ÞAÐ ER SATT!

1c07fb6e31d7100217bd98bbead71585  Jóhanna Guðrún lenti í

  í öðru sæti í Eurovision!

  Undur og stórvirkiW00t.

  Húsfreyju fannst lagið "of gott",

  og "of vel flutt" fyrir Eurovision-

  söngvakeppnina.

  Hélt satt að segja að lagið ætti ekki

  sjensWhistling.

  En svo kom Evrópa bara húsfreyju á

  óvart Wink og fílaði lagið hennar Jóhönnu

  ....gaman að því!

  Húsfreyja var einnig hrifin af lagi

  Aseríbaídjana, en síður því norska.

  Bjóst alltaf við bændafólki í fatnaði

  frá því um 1967 fram á sviðið að stíga

  dans, þá það norska ómaði í eyrumHalo.

  En fiðlan var flott og dansarnir góðir

  hjá frændum okkar í hinu mikla veldi

  norska kóngsins, þótt söngvarinn væri

  hálfgerður raulari og lagið svona hvorki fugl

  né fiskur.

  Taldi húsfreyja að Aseríbadjan myndi vinna

  keppni þessa....en sei sei nei!

  En alveg brilliant frammistaða hjá Jóhönnu

  og hennar söngliði með "Is it true", og landinn

  hálfklökkur af þjóðarstolti og sönggleði.

  Gott að velgja annað sæti, fyrst við erum með hálfkarað

  tónlistarhús við höfnina, sem vart heldur

  vatni og vindum, geri strembna vestanátt

  með votviðri og 44 metrum á sekúndu á

  KjalarnesinuLoL.

  Við svona rétt sluppum fyrir horn hérnaWhistling!

  Norsurum óskar hún innilega til hamingju með

  besta evrópska "raularann", sigurinn í Euro....

  og sérstaklega til hamingju með að "verða" að

  halda keppni þessa að ári....megi þeir ætíð sigursælir

  verða, á meðan kreppan ríkirTounge!

  En sjálf var húsfreyja í góðum gír þessa Euro-helgi.

  Frændurnir, Siggi og Vigri sóttu okkur heim í

  næturgistingu.

  Báran tók drengina í mikinn búðarleik, seldi þeim

  allt gamla þreytta dótið sitt, og hafði af þeim alla þeirra

  "peninga"Devil.

  En þá þeir frændur blankir voru orðnir, klippti Báran bara meira

  niður af peningum handa þeim úr gömlum MoggumGrin.

  Segið svo að Mogginn sé ekki ætíð velnýttur og fjölnýttur!

  Húsfreyja bauð svo liðinu á Stígvélaða köttinn í bíó, daginn eftir.

  Öðruvísi  teiknimynd með frönskum húmor, en allir höfðu mikið gaman af.

  Bara eitt!

  Kvikmyndastjóri ákvað að hafa "slökkt" á loftræstingunni á einum

  heitasta vordegi litla Fróns þetta árið.

  Það voru rjóðir og sveittir krakkar með "rjóðari og sveittari"

  foreldra, sem stauluðust út úr Kringlubíói þennan dag.

  Allir með glansandi augu, skjögrandi eftir lamandi hitann,

  enda litu aðrir Kringlugestir forviða á hóp þennan...og forðuðust

  eins og hópurinn væri haldinn illum öndum...eða þaðan af verra:

  Væri smitaður af svínaflensunni ógurleguPinch.

  Foreldrar allir og húsfreyja með drógu krakkastóðið út

  í súrefnisríkt púst-reykmettað loftið á bílastæðum Kringlunnar,

  og þóttust góðir að hafa ekki fengið andarteppu og hitaslag

  yfir Stígvélaða kettinum.

  Er svo stödd með Bárunni í Þorlákshöfn á öðrum heitum degi.

  Kaffi, Scrabble, trampólín og fjör.

  Mútta að koma úr Eyjum með Svöluna.

  Góðar stundir.

 

  

  


mbl.is Mikil stemmning á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband