Ja, fegin...

xraysun  ... er húsfreyja að sólarræfillinn okkar

  skuli ekki vera þríhyrningur eða

  ferhyrningurCool.

  Þá væri húsfreyja aldeilis búin að skíta upp

  á bak alla sína tíð, hvað varðar ummál hrings,

  pí, og hvað ekki í ummálsfræðum, hefði svo veriðPinch.

  Hefði baslað tímum saman í "emm err"við að reikna út það

  sem hún taldi vera hringur, en var svo bara þríhyrningurW00t.

  Neipp, það litla sem húsfreyja lærði um hringa og

  hnetti, gleið horn og rétt horn virðist nokkurn veginn standast.

  JESSWhistling!

  En hitt er annar handleggur, að húsfreyja gæti ekki í dag

  reiknað ummál eða flatarmál hrings þó líf hennar lægi viðErrm.

  Allt gleymt, týnt og tröllum gefiðShocking.

  Merkilegt nokk, hefur hún aldrei saknað þess.

  Aldrei þurft að nota þessa "fremur takmörkuðu" kunnáttu sína

  allt sitt líf, frá stúdentsprófi.

  ALDREI!

  Fyrir henni eru hringir hringir, þríhyrningar þríhyrningar,

  "kassar kassar" osfr.Wink!

  Stærðin og umfangið?

  Jú, SMALL, MEDIUM og LARGE hefur dugað húsfreyju fullkomnlegaTounge.

  Aldrei þurft að reikna neitt djö... pí eða þaðan af verra dæmi

  í rúmfræðiAngry.

  Botnaði aldrei þá visku lærifeðra sinna í MR, að reyna að

  troða rúmfræði inn í höfuðið á tölutreggáfaðri ungri stúlku,

  sem hafði mun meiri áhuga á Sögu, tungumálum, heimspeki,

  siðfræði og jarðfræði en reiknisformúludóti, húsfreyja.

  Þeir vísu lærimeistarar hefðu gott eins reynt að

  kenna húsfreyju að snæða súra hrútspunga, dansa írskan línudans,

  fljúga herþotu, dansa listdans á skautum, troða í körfubolta

  og að sjóða kalkún í breskri ystri sósu, eins og að reyna

  þetta með reiknisformúludótiðPinch.

  Tarna voru ljótu fræðin, og húsfreyja taldi sig góða að fá heila 2,0

  í rúmfræðinni.

  Stærðfræðin var svo allt annað mál, og þar datt húsfreyja niður

  á heila 7,7 í prófum.... andsk... helvískur snilli í "x í öðru veldi - 2x"Devil!

  Klikkaði ekki og 9,7 deilt með tveimur, slagaði hátt í einkunina 5 sem

  þurfti í stúdentspróf í stærðfræði!  (Fjórir komma átta hækkaðir upp

  fimm komma núll.Wink)

  Jamm.

  En gleði að fá það endanlega staðfest, að sól okkar tregvitru

  jarðarbúa sé "hnöttur"Grin.

  En er ekki örgrannt að húsfreyju hafi verið búið að renna þetta

  í grun áður......rúmfræðispróflaus stúdent eður eiWizard!

  Þrívíddarmyndir af sólinni...húsfreyja sér fyrir sér róbott með

  þrívíddargleraugu á stálnefi sínu, sveimandi í kringum sólu

  sendandi þrívíddarmyndir til jarðarTounge.

  Jamm.

  Góðar stundir.


mbl.is Sólin er hnöttótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

...afsakið... ég sofnaði þegar ég var kominn langleiðina með lesturinn...

Langlokan (IP-tala skráð) 7.2.2011 kl. 19:36

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Sofðu rótt.

Sigríður Sigurðardóttir, 7.2.2011 kl. 20:21

3 identicon

Fyrir mér eru þetta eldgalmar fréttir vísa a.m.k 30 ára gamlan söng með Povl Dissing máli mínu til stuðnings í eftirfarandi krækju

http://www.youtube.com/watch?v=GhrPgbIHVAQ

Hann segir greinilega að " sólen er röd og rund " í upphafiöngsins, kannskiett að senda  NASA skeyti til að segja þeim að hún sé líka rauðef þeir skyldu ekki vita það.

Bjössi (IP-tala skráð) 13.2.2011 kl. 17:36

4 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Hehehe..brilliant hugmynd, Bjössi með skeytið.  Ekki viss að þetta með rauða litinn á sólinni  sé komið í gegn hjá þeim vísu í NASA, þó nú viti þeir blessaðir að hún er vel kringlótt!  Þakka þér kærlega innlitið.

Sigríður Sigurðardóttir, 13.2.2011 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband