Gvöööð...konutjakkur!

women-fix-cars  Þvílík dásemd væri að fá tjakk í bílinn,

  sem ekki er "vel og vendilega" falinn,

  "skrúfaður fastur" eða ósamansettur

  í torrætt púsluspil eins og tjakkar húsfreyju

  eru iðulegaLoL.

  Og hvað er þetta með að hafa "margar"

  útgáfur af tjökkum?

  Þú ert nýbúin að finna loks tjakkinn, læra

  að skrúfa hann lausan, setja hann saman

  og nota, þegar kominn er tími á bifreiðaskipti!

  Og hvað gerist?

  Jú!

  Einhvert andsk.... séníið er búið að "fela"

  tjakkinn á snilldarlegan máta á öðrum stað í nýja bílnum,

  "festa hann extra vel", og  "samanpúslið" orðið

  erfiðara en venjulegt púsl með 5000 stykkjumAngry.

  Er ekki nóg að hafa "eina ríkisviðurkennda"

  tegund af bíltjökkum, sem allir jafnt konur sem

  karlar kunna á þá springur dekk á bifreiðinni?

  Svona ekta "konutjakk" sem tekur tillit til

  langra nagla, hárra hæla, er settur á

  "áberandi stað" og er ekki "forskrúfaður"

  fastur.

  Og ekki undir neinum kringumstæðum

  má tjakkurinn vera þannig,

  að það þurfi að "púsla hann saman"Whistling

  Gasalega yrði það lekkert, ef ríkið dustaði

  nú ærlega skúffuna sem geymir reglur um bíltjakka,

 svona um leið og það gefur út fyrirskipanir að frysta gengið

  og takmarka gjaldeyriGrin.

  Láta hanna og framleiða einn "allsherjarbíltjakk" í

  allar tegundir bifreiða, og skikka eiginmenn til

  að gefa konum sínum einn slíkan í jólagjöfJoyful.

  Nú ef framleiðsla og hönnun reynist of dýr,

  á þessum síðustu og verstu óðaverðbólgutímum,

  þá má alltaf slá dani um smá lán, þeim er svo

  hlýtt til okkar, Frónbúanna.

  Eru að safna  dönskum "krónum" handa okkur

  örmum Frónbúum, um þessar mundir......Halo

 


mbl.is Bifreið sem er sérhönnuð fyrir konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Danir gera allt fyrir okkur og myndu örugglega senda þér bílatjakk.

Jakob Falur Kristinsson, 8.10.2008 kl. 18:38

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Jamm, Jakob, en yrði það "KONUTJAKKUR" sem þeir sendu mér?

Sigríður Sigurðardóttir, 8.10.2008 kl. 18:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband