Smá viðbót.

 100 3451 Húsfreyja lærði nýverið vísukorn

  af einni elskulegri eldri konu:

  Kaffisopinn yndæll er

  eykur fjör og skapið kætir.

  Langbest jafnan líkar mér

  Lúðvíks Davíðs kaffibætir.

 

  Sú aldraða mundi ekki hver orti, né hver kenndi henni.

  Væri samt gaman ef einhver vissi höfund, og léti

  húsfreyju vita.

  Hefur afskaplega gaman af vísum og ljóðum, húsfreyja,

  og vill gjarnan þekkja nöfn höfunda þeirra.

  Er ekki flink að yrkja sjálf, því miður.....eða kannski ekkiDevil.

    "Við kjánarnir búum til ljóð fyrir fé,

    en aðeins Guð getur búið til tré"

                                                                  Joyce Kilmer (1886-1966)

  Húsfreyja gengur máske í það næst,

  að bjástra við að reyna að "búa til tré"Tounge!

  Jæja, getur altént hrært saman steypu, ef í hart fer..hehehe!

  Góðar stundir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband