Færsluflokkur: Bloggar
19.5.2009 | 18:04
Djísuss! Út á þekju....
....hér, húsfreyja!
Gjörsamlega "steikt" í hausnum.
Þegar hún las fyrirsögnina hélt hún
að verið væri að fjalla um Jóhönnu Sigurðardóttur
"forsætisráðherra", og það hve lík hún væri
Scarlett Johanson!!
Gat húsfreyja ekki með nokkru móti hugsað sér
hvernig svo mætti vera,
nema auðvitað að náungi sem slíkt léti frá sér fara
í fjölmiðla, væri með bullandi ranghugmyndir og ofsýnir!
Gaf sér ekki tíma til að athuga málið í kompjúternum fyrr en hún kom
heim úr vinnu, hvernig á þessu stæði með Jóhönnu
forsætisráðherra og Johanson.
Svo var það bara húsfreyja sjálf sem var "kexrugluð" og
með myljandi ranghugmyndir.
Jamm, svona er lífið.
Steikja heilbúið betur í sólinni á vorhátíð átta ára djásnsins næst.
Góðar sólarstundir.
![]() |
Líkti Jóhönnu við Scarlett Johansson |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2009 | 19:25
Var að furða.....
...sig, húsfreyja, á öllum þessum
"afturábak-skokkurum" hérna
upp á listaverkahæðinni í Grafarvoginum
í dag!
Mætti halda að hálf þjóðin væri að reyna
að leysa "alvarleg og erfið verkefni":
"Verður nóg afgangs af laununum fyrir skeini
og einni 2 lítra kók fyrir helgina"?
" Ætlar stjórnin að koma á laggirnar foreldrastyrksnefnd,
svona ala mæðrastyrksnefnd" fyrir barnmargar fjölskyldur?
"Ætli heimilisbílhræið hrynji endilega á mánudaginn....og
eftir að borga myntkörfulán upp á 3 milljónir af því"?
"Verður brjáluð traffík á þjóðvegi eitt í allt sumar"?
"Og það af arfapirruðum löndum sem ekki komast í hefðbundið
2 vikna "slaka-á-í útlöndum-ferðalagið" sitt"?
"Nær verðið á mjólkurlíternum sögulegu hámarki......svo
jafnvel kókið verður ódýrara"?
"Hvernig getur landinn aftur orðið hamingjusamasti
"hryðjuverkamaður" þessarar jarðarkringlu"?
"Eignust við nokkurn tímann aftur "pappírsmilljarðamæringa"?
"Verða frónverskir bankar að eilífu aðhlátursefni alheims,
með eðalgrínarann Dabba kóng í hásæti, aðvarandi "rétt fólk"
um yfirvofandi katastrófur í fjármálaheiminum, og segjandi ekki
hverjum sem er frá svona miklu LEYNDÓ"?
Hehehe....bara missti sig húsfreyja er hún las frétt þessa.
Næsta víst að landinn missi sig í "afturgöngur",
svo trúgjarn sem hann er.......!
Góðar "afturábak-stundir"!
![]() |
Gott fyrir heilastarfsemina að ganga aftur á bak |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 21.5.2009 kl. 09:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.5.2009 | 19:06
ÞAÐ ER SATT!
Jóhanna Guðrún lenti í
í öðru sæti í Eurovision!
Undur og stórvirki.
Húsfreyju fannst lagið "of gott",
og "of vel flutt" fyrir Eurovision-
söngvakeppnina.
Hélt satt að segja að lagið ætti ekki
sjens.
En svo kom Evrópa bara húsfreyju á
óvart og fílaði lagið hennar Jóhönnu
....gaman að því!
Húsfreyja var einnig hrifin af lagi
Aseríbaídjana, en síður því norska.
Bjóst alltaf við bændafólki í fatnaði
frá því um 1967 fram á sviðið að stíga
dans, þá það norska ómaði í eyrum.
En fiðlan var flott og dansarnir góðir
hjá frændum okkar í hinu mikla veldi
norska kóngsins, þótt söngvarinn væri
hálfgerður raulari og lagið svona hvorki fugl
né fiskur.
Taldi húsfreyja að Aseríbadjan myndi vinna
keppni þessa....en sei sei nei!
En alveg brilliant frammistaða hjá Jóhönnu
og hennar söngliði með "Is it true", og landinn
hálfklökkur af þjóðarstolti og sönggleði.
Gott að velgja annað sæti, fyrst við erum með hálfkarað
tónlistarhús við höfnina, sem vart heldur
vatni og vindum, geri strembna vestanátt
með votviðri og 44 metrum á sekúndu á
Kjalarnesinu.
Við svona rétt sluppum fyrir horn hérna!
Norsurum óskar hún innilega til hamingju með
besta evrópska "raularann", sigurinn í Euro....
og sérstaklega til hamingju með að "verða" að
halda keppni þessa að ári....megi þeir ætíð sigursælir
verða, á meðan kreppan ríkir!
En sjálf var húsfreyja í góðum gír þessa Euro-helgi.
Frændurnir, Siggi og Vigri sóttu okkur heim í
næturgistingu.
Báran tók drengina í mikinn búðarleik, seldi þeim
allt gamla þreytta dótið sitt, og hafði af þeim alla þeirra
"peninga".
En þá þeir frændur blankir voru orðnir, klippti Báran bara meira
niður af peningum handa þeim úr gömlum Moggum.
Segið svo að Mogginn sé ekki ætíð velnýttur og fjölnýttur!
Húsfreyja bauð svo liðinu á Stígvélaða köttinn í bíó, daginn eftir.
Öðruvísi teiknimynd með frönskum húmor, en allir höfðu mikið gaman af.
Bara eitt!
Kvikmyndastjóri ákvað að hafa "slökkt" á loftræstingunni á einum
heitasta vordegi litla Fróns þetta árið.
Það voru rjóðir og sveittir krakkar með "rjóðari og sveittari"
foreldra, sem stauluðust út úr Kringlubíói þennan dag.
Allir með glansandi augu, skjögrandi eftir lamandi hitann,
enda litu aðrir Kringlugestir forviða á hóp þennan...og forðuðust
eins og hópurinn væri haldinn illum öndum...eða þaðan af verra:
Væri smitaður af svínaflensunni ógurlegu.
Foreldrar allir og húsfreyja með drógu krakkastóðið út
í súrefnisríkt púst-reykmettað loftið á bílastæðum Kringlunnar,
og þóttust góðir að hafa ekki fengið andarteppu og hitaslag
yfir Stígvélaða kettinum.
Er svo stödd með Bárunni í Þorlákshöfn á öðrum heitum degi.
Kaffi, Scrabble, trampólín og fjör.
Mútta að koma úr Eyjum með Svöluna.
Góðar stundir.
![]() |
Mikil stemmning á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2009 | 17:45
Jaso! Annað Eyjagos?
Húsfreyju er hætt að standa á sama.
Telur sig nú þegar búna með "eldgosakvótann"
í þessu jarðlífi sínu.
Nóg að vakna upp af værum svefni
einu sinni á ævinni, með spúandi eldfjall
í bakgarðinum.
Vill helst ekki þurfa að ganga í gegnum
aðra eins þolraun, sem eldgosið 1973 var.
Missti heimili sitt, húsfreyja, tapaði vinum og skólafélögum út í
hvippinn og hvappinn, tapaði af þrælgóðum
kennurum í Barnaskóla Eyjanna og sjálfum
Eyjunum.
Svo ef Steingrímur gæti nú reynt að vera á örlítið
bjartsýnni nótum...." munum horfast í augun við vandann og
taka á honum"...í stað þess að líkja vandanum við
helvítis, fokking, helvítis eldgos og Viðlagasjóðsendaleysu,
þá liði húsfreyju strax betur.
"Einu sinni er alveg nóg", Steingrímur....ekkert
eldgosakjaftæði og svartsýnisþrugl og "flækjufótar-óvissu-
viljum- kannski- ekki- þessi- úrræði- eða ESB-mun-drepa-okkur.
"Við Frónbúar munum lifa kreppuna af"!
"WE WILL SURVIVE!
Góðar stundir.
![]() |
Hrunið eins og Eyjagosið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2009 | 18:10
Láttu ekki svona manneskja....
....ég kemst þetta einn".
Húsfreyja hélt niðri sér andanum,
þess fullviss að grannvaxni öldungurinn,
sem riðaði í hverju spori, er hann
gekk fram hjá henni með staf sinn,
myndi falla um koll, leyfði hún sér
að anda hressilega frá sér.
Sá gamli, fótafúni var í sínu fínast pússi, í svörtum
jakkafötum, hafði svartan staf með gylltu
handfangi.
"Hmmm.... áreiðanlega kominn á tíræðisaldurinn,
þessi" hugsaði húsfreyja þar sem hún sat á
læknabiðstofunni.
Á eftir honum vokaði áhyggjufull og
tvístígandi kona, á sextugsaldri.
"Sestu hérna pabbi minn", sagði hún við
fótafúna öldunginn, sem hneig niður
í stól og dæsti ergilega: "Hvað er þetta
manneskja? Sérðu ekki að ég er sestur".
Konan settist þögul við hlið föðursins.
Við hlið hennar sat kona, sem vissi ALLT um
læknabiðstofuna!
Vissi nákvæmlega hve lengi þyrfti að bíða eftir doktorum,
eða blóðprufum, hvar átti að ýta á kaffivélina til að fá latte,
hvar kaffi og hvar vatn.
Heklaði í gríð og erg fjólublán trefil, og fræddi
biðstofufólk um gang mála á læknastöðinni.
"Náðu í vatn handa mér manneskja, ef þú vilt
gera eitthvað gagn" hreytti sá fótafúni
geðvonskulega að dótturinni.
Dóttirin stóð upp "med det samme", og fékk
góðar og nákvæmar leiðbeiningar frá
trefilheklandi konunni, við notkun kaffikönnunnar.
Tvær konur og einn karl hurfu á brott úr
biðstofunni á vit lækna og blóðprufa,
og svo heim á leið.
Eftir sátu 4 hræður í biðstofunni, ásamt
húsfreyju.
Dóttir þess fótafúna var enn að vasast í vatninu,
þegar hressilegur öldungur á níræðisaldri
skautst inn.
Breskur veiðihattur sat á efstu hártoppum hans.....
virtist hanga þar af eintómri þrjósku.
"Helvítis trekkur er þetta" ávarpaði hann biðstofufólk.
Skimaði um biðstofuna.
Gat valið um 28 laus sæti, og hlammaði sér
snarlega niður á milli þess fótafúna og
alvitru trefilheklandi konunnar.
Sætið á vinstri hönd þess fótafúna var
fullt af blöðum og dótaríi konu er sat
niðursokkin í blaðalestur einu sæti fjær.
Dóttirin leysti loks "vatnsgátuna" undir
áhugasömum athugasemdum og leiðbeiningum
þeirrar trefilheklandi, og snéri til föður síns
með vatnið.
Ætlaði að tylla sér í sæti sitt við hlið hans.....en úps
þar sat þá sá hressi með þrjóska hattinn.
Gjóaði hún augum vonleysislega á stólinn
með blaðadóti, handtösku og fleira róðaríi,
en sú niðursokkna leit ekki einu sinni á hana.
Dóttirin tvísteig nú vandræðalega fyrir framan
vatnsdrekkandi föðurinn, leit örvæntingafull
í kringum sig, á föðurinn, hressa öldunginn með
þrjóska hattinn og spurði þá trefilheklandi
hvort löng bið væri inn til ákveðins læknis, lágum rómi.
Sú trefilheklandi taldi þann lækni einna minnst
skipulagðan, og gæti biðin orðið allt frá 5 - 60 mínútur....
erfitt að spá.
Dóttirin varð enn mæðulegri, tók við tómu vatnsglasi
frá þeim fótafúna, og henti í ruslið.
Stóð á miðju gólfi með tóm sæti allt í kring, og gaf
þeim eiturhressa með þrjóska hattinn auga.
Sá eiturhressi brosti kankvíslega til húsfreyju,
reif ofan hattinn, svo snjóhvítt hárið stóð í allar
áttir á eftir, þóttist ekki sjá dótturina.
Dóttirin var að kikna undan sætislausa álaginu.
Mundi til allrar hamingju eftir lyfjakorti
föðurins, sem hafði orðið eftir úti í bíl.
Spurði aftur þá trefilheklandi um mögulega lengd
á biðtíma, ítrekaði við föðurinn að bíða eftir sér,
ef læknirinn kallaði hann inn, á meðan hún næði
í lyfjakortið.
Hnussaði í þeim gamla fótafúna.
Dóttirin hvarf á braut, og 30 sekúndum seinna
var sá gamli fótafúni kallaður inn til læknis síns.
Hann stóð snarlega upp, og var óvenju lítið
riðandi í gangi og það þrátt fyrir "helvítis trekk"
á biðstofunni.
Hvarf sjónum biðstofugesta, fyrir horn.
Dóttirin kom lafmóð 6 mínútum seinna með
ekkisens lyfjakortið.
Faðirinn horfinn!
Enginn vissi hvert, ekki einu sinni sú trefilheklandi.
Örvænting dótturinnar varð nánast áþreifanleg.
Sú trefilheklandi var að leiðbeina henni að afgreiðsluborðinu,
þegar húsfreyja og sá eiturhressi með hárið út í loftið,
voru kölluð inn í blóðprufutöku.
Sá hressi hrósaði lífefnafræðingum fyrir fallega
rithönd, og sagðis aðeins einu sinni á ævinni séð
fallega rithönd hjá lækni....og það kvenlækni.
"Var eins og KOPARSTUNGA hjá henni", sagði
sá hressi nú aftur með þrjóska hattinn, og blikkaði
húsfreyju um leið og hann kvaddi.
Húsfreyja nísk á blóð sitt samkvæmt venju, hraðaði
sér á brott 5 mínútum seinna.
Dóttir þess fótafúna stóð enn við afgreiðsluborðið þegar
hún fór fram hjá......!
Jamm, það er hægt að lenda í ýmsum hremmingum
á læknabiðstofum, og ekki heiglum hent að tjónka
við aldraða fótafúna feður á tíræðisaldri.
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt 1.6.2009 kl. 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2009 | 18:45
Vatnsósa brunnin kirkja og það sjöunda.
Húsfreyja datt í góðan krimma
eftir Árna Þórarinsson nú á dögunum.
"Sjöundi sonurinn", er nafnið á þeirri ágætu
bók.
Er bókin bráðskemmtilega skrifuð, og
er að mestu leyti látin gerast á Ísafirði,
þar sem brunavargar og morðingjar vaða uppi
með djöfulgang og læti....og sjöundi sonurinn er
aldrei langt undan.
Og svei, ef húsfreyju er ekki farið að dreyma um
ferðalag til Ísafjarðar eftir lestur þennan.
Í bókinni er einmitt komið svolítið inn á
kirkjubrunann 1987 hjá þeim Ísfirðingum, en
þá gömlu kirkju barði húsfreyja augum á því
herrans ári 1976, frekar en '75 í skólaferðalagi.
Man húsfreyja enn kyrrláta reisn gömlu kirkjunnar,
og þótti gott að kirkjan hinn brunna og gamla,
skyldi tekin niður og "geymd" á góðum
stað, ef til kæmi að bærinn sæi sér fært að
endurreisa hana, þá góðæri skylli á þar vestra.
En lítið hefur ENN bólað á "góðæri", hlutabréfagróða,
kvótasukkeríi eða útrásarfirringu í þeim góða bæ Ísafirði,
þótt dansinn í kringum gullkálfinn hafi verið stíft stiginn hér
á banka- og útrásarvíkingaslóðum.
Og er nú svo komið að kirkjan hin reisulega, en brunna,
er komin á bólakaf í vatn og aur, og næsta víst að
merkingar á kirkjuspítum öllum fari að renna út og eyðast.
Gæti þá reynst efitt að endurreisa gömlu kirkju þessa,
þá kreppa hjaðnar, og Mammon brosir við oss að nýju.
Hund asskoti fúlt allt saman, og ekki ráðlegt að geyma
gamlar reisulegar kirkjur á árbökkum...og það þó þær séu brunnar
niður í frumeindir sínar.
En að öðru.
Sjöundi sonurinn, sem þó er ekki sjöundi sonurinn,
heldur sjöunda barn foreldra kemur þó nokkuð við
sögu Árna.
Húsfreyja var ekki gömul, þá hún heyrði fyrst um
að "sjöundi sonur" eða "sjöunda dóttir" fæddust með
sérstaka hæfileika....séu jafnvel útvalin.
Móðir húsfreyju er "sjöunda" dóttir föður síns, og
leggur jafnan á borð fyrir 5 gesti, þó aðeins 3 komi
í kaffi.
Sver upp á æru og trú, að 5 gesti hafi hún séð,
þó ekki hafi nema 3 þeirra hafi hellt í bolla sína og drukkið kaffið.
Berdreymin er hún sömuleiðis, og hreinlega dreymir
atburðina eins og þeir gerast.
Hér á landi skiptir það yfirleitt foreldra litlu,
hvort þau eignast drengi eða stúlkur.
Flestöll börn velkomin og elskuð, alveg óháð kyni.
En svo var húsfreyja að lesa um manngarm,
föður á Indlandi sem er allóhress með það
að eiga "aðeins" 7 dætur.
Svo miður sín er maðurinn að hann hefur eigi
þvegið af sér skítinn í 35 ár.
Og það þó að "sjöunda dóttirin" hafi sérstaka
hæfileika...sé jafnvel "útvalin".
En þrátt fyrir 35 ára "skítsöfnun" hefur manni
þessum ekki tekist að eignast dreng.
Telur húsfreyja að dæturnar hljóti að hafa erft
"nefsjúkdóm" frá móðurinni, og hafi þær ekkert
lyktarskyn, á meðan stenkurinn af föðurnum
nær svo alla leið upp í "Sólarlandið allra ófæddra barna".
Þar sem mögulega, væntalegir synir hans eru "grænir"
á hörund af lyktarmengun, og því sífellt að fresta
"för" sinni niður til móður jarðar, og í hendur
indverska föðursins.
Jamm, en þetta var svona flogið úr einu í annað....
og mest upp á grín.
Góðar stundir.
![]() |
Gamla Ísafjarðarkirkjan umflotin vatni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2009 | 12:59
Fær fólk hjartaslag...
....vegna "reikninga" sem læðast
inn um bréfalúgur?
Húsfreyja hefur nú hjúkrað veiku
fólki í hartnær 24 ár, en aldrei rekist
á það fyrr að "reikningar" séu taldir
áhættuþáttur hjartasjúkdóma.
Stress hefur hún heyrt um, og vissulega verða
margir stressaðir þá reikningar hlaðast upp ógreiddir.
En að "...dregið hafi úr reikningum" hafði húsfreyja ekki
fregnað, eins og segir í frétt þessari.
Koma allir eftir sem áður inn á netbanka hennar, og
rukkarar allir alveg rasandi arfavitlausir, dragi húsfreyja
það einn dag að borga.
Dráttavextir, þjónustugjöld, hótanir um lögsókn og hvað ekki,
sé reikningur "geymdur" í mánuð fram að næstu útborgun!
Reyndar hefði húsfreyja talið að nú síðustu mánuði,
væru "fáránlega" háir reikningar okkar landsmanna
fyrst orðnir kransæðastífluvaldandi andskotar.
En máske jafnast himinhár "reikningsblóðþrýstingurinn" út
þá menn taka að hoppa og skoppa um af bræði og stressi,
rífandi í hár sér, ákallandi "þann í neðra" sér til fulltyngis í
baráttunni við kreppusljótt lið í bönkum og á Alþingi, þá þeir
berja reikninga sína augum.
Það er jú bísna góð "hreyfing".
En læknavísindin eru alltaf að koma með eitthvað nýtt,
svo kannski eru menn þar búnir að rannsaka í tætlur
áhrif "reikninga" á hjartastarfsemi vora.
Bara eitt!
Yfirleitt er byrjað að rannsaka "rottur og apa" áður
en byrjað er að rannsaka mannfólkið sjálft!
Vart hefur það verið hægt í "reikningaáhrifum-á-hjarta"-rannsókninni.
En hjartanlega góðar stundir um helgina.
![]() |
Dánartíðni vegna hjartasjúkdóma hefur minnkað um 80% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2009 | 21:33
2009 versus 1989.
Á því herrans ári 2009, ber ýmislegt
fyrir augu á fréttasíðum málgagnanna.
Ef marka má "Moggann" hinn eina og sanna,
í dag 9. maí 2009, er "upploginn ísbjörn af "skrítnu norðlensku ætterni",
svínaflensa í Norsurum, kreppuaðgerðir
hálfskapaðrar ríkisstjórnar, söngvaseiður Pútins
og angrandi salernisferðir, aðalmálið!
Og dagana þar á undan kom einnig "Ísbjargar-málið" (þ.e Icesave)
hans "Mister Brúns" í Bretaveldi ásamt Eurovision söngvakeppninni
sterk inn.
Flaug þá húsfreyju í hug, hvað við hefðum verið að brasa
hér upp á litla Fróni fyrir einum 20 árum síðan.
Hvað var eiginlega í gangi hér úti á ballarahafi,
á okkar litlu eyju árið 1989?
Jú, Gúmmivinnustofan brann til kalda kola,
með gassprengingum og djöfulgangi.
Hemmi Gunn var skotin í Elsu Lund.
"Strákarnir okkar" í handboltanum unnu gullið
í "B-heimsmeistarakeppni" í París.
"Bjórdagurinn" hinn eini og sanni rann upp
bjartur og fagur, öldrykkjumönnum öllum til sannrar
gleði og ánægju.....og bjórinn vart runnið af mönnum síðan
hér á litla Fróni....en þynnkuna daginn eftir ræðum við ekki frekar
en "hvenær" fyrrum auðmenn okkar Frónbúa, munu skila
okkur "földum" eða "uppgufuðum" milljörðum íslenskra króna.
Sovéskir sjómenn voru brjálaðir í "gömlu Lödurnar" okkar,
og sá mikli heilagleiki Ólafur Skúla varð biskup....jamm, eigum
við að ræða þetta eitthvað?
Þrjátíu og fimm höfðu látist af völdum berkla, frá því '75
og fimm úr "eyðni"....gamalt orð yfir alnæmi.
Valgeir og Daníel fengu heil "0" stig í Euro
fyrir lagið "Atkvæðin sem engin sá".....nei, smá
innsláttarvillur hér..."Það sem engin syng...nei, sér".
Páfi allra heilagra katolikka, Jóhannes Páll páfi annar,
kom og messaði fyrir húsfreyju, þar sem hún stóð
á svölunum á gjörgæsludeildinni á Landakoti,
og fór svo og blessaði hið fornheiðna Alþingi á Þingvöllum.
Jói Kalli Spánarkóngur vísiteraði og fór með Viggu forseta
í Kringluna og kaffihús Myllunnar.....ooooo...Myllan...namm
heit rúnstykki með íslensku smjöri og osti....snökt...hvar
er Myllan nú?
Flugfreyjur stóðu í harðvítugum kjaradeilum.
Ásteitingarefnið voru fatapeningamálin...þær
voru bara með helvíska frekju og ósanngirni
freyjurnar, og heimtuðu heilar "tvennar sokkabuxur"
FRÍTT!
Það gátu samningamenn aldeilis ekki sætt sig við,
svo útkoman varð "einar fríar nælonsokkabuxur".
Fríir sokkar handa flugþjónum fengust ekki einu sinni ræddir!
Allt fór til helvítis í Húnaveri um verslunarmannahelgina,
á meðan allt var þokkalega rólegt á þjóðhátíð í Eyjum.
Sprengjumaður fór á kreik í miðbæ höfuðborgarinnar við
sundin bláu, en síðustu tveir sveitasímarnir hurfu
á óminnisbraut í Arnarfirði.
Dabbi kosinn vara í "bláa flokknum", en Jón Baldvin
varð æstur í kampavín....skellti sér á einar 106 flöskur
til að halda upp á afmæli vinar síns.
Hrikaleg glæpamál voru leyst:
Lögreglan í Reykjavík var kvödd að húsi einu
í borginni um sexleytið í gærmorgun til að
fjarlægja óboðinn gest sem áreitti húsráðanda.
Var hér á ferðinni fiskifluga nokkur, sem truflað
hafði svefn hans. Sá lögreglan engin önnur ráð en
að bana fluguhelvítinu.
Víkingasveit lögreglunnar var síðdegis í gær kölluð
að húsi við Karfavog. Þar hafði maður lokað sig inni,
og sagðist vopnaður skammbyssu. Eftir hálfrar
klukkustundar umsátur gafst maðurinn upp og
kom út úr húsinu. Kom þá í ljós að "byssan"
svokallaða var "kertastjaki".
Francois Mitterand kom og vísiteraði, og salmonella komst í
10.000 sviðahausa (engin tenging milli þessara tveggja frétta).
Og hafnar voru umræður um að stækka álverið í Straumsvík,
og síðast en ekki síst, hinn arfavinsæli virðisaukaskattur
var tekinn upp!
Jamm, svona er nú árið 1989 í huga húsfreyju, og svei
ef það kemur bara ekki þokkalega út í samanburði
við árið 2009....svona það sem liðið er af því.
Einhvern veginn svolítil "nostalgia" í gangi við
upprifjun á atburðum þessa löngu horfna árs.
Vorum við Frónbúar betra fólk árið 1989?
Höfðum við betri húmor?
Vorum við oftar edrú?
Voru nælonsokkabuxur og fiskifluguvargar stórmál hér á landi?
Jamm, ekki laust við að húsfreyju renni ýmislegt í grun.....
Góðar stundir á árinu 2009, megi allar ykkar fiskiflugur
vera hljóðlátar á næturnar, og sokkabuxurnar ykkar
lykkjufallslausar!
![]() |
Ísbjörninn blekking |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2009 | 14:06
Gufuðu upp!
Þrjú hundruð og nítíu milljarðar!
Gufuðu upp!!????
Hvert?
Eru þeir í gufuhvolfinu á
braut um jörðu, í frumeindum sínum?
Lottóvinningur geimfara með
gott lím í farteskinu?
Komnir inn á "ósýnilega" reikninga
í bönkum Bora Bora eða Tonga?
Eða voru þeir máske aldrei til í alvörunni?
Svona að öllum líkindum, líklegur, mögulegur
gróði, ef bestu mögulegu fjármálaaðstæður
ríkja á móður jörð?
Furðulegt, svo ekki sé meira sagt.
Hafi peningar þessir verið "áþreifanlegir"
og raunverulegir, hefði húsfreyja haldið
að einhvers staðar myndu þeir dúkka upp.
Annað eins pappírsflóð gæti ekki farið fram
hjá neinum.
En altént hafa 390 milljarðar þessir ekki
dúkkað upp í nítíu og eins fermetra íbúð
húsfreyju....þá byggi hún nú niðri í bílskúr sínum
með sína herlegu skuldsettu visitölufjölskyldu,
hefðu þeir gert það.
Og það bara vegna plássleysis í íbúðinni, með
peningabúnt í stöflum upp í loft.
Eitt er víst að milljarðar þessir hafa vart
verið "vind- eða vatnsheldir" fyrst þeim
tókst að "gufa upp"!
Máske prentaðir með ósýnilegu bleki á
"sjálfseyðandi" pappír ala James Bond!
Hvað veit maður?
En þeir sænsku eru einnig heitir út í
"Brúnann" Bretanna, fyrir að rústa
Kaupþingi.
En Kaupþing átti töluverð ítök í
fyrirtækjum hinna sænsku, og situr nú margur
Svíinn eftir með sárt ennið og fjármál sín á tjá og tundri.
Svona eins og flestir Frónbúar um þessar mundir.
En "hryðjuverkamanna" -titilinn fá engir frá
"Brúnum", nema við Frónbúarnir.
HEPPNIR?
![]() |
Hundruð milljarða gufuðu upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.5.2009 | 18:07
Heiladoðaherðavöðvabólgunefstíflu-syndróm..
...að hrjá húsfreyju þessa dagana...
vikurnar...mánuðina!
En þar sem hún er sjálfsagt
sjúklingur númer 1.699 hjá
heimilislækni sínum...ef ekki bara
númer 1.700, þá lætur hún það
vera að vísitera hann út af þvílíku og
öðru eins smotteríi!
Fréttablaðið var með þessa líka ágætu frétt
á forsíðu í dag, þar sem sagði að einar
"120 hræður" stunduðu heimilislækningar hér
í borginni við sundin bláu.
Sem þýðir eina "seytján hundruð" sjúklinga
á mann...AÐEINS!
Þannig að fáir þú stæka pest, bronkítis og
svo mergjaða lugnabólgu í kjölfarið, sem ætlar
þig lifandi að drepa, er best að leita til spákvenna
eða spámanna reglulega.
Fá þau til að spá um "heilsufarið"...svo hægt sé að panta tíma
hjá heimilislækni í tæka tíð...nú eða drepast
öðrum kosti.... og/ eða í versta falli leita sér aðstoðar
á læknavaktinni og næla sér þar með í einar 2 tegundir
af uppsölu-og niðurgangspestum ásamt hlaupabólu,
rauðum hundum, barkabólgu og gyllinæð (af langri setu) á biðstofunni.
Og þar sem alltaf er svo rólegt og "huggó" á
heilsugæslustöðvunum, nánast "kósý" af móskulegu,
vírus-mettuðu andrúmsloftinu með dassi af bakteríum á sveimi,
þá er auðvitað aðalmálið að "skera niður" allhressilega
í þjónustu heilsugæslustöðva.
Má alveg "þykkna" töluvert andrúmsloftið niðri á
læknavakt...altént þar til þarf að "klippa það eða skera"
til að komast að afgreiðsluborðinu!
Jamm, glæsilegar heilbrigðishorfur hjá íbúum
borgarinnar við sundin bláu.
En svo getið þið bara gert eins og húsfreyja:
Vonað að lasleikinn sé bara slæmt tilfelli af
"heiladoðaherðavöðvabólgunefstíflu-syndrómi"
sem ætíð skánar við hækkandi sól og hlýtt veður af sjálfu sér....
....og setja fingur í kross að þetta sé ekki helvísk "svínaflensan"
að læðast aftan að manni.
Óskar húsfreyja löndum sínu góðra og heilsusamlegra
daga, og megi þeir allir hitta sinn heimilislækni a.m..k
einu sinni á ári.....í Bónus í Kringlunni.
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)