Risagjaldþrot?

Juli_lickedafunnystamp

        Dýrt er landið, drottinn minn,

    dugi ekki minna

    en vera allan aldur sinn

    fyrir einni gröf að vinna.

 

  Fyrr má nú aldeilis fyrr vera, en að "risagjaldþrot"

  blasi við okkur Frónbúunum, þó eitthvað lítið

  pusaðist af aurum til okkar úr AlþjóðagjaldeyrissjóðnumPouty.

  Eigum næga náttúrulega orku úr iðrum jarðar, nægt vatn,

  búpening og þokkalega slarkfær fiskimið.

  Við hljótum að geta "reddað" okkur eitthvað fram eftir

  öldinni með slík auðæfiCool.

  Svo skellum við okkur af fullum þunga aftur

  út í kartöflu- og rófurækt við hvert hús og hverja blokk.

  Sjóðum nýveidda ýsu með smjöri, gerum plokkara úr

  afganginum, borðum slátur og grjónagraut tvisvar í viku,

  hjólum eða göngum í vinnuna, notum bílinn bara spari, og

  lærum aftur að moka snjónum úr innkeyrlsunum "sjálf"!Devil

  Sleppum Spánarreisum og heimshornaflakki í nokkur ár,

  þar til þokkalega stöðugur gjaldmiðill er kominn í landið,

  og endanlega er búið að drekkja krónuræflinum.

  Og síðast en ekki síst, seljum öllum, sem vilja kaupa,

  ál og vatn á uppsprengdu EvruverðiDevil.

  Fiskinn borðum við sjálf!

  Nema einhver bjóði extra góðan prís fyrir kílóiðWhistling.

  Risagjaldþrot, HVAÐ?!

  Verður bara svona "oggulítið mínigjaldþrot" sem

  við tökum á samanSmile.

  Svona á meðan góðærissukkararnir eru í "áfallahjálp"

  á Frönsku Rivierunni, Karabísku eyjunum eða á

  Svissnesku "fjallaspai"GetLost.

  Verða að fá "frið" til að jafna sig á taugum, aumingjarnir.

  Töpuðu milljörðum ofan á billjarða eða trilljarða......vitið

  þið ekki hvað það er "sárt"....og niðurbrjótandi á líkama

  og sál?  Ekki hægt að kaupa nýja 1000 fermetra snekkju,

  ekki reisa 800 fermetra villu með sundlaug og sána

  í Mónakó eða fjárfesta í 26 milljón króna jepplingiCrying.

  Gott ef þeir geta nokkurn tímann aftur

  hugsað sér að setja á stofn "pappírspeningafyrirtæki"

  með svona lélega "míníþjóð" að bakhjarli, sem litla Frón

  erPinch.

  Vesalingarnir!

  Ósköp eiga þeir bágt..snýt, snýt...sniff!

 

        Nú er öllum djöflum dátt.

        Dregur af mönnum gaman.

        Himinglæva og austanátt

        ætla að dansa saman.

 

        Uggir mig um allra hag,

        sem eiga mök við græðgi.

        Stormurinn kaldi líksöngslag

        leikur á símaþræði.

 

  Húsfreyja hefur ekki mikla trú á risagjaldþrotum.

  Hún telur að framtíð sé björt á litla Fróni,

  á meðan við höfum nóg að bíta og brennaWink.

  En Örn Arnarsson skáld er að sjálfsögðu

  höfundur staka og ljóða í pistli þessum

  Góðar stundir.

 

 


mbl.is Ávísun á risagjaldþrot ef lán fæst ekki frá IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Frábær pistill hjá þér!

Guðrún Sæmundsdóttir, 16.11.2008 kl. 20:58

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Þakka þér, Guðrún....og kærar þakkir fyrir innlitið.

Sigríður Sigurðardóttir, 16.11.2008 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband