Færsluflokkur: Heilbrigðismál
1.10.2013 | 22:04
Sjúkir og slasaðir skulu borga.
Það var og.
Aldeilis brilliant fjárlagafrumvarp þetta.
Húsfreyja sér fyrir sér atburðarásina.
Húsfreyja fýkur um koll í næstu albrjáluðu vetrarlægð,
skellur beint á hausinn á steinsteypta stéttina og KRASS,
hausinn brotinn.
Þegar hún rankar aftur við sér á Landspítala Háskólasjúkrahúsi,
10 dögum seinna, reifum vafin um höfuðið, með þrefalt boxaraglóðarauga og
heilastarfsemi í mergjuðum hægagangi, verður hún þegar í 12.000 króna
skuld við sjúkrahúsið.
Og treysti hún sér þar með ekki, að rusla sér fram úr rúminu samstundis og
út af spítala, með þvaglegginn lafandi niður úr klofinu, handlegginn tengdan
við stöng á hjólum með næringu í æð og gasalega illvígan hausverk, og þarf
þá að gista 6 nætur í viðbót, er 20 þúsundkallinn fljótur að fjúka.
Nú á húsfreyja ekki marga 20 þúsundkalla þegar hún er búin að borga
hús, bíl, faseignagjöld, hússjóð ofl.
Í góðum mánuði á hún kannski 60.000 eftir í mat, fatnað o.þ.h.
fyrir sína þriggja manna fjölskyldu og matgrannan kött.
Í slæmum mánuði er hún heppin að eiga 10.000 krónur afgangs....og þá er
að svína á VISA...og svína...og allt vindur upp á sig endalaust.
Það er aðeins blessað orlofið sem reddar húsfreyju frá þvi að
sökkva fúlan óborganlegan skuldapytt, og hjálpar henni
aftur upp að núllinu.
Jamm, orlofið sem á að notast í sumarfríinu, fer allt í skuldir, og hefur
farið þá sömu helvísku leið í mörg ár, eða alveg frá bankahruni hér hjá oss
örmum fjármálavitfyrringum út í miðju ballarahafi.
Sumarfríið verið í mínus fjárhagslega alla tíð síðan, og húsfreyja lengi
að ná andanum í því fjárhagslega drulludýki, eftir frí. SVEI!
Já, því fer fjarri að húsfreyja hafi efni á því að borga 1200 krónur á
dag fyrir það eitt að velgja rúm á spítala fárveik og voluð. skyldi
næsta vetrarlægð ná henni.
Sei, sei nei.
Samt eru þau hjónaleysin, bóndi og húsfreyja bæði að streða dag hvern,
virka sem um helgar, við að vinna, og reyna að láta enda ná saman.
En hvað þá með fólkið sem enga hefur vinnuna?
Öryrkja?
Öldunga...afa og ömmu?
Eru þá máske öldungar og öryrkjar allir á litla Fróni svo vellauðugir
og moldríkir af seðlum, að ekki sér högg á vatni, þurfi þeir
að verma rúm á spítala í mánuð, tvo eða þrjá?
Altént veit húsfreyja, að það er langt því frá að öldungar okkar
hér uppi á litla Fróni vaði allir í peningum.
Einn og einn á stangli á margra ára fresti sem hún hittir,
með Rolexúr á úlnliðnum og farandi 2 ferðir utan á ári í mánaðarsiglingu.
Flestir hinna eiga vart milli hnífs og skeiðar og láta sér nægja að
"ferðast gangandi" niður í bókastofu að spila Vist.
En það er þá skilyrði að þeir búi í þjónustuíbúð...
ekki víst að sumir þeir öldnu hafi kost á
ferðalagi gangandi í bókastofu, búi þeir enn í húsi sínu eða íbúð.
Neipp, ekki margir öldungar sem hafa efni á því að gista dögum saman hjartveikir,
nýrnaveikir, slasaðir, nýuppskornir eða lamaðir jafnvel, í rúmi á
deild á Landspítala Háskólasjúkrahúsi, telur hún.
Færu frekar heim, fárveikir, hundslappir og nánast ósjálfbjarga, heldur en að
setja sig og sína í fjárhagslegar ógöngur vegna sjúkrahússlegu, öldungar vorir.
Jamm.
Ríkið græðir seint peninga á öldungum, þeir hreinlega "vilja ekki" gista voru
frónversku spítala, eigi þeir þess nokkurn annan kost.
Ja, nema......
Kannski að ríkisstjórnin (djö.... snillingar sem hún er) setji nú fram frumvarp,
um að setja "sérstakt gjald" á ellilífeyrisþega? (Alltaf hægt að plokka af þeim aurana.)
Svona eins konar "elligjald".
Þannig gæti stjórnin gert öldungum að greiða ríkinu 1000 krónur á mánuði,
12.000 krónur á ársgrundvelli fyrir hvert ár sem þeir "lifa fram yfir" 67 ára aldur.
Ríkið græddi grimmt, ekki spurning.
Við erum að tala um 240 milljónir á ári ef 20.000 ellilífeyrisþegar hjara uppi
á litla Fróni.......1200 milljónir á 5 árum.
Munar um minna.
Gæti jafnvel borgað sig fyrir spítalana að bjóða öldungum FRÍA innlögn í viku
á spítala "tvisvar á ári", þeim til lækninga og hressingar, svo þeir
lifi sem "allra lengst" og BORGI sem allra mest þar með.
Jamm.
En altént ætlar ríkisstjórn vor að lækka álögur á EINNOTA BLEYJUM.
SNILLD!
GLEÐI!
Húsfreyja á ekkert bleyjubarn, 12 ára djásnið sjálfbjarga á salerni fyrir löngu.
En húsfreyju datt þá í hug að skella sér samt á einn bleyjupakka "hræbillegan",
og athuga hvort hún gæti ekki nýtt sér eitthvað þessi "gæði" nýju stjórnarinnar.
Kannski er hægt að "krydda bleyjurnar eitthvað til og steikja á pönnu" og snöfla
í sig...... nú eða klippa niður í óróa í stofugluggann úr mismunandi stærðum,
skúra með þeim parkettið eða sauma úr þeim rúmteppi.......BLEYJUR- JÓLAGJÖFIN
Í ÁR!
Möguleikarnir eru óþrjótandi.
Nei, bara svona smá pæling hjá húsfreyju sem er með orðið "NIÐURSKURÐUR"
tattúverað þvert yfir enni sér, brennimerkt í hjarta sér og lekandi út úr báðum
eyrum sér, eftir hartnær 30 ára starf í heilbrigðiskerfinu.
Góðar stundir og guðanna bænum gætið heilsunnar...nema auðvitað þið
eigið 1200 kall á lausu.
Innheimta gjald fyrir legu á sjúkrahúsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt 5.10.2013 kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2013 | 17:14
Að vera metin að verðleikum.
Allir vilja vera metnir að verðleikum.
Að störf þeirra séu virt og metin.
Að hin mikla orka og fagmennska sem við leggjum í störf okkar,
skili sér að hluta til, aftur til okkar.
Að okkur líði vel í vinnu okkar, vitandi að fjárhagslegt
öryggi sé tryggt með góðum launum fyrir þrotlaust og
fórnfúst starf.
Og að auki ef þú ert hjúkrunarfræðingur:
Að fá að vinna í gleðinni sem felst í að hjálpa náunganum.
Að hlúa að voninni þegar erfið veikindi herja á.
Þetta er stóra málið okkar hjúkrunarfræðinga.
ERU ÍSLENSKIR HJÚKRUNARFRÆÐINGAR METNIR AÐ
VERÐLEIKUM?
HAFA ÍSLENSKIR HJÚKRUNARFRÆÐINGAR EINHVERN TÍMANN
VERIÐ METNIR AÐ VERÐLEIKUM?
Mánaðarlaun húsfreyju síðasta mánuð: 369.617 krónur miðað við 100% starf.
Og þá á eftir að taka af staðgreiðslu, orlof, félagsgjöld ofl.
Er þetta boðlegt hjúkrunarfræðingi til næstum 30 ára.
Er þetta í lagi?
Eða er í lagi að hefja öll mánaðamót í bullandi mínus?
Því þegar húsfreyja er búin að greiða íbúð, bíl, fasteignagjöld ofl.
á hún örfáa þúsundkalla eftir sem duga fyrir brauði og mjólk....
í viku.
Jamm.
Í viku.
Þá er að svína á VISA fyrir mat og nauðsynjum næstu
3 vikurnar.
Húsfreyja er ekki eini hjúkrunarfræðingurinn hér uppi á litla Fróni sem
býr við þennan dapra raunverukeika.
Enda er Noregur svarið fyrir marga heilbrigðisstarfsmenn í dag.
Litla Fróni blæðir færum og frábærum frábærum hjúkrunarfræðingum
til norskra frænda okkar sem kunna þá vel að meta.
Hve lengi þolir "velferðarríkið" Ísland að missa allan þennan
þrautþjálfaða her heilbrigðisstarfsmanna úr landi?
Sjúklingar á öllum aldri eru nú þegar orðnir "biðlistafólk", tímabundnir öryrkjar
sem er kippt út úr "enduruppbyggingu" litla Fróns eftir hrun, vikum og
jafnvel mánuðum saman.
Fólk sem verða virkir þjóðfélagsþegnar, um leið og þeir hafa notið
góðrar og skilvirkrar heilbrigðisþjónustu.
Og fleiri lenda í mistökum, fleiri deyja bíðandi, fleiri verða að
sækja sér lækningu og hjúkrun erlendis og fleiri fá fljótfærnislegar,
"skammtímareddingar" á heilsufarsvanda.
Er þetta framtíð litla Fróns í heilbrigðismálum?
Verða hjúkrunarfræðingar á litla Fróni ALDREI metnir að verðleikum?
Svo mörg voru þau orð.
Góðar stundir.
Hjúkrunarfræðingar flykkjast til Noregs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.10.2012 | 23:29
Það var og.
Margt er skrýtið í kýrhausnum eins og kerlingin sagði.
þrotlausa vinnu, meiri ábyrgð, fleiri verk á lægri launum á tímum
kreppu og bankahruns, af stakri náð og einskæru þakklæti.
Og hvernig þá?
Jú, að sjálfsögðu svona:
Stöðulækkun ásamt launaskerðingu, fyrir sömu erfiðu ábyrgðarstörfin og áður,
ásamt fækkun á starfsfólki þeirra.
Allt í nafni niðurskurðar, aðhalds og og BRÁÐRAR nauðsynjar á
því að spara þar sem þegar er búið að skafa inn að beini og
mergsjúga.
Þar sem mannauðurinn má síst missa sín, ákveða stjórnendur að
skera niður.....án þess þó að það MEGI bitna á GÆÐUM þjónustu
við kúnnana.
Og þar með fjölgar þeim einstaklingum í fyrirtækjunum sem fá vinnu við að útbúa allskonar
"gæðavísa", "gæðaplön" og "reglupappíra" sem niðurskornum,
launalækkuðum undirmönnum er ætlað að fylla út, framfylgja og
láta fækkandi starfsfólk sitt fara eftir, hvort sem að tími er til slíks eður ei,
þar sem staffið er allt á harðahlaupum, svo ekki tapist niður GÆÐI á "grunnþjónustu"
til kúnnanna.
Sér enginn þörf á því að "skera niður" hjá pappírsvinnslufólki....sei,sei nei.
Enda hverjir ættu annars að koma með allar hugmyndirnar um HVAR er
brýnast að skera niður og koma þeima á BLAÐ, nema "pappírspésafólkið"!
Gjörsamlega ÓMISSANDI þetta blessaða pappírsfólk.
Þá er bara að SKAFA beinin hinna betur og MERGSJÚGA enn betur.
Jamm, fínt þakkæti þetta til fólks sem sinnir störfum sínum af hugsjón,
dugnaði, fagmennsku og tryggð.
Hefur flest niðurskorna mannfólkið fyrir fjölskyldu að sjá eins og allir aðrir og
berjast ötullega við að lifa kreppuna af fjárhagslega, en sættir sig við lægri laun
í þeirri von að einhvern tímann muni fyrirtækið þeirra
kunna að meta það og launa þeim að verðleikum.
Ó, já, að verðleikum.
Því miður eru mörg þessara fyrirtækja með þjónustu fyrir veika og aldraða
hér á landi, og að halda því blákalt fram að "svona niðurskurður"
bitni ekki á GÆÐUM þjónustu, er hreinn og klár vaðall og ekkisens
kjaftæði, að mati húsfreyju.
Svo mörg voru þau orð.
Húsfreyja örvæntir á sínum svörtustu dögum um heilbrigðiskerfi sitt,
og kvíðir því að verða gömul kona.
Er það framtíð hennar sem annarra er eldast og gamlir verða,
að verða "annars flokks" Íslendingur, með lágmarks heilbrigðisþjónustu...
og ENGA fagþjónustu?
Er þetta það sem við viljum í velferðarríkinu , Íslandi, þegar kemur að
heilbrigðisþjónustu við aldraða og sjúka?
Nei, húsfreyja bara spyr.
Góðar stundir.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2011 | 19:32
Tryllingslega, Reglulegt og Pínlegt Mígrenis-...
...gen númer átta þá að hrjá
konur margar og stúlkur í ætt húsfreyju.
Það er ekki nokkur spurning.
TRPM8 erfðavísir þessi gengur þá ljósum
logum tvist og bast í bæði móður- og föðurætt
10 ára djásnsins, og jafnvel fleiri hroðaleg mígrenisgen
á ferli þar einnig.
Báðar ömmur hennar eru mígrenissjúklingar,
faðirinn var mígrenissjúklingur fram yfir tvítugt
og gott ef ekki móar í minningu hjá húsfreyju um mergjuð
magakveisuköst um 4-5 ára aldurinn.
Jamm, leiðinda sjúkdómur, mígreni, erfiður og truflar mikið
daglegt líf.
Tíu ára djásnið greindist með magamígreni
fyrir rúmu ári síðan, en nær 10% allra skólabarna
fá mígreni, með eða án magaverkja og uppkasta,
og svo fá örfá þeirra "eingöngu" magaverkinn og
uppköstin.
Húsfreyja hélt fyrir rúmu ári síðan, að líklega væri hún
einhver móðursjúkasta móðir allra tíma.
Búin að ímynda sér alla mögulega og ómögulega
meltingarfærasjúkdóma sem gætu verið að hrjá
hennar ljúfu dóttur, og var að trompast yfir
öllum veikindadögum djásnsins, skólatapi hennar,
og vinnutapi foreldra.
Þá gaukaði einn ágætur læknir á vinnustað hennar að henni,
að börn gætu fengið mígreni "eingöngu" í maga.
Húsfreyja fauk á methraða með djásnið til barnalæknis,
og mikið rétt, djásnið reyndist með bullandi mígreni,
og svaraði strax lyfjameðferð og breyttu mataræði.
Hefur síðan vart misst dag úr skóla, og hefur
sloppið að mestu við köst, nema eitt og eitt með
margra mánaða millibili.
Köst 10 ára djásnsins byrja ætíð eins:
1. Lystarleysi og hitatilfinning í maga.
2. Sviðaverkur sem kemur í bylgjum.
3. Ofsafenginn krampakenndur verkur, ógleði og uppköst.
Þetta ástand varir í 3- 6 klst ómeðhöndlað, en þá
er kastið gengið yfir.
Yfirleitt nær húsfreyja að grípa strax inn í kastið
á stigi 1. og 2. með verkjalyfjagjöf (Panodil/ Paratabs),
en nái hún því ekki er hún búinn að missa tökin á málinu,
stig 3. verður óumflyjanlegt,
og kastið verður að renna sitt skeið með tilheyrandi
ofsaverk, ælum og gráti.
Já, það er oft vandlifað með arfleið fyrri kynslóða,
en það góða er að nú á dögum er mun meiri hjálp að fá.
Djásnið tekur 3 litlar töflur eftir kvöldmat alla daga,
forðast unninn mat, pylsur, bjúgu o.þ.h., forðast sætmeti
og sætindi (nema á laugardögum) og kakó sömuleiðis, og
hefur það ljómandi gott flesta ef ekki alla daga.
Húsfreyja man þá daga á sínu bernskuheimili,
þegar föðurafi hennar, Guðmundur Eyjólfsson,
stóð vörð um almyrkvað svefnhebergi
foreldra hennar, þaðan sem henni
og systrum hennar bárust til eyrna uppsöluhljóð,
kveinstafir og grátur móður þeirra.
"Mamma ykkar er veik, þið farið ekki þarna inn
nema með opna slagæð, opið handleggsbrot
eða þá að þið hafið asnast til að kveikja í kjallaranum"!
Afinn ekkert að skafa af hlutunum, og gaf hvergi eftir
áköfum köllum systranna eftir athygli mömmu.
Árið 1969 var fátt um góða drætti þegar kom að
meðferð við mígreni.
Svo móðir húsfreyju þjáðist, stundum 2-3 daga í röð,
höfuðið að springa, sjóntruflanir, uppsölur.
Afi stóð vörð.
Upp úr 1970 kom nýtt lyf á markaðinn, Norgesic.
Móður húsfreyju snarbatnaði mígrenið, köstum fækkaði
smátt og smátt og eru nú orðin fjarlægur ómur af leiðindum í
minningum móður húsfreyju.
Húsfreyja slapp að mestu sjálf.
En ekki 10 ára djásnið.
Kannski hennar lán, að eiga móðusjúkustu móður allra tíma,
sem sífellt leitaði orsaka og lausna.
Kvartaði og kveinaði fyrir hennar hönd,
las, gúgglaði, hringdi, leitaði ráða og gafst ekki upp.
Það er einlæg ósk húsfreyju að öll börn með mígreni,
með eða án magaverks, eigi hrikalega móðursjúkar mæður....
eða jafnvel betra,....."föðursjúka" feður!
Góðar stundir á sumarlegu kveldi.
Erfðavísar mígrenis fundnir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 19:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2011 | 15:00
Steinhætt að snýta sér....
,húsfreyja!
Þó úr nefi renni í stríðum straumi
á köldum vetrardögum,
FÆR ÞAÐ BARA AÐ RENNA!
Stórhættulegur andskoti, samkvæmt
hollenskum vísindasnillum þessum.
AÐ SNÝTA SÉR!
Býður upp á HEILABLÓÐFALL!
Og stunda kynlíf og drekka kaffi
eru vísast til bullandi áhættuþættir einnig.
Svo að súpa á kaffibolla í miðju "dodoi" með elskunni sinni,
og snýta sér í leiðinni......gleymið því, gætuð gott eins tekið inn eitur!
DAUÐANS MATUR!, segja hinir snjöllu frá Hollandi.
(Og elskan yrði aldeilis ekki hress
með svoleiðis gutl og gauf í miðju "dodoi" heldur)
Þetta líst húsfreyju ekkert á, og er miður sín!
Kynlíf viðheldur jú mannkyni, svo ekki sér hún fram á að
okkur gangi að láta af slíku athæfi.
Kaffidrykkju getur hún heldur ekki hugsað sér, að mannkyn
geti gefið upp á bátinn.
Án morgunkaffis síns, er húsfreyja hismið eitt frá því
klukkan 07:30 til 12:00, en líkamsklukka hennar
hringir að öllu jafna RÆS á hádegi!
Húsfreyja er ekta B-persóna, líkamsklukka hennar
stillt á SVEFN frá 01:00 eftir miðnætti til 12:00 á hádegi.
RÆS! FRAMKVÆMA! og STUÐ! eru svo 3 stillingar hennar
á líkamsklukkunni frá hádegi til rúmlega eitt eftir miðnætti!
Þetta þýðir aðeins eitt: Tíminn frá 07:30 til 12:00 var bara
búinn að vera eitt stórt hrikalegt VESEN fyrir húsfreyju,
þá hún mætti á morgunvaktir fyrstu ár sín í starfi.....
eða þar til hún uppgötvaði
dásamlegasta drykk allra tíma: BLESSAÐ KAFFIÐ.
Svefndrukkin grámoskulega vofan í líki húsfreyju,
sem rorraði meðvitundarlítil á stólunum í morgunrapportinu,
gjörsamlega gufaði upp við fyrsta kaffibollann.
DING! VÖKNUÐ! Í VIÐBRAGSSTÖÐU!
Húsfreyja dýrkar kaffi, og getur ekki hugsað sér að
láta af kaffidrykkju, enda vinnur hún nú eingöngu morgunvaktir.
Kynlífið er ekki til umræðu, svo eftir stendur að hætta
öllum SNÝTUM, heilaæðum sínum til björgunar og góðrar heilsu.
Jamm.
Það er von húsfreyju að, hollensku vísindasnillar þessir,
taki það að sér næst, að finna LÆKNINGU við KVEFI hið
snarasta.
Annars er næsta víst að fólk fari í umvörpum að drepast úr HOR!
Góðar stundir á vorlegum föstudegi.
Kaffi, kynlíf og snýtur hættuleg heilsunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 15:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.4.2011 | 20:29
Ísland er eitt af ríkustu löndum...
...heims".
("Iceland is one of the richest countries in the world")
Norsaranum var mikið niðri fyrir.
"You see the point here"!
"You have a lot of money".
"Hjálpi mér" hugsaði húsfreyja," bankahrunið og
og fálan hún Ísbjörg hafa alveg farið fram hjá norsaranum".
Norsarinn æddi áfram:
"But you are not doing your work, you are not doing nursing".
Norsarinn var orðinn heitur.
Hann bunaði út úr sér langri ræðu á bjagaðri ensku,
þar sem hann níddi störf vestrænna hjúkrunarfræðinga
niður í svaðið, sagðist að vísu mundu aðeins níða okkur niður til að byrja með...
"you see the point here"?
Húsfreyja sá engan skrattans "point" neins staðar,
nema þá bláleitan nefbroddinn á norsaranum, og svo beitt
svipþungt andlit kollega síns nokkur sæti frá sér.
Sú kona þekkt fyrir ákveðni, fagmennsku og dugnað,
ásamt stóru skapi.
Eins gott að norsarinn gusaði stressuðum hlátri
frá sér af og til, svo leit út fyrir að hann væri að mestu að gera
beitt grín að áheyrendum.
Húsfreyja glotti með sjálfri sér: "Reverse psychology.
Gott og vel.
Snúa fólki á sitt band með því að
fá þá til að gagnrýna sjálfa sig og störf sín í tætlur,
koma þá með flottar nýjar lausnir, hrósa fyrir það sem vel er gert,
og hvetja til að "kaupa" hjálpartæki sem bæta gæði vinnu.
Húsfreyja fylgdist spennt með norsaranum.
Hann var bísna fróður, og tættist víða um lönd með
alls konar tölur um afspyrnu lélega hjúkrun.
Reif heimaland sitt Noreg niður í tætlur "heilbrigðiskerfislega".
"And we have a lot of oil-money, and still we don't take proper
care of our old people".
"AND YOU DO NOT TAKE GOOD CARE OF OLD PEOPLE HERE IN
ICELAND" hrópaði norsarinn fagnandi.
"Still you hve a lot of mony and plenty of time at work,
but you have stopped nursing"!!!
Ygglibrún kollega húsfreyju versnaði að miklum mun.
Nokkrir aðrir áheyrendur slepptu frá sér taugaveikluðum
vantrúaðarhlátri.
Deildarhjúkrunarfræðingurur í þriðju röð smitaðist af eldmóð
norsarans, "JÁ við erum hættar að hjúkra, sitjum fastar í
pappírsvinnu alla daga" kallaði hún upp.
"I LOVE YOU" hrópaði norsarinn upp af andakt og einskærri
gleði yfir því að níðið skyldi svínvirka.
Sú á þriðja bekk roðnaði í kinnum af ánægju.
Húsfreyja kyngdi hlátrinum og muldraði í hljóði:
"HALLELÚJA"!
Varð hugsað til deildar sinnar, 25 manna deild, þar sem
18 sjúkir heimilismenn eru hjólastólabundnir,
hinir göngugrindafærir.
Húsfreyja eina hjúkkan á vakt dag eftir dag, sinnir
hjúkrun sinna skjólstæðinga, bæði líkamlegri og andlegri,
tekur á bráðaveikindum, sér um að senda fólkið sitt
í rannsóknir eða á bráðamótökur,
sinnir deildarstjórastörfum á harðahlaupum, ræðir við
starfsfólk, skipuleggur dagleg störf þeirra, ræðir við ástvini
skjólstæðinga, fylgist með virkni deildar, vöntun á
hjúkrunarvörum, þvotti, lyfjum, annast lyfjagjafir,
skiptir á þvagleggjum, á magaslöngum, fylgist
með breytingu á getu sinna heimilismanna,
er stöðugt að meta líðan þeirra, er hjartabilun
í uppsiglingu, lugnabólga, þvagfærasýking eða
er jafnvel öldungurinn að búa sig undir að kveðja þessa jarðvist.
"YOU SEE THE POINT HERE"!
Norsarinn í ham.
Húsfreyja hrökk upp frá hugsunum sínum.
Var búin að tapa þræðinum hjá norsara.
Einbeitti sér.
Hann sem betur fer enn að níða vestræna hjúkrunarfræðinga.
Missti ekki af neinu merkilegu, húsfreyja.
Norsarinn hvessti snörpum augum yfir hópinn.
Hundrað og sextíu hjúkkuaugu mændu á hann.
"DON'T TELL ME YOU DON'T HAVE TIME OR MONEY!
"YOU HAVE BIG JEEPS IN ICELAND, AND FULL
RESTAURANTS OF PEOPLE ON WEDNESDAYEVENINGS",
þrumaði karl.
"AMEN" hrópaði húsfreyja í huganum.
Hún var komin með bullandi "Gunnar í Krossinum-tilfinningu".
Karl glotti og hélt áfram með ýmsan fróðleik, með dassi af
hjúkkuníði hér og þar. Skot á mikið ríkidæmi frónbúa.
Loksins kom matarhlé.
Það var grand.
Íslensku sölustjórarnir höfðu vandað til verksins,
allt var gott og hressandi
Áttatíu hjúkrunarfræðingar snæddu og spjölluðu,
einhver hvíslaði að það væri skrítið að sitja undir
því að það sem við ynnum dags daglega væri ekki
lengur talið "hjúkrun"!
Húsfreyja reyndi að hughreysta viðkomandi,
og sagði að nú væri líklega neikvæðu yfirhalningunni lokið,
næst yrði karl ekkert nema jákvæðnin og gleðin, því hann vildi
selja okkur ný og glæsileg hjálpartæki.
En NEI!
Norsarinn demdi sér vissulega í mikla sölukynningu á
"því besta sem völ er á í hjúkrun aldraðra", en hann hnýtti
áfram í áheyrendur og var afspyrnu kaldhæðinn við
annan íslenska sölustjórann..." oh, you're going to use you brain NOW".
Norsari var farin að pirra húsfreyju undir lokin, og hún var þeirri
stund fegnust að komast út í vor-slagveðrið.
Hafði skyndilega fengið það á tilfinninguna, að norsarinn væri
eitthvað spældur út í frónverska þjóð, jafnvel eitthvað bitur.
Máske ekki búin að jafna sig á því, að við skyldum YFIRGEFA
Noreg þarna um árið...874 eða þar um kring, því okkur hugnaðist
ekki lengur lengur það land til búsetu.
En það getur sosum verið vitleysa hjá húsfreyju,
eigi að síður segir húsfreyja og skrifar...og stendur við það:
LEIFUR HEPPNI VAR ÍSLENDINGUR OG VERÐUR
ÆTÍÐ!
OG HANA NÚ.
Góðar stundir.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 20:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2010 | 19:26
Hoppandi, rasandi æst.
Húsfreyja er alveg bandsjóðandi
tjúlluð og æst í skapinu þessa dagana.
Hún blánar, roðnar og hvítnar á víxl,
bölvar á mergjaðri íslensku, fer með
hroðalegar bölbænir á Latínu og
illgjarnar særingar á háþýsku.
Kötturinn læðist lúpulegur um,
varla að hann mjavri þegar húsfreyja svíkur hann
um harðfiskinn 3 daga í röð.
Gjóar vondaufum augum á "tvífættu hárlausu" þjónustuna sína,
geispar ógurlega, sleikir loppu sína fagmannlega og kveður
upp sinn dóm: "Jepp! Gjörsamlega búin að tapa sér, frúin"!
Röltir til níu ára djásnsins, nuggar sér upp við hana og
mjavrar vinalega: "Svona nú, þetta var ekki djúp klórskráma
frá mér í gær, gefðu nú kisu þinni LIFRAKÆFU hróið mitt,
og ég skal hafa klórið enn GRYNNRA næst".
Djásnið lítur á móður sína með furðu í svip sínum:
"Gafstu Bröndu ekkert að éta í morgum, mamma"?
"Ég á ekki köttinn" urrar húsfreyja.
Og djásni rennur blóðið til skyldunnar og reddar ketti
sínum lifrakæfu og vatni.
En húsfreyja er illilega, rasandi bálvond..man ekki einu sinni
eftir að kaupa inn harðfisk, svo heitt er henni í hamsi.
Og hvað veldur?
Jú, séníin í Heilbrigðismálaráðuneytinu okkar Frónbúanna.
Var helvísk kreppan ekki nógu slæm án þess að
niðurskurðarsnilld þeirra nyti við?
Argvítans bankahrunið með kerlingarfáluna hana Ísbjörgu
nartandi í hælana á banakeigendunum, bara nóg vesen
þó snillarnir í Heilbrigðisráðuneytinu sætu á sér?
Útrásarfíflin á Tortóla, nóg til að sprengja blóðþrýstinginn
hjá hverjum heiðvirðum Frónbúa, sem mænir vongóður
á eina "góðærisgróða sinn" flatskjáinn, hvert kvöld í von um
sanngjarnar lausnir, skjaldborg og mannúðlegan niðurskurð
á tímum kreppu?
En sei sei nei!
Ráðist á aldraða, fatlaða, sjúka, barnafólk og verðandi
foreldra!
SKERA NIÐUR!
Og nú í heilbrigðisþjónustunni úti á landi!
Það er eins og fjandinn sjálfur hafi birst þeim
í Heilbrigðisráðuneytinu með tillögur:
1. LOKA öllum fæðingardeildum
landsbyggðarinnar, máski gott ráð
að senda alla frjóa karla er kjósa að búa utan malar,
í "binda fyrir spottann"-aðgerð á næstu mánuðum
og konur á barnsburðaraldri allar í "tappa-ísetningu"!
Þangað til er rétt að fram komi:
Helmingur þjóðarinnar skal eftirleiðis fæðast
í flugvélum, þyrlum, skipum, í bílum á þjóðvegi 1, og
stöku sjúkrabíl......
á LEIÐINNI á fæðingardeildina í höfuðborginni
við sundin bláu.
Eyjamenn verða þannig ekki lengur Eyjamenn,
heldur "Milli-lands-og-Eyja-menn",
Borgfirðingar verða "Hvalfjarðagangna-menn",
Húsvíkingar "Víkurskarðs-menn",
og Selfyssingar, Hvergerðingar og Þorlákshafnarbúar
ásamt öðrum Suðurlandsbúum verða að sjálfsögðu
"Litlu Kaffistofu-búar"....osfr.
Vegna ónæðis af fæðandi konum á Litlu Kaffistofunni
mætti taka karlasalernið og útbúa þar "míní-fæðingarskýli".
Móarnir þar um kring hressast bara af smá hlandi
frá karlkyns bílstjórum í spreng.
2. LOKA skal sem flestum skurðstofum úti á landi.
Þar með eru öll "bráðaveikindi" s.s sprungnir
botnlangar, innvortis blæðingar, massív hjartáföll
eða heilablæðingar BÖNNUÐ á landsbyggðinni....
altént MJÖG illa séð...og í raun bara tómt VESEN....
hvað vill hundveikt pakk upp á dekk úti á landi...?....
getur bara skammast til þess að flytja í borgina
við sundin bláu...og BEÐIÐ á bráðamóttökum
Landsspítla Háskólasjúkrahúss eins og aðrir
fárveikir borgarbúar, eftir þjónustu.
Og svo dettur húsfreyju í hug að þriðja tillagan hafi einnig
verið sett fram af kölska, og rædd í Heilbrigðisráðuneytinu:
3. Stefnt verður að algjöru "fæðingarstoppi"
úti á landi fyrir 2014 og "sjúkdómalausri" landsbyggð
eigi síðar en 2017....og gamlingjar og fatlaðir
er landsbyggðina búa, skulu allir fluttir út í Viðey,
og munu þeir eftirleiðis annast allt viðhald á friðarsúlu
Lennons, og annast móttöku Yoko Ono ár hvert!
Og það þó að það þýði, að eftirleiðis búi aðeins
20 - 70 manns úti á landi næsta mannsaldurinn,
í hverju byggðarlagi.
Jamm, húsfreyja er rasandi bálill og nær vart upp á nef sér
af vonsku.
Kannski skást að gera stólpagrín að öllu saman.
En góðar stundir og í guðanna bænum gætið heilsunnar.....ef
þú ert ólétt kona úti á landi...vá, ert þú í djúpum...!
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 20:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.10.2010 | 19:57
Niður með....
...niðurskurðinn í heilbrigðiskerfinu!
Húsfreyja hleraði eftir niðurskurðaráætlunum
þá hún spjallaði við systurdóttur í Eyjum
í dag, en systurdóttir er starfsmaður
á þeirra annars ágæta sjúkrahúsi.
Loka fæðingardeild!
Loka skurðdeild!
Fækka legurýmum úr átján í þrettán fyrir sjúka og aldraða.
Húsfreyju sundlar.
Síðast þá hún vissi bjuggu nálægt 5000 manns í Eyjunum.
Samkvæmt síðustu niðurskurðarsnilld heilbrigðisráðherra,
virðist "enginn" af þessum 5000 mega "fæða" barn í heimabyggð,
sei sei nei.
Dúlla sér níu mánuði gengin með Herjólfi nánast "botnslausum"
upp á sandrif í Landeyjahöfn og vona að hægt verði að bjarga
barnshafandi konu/konum í land á næsta flóði, og komast þá
í bifreið/rútu í rúman klukkutíma á Selfoss (ef þar fær
fæðingardeild að vera í friði) eða rúma 2 tíma til Reykjavíkur.
Nú eða skella sér í æluferð í 3 tíma í Þorlákshöfn og síðan
með rútu/bifreið upp á Selfoss eða í borgina við sundin bláu....
og vona að blessað barnið taki ekki upp á því að koma í
heiminn í litlum klefa í Herjólfi eða á Þjóðvegi eitt, rétt
á meðan foreldrarnir dudda sér í rólegheitum og ekki nokkru
stressi við að koma sér á fæðingardeildina.
Nú ef ljósm...., lækn....hjúkrunarfr.....jæja, bara EINHVER
heilbrigðisstarfsmaður, sem enn fær að sinna vanfærum konum,
og hefur ekki fengið uppsagnarbréf nýverið, ákveður að allt sé
í voða hjá verðandi móður og barni og bráðakeisari sé
eina lausnin, er alltaf hægt að kalla eftir sjúkraflugi......EF það
er ekki snarvitlaust veður með 50 metrum á sekúndu á Stórhöfða.
Og þá spyr húsfreyja: Hver sker þá, ef búið er að loka skurðstofu,
og skurðlæknar Eyjanna eru fluttir til Noregs eða í Svíaríki og allt ófært út í Eyjar.
Hver fær þá að brýna hnífa, og bjarga móður og barni?
Eða er máske bara búið að spá LOGNI á Stórhöfða næstu tíu árin?
En ekki nóg með það, að barnshafandi konur verði
"frekar óæskilegt vandræðafólk" í Eyjunum, heldur
verða sjúkir og aldraðir að gæta þess, að
verða aldrei veikir eða hjálparþurfi nema flestir 13 í einu!
Og verði þá kannski aðeins innskrifaðir á sjúkrahús Eyjamanna
föstudaginn þrettánda klukkan 13, og þá ætíð útskrifaðir
allir sem einn 13 dögum fyrir jól...eða á þrettándanum öðrum kosti?
Húsfreyja telur að Eyjamenn verði ALVARLEGA að fara að hugsa sinn gang,
hvað veikindi og sjúkdóma varðar.
Sprungnir botnlangar algjört "tabú"!
Heilablæðingar sömuleiðis sem og flestar stórar innri blæðingar.
Væg hjartaáföll skulu stíluð upp á sumrin í "bongóblíðu",
en stærri hjartaáföll eingöngu í "sumarfríi" í borginni við sundin bláu,
helst þá sá hjartasjúki er staddur á Eiríksgötunni
eða á bílastæðunum fyrir framan Landspítalann Háskólasjúkrahús við Hringbraut.
Gallsteinaköst, nýrnagrjót og matareitranir skyldu Eyjamenn eftirleiðis
skipulegggja með lágmark tveggja sólahringa fyrirvara, sem og "bólgur"
í botnlöngum.
Alla langvarandi og erfiða sjúkdóma er að sjálfsögðu BEST að
mæta með í "ofurhraðvirku, ekki nokkurt álag í gangi"-læknaþjónustuna á Landspítala
Háskólasjúkrahús allra landsmanna.
Máski hægt að bjóða upp á "hópferðir" langsjúkra í Eyjum, með Herjólfi
til lækna uppi á landi?
Mætti síðan fá einhvern eldhressan leiðsögumann af suðurlandinu
með "vægan hjartagalla" líka á leið til læknis,
til að spjalla við Eyjmenn í rútunni, og benda þeim á
áhugaverða staði við Þjóðveg 1, og til að fara með gamanmál.
Jamm, húsfreyja bara varð að fá útrás fyrir kaldhæðnina.
En í alvöru.
Húsfreyja er aldeilis rasandi á niðurskurði í
"mergnöguðu" heilbrigðiskerfi.
NIÐUR MEÐ NIÐURSKURÐINN í heilbrigðiskerfinu!
Góðar stundir og baráttukveðjur út í Eyjar.
Starfsfólk mótmælir í Eyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt 7.10.2010 kl. 19:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)