Niður með....

Landsp  ...niðurskurðinn í heilbrigðiskerfinuAngry!

  Húsfreyja hleraði eftir niðurskurðaráætlunum

  þá hún spjallaði við systurdóttur í Eyjum

  í dag, en systurdóttir er starfsmaður

  á þeirra annars ágæta sjúkrahúsi.

  Loka fæðingardeild!

  Loka skurðdeild!

  Fækka legurýmum úr átján í þrettán fyrir sjúka og aldraða.

  Húsfreyju sundlar.

  Síðast þá hún vissi bjuggu nálægt 5000 manns í Eyjunum.

  Samkvæmt síðustu niðurskurðarsnilld heilbrigðisráðherra,

  virðist "enginn" af þessum 5000 mega "fæða" barn í heimabyggðPinch,

  sei sei nei.

  Dúlla sér níu mánuði gengin með Herjólfi nánast "botnslausum"

  upp á sandrif í Landeyjahöfn og vona að hægt verði að bjarga

  barnshafandi konu/konum í land á næsta flóði, og komast þá

  í bifreið/rútu í rúman klukkutíma á Selfoss (ef þar fær

  fæðingardeild að vera í friði) eða rúma 2 tíma til Reykjavíkur.

  Nú eða skella sér í æluferð í 3 tíma í Þorlákshöfn og síðan

  með rútu/bifreið upp á Selfoss eða í borgina við sundin bláu....

  og vona að blessað barnið taki ekki upp á því að koma í

  heiminn í litlum klefa í Herjólfi eða á Þjóðvegi eitt, rétt

  á meðan foreldrarnir dudda sér í rólegheitum og ekki nokkru

  stressi við að koma sér á fæðingardeildinaWhistling.

  Nú ef ljósm...., lækn....hjúkrunarfr.....jæja, bara EINHVER

  heilbrigðisstarfsmaður, sem enn fær að sinna vanfærum konum,

  og hefur ekki fengið uppsagnarbréf nýverið, ákveður að allt sé

  í voða hjá verðandi móður og barni og bráðakeisari sé

  eina lausnin, er alltaf hægt að kalla eftir sjúkraflugi......EF það

  er ekki snarvitlaust veður með 50 metrum á sekúndu á StórhöfðaW00t.

  Og þá spyr húsfreyja:  Hver sker þá, ef búið er að loka skurðstofu,

  og skurðlæknar Eyjanna eru fluttir til Noregs eða í Svíaríki og allt ófært út í Eyjar.

  Hver fær þá að brýna hnífa, og bjarga móður og barniShocking?

  Eða er máske bara búið að spá LOGNI á Stórhöfða næstu tíu árinGetLost?

  En ekki nóg með það, að barnshafandi konur verði

  "frekar óæskilegt vandræðafólk" í Eyjunum, heldur

  verða sjúkir og aldraðir að gæta þess, að

  verða aldrei veikir eða hjálparþurfi nema flestir 13 í einuHalo!

  Og verði þá kannski aðeins innskrifaðir á sjúkrahús Eyjamanna

  föstudaginn þrettánda klukkan 13Devil, og þá ætíð útskrifaðir

  allir sem einn 13 dögum fyrir jól...eða á þrettándanum öðrum kostiTounge?

  Húsfreyja telur að Eyjamenn verði ALVARLEGA að fara að hugsa sinn gang,

  hvað veikindi og sjúkdóma varðarWoundering.

  Sprungnir botnlangar algjört "tabú"Angry!

  Heilablæðingar sömuleiðis sem og flestar stórar innri blæðingar.

  Væg hjartaáföll skulu stíluð upp á sumrin í "bongóblíðu"Halo,

  en stærri hjartaáföll eingöngu í "sumarfríi" í borginni við sundin bláu,

  helst þá sá hjartasjúki er staddur á Eiríksgötunni

  eða á bílastæðunum fyrir framan Landspítalann Háskólasjúkrahús við HringbrautWhistling.

  Gallsteinaköst, nýrnagrjót og matareitranir skyldu Eyjamenn eftirleiðis

  skipulegggja með lágmark tveggja sólahringa fyrirvara, sem og "bólgur"

  í botnlöngumPinch.

  Alla langvarandi og erfiða sjúkdóma er að sjálfsögðu BEST að

  mæta með í "ofurhraðvirku, ekki nokkurt álag í gangi"-læknaþjónustuna á Landspítala

  Háskólasjúkrahús allra landsmanna.Devil

  Máski hægt að bjóða upp á "hópferðir" langsjúkra í Eyjum, með Herjólfi

  til lækna uppi á landiShocking?

  Mætti síðan fá einhvern eldhressan leiðsögumann af suðurlandinu

  með "vægan hjartagalla" líka á leið til læknis,

  til að spjalla við Eyjmenn í rútunni, og benda þeim á

  áhugaverða staði við Þjóðveg 1, og til að fara með gamanmálGrin.

  Jamm, húsfreyja bara varð að fá útrás fyrir kaldhæðnina.

  En í alvöru.

  Húsfreyja er aldeilis rasandi á niðurskurði í

  "mergnöguðu" heilbrigðiskerfi.

  NIÐUR MEÐ NIÐURSKURÐINN í heilbrigðiskerfinu!Errm

  Góðar stundir og baráttukveðjur út í Eyjar.


mbl.is Starfsfólk mótmælir í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband