Frelsuð!

cow-wash-460_797811c  HALLELÚJA!!

  Húsfreyja er "frelsuð"Halo!

  Og það af "þvottavélinni" sinniWhistling.

  Lof sé AEG og Candy í þeirra miklu náðWink!

  Og frá hverju er húsfreyja frelsuð, af þeim

  góðu þvottavélum??

  Hefur ekki hugmynd!

  Enda hlýtur það að vera algert

  aukaatriði, ef húsfreyja er bara "frelsuð"!

  Skyldi Gunnar í Krossinum vita af þessu?

  Hann komin með myljandi samkeppni í

  "frelsunum" ....og máske kraftaverkum líkaPinch?

  Hallelúja!

  Eða er Gunnar í Krossinum kannski á bólakafi

  í "þvottavélabraski"?

  Er páfi þá alveg sáttur við þetta?

  Eru þvottavélafyritæki ef til vill á

  sérstökum PáfagarðsmálaW00t?

  Þvottavélar þá sjálfvirkar í því að

  gera allt þvottavatn sitt "háheilagt"

  og ilmandi hreinan þvottinn þar með "frelsandi"

  fyrir líkama og sál?

  Eru þvottavélar þá "arftakar" aflátsbréfanna

  hinna katólskuGetLost?

  Sem frelsuðu menn af oki syndanna fyrir

  offjár...nú eða slikk, allt eftir því hve syndin

  var stórDevil.

  Fóru þá "aflátsbréfasölumenn" beint í þvottavélabransann,

  þá þær voru uppfundnar?

  En því "frelsa" þvottavélarnar bara konur?

  Hvaða kynjamismunun er hér í gangi?

  Þvo ekki einnig karlar sína skítugu leppa?

  Varla eru þeir ennþá að skola úr óhreinum

  fötum sínum í höndunum...og það á 21. öld?

  Eru karlar beittir "kynjamisrétti" af þvottavélum

  þessa heimsW00t??

  Er þá allur þorri karla "ófrelsaður" og

  gangandi í haugdrullugum fatnaði í

  ofanálag?

  Jaso, húsfreyja vill óska konum öllum til

  hamingju með Alþjóðlegan baráttudag sinn

  í dag, en stingur því svona í leiðinni að öllum

  karlpeningi að fara nú að huga að Alþjóðlegum

  baráttudegi fyrir sig, og byrja á því að kippa

 þessu "þvottavélafrelsunarmáli" í lag hið snarastaDevil!

  Góðar "þvottastundir"!

 

 
mbl.is Þvottavélin frelsaði konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

þurfti bara að prófa :)

Er ekki búin að lesa

Solla Guðjóns, 13.3.2009 kl. 16:54

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Jaso, þetta bara svínvirkar allt saman, fiktið í mér.

Sigríður Sigurðardóttir, 13.3.2009 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband