Komum fagnandi....

_Fv79JYiHPxI  ... beint inn í lánadeild

  AlþjóðagjaldeyrisstofnunarLoL.

  Nú ríkir sönn gleði í brjóstum allra

  Frónbúa, þegar þeir eru orðnir

  alveg "(ice-)seif" að fá blessað lánið,

  sem beðið hefur verið svo lengiDevil.

  Vesalings Haarderinn var orðinn fölur og fár

  að bíða, og seðlabankastjóri hefur lagst

  í "híði" af áhyggjum yfir drætti þessum.

  En nú er þjóðin loks (ice-)seif, og lánið

  bara orðið spursmál um eyðublöð og

  undirskriftir.

  Krónan stekkur upp úr eðjunni í forarpollinum, þar

  sem hún hefur legið síðustu mánuði, og

  fer aftur skína, (ice-)seif og fögurHalo.

  Frónbúar berja sér á brjóst af ærðum

  fögnuði, um leið og þeir eyða síðasta eyri

  sínum í "vertryggð" lán af húsnæðum sínum.

  Lánum sem eiga EKKI eftir að lækka þrátt fyrir

  betri og (ice-)seif tíð og upprisinni krónuPinch.

  O jæja, það má altént nota yfirdráttinn og

  Visakortin til að redda sér yfir hátíðarnar,

  húsfreyja er alveg (ice-)seif á þvíDevil.

  Löndum sínum og sjálfri sér óskar hún

  innilega til lukku með að eiga eftir að

  standa kostnað af Icesafe um alla

  ókomna tíð.

  Góðar stundir.

        

        Prédikaði presturinn

        píslir vítisglóða.

        Amen, sagði andskotinn.

        Aðra setti hljóða.

                            Örn Arnarsson (1884-1942).

 

 


mbl.is Fagna árangri í Icesave-málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árný Sigurðardóttir

mikið eru þeir góðir við okkur íslendinga ,að hjálpa okkur að bjarga öðrum...hvernig væri að bjarga sjálfum sér fyrrst....

Árný Sigurðardóttir, 18.11.2008 kl. 11:51

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Seeeeegðu!

Sigríður Sigurðardóttir, 18.11.2008 kl. 18:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband