Ljóta forneskjan...

3340934-say_cheese-Saudi_Arabia  ...þarna í henni Sádi.

  Fólk lúbarið sundur og saman.

  fyrir það eitt hittast, spjalla og

  færa hvort öðru gjafir, sé það af

  gagnstæðu  kyni og ekki blóðskyltW00t.

  Hvað ætli liggi á bak við svona

  furðuleg og forn lög?

  Að lögin boði að berja 75 ára konu,

  LÖNGU komna úr barnseign í

  spað, fyrir það eitt að spjalla

  við herramennina, er algalið svo

  ekki sé meira sagtPinch.

  Og ekki fá þeir blíðari meðferð, herrarnir!

  Eru karlar taldir "hættulegir" sér

  óskyldum konum....eða þá konurnar körlunum?

  Steypist fólkið ef til vill út í hroðalegum kýlum og sárum

  við það eitt að sitja "óskyld" og af gagnstæðu kyni

  yfir kaffibollaShocking?

  Eru Sádar þá máske svona "hörundssárir"....Whistling?

  Eða er óskyldum aðeins gefið "baneitrað"

  þríuppáhellt" kaffiDevil?

  Nú og svo eru víst Sádar heittrúaðir á tilvist

  helvítis...svo ef til vill trúa þeir því að

  karl og kona alls óskyld, takist að opna

  glufu á hlið helvítis, þá þau mætast og taka taliErrm?

  Hafi svona leynilegan, sameiginlegan "helvítislykil",

  sem aðeins óskyldt fólk af gagnstæðu kyni kann að nota?

  Ekki félegt að fá "þann í neðra" upp á yfirborðið

  þarna í Sádí, næga djöfla hafa þeir að draga samt!

  Má þar til dæmis nefna dúkkudjöfulinn hana Barbie, gæludýr

  flest öll og svo helvítis jógaðDevil.

  En allt hefur þetta farið fyrir brjóstið á heittrúuðum

  víða í austurlöndum nær.

  Enda það dót allt á snærum "þess í neðra" samkvæmt þeim

  "háheilögu, friðsömu og hjartagóðu" heittrúarmönnum.

  Jamm, óskapa forneskja er þetta í lögum Sáda.

  Og amma gamla svo brottræk úr landinu, lifi

  hún af 40 svipuhögg og 4 mánaða fangelsisvist.

  Merkilegt að valdamönnum Sáda skuli finnast

  þetta réttmæt og skynsamleg refsing á broti þessu...

  enn merkilegra að valdhafar þeirra skuli telja

  mannlegu samskipti þessi til alvarlegri lagabrotaShocking.

  Þyrftu eitthvað að fara að endurskoða sín

  ævagömlu lög úr Kóraninum...enda síðan á

  7 öld eftir Krist.

  Og máske sleppa "helvítistrúnni" úr trúarbrögðum

  sínum svona í leiðinni....Whistling.

  Góðar stundir.

 

 

 


mbl.is 75 ára kona fær 40 svipuhögg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Var ekki verið að sá fræjum þarna á Akranesi?

Er ekki kominn slatti af múslimum þangað, og von á fleirum.

J.þ.A (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 22:42

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Mér skilst að þetta séu einmitt "konur" og börn, sem leitað hafa hælis hér uppi á litla Fróni, sem komnar eru til Akraness.  Eru þær þá ekki mun betur settar hér, en í löndum þar sem 75 ára gamlar konur eru hýddar fyrir að bjóða í kaffi og spjall?

Sigríður Sigurðardóttir, 11.3.2009 kl. 16:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband