul", bóndi

  hugsandi.

  "Stundum er eins og fólk viti, að það eigi ekki langt

  líf fyrir höndum" svaraði húsfreyja.

  "Lífið sem við fáum að láni er stutt,

  en minningin um líf sem vel var varið,

  er eilíf".  Marcus Tullius Cicero (106-43 f. Krist)

  Frænka bónda hafði eignast þrjú börn, átti einn ömmustrák,

  lærði til kennara og starfaði sem slíkur árum saman.

  "Ekki mikið verið að sólunda tíma sínum, frænka þín"

  sagði húsfreyja.

  Bóndi var því hjartanlega sammála.

  "Tíminn er sá auður

  sem menn skyldu síst sóa".

                         Laertius Diogenes (þriðja öld)

 

  Húsfreyja skammaðist sín, fyrir að hafa bölvað

  regninu og grámanum, var allt gott og gilt í

  nátturunni og kemur nýgróðrinum til góða.

  Jamm, en skammast sín ekki neitt lengur í dag, húsfreyjaGetLost.

  Fékk nærri því slag, húsfreyja er hún leit

  út í morgun, er hún vaknaði

  SNJÓKOMA!

  Og það snjóaði bróðurpartinn af deginumW00t!

  Sólpallur húsfreyju er snjóaður í kafPinch.

  Sólin!?

  Ekkert bólað á henni, helvískri.

 

  -Hangir þarna gráum skýjum ofar og glottir,

  púar vindla frá Kúbu,

  snyrtir neglur sínar annars hugar;

  "Kannski ég skreppi seinni partinn í maí

  í smá vorkönnunraleiðangur, og láti ljós

  mitt skína yfir frónverskar mannsálir".

  Blæs á logarauðar neglur sínar, hallar sér

  aftur og leggur sig.

  Vekjaraklukkan er stillt á 20 maí-

 

  Húsfreyja er að flippa af óþolinmæði eftir

  sól og vori.

  Til hvers er að eiga herlegan sólpall, húsgögn og grill,

  ef ekkert er hægt að brúka slíkt fyrir

  argvítans snjó, bleytu og vosbúðErrm.

  Dugir ekki húsfreyu að eiga einn drukknandi túlipana

  í keri úti á sólpalli, sem hangir á grænum snjóskreyttum

  blöðum sínum á kerbarminum af einskærri þrjósku

  og lífslöngun.

  Vill SÓL, SUMARBLÓM, GRILL og langa bjarta, hlýja og þurra daga.

  En húsfreyja hefur alltaf verið kona með kröfur....Whistling

  En aldeilis brilliant hugmynd hjá Borgarbyggðarfólki að

  slökkva ljós yfir bjartasta tímann, ef þeirri "gulu" skyldi þóknast að

  láta sjá sig í sumarbyrjunDevil.

  Ættum að taka þau okkur til fyrirmyndar....nema auðvitað það

  snjói í allt sumarAngry.

  Góðar stundir, húsfreyja er farin út

  að renna sér á rassaþotu 10 ára djásnsinsDevil....í maí-byrjun!


mbl.is Spara lýsingu í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband