Steinhætt að snýta sér....

b1b0bda37e3b28c3_sick  ,húsfreyjaW00t!

  Þó úr nefi renni í stríðum straumi

  á köldum vetrardögum,

  FÆR ÞAÐ BARA AÐ RENNAPinch!

  Stórhættulegur andskoti, samkvæmt

  hollenskum vísindasnillum þessum.

  AÐ SNÝTA SÉR!

  Býður upp á HEILABLÓÐFALLFrown!

  Og stunda kynlíf og drekka kaffi

  eru vísast til bullandi áhættuþættir einnigCrying.

  Svo að súpa á kaffibolla í miðju "dodoi" með elskunni sinni,

  og snýta sér í leiðinni......gleymið því, gætuð gott eins tekið inn eiturPinch!

  DAUÐANS MATUR!, segja hinir snjöllu frá HollandiGetLost.

  (Og elskan yrði aldeilis ekki hress

  með svoleiðis gutl og gauf í miðju "dodoi" heldurDevil)

  Þetta líst húsfreyju ekkert á, og er miður sínErrm!

  Kynlíf viðheldur jú mannkyni, svo ekki sér hún fram á að

  okkur gangi að láta af slíku athæfiWhistling.

  Kaffidrykkju getur hún heldur ekki hugsað sér, að mannkyn

  geti gefið upp á bátinn.

  Án morgunkaffis síns, er húsfreyja hismið eitt frá því

  klukkan 07:30 til 12:00Sleeping, en líkamsklukka hennar

  hringir að öllu jafna RÆS á hádegi!

  Húsfreyja er ekta B-persóna, líkamsklukka hennar

  stillt á SVEFN frá 01:00 eftir miðnætti til 12:00 á hádegi.

  RÆS!  FRAMKVÆMA! og STUÐ! eru svo 3 stillingar hennar

  á líkamsklukkunni frá hádegi til rúmlega eitt eftir miðnættiWink!

  Þetta þýðir aðeins eitt:  Tíminn frá 07:30 til 12:00 var bara

  búinn að vera eitt stórt hrikalegt VESEN fyrir húsfreyju,

  þá hún mætti á morgunvaktir fyrstu ár sín í starfi.....Crying

  eða þar til hún uppgötvaði

  dásamlegasta drykk allra tíma:  BLESSAÐ KAFFIÐJoyful.

  Svefndrukkin grámoskulega vofan í líki húsfreyju,

  sem rorraði meðvitundarlítil á stólunum í morgunrapportinu,

  gjörsamlega gufaði upp við fyrsta kaffibollannCool.

  DING!  VÖKNUÐ! Í VIÐBRAGSSTÖÐU!

  Húsfreyja dýrkar kaffi, og getur ekki hugsað sér að

  láta af kaffidrykkju, enda vinnur hún nú eingöngu morgunvaktir.

  Kynlífið er ekki til umræðu, svo eftir stendur að hætta

  öllum SNÝTUM, heilaæðum sínum til björgunar og góðrar heilsuShocking.

  Jamm.

  Það er von húsfreyju að, hollensku vísindasnillar þessir,

  taki það að sér næst, að finna LÆKNINGU við KVEFI hið

  snarasta.

  Annars er næsta víst að fólk fari í umvörpum að drepast úr HORTounge!

  Góðar stundir á vorlegum föstudegi.


mbl.is Kaffi, kynlíf og snýtur hættuleg heilsunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mbl á þakkir skilið fyrir að birta þessa könnun. Nú fer lýðurinn kannski að hugsa sjálfstætt í stað þess að jarma eftir vilja vísindamanna og annarra "sérfræðinga", rétt eins og rollurnar fyrir austan sem jarma í takt við Islamska "fræðimenn" eða fíflin sem fylgja leiðtogum sértrúarsafnaða. Í hinum nýja heimi mun hin nýja hugsanalögregla aðeins taka á einni synd: þeirri að hugsa ekki sjálfstætt, sem verður ein af hinum 7 nýju syndum Nýja Heimsins. Þannig að farið að vakna sauðir og smell the coffee! Finnið ykkur skárra leiðarljós í lífinu en apa eftir "fræðingunum" ykkar og láta segja ykkur hvað á að gera eins og þrælar. Þrælarnir munu ekki lifa af. Svo...."ake it all with a grain of salt"

Anti Sheep (IP-tala skráð) 6.5.2011 kl. 19:14

2 identicon

Og YO!!! Icesave aular!!! Gjörðið svo vel að hundskast til að fara eftir þessum skilaboðum vísindamannanna! Þetta eru Hollendingar!!! Já, Hollendingar! Og sérfræðingur frá Reykjavík Suður sagði þér að hætta að drekka kaffi, stunda kynlíf og snýta þér þú þarna meðalgreindi mannapi! Svo er ekki best að hlýða því?! Síðan skulum við öll dansa sauðadansinn og klappa í takt! Heil sérfræðingar! Heil! Heil! Skipum oss í réttir og leiðumst í vort sláturhús!

Anti Sheep (IP-tala skráð) 6.5.2011 kl. 19:16

3 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Þakka þér þetta Anti Sheep, en ég hef ætíð lúmskt gaman að "vísindalegum" könnunum, þar sem bókstaflega ALLT er orðið lífshættulegt okkur mönnunum....en svo gleyma þeir "vísu" yfirleitt því óumflýjanlega:  VIÐ MUNUM ÖLL DEYJA....bara spurning hvenær!

Sigríður Sigurðardóttir, 7.5.2011 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband