Færsluflokkur: Bloggar
8.6.2009 | 18:00
Kúnni hefur þótt....
...fyrrum innanríkismálaráðherra,
hann David Blunkett hinna bresku, eitthvað ógnandi...
og máske bæði "kýrfættur og kýrskýr".
Og ef til vill fundist hann koma eins og "innan úr kú",
og þar hefur auðvitað "hnífurinn staðið í kúnni",
svo sú ferfætta hefur ráðist til atlögu við kauða!
Hehehe...margt er undarlegt í kýrhausnum...en kannski kú þessi
hafi verið af frónverskum ættum og hafi verið að "mótmæla"
"terroristanafnbótinni" hans Mister Brown.
En gott að Blunkett lifði atgang þennan af, og vonandi
hefur blindrahundirinn sloppið vel líka.
"Kýr eru viðkvæm dýr, Siggi" sagði Tobbi á Kirkjubæ
eitt sinn við föður húsfreyju, þá faðirinn bað um að mega
sýna stelpuskottunum sínum nýfæddu kálfana á Kirkjubæ
í Eyjum.
"Komdu með þær þegar kálfarnir eru komnir á tún, vil ekki
missa úr greyjunum nytina, sem fengu kálfa í vor"!
"Þola svo illa hávaða og umstang, blessaðar".
Húsfreyja, þá lítil 7 ára skotta, varð ægilega sár, því ekki
voru lætin eða óhljóðin í henni þá hún skoðaði ungviðið.
Annað mál með 2 ára tvíburasysturnar, sem veltust
skríkjandi, kallandi og hlæjandi í heyinu við hlöðuna.
En Tobba varð ekki hnikað, og húsfreyja reyndi aldrei
framar að fá að kíkja á kálfa á Kirkjubæ.
Í Dalbúið í Eyjum plataði hún föður sinn tvívegis, þar sem
hún barði nýborinn kálf augum í fyrsta sinn á ævinni.
Gat ekki séð að kúnnum væri neitt illa við það þó hún
klóraði ungviðinu og gældi við, ef hún gleymdi ekki að
gera slíkt hið sama við "mömmurnar"!
Var mikill dýravinur húsfreyja, strax barn að aldri,
og hefði breytt húsi foreldra sinna í "Örkina hans Nóa"
hefði fengist til þess leyfi og vilyrði foreldra og afa!
Afann sinn hafði hún alveg í vasanum, en eitthvað
voru foreldrarnir erfiðari.
VESEN!
Mátti enga flækingskettlinga eiga, ekki fýlsunga með
"ælupest", né heldur lundapysjurnar sem hrundu af
himnum ofan öll síðsumur í heilu bunkunum.
Mátti ekki einu sinni "ættleiða heimilshundinn"
í götunni fyrir neðan, þótt garminum leiddist ógurlega
bundinn við snúrustaur.
Folöld voru "út"!
Kálfar "út"!
Lömb "út"!
Hundar, kettir, hamstrar og mýs allt saman "út"!
Húsfreyja var "dýrasjúk", en fékk engin dýr inn á
heimilið nema "páfagauka"........
Og þeir "bitu fingur", görguðu og gátu ekki skroppið frjálsir
út í sól og súrefni, án þess að týnast og steindrepast!
Jamm voru hörð og grimm "dýraárin" í bernsku húsfreyju....
reddaði henni alveg hve gaman var að vera til, og hve sjaldan
heimilispáfagaukarnir náðu að bíta fingur hennar.
En nú stendur yfir mikil sumarvinna á heimili húsfreyju.
Grannarnir mála sem óðir séu, en bóndi húsfreyju vokar
pirraður innandyra, axlarbrotinn og ómögulegur.
Vill út að mála eins og hinir, en fær verk við það eitt að
hnerra.
Húsfreyja stakk því að bónda að hann gæti farið og "hrært"
í fötunum fyrir þá......bónda var ekki skemmt.
Sumar, sól, axlarbrot og "aðrir" að mála húsið þitt virðist vera
mjög slæm blanda fyrir karla á besta aldri.
En elda kvöldmat næst.
Góðar stundir.
![]() |
Þingmaður varð fyrir kú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2009 | 20:30
Mia litla....
..múmíálfanna, gæti vel tekið að sér hlutverk
"tortímandans".
Er svona ekta "massívur karakter" sem
sífellt kemur á óvart.
Og skapið maður.....vóv!
Hemúlinn á ekki sjens.
Nema ef "fórnalömbin" væru plöntur eða
fiðrildi...þá væri sko Hemúllinn upprifinn og æstur.
Múmísnáðinn?
Nah...of vænn...en gæti leikið fórnarlamb.
Snorkstelpan líka....."ooooo.. snökt, þessi
tortimandi er verri en "hattífattarnir" sem brenndu
burt á mér hártoppinn....snökt...snýt ...grát".
Hehehe, skondið að fá Múmiálfa í vandræðagangi
í stað Tortímandans eina og sanna....ekki það
að "upphaflegi" leikarinn í Totímandanum, hefði
sómt sér bísna vel meðal Múmíálfanna.....
"I'll be back, Snorkstelpa"!
![]() |
Múmínálfar í stað Tortímandans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.6.2009 | 18:12
Rífandi vöruskipti komin í gang?
Og það milli Tíbet og litla Fróns
.
Getum máske fengið heilan helv...helling
af síðum og góðum treflum fyrir veturinn
þá frostið nístir og bítur kinnar frónverskra
barna, kvenna og karla.
Gæti kannski reddað okkur frá svínaflensunni
ægilegu, sem nú veður uppi með djöfulgangi
og látum: Heill "einn" einstaklingur hér á litla Fróni sem hefur sýkst!!
Í staðinn ruslum við einhverju af hraungrýtinu á Þingvöllum
austur til Tíbet ( eigum margra alda birgðir af hraunmolum
þar í alfriðaðri "geymslu"), og fáum flinkar mæður okkar og ömmur til
að hekla slatta af sjölum með.....nú eða verslum þau
ódýrt í Kína.
Muna þá bara að fjarlægja "Made in China" miðann
svo ekki standi illilega í munkum hárra fjalla Tíbets,
þá þeir vefja sig íðilfögrum sjölunum!
Hehehe.....húsfreyja meinhorn í dag.
Henni nefnilega tjáð af "innanhússmálara"
að deild hennar yrði máluð, því von væri á
Dalai Lama.....svei, ef húsfreyja var örugg á því hvort
þetta var grín eður ei.
Húsfreyja stendur um þessar mundir á öndinni (gæsinni og rjúpunni)
af annríki í vinnu, og hefur hvorki tíma til að
fara út að róta eftir hraungrjóti á Þingvöllum, né heldur hekla sjöl
svo hún geti tekið sómasamlega á móti Lamanum, skyldi
hann reka inn nefið!
Stumrar svo yfir axlarbrotnum bónda heima og sinnir
dótturinni og húsverkunum.
Gæti máske reddað einu létt saurmenguðu grjótsýni
úr fjörunni við Geldinganesið og köflóttum eldhúsdúk
ef mikið lægi við, en það yrði þá líka að duga fyrir Lamann.
Nei, í alvöru er bara ágætt að einhver gefi sér tíma
til að spjalla við okkur Frónbúana um kærleik og frið,
á tímum búsáhaldabyltingarinnar.....mótmælendur
berja þá máske pottana mjúkar næst.
Og vonar húsfreyja að Lama njóti sín sem allra best
hér hjá "snarvitlausu fólki í peningamálum" sem stundar
hryðjuverk í hjáverkum hjá "Brúnum" í Stóra Bretaveldi,
og sé hann ætíð velkomin hér á norðurslóðir með boðskap sinn!
Góðar og kærleiksríkar stundir.
![]() |
Dalai Lama í Alþingishúsinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2009 | 13:55
Friðsöm stund....
með friðsömu fólki.
Bara gott mál.
Jú jú, víða pottur brotinn
í þjófélagi Lamans á hans heimaslóðum,
og jafnréttismál svona í "heldur slökum" gír.
En friðarboðskapur á ætíð rétt á sér, og
og gott að fá allsherjarfriðarstund hér
uppi á okkar litla kreppuþjáða Fróni.
Veitir ekki af!
En húsfreyja ætlar að stússa í mestu friðsemd
í kringum axlarbrotinn bónda sinn, og athuga hvort
ekki náist að ryksuga og skúra einn umgang á
hiemilinu í kærleika og ró.
Friðsamar og kærleiksríkar stundir.
![]() |
Samtrúarleg friðarstund í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2009 | 12:42
Svört regnhlíf!
Það var spenningur í lofti.
"Mamma erum við að fara"?
Átta ára djásnið tvísteig og skoppaði til og
frá í forstofunni.
Húsfreyja á leið með hana á mikla hátíð
niðri í Húsdýra-og fjölskyldugarði í boði
stöðvar 2, á laugardegi.
Jú, húsfreyja að verða klár, þótt henni litist
miður vel á veðrið: Úðarigning.
En lago, smá rigning skemmir engan.
Bóndi húsfreyju skyndilega fyrir "regnfatadúðari"
húsfreyju.
"Þessi er í lagi", segi hann og opnar svarta regnhlíf...
......aaaaarrrggh INNANDYRA!
Vestmanneyiska hjátrúargenið húsfreyju tók flikk flakk
aftur á bak af skelfingu.
ALDREI OPNA REGNHLÍF INNANDYRA, BOÐAR ÓGÆFU EÐA
ÓHÖPP...rödd móður húsfreyju ómaði í eyrum hennar.
Húsfreyja dró djúpt andann: "Bara hjátrú, minn maður trúir
ekki á svona þrugl, segir hann....".
Húsfreyja kyngdi "óhapparæðunni um opnar regnhlifar
innandyra", tók við regnhlífinni og af stað brunuðu
mæðgurnar í mannmergð og fjör.
Sveppi og Villi voru í ham, þá mæðgurnar mættu.
Örlítill úði.
Húsfreyja dró ekki upp regnhlífina fyrir úða þennan, og þegar sólin
braust fram úr skýjum stuttu síðar, gleymdi hún henni snarlega
í tuðru sinni.
Skoppa, Skrítla, Hrefna Idol, trampolín-hopp, grátur yfir 2 tíma löngum
biðröðum í pylsur, kandýfloss og kók, reddingar með ís og nammipela,
meira trampolín-hopp, lítil lömb og svo Sveppi, Villi osfr. - allt prógrammið
tekið í annað sinn.
Bóndi hringdi.
Útskriftarveisla í Mosfellsbæ.
Fósturdóttir búin í kærastafríi, allt í lukkunar velstandi
hjá þeim hjúum enn og aftur.
Gjöfin innpökkuð.
Fín veisla.
Alúðlegt og notalegt fólk.
Góður pinnamatur.
Rauðvín og hvítvín handa "ekki-bílstjórum".
Húsfreyja ók heim.
Sest niður yfir bíómyndum í sjónvarpi og spjalli.
Síminn hringdi um tíuleytið um kveldið.
Samstarfsmaður bónda þurfti vinnubíl hans að láni.
Bóndi tók vel í það.
Sagði húsfreyju að hann skryppi niður í bílskúr að
græja bíl og bíllykla.
Tíu mínútum síðar mætti bóndi aftur.
Hvítari en snjór í andliti
Stór skurður fyrir ofan annað augað.
Verkur í öxl og veigraði sér við að hreyfa handlegg.
Hafði dottið við húshornið, skellt höfðinu í, fallið á stéttina og
var allur undinn, skjálfandi og verkjaður.
Haukfrán hjúkkuaugun horfðu stutta stund á bónda,
þar sem hann þrjóskaðist við að ræða ferð
til læknis.
Kvað upp sinn dóm: "Þú er axlarbrotinn, karl minn,
og við erum að fara niður á slysó með þig....NÚNA"!
Bóndi maldaði í móinn fyrir daufum eyrum húsfreyju.
"Er ekkert brotinn...kannski farinn úr axlarlið".
Húsfreyja skellti skollaeyrum við mótbárum bónda.
Og á slysó fór húsfreyja með fjölskyldu sína.
Bóndi að sjálfsögðu axlarbrotinn, innpakkaður í strokk
með fatla og sendur heim stútfullur af verkjalyfjum.
Svörtu regnhlífina rak húsfreyja svo augun í, enn í tuðru hennar
um klukkan tvö aðfararnótt sunnudags, þegar fjölskyldan
var loks að koma sér í rúmið.
"Fjandakornið"!
"Það skyldi þó aldrei vera......"?
Húsfreyja tróð regnhlífinni vonskulega ofan á
botn í dýpsta skókassa sínum frammi í forstofu.
"Bara verð að ræða þetta betur við bónda um að vera ekki
opna svartar regnhlífar INNANDYRA" hugsaði hún svekkt!
"Jamm, en máske ég bíði þar til hann GETUR aftur opnað
regnhlífar yfirhöfuð".
En húsfreyju er vísast að fara að stumra svolítið yfir
axlarbrotnum bónda, "vil-ekki-fara-í-frístundaheimilið-á
morgun"-vælandi dótturinni, og "athyglisjúkum ketti með flær"!
Taka svo smá pásu frá þeim störfum í allsherjar þrif á íbúðinni.
Jamm, húsfreyju fellur alltaf eitthvað til!
Góðar stundir....og PLÍS ekki vera að opna
SVARTAR REGNHLÍFAR INNANDYRA þetta sumarið!!
Gæti annars orðið algjörlega "axlardautt" sumar!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2009 | 18:05
Veldur vonbrigðum!
Krónan?
Eru þetta fréttir?
Er einhver hér uppi á litla Fróni
sem hefur undanfarið svifið um á himnesku sæluskýi,
af einskærri lukku yfir voru frónversku krónu?
Hverjir þá?
Haarderinn og Dabbi máske?
Menn í felum á "útrásareyjum" á ónefndum
eyjum suður í höfum?
Húsfreyja vill gjarna berja þessa einstaklinga
augum, "séu þeir þá til" og biðja þá um að
útskýra gleði sína og hamingju yfir krónunni fyrir
"terroristaþjóðnni með vitlausa peningagenið"!
Sjálf mælir húsfreyja með, að Frónbúar taki
sér íbúa Gloucester í hinu mikla breska veldi
til fyrirmyndar, og komi af stað almennilegri
"rúlla niður hæðina á hausnum-keppni"!
Að vísu rúlla þeir snjöllu Gloucesterbúar
á undan sér sérlegum gæðaostum áður en þeir
rúlla sér á höfðinu niður Coopershæð, en við hér á Fróndi myndum að sjálfsögðu
rúlla "frónverskum" krónum beina leið frá Seðlabankanum
niður Arnarhól, og alla leið niður á Lækjartorg.
Má svo brúka krónuruslið í bræðing í næstu
riddaraorður og þess háttar dótarí.
Góðar stundir.
![]() |
Krónan veldur vonbrigðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.5.2009 | 12:12
Fasteignasala sjávarins?
"..sem búinn er að KAUPA
einbýlishús".
Hvað varð um orðið "úthlutun"!
Rámar húsfreyju í að útgerðafélögum
hafi verið "úthlutaður" kvóti hér í den!
Veit ekki húsfreyja um nokkurn frónbúa
sem hefur fengið "úthlutað" einbýlishúsi.
Meira segja Eyjamenn með yfirhraunuð hús
eða mauksoðin árið 1973, urðu að kaupa sér
nýtt þak yfir höfuðið.
Viðlagasjóðshúsin sem norðurlandaþjóðir "gáfu"
Eyjamönnum, máttu þeir svo kaupa af ríkinu.
Setja brunabótabæturnar upp í og taka svo
40 ára húsnæðismálalán fyrir afgangnum.
Jamm, enginn einbýlishúsaúthlutun þar!
En gott og vel!
Útgerðarfélagið er "einstaklingur" sem fær
"úthlutað" 200 fermetra einbýlishúsi með kjallara.
Húsið er með þeim eiginleikum, að verkamenn bera sífellt
í það heilu haugana af steinsteypu, járni, timbri, gluggum og hvað ekki,
svo eigandi getur jafnvel selt heilu og hálfu herbergin
nú eða smáhýsin ef svo ber undir.
Gróðann setur eigandinn að sjálfsögðu aftur inn
í rekstur og viðhald á "úthlutuðu" einbýlishúsi sínu...
(borgar verkamönnunum laun fyrir að bera í hann meira
af "byggingarefnum" og sjá um "viðhaldið" á húsi hans)
og auðvitað smá pening í eigin vasa fyrir mat úr Bónus
og fatnaði úr Hagkaup á sig og fjölskyldu sína.
En merkilegt nokk, þá virðist "þrengja mjög" að
einbýlishúsaeigandanum er fram líða stundir.
Svo hann fer í það að taka lán og kaupa
steinsteypu, timbur, járn osfr. af öðrum
náunga sem á úthlutað einbýlishús,
og skellir ofan á hús sitt og gerir reisulega
200 fermetra rishæð með "skylights" og hverju ekki.
Svo nú er manni orðinn skuldugur upp fyrir haus,
en er samt með kjallarann og neðri hæðina í
nokkuð öruggum gróða, en þarf að brúka góðan slatta
af honum í lánið af rishæðinni.
Langi nú manninn í flatskjái í 2 herbergi af "sínu"
myndarlega einbýlishúsi, 4 vikna afslöppun til Florida
með fjölskylduna árlega, skíðaferð til Sviss í 3 vikur árlega,
sumarhús (lágmark 170 fermetra) á besta stað á litla Fróni,
12 milljón króna jeppa í fjallaskrepp,
fjölskyldubíl, frúarbíl, vinnubíl og einn handa 17 ára unglingnum,
billiardherbergi fyrir sjálfan sig eftir strangan vinnudag og
sundlaug og sauna fyrir frúna, geta svo lánsmálin undið
upp á sig.
Og skuldirnar vaxa!
Og vaxa.
Jamm, og svo allt í einu vilja "einbýlishúsaúthlutunaraðilar"
fá kjallaran sinn og neðri hæðina aftur.
Bara sisona!
Að vísu aðeins eitt herbergi til að byrja með,
og gefa "húseiganda" smá ráðrúm til að breyta
tómarýminu í grillsvalir....eða jafnvel selja græjurnar
í billiardherberginu.
En húseigandi er fúll!
Grautfúll!
Skuldar of mikið.
Jafnvel búinn að veðsetja allt húsið....
úthlutuðu eða viðbættu.
.... ..... ...... ..... .......
Einfaldaðir hlutirnir allverulega hér hjá húsfreyju,
en ekki algalnir.
Jamm, "fasteignasala" sjávarútvgsins er
stórmerkileg, svo ekki sé meira sagt, og ekki
alltaf gott að henda reiður á því "absúrd" máli.
Góðar stundir, og megi þverskorna ýsan í hádegismatinn ætíð bragðast vel.
![]() |
Eigandinn heldur áfram að borga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 25.5.2009 kl. 17:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2009 | 20:49
Hinir hamingjusömu taka hamingjuna alvarlega.
"Og hvað þýðir nú þetta"?
hugsaði húsfreyja.
Hún hafði verið að taka til í bókahaugnum
við rúmið sitt, og dottið niður á spakmælabók,
og opnað af handahófi.
Jaso...alvarlega!
Hamingjuna!
Það er andstætt eðli húsfreyju að taka hlutina
of alvarlega.
Reyndar er "Taktu lífinu ekki of alvarlega-
þú lifir það hvort sem er ekki af", eitt besta
gullkorn sem húsfreyja hefur heyrt.
"Hmmm.. best að einbeita sér og fá gott ráð
fyrir mig NÚNA" hugsaði húsfreyja.
Lokaði augum, hugsaði stíft og opnaði
spakmælabókina: "Áttu erfitt með að slaka á?
(Hver á það ekki í kreppufári, hugsaði húsfreyja)
Reyndu eitthvað nýtt- fáðu þér morgunverð eða
hádegisverð á veitingahúsi og njóttu þess til botns-
gleymdu öllu öðru rétt á meðan".
"Aha"! hugsaði húsfreyja, hér er máske komin
lækningin á öllu mínu stressi og blóðþrýstingsæði".
"Morgunverður á Borginni og hádegisverður á Caruzo
í mánuð og svo "dinner" í skuldafangelsi næstu fjóra ættu að
redda þessu flott".
"Gleyma öllu öðru".....nah...það leist húsfreyju ekki á....
er nú þegar vanvirk í hausnum af og til þegar skjaldkirtilsræfillinn
fær slag af álagi og stressi húsfreyju, og "lokar hormónabúllunni"!
Gloppótt og götótt minni ekki eftirsóknarvert, hvað húsfreyju varðar.
"Jæja, allt er þegar þrennt er" hugsaði húsfreyja, og opnaði
bókina einu sinni enn.
"Jákvæð hugsun og athöfn eru óvinir dapurleikans".
"Hamingjan mun alltaf finna leið, engin hlið eru henni lokuð"
Þetta leist húsfreyju hreint ljómandi vel á.
Ef til væru Nóbelsverðlaun fyrir "jákvæða hugsun" hlyti
húsfreyja að koma sterklega til greina í útnefningum.
Er svona ekta Pollýanna í hugsun og lét eitt sinn frá
sér, að samstarfskona sem misst hafði mann sinn bráðungan,
en greindist sjálf með krabba á svipuðum tíma, væri máske betur
sett með sjúkdóminn en án hans, þar sem baráttan við krabbann
hjálpaði henni að beina huganum frá sorginni og einmannaleikanum.
Klikkuð?
Já kannski!
Ofurjákvæð?
Ekki spurning.
Voru svo í Húsdýra-og Fjölskyldugarðinum, húsfreyja og
átta ára djásnið í dag.
Sú stutta velti mikið fyrir sér lífinu og tilverunni....í bílnum.
Var alsæl með að vera ekki fædd 23 jan, því þá hefði hún
átt sama afmælisdag og eldgos í Eyjum.
"Óhappadagur, mamma"!
"O jæja, hugsaði húsfreyja, ekki alslæmur".
"Enginn Eyjamaður lét lífið í djöfulganginum þeim,
og allflestir Eyjamenn búnir að vinna sig út úr
gosmartröðinni í dag".
Merkilegt samt að þegar húsfreyju dreymir fyrir mannsláti
innan fjölskyldunnar dreymir hana ætíð "eldgos"!
"En mamma, björguðust allir álfavinirnir þínir í eldgosinu"?
"Hjálpi mér og hallelúja" húsfreyja rekin á gat af átta ára
djásninu, einn ganginn enn.
"Ég veit ekki....en ég vona það" svaraði húsfreyja.
"Mamma, trúa álfarnir á hana Guð"?
...bíb...dúdd....bíb.....
Húsfreyja reyndi í örvæntingu að ræsa heilabú sitt á ný.
Álfar og Guð?
Jú,það voru til sögur um álfakirkjur.
En var þar sungin messa til heiðurs mannanna Guði,
eða álfanna?
Voru álfar kristnir?
Áttu þeir þá "Jesú"....máski bara undir öðru nafni..."Jósúa"?
Var trúarheimur álfa hliðstæður trúarheimi manna?
Hvernig lífi lifðu álfar yfir höfuð?
Álfar voru mjög friðsamir, þá húsfreyja þekkti til þeirra.
Engin stríð í gangi, og allt með ró og spekt.
En þá var húsfreyja reyndar aðeins barn að aldri.
Heili húsfreyju var úrbræddur af pælingum þessum þá
þær mæðgur loks börðu Húsdýragarðinn augum.
Álfarnir gleymdust og nýfæddir grísir og lömb áttu
hug átta ára djásnsins.
Hopp og bílar, sjóræningjaskip og gargandi gæsir.
Góður dagur.
Húsfreyja að vísu með úrbrætt heilabú, en hvað?
Annað eins hefur nú gerst.
En að lokum eitt spakmæli sem húsfreyja opnaði
sérstaklega fyrir þennan pistil:
Lífið er ferðalag út í óvissuna.
Góðar sólarstundir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2009 | 10:30
Súperhetjur með sterka ímynd?
Jaso!
Í gær köstuðu Frónbúar af sér
svörtu sauðargærunni, og gerðust
"súperhetjur" eftir því sem Poul nokkur Weile
lét eftir sér hafa í fjölmiðlum.
Og í dag eignuðust Frónbúar svo "sterka ímynd"
samkvæmt manni að nafni David Hoskin.
Jeminn!
Með þessu áframhaldi verðum við að gera Jóhönnu Sig.
að drottningu og Steingrím Joð að "drottningarmanni"!
Auglýsa svo landið fyrir umheiminum, sem staðinn þar sem
ævintýrin gerast, drottningar fæðast fullskapaðar(.....heita allar
Jóhönnur by the way), súpermenni og súperkonur sveima
skikkjuklædd um loftin blá, leðurblöku-unglingar aka um á
"Bat-mobile-farartækjum" og börnin....já börnin.
Að sjálfsögðu eru þau litlir "Bósar ljósár" sem svífa
um og tína blóm, og gefa ferðamönnum sem koma
til að berja dásemdina augum.
Allir fá eitthvað við sitt hæfi í landi "súperhetja" og "sterkrar ímyndar"!
Nema máske vesalingurinn hann "Goggi Saltmýri" (lauslega þýðing húsfreyju á
nafni Geoff Saltmarsh).
Hann sagði ferðir breskra til litla Fróns hafa aukist um heil 20 prósent!
Jamm! Tuttugu prósent!
Auðvitað er allur þorri breta spenntur fyrir því að
líta augum "alvöru hryðjuverkamenn"
Og það heila "fokking kóloníu" af mergjuðum "terroristum",
sem brýna nú vopn sín í gríð og erg.
Garðklippurnar!
Stunguskóflurnar!
Bévítans stórhættulegu "slátturvéla-skriðdrekana"!
Húsmæður frónverskar sjást jafnvel brýna "eldhúshnífa"
sína úti á svölum og sólpöllum í góðviðrinu.
Ja, svei.
En spurning er: Finnst Gogga Saltmýri þetta nógu "krassandi"
fyrir "terrorista-þyrsta" samlanda sína?
Eða verðum við reisa eitt herlegt "hryðjuverkamannasafn"
niður við höfn, fyrir þá bresku?
Máski við hliðina á hálfreistu "tónlistarhöllinni" frá hryðjuverkagóðárunum?
Sýna þeim "vopnin" frá "potta-og sleifabyltingunni".
Hafa svo huggulega og vel skipulagða "Z-biðröð" fyrir framan safnið,
svo hinir bresku falli nú áreiðanlega í stafi af lotningu og gleði?
Jamm, okkur fellur alltaf eitthvað til, hér uppi á
litla Fróni.
Aldrei dauður tími.
En sólin næst úti á sólpalli.
Góðar stundir súperkonur- og menn.
Megi ímynd ykkar aldrei fölna!
![]() |
Ímynd Íslands er sterk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 25.5.2009 kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2009 | 18:32
Er þetta....
.....vitleysingur með peninga
??
Neieieieiei!
Er þetta bankaeigandi á skallanum?
Neieieieiei!
Er þetta "hryðjuverkamaður" ala Brúnn bretanna?
Neieieieieiei!
Þetta er "súper-Íslendingur"!!!
Sem að sjálfsögðu gerir húsfreyju að
"súper-húsfreyju" og "súperdeildarstjóra".
Hamingja!
Gleði!
Að vísu virðumst við Frónbúarnir hafa verið "dulbúnar"
súperhetjur að undanförnu.....verið öll hulinn
"svartri sauðarull"...samanber "svarti sauðurinn"
í öllum góðum og sönnum dæmisögum, og amerískum
bíómyndum og ekki síst í hugskoti "Brúns" bretanna.
En aldrei meir!
Svo segir hin eitursnjalli og skarpskyggni Poul R. Weile.
Frónbúar eru allir sem einn "súperhetjur"!
"Útvaldir allsherjarreddarar"!
"Bjargvættir"!
"Equalizers"!
HAH!
Þar höfum við það!
Súper-Húsfreyja er farin á Caruso að snarla og
kveðja deildó sína í annað sinn!
"ÚT FYRIR ENDIMÖRK ALHEIMSINS"!!!!!
ZOOOOOOOOOOMMMMM........úúúú!
Súper góðar stundir!
![]() |
Súperhetjur á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)