Færsluflokkur: Bloggar

Noh! Alltaf að græða....

1029249  ...bankinn húsfreyju.

  Uppskírður, afspilltur, skuldalaus

  og glænýr!

  Húsfreyja er alsæl.

  Hlýtur að koma að því að allur þessi

  gróði skili sér til kúnnanna....eða hvað?

  Fær máske húsfreyja "afskriftabréf" í jólagjöf frá

  "Arion"?

  Ekki slæmur díll það.

  Bara þetta með nýja nafnið.

  Húsfreyja er ekki viss að henni líki

  við að bankinn hennar heiti eftir

  "vængjuðu hrossi".

  Hrossi sem gat flogið hvert á

  land sem var....enda faðirinn sjálfur Pósedon

  sjávarguð hinna fornu Grikkja.

  "Flýgur" þá bara ekki "allur þessi" gróði eitthvað

  út í buskann, líkt og aurarnir útrásarvíkinganna

  gerðu?

  Kúnnarnir að borga okurvexti af okurlánum eftir sem áður,

  og mega þakka fyrir að "eiga" þak yfir höfuð sér

  skuldlaust um áttrætt!

  Jamm.

  Húsfreyja er orðin kúnni hjá "Arion"!

  Banka með nafn af "grískum" uppruna.

  Úr goðafræðinni.

  Verður húsfreyja brátt "goðsögn ein" með allar sínar

  okurskuldir?

  HALLELÚJA!

  Og AMEN.

  Góðar stundir

 

 
mbl.is Virðisrýrnun um 20 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjónrænn bölvaldur?

best-funny-pictures_rhino-underwear  Nærbuxnafaldur?

  JASO!

  Nú klæðist fólk af báðum kynum

  þröngum fatnaði, ef þeim hugnast slíkt.

  Enda margir með fallega og spengilega kroppa,

  bæði konur og karlar, og því þá ekki að leyfa línunum

  að njóta sín?

  Húsfreyja hefur gaman af fólki.

  Sér í lagi samskiptum við fólk, en spekúlerar mun

  minna í útliti þess nú til dags.

  Horfir meira á það hvort mannfólkið hefur hlýlega

  framkomu, bjart bros og einlægt augntillit.

  Og það hvað fólk hefur fram að færa í töluðu máli.

  Útlitið svona meira eftirá þankar, hvað húsfreyju varðar,

  þó alltaf finnist henni mikilvægt að fólk sé snyrtilegt

  og hreint til fara.

  En húsfreyja man þá tíð, er hormónar blússuðu

  á ógnarhraða um æðar hennar og Keanu Reaves, Brad Pitt

  og Antonio Banderas voru "hrikalega heitir" og sexý....úúú...

  og eru nú reyndar ennInLove.

  Þá var aldeilis mikið pælt í útlitinu...og pælt í útlitinu....og pælt

  í útlitinu með vinkonum og vinum.

  En aldrei nokkurn tímann man húsfreyja eftir því,

  að "nærbuxnafaldur" kæmi inn í þær umfangsmiklu pælingarShocking.

  Eða að "nærbuxnafaldur" hafi skipt minnsta máli, þá horft

  var á eftir vel vöxnum karlpeningi á götum úti....og það

  þó þeir væru í níðþröngum buxum, sem sýndu vel að

  þeim fannst betra að halda "djásnum" sínum heitum

  í "naríum" á köldum vetrardögumCool.

  Engin vandræði voru heldur á húsfreyju og vinkonum hennar

  með að vera í naríum undir níðþröngum gallabuxum.....og enginn

  setti út á það heldur.

  ENGINN.

  Þá spyr húsfreyja:

  Horfir fólk  mikið á "nærbuxnafalda" í dag, þá þeir sjást í gegnum

  þröngar flíkurW00t?

  Eru þá faldar þessir að "bögga" menn og konur út í hið

  óendanlega?

  Í alvöru!

  NÆRBUXNAFALDAR!

  Skvísan eða gæinn sem faldi þessum skartar

  þar með orðin "hrikalega púkó"?

  Lummó?

  Hallærisleg?

  UNCOOL!

  Ekki kynæsandi fyrir krónu!

  Hundljót helv.... skrípi?

  Út af daufum útlínum nærbuxnafalds!

  Kommon!!

  Hvenær fóru nærbuxnafaldar að vera svona "sjáanlegir"

  og "vinsælir" í útlitspælingunum?

  Hverjum hugnast eiginlega að góna eingöngu á þá, í stað þess

  að dást að vel formuðum líkama?

  Hvað gerðist eiginlega?

  Urðu allt í einu allir nærbuxnafaldar miklu "þykkari" og

  óþjálli, svo þeir blasa við langar leiðir, gangi fólk í

  þröngum fötum?

  Fær viðkvæmt fólk "slag", þá það ber augum slíka falda?

  Eða er fólk sem sést á götum úti með "sýnilegan

  nærbuxnafald" lagt í einelti af "NÆRBUXNAFALDSHÖTURUM"?

  Er máske búið að stofna félag "NÆRBUXNAFALDSHATARA",

  sem heftur sett sér það markmið að útrýma

  nærbuxnaföldum í 12 skrefum fyrir árið 2012Whistling?

  (Eftir 2012 skiptir engu máli hvort sést í slíka hörmungarnærbuxna-

  sjónmengun, þar sem Majarnir spáðu mannkyni ekki lengri framtíðDevil).

  Jamm!

  Naríur eða ekki naríur verður að vera mál hvers og eins.

  En pyntingatól eins og G-strengi og nú C-fjaðurstafi

  mega "NÆRBUXNAFALDSHATARARNIR" eiga.

  Góðar stundir og megi veturinn verða ykkur

  "hlýr og þvagfærasýkingalaus"Tounge.

 

 


mbl.is Tekur c-strengur við af g-streng?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandfundinn heiðarleiki?

istockphoto_6910729-icelandic-flag  Á litla Fróni?

  Ja, jú, jæja.

  Húsfreyju hefur virðst

  að heiðarleiki í pólitík

  hafi verið vandfundnari

  en sjálfdautt hross út í hagaAngry.

  Enda hestamönnum allflestum umhugað mjög

  um hross sín, og orðið næsta fátítt að

  hross finnist sjálfdauð út í haga.

  En í pólitík virðist aðal málið að "svíkja, pretta,

  ljúga og smjúga", og upplýsa almennig sem allra minnst

  um stöðu mála á litla Fróni.

  Helst aðeins á laugardögum á "nýju tungli" þá kyngir

  niður snjó.......og þá aðeins ef ákveðinn fyrrum

  seðlabankastjóri hefur gefið tilskilin leyfi fyrir því.....og

  ljós logar á friðarsúlunni.

  En er víst eitthvað að gutla í blaðamennsku um þessar mundir,

  sá góði dökkblái maður, sem hefur haft "upplýsingaflæði"

  til þjóðarinnar í hendi sér.

  Ætli "þjóðfundarfólk" verði að senda inn

  skriflega beiðni í ÞRÍRITI um HEIÐARLEIKA til Alþingis og MoggaDevil?

  VÁV!

  Þvílíkur kjarkur sem þarf í slíkt.

  Ætli allt "þjóðfundarfólk" verði þá tekið á teppið,

  líkt og Hallgrímur Helga. rithöfundur hér um áriðW00t?

  Rosalegt!

  Svaðalegt!

  En þetta er ekki allt og sumt!

  Þjóðfundarfólk vill að lögð verði áhersla á:

  Jafnrétti!

  Virðingu!

  Réttlæti! 

  Til hvurs?

  Er ekki allt þetta í myljandi góðum gír hér

  í "stórasta landi" í heimi?

  Spyrjið bara konur út í launajafnrétti á litla FróniWhistling.

  Spyrjið bara karla út í jafnan rétt til að umgangast börn sín

  eftir skilnaðShocking.

  Spyrjið hvort framganga ríkisstjórnar, útrásarvíkinga

  og fyrrum bankaeigenda síðustu 16 árin hafi ekki

  vakið virðingu og áðdáun hjá þjóðinniSick.

  Og hæstiréttur litla Fróns sem náðar allt útrásarpakkið

  eins og leggur sig!- Réttlæti á æðsta, besta og bláasta stigiBandit.

  Dásemd!

  Dýrð!

  HALLELÚJA!

  Kærleikur, ábyrgð, frelsi, sjálfbærni og lýðræði..........????

  Sko! Það er lágmark að þjóðfundur noti

  orð sem stjórnendur og framámenn

  litla Fróns SKILJA!

  Þessi fimm síðustu atriði finnast hvergi

  í neinum "pólitískum orðabókum".

  Og hafa líklega aldrei heyrst í pólitík,

  síðan síðurnar er innihéldu þessi orð og hugtök

  voru brúkuð sem "neyðarskeini" á Alþingi,

  þegar þáverandi frónversk ríkisstjórn samdi

  við Kanana um her hér í den.

  Fjölskylda, jöfnuður, traust???

  Væri jafn gott að senda frá sér yfirlýsingu

  á forngrísku eða sanskrítAngry!

  Jamm.

  En það má sosum alltaf reyna.

  Ofurbjartsýnir sem við Frónbúar erum.

  Muna bara að senda góða "frónverska orðabók" með,

  þá stjórnvöld þarf til að tryggja árangur af vinnu þjóðfundar.

  En virðingarvert og gott framtak, eigi að síður hjá þjóðfundarfólki

  í Laugardalshöllinni.

  Húsfreyjar á þá ósk heitasta

  að árangurinn verði góður fyrir land og þjóð.

  Góðar og þjóðlegar stundir.

 

 


mbl.is Þjóðin leggur áherslu á heiðarleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kakósúpa og egg...og góð íslenska.

cute_funny_children  Kvöldmatur.

  Jamm.

  Kreppukvöldmatur segir húsfreyja.

  "Namm, mamma" segir átta ára djásnið.

  "Við getum svo haft slátur á morgun, mamma".

  "Og við eigum eftir að baka súkkilaðikökuna, sem þú keyptir

  í Hagkaup".

  Brosdagar í skólanum hjá henni um þessar mundir,

  og hún er bjartari en sól í heiði á hádegi 23 júní.

  Lætur sér nægja eina gulrót og eina sveskju í morgunmat

  og snöflar svo í sig hafragraut í skólnum.

  Alsæl.

  Kreppufæði, hvað er nú það?

  Kom með bréf til foreldranna heim úr skólanum í gær.

  "Er búið að reka þig fyrir óþekkt, óspektir og yfirgang" spurði

  húsfreyja stríðnislega og tók við bréfinu

  Nah!

  Djásnið vildi ekki kannast við neitt slíkt í sínu fari.

  Húsfreyja las bréfið.....upphátt.

  Búið að tilnefna átta ára djásnið til íslenskuverðlauna menntaráðs

  ReykjavíkurJoyful.

  Foreldrum og djásni boðið í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur

  næsta mánudag.

  "Oooo nú fékk ég í magann, mamma....af hverju ég?

  Ég er svo feiminn, ég þori ekki að standa uppi á sviði

  í einhverri verðlaunaafhendingu"W00t.

  Djásnið lagðist í keng í sófann og blés og dæsti.

  Húsfreyja að springa af monti.

  "Iss, ekkert mál, ég fer bara með þér...og svo er ekkert

  víst að þú þurfir upp á svið, það eru margir tilnefndir og

  líklegast þarf bara sá sem vinnur upp á svið".

  Djásnið róaðist.

  "Nú, þá er þetta allt í lagi".

  Húsfreyja hefur síðan ekkert viðrað þann möguleika við

  átta ára djásnið, að hún gæti "unnið" verðlauninWhistling.

  Mamma mía!

  Húsfreyja sér fyrir sér, að verða basla með djásnið

  náfölt og skjálfandi í fanginu upp á svið...öll 22 kílóin....

  ....organdi "NEI, ég vil EKKI nein verðlaun, mamma...þú sagðir

  að ég þyrfti ekki að fara upp á svið.....aaaaarrrrggghPinch".

  En koma tímar koma ráð...og eins og húsfreyja sagði,

  eru margir tilnefndir, en aðeins einn vinningshafi.

  Svo djásnið á "góðan sjens" á að sleppa við

  mergjaðan sviðsskrekkTounge.

  En gaman að þessu.

  Og mestur heiður liggur í því að vera tilnefndur.

  Verðlaunin bara bónus....."taugatrekkjandi" bónusGetLost.

  En húsfreyju er bara nokkuð glatt í sinni,

  og hún spáir því að kreppukakósúpan verði

  bísna gómsæt í kvöldLoL.

  Eggin betriWink.

  Góðar stundir og njótið þess að kenna unga fólkinu okkar

  að tala og skrifa fallega og skýra íslensku.

 


Hvað? Allt að gerast...

3hfb7rkfr6_61_61funeralslow  ...hér uppi á litla Fróni í kreppuaðgerðumDevil!

  Búið að lengja skuldahala heimilanna

  um 3 ár.

  Hækka skatta.

  Hæstiréttur að "refsa" INNHERJUM í bönkum

  grimmilega....eða NEI.....Woundering

  ...þar var víst allt slétt og fellt og löglegtW00t.

  En búið að "stappa" kaupgetuna langt niður fyrir núllið

  hjá almenningiPinch.

  Hækka bensín.

  Hækka mat og nauðsynjavörur.

  Skera niður hjá lögreglu Frónbúa.

  Glæpir og refsing búið spil þar með á litla Fróni.

  Má bara loka Litla HrauniPolice.....eða hvað?

  Skera niður í heilbrigðiskerfi Frónbúa, enda

  sáralítið að gera hjá því pakkinu....bara ein lítil

  svínaflensa að bögga jarðarkringluna og íbúa hennarHalo.

  Iss!

  Búið að afskrifa "milljarða á milljarða ofan" hjá

  útrásarvíkingum og fyrrum bankaeigendum

  sem nýju bankarnir "treysta" svo velBandit.

  Skera niður greiðslur til aldraðra og öryrkja.

  Setja flest öll sprotafyrirtæki í gjaldþrot eða greiðsluþrot.

  Búið að ákveða að "klára" Tónlistarhöllina við höfnina,

  því hún er það sem kemur Frónbúum að "mestu gagni" nú

  mitt í albrjálaðri kreppunniWhistling.

  Og mikilvægast af öllu:  Það er búið að kveikja á FRIÐARSÚLUNNIShocking.

  Sem sagt!

  ALLT að GERAST!

  ALDREI DAUÐUR TÍMI á litla Fróni.

  ALLT SVO SKILVIRKT OG MARKVISST!

  OG RÉTTLÁTT!

  Góðar stundir í bráðhuggulegum kreppuaðgerðumPinch.

 


mbl.is Kalla eftir aðgerðum í kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott minni?

funny+old+lady  "Já, ég man þetta eins og

  gerst hefði í gær", sú aldraða

  iðaði í skinninu og var komin

  í mergjað sögustuð.

  "Manstu eftir fæðingunni ÞINNI"?

  Tvær konur einnig vel við aldur, voru

  áheyrendur þeirrar öldruðu og voru

  furðu lostnar.

  "Að sjálfsögðu" svaraði sú aldraða drjúg.

  "Og ekki nóg með það", hér hafði sögukona

  áhrifamikla þögn til áherslu,

  "hann pabbi fékk að vera viðstaddur fæðinguna,

  það man ég svo vel"!Whistling

  Sú aldraða krosslagði hendur og iðaði sem aldrei fyrr.

  "Hvað segirðu"?

  "Manstu eftir að hafa séð hann pabba þinn, þegar

  þú varst nýfædd"?

  Eyru og augu áheyrenda voru næstum dottin í gólf niður,

  svo mikil var bísnin og forundraninW00t.

  "Ó, já" svaraði kerla hróðug, "get aldrei gleymt því,

  því hann heilsaði mér og sagði: Sæl dóttir".

  Sögukona lygndi aftur augunum af sælu minninganna.

  Opnaði þau aftur og horfði einbeitt á viðmælendur sína.

  Svo kom ábúðarfullt:

  "Og auðvitað svaraði ég að bragði og sagði:  HALLÓ PABBI".

  Það var þögn dágóða stund.

  En svo sló fáránleiki síðustu setningar sögukonu og áheyrendur.

  Brosvipra myndaðist við munnvik sögukonuWink.

  Svo slapp frá henni fliss, og að lokum veinuðu

  allar stöllurnar þrjár af hlátriLoL....

  GrinGrinGrin......og síðan skelltu þær kaffinu og jólakökunni í sig

  og ræddu ekki "minnisstæðar" fæðingar meirDevil.

  ... .... .... .... .... .... .... .... ....

  Það er aldrei dauð stund á vinnustað húsfreyju,

  og oft glatt á hjalla.

  Öldungar hennar eru allir dásamlegt og skemmtilegt fólk.

  Færa hverjum þeim sem nennir að hlusta, hafsjó að kyngimögnuðum

  fróðleik, speki, lífsreynslu og lífsgleði að gjöf.

  Góðar og dýrmætar gjafir þaðInLove.

  Jamm.

  Og svo eru það "öldungarnir" með OFURMINNIÐ, eins og sögukona....

  Þeir eru bara SNILLD!

  Húsfreyja svo á leið með 8 ára djásnið í bíó.

  "This is it, með Michael Jackson" skal tekinn með stæl.

  Jamm.

  Heilabilun framundan hjá húsfreyju?

  Heilu næturnar með undirspil Jacksons í öllum hennar draumum....

  NÆSTU MÁNUÐINA.....ÁRIN?

  Ekki spurningShocking.

  En leggur ekki móðir geðheilsu sína fúslega á vogarskálarnar

  fyrir glóhært 8 ára djásn, með geislandi falleg brún augu og

  bjartasta brosið undir sólunni?

  "I am not alone....Billie Jean your not my.....Thriller......

   so beat it"!

  Jamm.

  Engin spurnig hér.

  This is it!

  Góðar stundir á ljúfum sunnudegi.


Mun mæta í sína eigin...

Stonecold  ...jarðarför, húsfreyja....

  STEINDAUÐ og FRAMLIÐINLoL!

  Mun láta lítið fyrir sér fara og

  enn minna í sér heyraWhistling.

  Og alls ekki undir neinum kringumstæðum,

  mun húsfreyja fara að rjátla við kistulokið,

  berja í það eða lyfta upp nokkra sentimetra

  í miðri líkræðu...og það þó henni finnist

  málflutningur klerks ekkisens lofræðubullHalo.

  Því slíkt mynda án vafa koma af stað massívum

  kransæðastíflum og heilablóðtöppum í

  ættmönnum húsfreyju, þeim sem í jarðaför mættu

  af stakri skyldurækni og samviskusemi.

  En fólki vill svona "heldur bregða" þegar búið er

  að "afskrifa" og útskrifa hinn látna úr jarðlífi,

  ef allt í einu lyftist lok...."ÍÍÍÍÍískur"W00t...

  eða heyrist bank...BANK-BANK....úúúúúú!

  Og húsfreyju er frekar vel við afkomendur sína

  ættingja og vini, og vill síður gerast "fjöldamorðingi" í eigin útförDevil.

  .... .... .... .... ... .... .... .... .... .... ... ....

  En hrapalegur atburður atarna í Brasilíu, og ekkert grín að missa

  ástvin í bílslysi.

  Góðar stundir og farið varlega í umferðinni.

 


mbl.is Mætti í eigin jarðarför
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er kannski öruggara...

house_move  ...að húsfreyja bjalli í systur

  í Þorlákshöfn og athugi hvort

  hún og mútta séu ekki enn

  þar búandi....eða hvort þær

  hafi flutt með allt heila klabbið,

  bíla, börn og "hús" til Þórshafnar...

   ... eða Húsavíkur....eða þá Önundarfjarðar

  í skjóli næturDevil.

  En þá flýgur húsfreyju í hug að þetta sé

  aldeilis "brilliant" hugmynd.

  Að flytja ALLT sitt í heilu lagi á milli byggðalaga....

  reglulega...eða eins oft og þarf til að

  "ríkið" með sínar "Ísbjargarhamfarir" finni aldrei

  aftur viðkomandiWhistling.

  Séu þar með týndir með öllu.

  Finnist aldrei meir.

  Sífellt að "flytja".

  Heimilisfangslausir!

  Nýfluttir!

  Að flytja...og óvíst um næturstað!

  Týndir bönkum.

  Týndir skattinum.

  Týndir ríksbákninu öllu.

  Hvergi hægt að festa á þeim hendur.

  Verður að "afskrifa" allt þeirra skuldadótarí,

  því enginn finnst aðilinn til að borgaTounge.

  Jamm.

  Þið segið nokkuð......Woundering.

  Bjalla í þá Þorlákshafnarmenn næst,

  og athuga hvort þeir taki það að sér að flytja

  "fjölbýlishús" næstu nótt eitthvert austur á landLoL.

  Góðar stundir.

 


mbl.is Hús flutt milli landshluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótraustur og skítlegur...

0003-0702-2818-5321  ..kúnni um alla ókomna tíð, húsfreyja

  hjá Kaupþingi hinu nýjaW00t.

  Sjálfsagt kominn með annan fótinn í gröfina

  að mati Kaupþingsfjármálasnillinganna hinna nýjuErrm.

  Og hinn skankinn húsfreyju, sjálfsagt sokkinn

  upp fyrir mjöðm í bévítans "Ísbjargarsvínaforina"

  eftir nýrri visku KaupþingsPinch.

  Skiptir ekki nokkru, að húsfreyja hefur ætíð staðið

  skil á öllum sínum víxlum og bankalánum í fortíð!

  Enda ekkert að treysta á hún hafi ekki smitast

  af mergjaðri "svínapestarhyskni" og "afskriftasýki" útrásarvíkinga

  og gjaldþrota fyrrum bankaeigenda...sem eru þó

  allflestir hinir "traustverðustu" kúnnar og mjög

  "mikilvægir" fyrir framtíð Nýja Kaupþings.

  Það er eitthvað annað en húsfreyja, sem hefur

  áratugum saman lagt laun sinn inn á bankareikning

  í Kaupþingi, greitt fyrir alls konar þjónustu og viðskipti þar.

  Sjálfsagt er húsfreyja um of heiðarlegur kúnni,

  hefur  "skítlegt eðli" af skornum skammti,

  og kann ekki að hafa fé af náunganumShocking.

  Ekkert hægt að púkka upp á svoleiðis lið í bönkum.

  Neipp!

  Dómur er fallinn!

  Húsfreyju er ekki treystandi.

  Skiptir minna máli en ekki neitt, upp á framtíðina

  í hinu Nýja Kaupþingi.

  Svo það er bara að hirða af henni þær fáu krónur

  sem henni tekst að vinna sér inn jafn óðum í kreppuskatta,

  hirða bifreið hennar og íbúð upp í

  Ísbjargarsvínaríið,

  hirða jarðarfararaurana hennar í lokauppgjörið

  fyrir mergjað flott tónlistarhús við Reykjavíkurhöfn...

  og svo má bara urða skrokkinn í svörtum ruslapoka

  þegar henni þóknast að hrökkva upp afWhistling.

  Jamm.

  Framtíð vor björt og fögur, með trausta banka

  og "enn traustari stórskulduga kúnna"!

  Góðar kreppustundir, megi bankinn ykkar ALDREI

  verða gjaldþrotaDevil!

 


mbl.is 1998: Eigendur njóta trausts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afskrifa milljarða....

scrooge  ....fyrir Baugur "grúpp"!

  Milljarða!!

  Ekki sjens að banki húsfreyju

  afskrifi eina einustu krónu af

  þeim fáu milljónum sem hún skuldar í

  íbúð og bifreiðErrm.

  Ekki 50 aura!

  En Baugur "grúppían" kann á kerfið!

  Bara skulda nógu asskoti, helv... mikið,

  og BINGÓ!

  Þú færð allt heila klabbið AFSKRIFAÐ.

  Húsfreyju er bumbultSick.

 

  Kling, klang.

  Kistan tóm.

  Gleðja sig við gullsins hljóm.

  Safna aurum. Aura spara.

  Eld að sinni köku skara.

  Öllum gæðum öðrum hafna.

  - Safna.

 

  Kling, klang.

  Kistan hálf.

  Kistan- hún er sálin sjálf.

  Lofa, svíkja,

  sníkja.

  Kaupa, selja,

  telja.

  Smjaðra, smjúga,

  sjúga.-

  Allra óskum neita.

  Brögðum beita.

  Reita-

  lagða úr annars ull.

  Ekki um álas hirða.

  Ekkert virða

  nema gull.

 

  Kling klang.

  Kistan full.

  He, he...Ormagull.

  Kistan var að guði gjörð.

  Grafa í jörð.

  Grafa í jörð.

                   "Nirfillinn", Davíð Stefánsson.

 

  Kvæði þetta eftir Davíð tileinkar húsfreyja öllum

  "grúppíum" með milljarða í afskriftir og fyrrum

  lánaglöðum bankaeigendum á litla FróniGetLost.

  Góðar stundir og gangi ykkur vel að greiða upp

  "myntkörfulánin".....ekki verða þau afskrifuð!

 


mbl.is Afskrifa líklega milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband