Farðu varlega í að lesa...

mark_twain  .....heilsubótarbækur.

  Þú gætir dáið úr prentvillu.

 

  Segðu alltaf sannleikann. 

  Þá þarftu ekki að muna neitt.

 

  Gólf er góður göngutúr sem hefur

  farið til spillis.

 

  Ég held að Vor Himneski Faðir hafi

  fundið okkur upp vegna þess að hann

  varð fyrir vonbrigðum með apana.

 

  Hvað væru karlmenn án kvenna?

  Fáir, herra minn - rosalega fáir.

                                        Mark Twain (1835-1910)

  Húsfreyja var ekki gömul skotta, er hún

  komst í það að lesa Tom Sawyer og

  Stikilsberja-Finn eftir Twain.

  Voru bækur þessar í miklu uppáhaldi hjá henni

  fyrir góðan húmor og spennandi sögur.

  Líst henni ljómandi vel á að verið sé

  að gefa út áður óbirtar sögur og greinar

  eftir karl.

  Mun að sjálfsögðu tryggja sér eintak af

  riti þessu eftir Twain, þá það ber að

  Íslandsströndum.

  Ætlar hún nú að bregða sér eina herlega

  ferð í viðbót í Perluna og skoða bókakostinn,

  sem þar er á boðstólum...aldrei að vita hvað

  kemur upp í hendur hennar.

  Góðar stundir.

  P.S.  Tilvitnanirnar tók húsfreyja úr bók Þorsteins Eggertssonar, "STUTT OG LAGGOTT".

 


mbl.is Áður óbirtur Twain
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband