Færsluflokkur: Bloggar
3.3.2010 | 18:48
Milljónir eru nánast smáaurar...
...þegar horft er til skulda
útrásarvíkinga og bankahrunsmanna.
Svona eins og gamli 10-eyringurinn
var í bernsku húsfreyju.
Þá gat húsfreyja, þá smávaxin lítil skotta
með logarautt hár, aðeins fengið 2 kúlur í Vogsabakaríi
fyrir 10-eyringinn!
En þá eingöngu næði hún að láta afgreiðsludömuna
sjá í nefbrodd sinn upp fyrir borðbrúnina á afgreiðsluborðinu...
standandi á tánum.
Jamm.
Svo 60-70 milljónir eru bara smotterí í "harðlífi"
Icesafe-deilu og kreppuniðurskurðar.
Verður bara skorið heldur meira niður hjá Heilbrigðiskerfinu
á næsta ári.
Nú eða Menntamálaráðuneytinu!
Almættið forði oss frá þeirri ósvinnu að þurfa að
skera niður í Utanríkismálaráðuneytinu eða
Samgöngumálaráðuneytinu
Lágmark að Frónbúar geti greitt "þotuliðinu" sæmilega
"dagpeninga" og grafið nokkur "jarðgöng" milli
nokkur hundruð manna byggðarlaga.
Ef í hart fer væri ráð að láta "forsetaembættið"
skila þessum smáaurum.
Forsetinn gæti greitt þetta auðveldlega til baka,
á afborgunum með sömu vöxtum og aðrir Frónbúar
greiða niður sínar skuldir, næstu 20 árin!
Góðar stundir....eru veðmál í gangi um "laugardaginn"?
P.S. Aldeilis, öldungis, brilliant "niðurskurður" boðaður
hjá "Besta flokknum" hans Gnarr: Niðurskurður á Öspum!
![]() |
Þriðjungi þegar verið eytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2010 | 16:26
Tyrkjaránið og Icesafe?
Hver er "fyrningatíminn"
á "Tyrkjaránum"?
Fyrnist slíkt máske aldrei?
Er auðvitað með því svaðalegasta sem
um getur í sögunni: Hrottafengin dráp,
mannrán og mansal.
Og það á tímum skaðræðis pesta, náttúruhamfara,
barnadauða og vesaldar í voru litla landi.
Vorum nánast í útrýmingarhættu, Frónbúar.
Máttum ekki við því að missa einn einasta einstakling
af landi brott.
Svo "Tyrkirnir" frá Alsír undir forystu Jan Janzoon
van Haarlem hins hollenska,
fóru verulega illa með voru íslensku þjóð,
og þá ekki síst Vestmannaeyinga.
En nú hefur húsfreyja hingað til talið,
að það væri ekki á almanna vitorði
að hinn illvígi foringi þeirra herskáu "Tyrkja",
hefði verið Hollendingur.
Hélt satt að segja, húsfreyja, að slíkar staðreyndir hefðu
aðeins verið barðar inn í höfuðin á skólabörnum
í Eyjunum, þegar vísir lærdómsmenn fjölluðu um
Tyrkjaránið í skólum.
Verið svona minni háttar aukaatrið, sem gaf 0,1 í plús
kæmi það fram á söguprófum barna annarra landshluta.
Einn heilan í Eyjunum!
Jamm.
En er þá máske vor frónverska "Icesafe-samninganefnd"
öll úr Eyjunum?
Fyrst "Tyrkjaránið" er orðið að "spilakubb" í Icesafedeilunni?
1627!
Og nú eigi sko að "rukka Hollendinga grimmt" fyrir
langa,langa,langa....langa-afa og ömmu sem rænt
var frá búi og börnum, og seld í ánauð til Algeirsborgar?
Eða er máski Hollendingurinn Jan Schouten að
rita eina meistaralega ritgerð um Tyrkjaránið
á litla Fróni hér á 17. öldinni, og kominn með
æluna upp í kok yfir framferði síns manns og nafna?
Eða er hann bara enn einn "Íslandsvinurinn" að
styðja við bakið á "bestu vinum sínum"?
Nú er húsfreyja fædd og alin upp í Eyjum.
Fékk allar sögurnar af Tyrkjaráninu beint í æð
líkt og aðrir krakkar í Eyjum.
Rámaði jafnvel í að foringi þeirra frá Alsír,
hefði verið hollenskur (gott ef hún fékk ekki "einn heilan" á síðasta söguprófi),
en þrátt fyrir það, hefur henni ekki tekist að "tengja"
Tyrkjaránið við Icesafeþrasið á neinn máta!
Ekki þó að hún rembist eins og rjúpan við staurinn!
Hefur húsfreyja þó fylgst þokkalega grannt með
Icesafeþvargviðrinu.
Hún getur bara ekki með neinu móti lagt peninga
til jafns við mannslíf!
En máske er húsfreyja bara TREG og illa fyrir kölluð
í höfðinu þessa dagana af flensufári.
Veit sjálfsagt ekkert í sinn haus frekar en fyrri daginn.
Tyrkjaránið og Icesafe!
Húmbúkk!
Góðar stundir.
![]() |
Skulda Íslandi fyrir Tyrkjaránið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.2.2010 | 13:39
Fullur haus af heyi.
Válynd veður, stress og vesen með
"dassi" af ellihrumleika hafa
leikið húsfreyju grátt undanfarið.
Í kjölfarið hafa hreiðrað um sig í koki húsfreyju
heilu andsk...hersveitirnar af "kitlvírusum",
sem helst vilja halda "heræfingar" þá degi tekur
að halla og húsfreyja vill svífa inn í draumalandið
og dvelja þar við gott yfirlæti næturlangt.
Brjálast þá allt í hálsi húsfreyju, og sér hún fyrir sér
heilu herdeildarnar af vírusum hlaupa í röðum og
kyrjandi:
"Eigum við að dansa tvist,
en gera húsfreyju óða fyrst,
svo hósti hún og hósti í nótt,
og taki að endingu banasótt". (Undir amerískum æfingahertakt.)
Andskotinn í grásúrri mysu....hóst...hóst...hóst!
Hrifning húsfreyju á hústökuliði þessu í hennar
yndislega "Hálsakoti" er í lágmarki, svo ekki
verði fastar að orði kveðið.
Reynir reglulega að "eitra" fyrir vírusapakki þessu
með hóstasaft, hunangstei, hálstöflum og heitum böðum.
En skrattans hóstaherliðið virðist vera seigara en bæði
fjandinn sjálfur og amma hans til samans.
Gefa "eiturbyrlandi húsfreyju" langt nef, og flissa
að tilburðum hennar.
Húsfreyja er að verða mát.
Oftast svellin örlaga
illum skellum valda.
Fyrir brellum freistinga
fáir velli halda.
Við skulum láta lán og þraut
lífsins glímu herða.
Ýmsir mát á ævibraut
alla tíma verða.
Herdís Andrésdóttir.
Síðan hafði húsfreyja hugsað sér að bregða sér
af bæ um helgina.
Vísitera systur í Þorlákshöfn...eða jafnvel líta augum
húsdýrin niður í Laugardal með 9 ára djásninu.
En þá er bara allt í einu brostinn á hávetur,
eftir myljandi fína vortíð í desember og janúar.
Liggur við að það eitt að viðra köttinn úti á sólpalli,
verði húsfreyju að fjörtjóni....hóst...hóst....hóst!
Enda er sólpallurinn enginn andsk.... "sólpallur" síðustu
daga, heldur "snjópallur", sem Olympíufólk í Kanada
yrði stolt að hafa fyrir stökkpall, þá því dettur í hug
að "skíðastökk" sé gáfulegt til íþrótta.
Jamm.
Húsfreyja er SÚR.
Gallsúr!
Skýin grá með gretta brána
gegnum skjáinn sé ég minn.
Blómin dáin. Himninum háa
horfinn blái liturinn.
Herdís Andrésdóttir.
Ætlaði svo húsfreyja að ergja sig í framhaldi af
þessu yfir Kanaríeyjaförum sem sætu berir
á suðrænni strönd með bland í brúsa...og
hóstalausir og "kyrjandi vírusalausir".
En þá sá hún að "fárviðri" er nýlega gengið
yfir þær sælu eyjar Kanaríbúa...með að minnsta
kost 30 metrum á sekúndu og ENGU tjóni...svo hún
hætti við hið snarasta.
Vesalings fólkið þar syðra, að lenda í mergjuðum
stormi og "fárviðri".
Kemst ekki einu sinni á "Mannabar" til að svala
sárasta þorstanum...snökt....snýt....hóst!
Það er eitthvað annað en við hér uppi á litla Fróni,
sem "mokum okkur" út á hverjum morgni,
og förum allra okkar ferð frjáls og ..ummm...hóstandi,
á "nelgdum og keðjum" í skafrenningi og ofankomu....
Það eru einungis smá skakkaföll hjá skíðafólki hér sunnan
heiða, sem búið er að bíða eftir snjó í ALLAN vetur,
og þegar loksins kom nóg af honum,
er ÓFÆRT í Bláfjöllum.
Jamm.
Húsfreyja er að sjá það æ betur, eftir því sem
líður á pistil þennan, að hún hefur það í raun bísna gott.
Og ætti ekki að vera að væla undan smávægilegum
"vírusaheræfingum" í koki sínu....hóst...hóst.
Hefur líka tröllatrú á alveg nýrri uppskrift að
"hálsvírusaeitri" sem hún ætlar að reyna í kvöld...hehe..hóst!
Þeir "sönglöðu, kyrjandi vírusasvín" fá sko að kenna á því....
Þó við kvíðum kuldatíðum,
kafaldshríð og lágri sól.
Við skulum bíða, vorið blíða
vermir hlíð og dal og hól.
Herdís Andrésdóttir.
Góðar og ánægjulegar vetrar...hóst..hóst...stundir.
![]() |
Hálka og éljagangur á Sandskeiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2010 | 17:19
Er messuvínið...
í hinu íðilfagra veldi þýskra
máske orðið í sterkara lagi?
Einn sjúss af því ef til vill á við
3 tvöfalda hér uppi á litla Fróni?
Hefur hinn yndislegi biskup þeirra,
"Móðir Demi", eða "Theresa Moore"
kannski bara treyst um of á
"guðlega handleiðslu og forsjón",
þá hún smellti sér drukkin undir stýrið
á bifreið sinni?
Eða hvað?
En kannski er þetta svo einmitt sönnun um,
að Guð er alltaf á vaktinni yfir sínum ástkæru
biskupum og kirkjunnar þjónum?
Hefur breytt öllum "umferðarljósum" í "LOGARAUÐAN"
sá himneski, á leið þeirrar hífuðu,
svo hún yrði nú örugglega stöðvuð
áður en hún færi sjálfri sér og öðrum á voða.
Jamm.
Vegir vors himneska eru órannsakanlegir,
en líklega fjölgar "atvinnulausum" biskupum um einn
í ríki þýskra í dag.
Vesen.
Skyldi hún eiga rétt á atvinnuleysisbótum?
Hehehe, húsfreyja bara varð að fá útrás fyrir
meinlega genið sitt í dag.
Gleðst húsfreyja svo sannarlega yfir því,
að ferð kvenbiskups þessa skyldi þó ekki enda verr,
og að ekki urðu slys á mönnum eða dýrum.
"Eftir einn, ei aki neinn" er prýðis gott mottó,
sem allir ökumenn skyldu fara eftir.
Góðar stundir.
![]() |
Biskupinn segir líklega af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2010 | 20:20
Elskan...
...á heimilinu í dag,
var engin önnur en húsfreyja sjálf.
Bóndi reif sig upp í bítið, og kom heim færandi
hendi með rauðar rósir og brúðarslör.
Níu ára djásnið fékk svo að færa húsfreyju
dýrðina inn í hjónarúm, því að sjálfsögðu
fékk húsfreyja að sofa út á konudegi.
Dýrð og dásemd.
Gleði og hamingja.
Ó, að allir dagar væru konudagar.
Gott að vera kona á litla Fróni í dag,
og öllum konum óskar húsfreyja að
til þeirra verði ort:
Þú ert ung, og þú ert skír,
og þú ert ægifögur.
Í þér búa ævintýr
og Íslendingasögur.
Fyrir eitt þitt blíðubros
bæri ég harm í hljóði,
breiddi þér að fótum flos
fágað mínu blóði.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Góðar konudagsstundir.
![]() |
Blóm fyrir elskuna í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2010 | 19:43
Ó, vei! Fundur....
...enn og aftur.
Hvað ætla menn LENGI að
tala um Icesafe?
Halda fund um málið?
Röfla sig rauða og bláa í framan
um hvert einasta smáatriði...hvert
einasta agnarlítið atriði í gagntilboðum?
Vera svo ÓSAMMÁLA um hvert einasta smáatriði...
af því að það hentar ekki pólitískum frama þeirra
að vera sammála?
Hví er þessi umræða ekki löngu yfirstaðin?
Átti að ræða þetta strax í upphafi kreppufjanda
og bankahruns, og hafa lögfróða menn sér til
stuðnings og fulltyngis.
Taka þá nokkrar vikur eða jafnvel 3-4 mánuði
til að fjalla um stöðu frónbúa, og semja síðan
við Mister Brown og þá niðurlensku.
En að röfla, þrasa, rífast út í hið óendanlega
vikum, mánuðum saman...og "rúmu ári" frá
bankahruni, vegna Icesafe er ekki í lagi.
Það "er líf" eftir Icesafe, ef þingmenn bara hætta
þessu helv.... kjaftæði, ákveða að koma sér
saman og ganga í það af hörku að SEMJA!
Það er ekki til neins að tala.
Menn töluðu milljónir alda
um bölið á jörð og bót við því.
Mest bull er mér nær að halda.
Málæði aldrei til mikils dró.
Er vitið komið til valda?
Kristján frá Djúpalæk (Þögli).
Góðar stundir.
![]() |
Fundur formannanna hafinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 22.2.2010 kl. 09:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2010 | 19:16
Hjartanleg hamingja.
Ekki hægt að segja að
niðurstöður þessar komi húsfreyju
á óvart.
Virðist einhvern veginn liggja í hlutarins eðli,
að hamingjan stuðli að heilbrigðu hjarta.
Í allan dag hefur vorið verið að ljóma.
Ég vaknaði snemma í morgun við fótatak dagsins.
Við gluggann heyrðust himneskir söngvar óma.
Hjarta mitt skalf við raddir fagnandi lagsins.
.............
Því þá er það lífið, sem yrkir sín ástarljóð og sögur,
og æskan ræður ei lengur við hamingju sína-
Já, gott áttu, veröld, að vera svo ung og fögur,
og von er, að sólinni þyki nú gaman að skína.
Tómas Guðmundsson
Já, alltaf góður Tómas.
Húsfreyja sér svo að önnur hver frétt í fjölmiðlum
fjallar enn og aftur um kerlingarfáluna hana "Ísbjörgu".
Og að menn hafi jafnvel sammælst um herfuna á þingi!
Jaso!
Þeir sameinast í félag eða flokk,
til fundarhalds í lífsins hlekkjasmiðju,
og gera sér og sínum gapastokk
og segjast stunda mikilvæga iðju.
Sé útsýn þeirra orðin nógu þröng,
og enginn getur slitið tjóðurbandið,
þá hefja þeir sinn heilagsandasöng
og halda, að þetta sé- að frelsa landið.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Húsfreyja dólaði svo sér og 9 ára djásni í
sjúkraþjálfun í morgun.
Djásnið í 4 daga vetrarfríi, dæsti í morgunsólinni
og sagði: "Það er gott að vera í fríi":
Eftir teygjur, nudd og bylgjur á ellihrumum
hrygg húsfreyju, brenndu mæðgurnar sér
í Perluna.
Skoðuðu bækur, lásu í bókum og að lokum, keyptu
sér bækur.
Djásninu datt í hug eftir bókakaup, að hægt væri að rölta um
í skóginum í Öskjuhlíðinni, en hætti snarlega við
þegar út úr Perlunni kom.
Nístingskaldur næðingur hafði rifið sig upp,
og smeygði sér upp undir úlpur og ofan
í hálsmál. Brrrrrrrrrr....!
Við Þorlákur.
Þorlákur helgi
fann aldrei að veðri
að minnsta kosti ekki upphátt
vissi líklega sem var
að það væri ekki til neins
enda maður klókur
að svo miklu leyti
sem hann var maður
En ég er ekki helgur
og því segi ég enn og aftur
að mikið andskoti hata ég
svona rok í sól
Þórarinn Eldjárn.
Svo húsfreyja og 9 ára djásn létu gott heita,
og brunuðu heim á leið með stuttri viðkomu
í "svínslegu búðinni".
Þorir vart húsfreyja að nefna hlutina réttum
nöfnum lengur, svo margir reiðir og æstir í
þjóðfélaginu í dag.
Skapari
Kann vera
að þú sért stoltur
af sköpunarverki þínu
sjötta daginn.
Ég,
sem þó er málið skylt,
er ekkert yfir mig
hrifinn.
Kristján frá Djúpalæk.
Húsfreyja svo komin í helgarfrí.
Vill helst leggjast undir feld og
lúra fram á vor.....en það
er nú sjálfsagt bara flensuskítnum
í haus og hálsi hennar að kenna.
Verður borubrött og eldklár í slaginn
þá næsti mánudagur ber dyra.
Góðar stundir og góða helgi.
![]() |
Bros eru holl fyrir hjartað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2010 | 19:25
Vélsleðar...
...geta verið skaðræði", frænda
húsfreyju var mikið niðri fyrir.
"Þarna vorum við stödd með hópi af fólki,
ég og mín heittelskaða ektaspúsa uppi á
miðjum Langjökli, og höfðum ALDREI farið á
vélsleða fyrr en þarna.
Tveir voru á hverjum vélsleða, og kom það í hlut
kvennanna að sitja aftan við okkur karlana og
halda sér í einhverja stöng.
Veðrið var ekki slæmt, nema það var hauga drulluþoka",
frændi húsfreyju dró augað í pung og saup á kaffibollanum.
"Svo þarna var ég gerður ábyrgur fyrir lífi okkar beggja,
sem ökumaður og fengum við þær leiðbeiningar einar
að kæmi eitthvað upp á, væri best að "kasta sér
af sleðanum", svo við lentum ekki undir honum".
Frændi dró andann djúpt, smakkaði kleinuna og
líkaði greinilega vel, því hann sporðrenndi henni.
"Og af stað fórum við ásamt fleira fólki á vélsleðum,
á meðan aðrir voru á stórum sleðavögnum dregnir
af snjóbílum. Ég þóttist aldeilis góður, og gaf í og
sentumst við eiginkonan í loftköstum yfir frerann.
En heldur hef ég víst farið geyst í þokunni, því
allt í einu birtust tvær allstórar ójöfnur beint fyrir
framan vélsleðann okkar, og það var ekki annað að
gera en að láta sig vaða yfir þær".
Frændi horfði glettnislega á frænku sína, og
glotti þegar hann sá að hann hafði fangað
athygli hennar alla.
"Og hvað svo"? spurði húsfreyja spennt.
"Nú við flugum þarna yfir, og ég æddi svo
áfram með tryllitækið eftir tiltölulega sléttum
ísnum dágóða stund, þegar allt í einu kemur
annar vélsleði út úr þokunni og í veg fyrir mig.
Nú ég snarstansa.
Heyrðu góði, er galað til mín, hvað gerðirðu við
frúna þína?
Ég sneri mér svo skart að ég var næstum
farinn úr hálslið.
Það sat engin ástkær eiginkona í aftursætinu lengur.
Ég skimaði í angist í kringum mig.
Og viti menn!
Þarna lengst í fjarska, úti í þokusortanum sá ég
grilla í einn örsmáan dökkan díl.
Ég snarsnéri sleðanum eins og andskotinn sjálfur
hefði birst með logandi þrífork fyrir framan mig,
og brenndi yfir ísinn til baka.
Þegar nær dró "dílnum" sá ég að hann var
sem betur fer mín ástkæra eiginkona.
Hún stóð þarna ein og yfirgefinn í þoku uppi
á miðjum jöklinum og hágrátandi.
Hún var búin að sjá allt líf sitt renna fyrir
hugskoti sér, kveðja alla ástvini sína í huganum,
bölva mér niður til heitasta heitasta, fara þrisvar
með Faðirvorið og átti aðeins eftir að skrá hinstu
kveðjur og síðasta vilja niður í litlu vasadagbókina sína,
þegar ég snéri aftur".
Frændi skellti sér á lær og hló glaðhlakkalega.
Húsfreyja gat ekki annað en hlegið með honum.
Það krymti í frænda.
"Auðvitað hafði mín ektakvinna "kastað sér af"
bévítans ökutækinu, þegar við fórum yfir ójöfnurnar,
því hún taldi að við værum að lenda ofan í jökulsprungu"!
Nú hlógu allir við borðið í erfidrykkjunni.
Frændi svolgraði kaffið.
"En það var ekki allt búið enn".
Hann blikkaði húsfreyju.
" Ég lét þetta mér að kenningu verða, og skellti
frúnni inn í einn bílanna sem drógu sleðavagnana.
Settist svo aftast í hornið vinstra megin í sleðavagninn.
Og ekki vorum við búin að aka lengi þegar
sleðavagnsfjandinn var kominn hálfur ofan
í sprungu "mín megin", svo ég sat þar sundurkraminn
með haug af körlum ofan á mér, og horfði
beint niður í "gapandi dauðann".
Frændi hryllti sig.
"En þá var líka helvítis jöklaferðin blásin af,
og okkur var komið ofan af jöklinum í
í einum hvínandi hvelli"!
Og allir áheyrendur skelltu upp úr enn og aftur.
Jamm, það var ljúft að hitta ættingja og vini
í erfidrykkju einnar mætrar konu úr Eyjunum
nú á dögunum.
Rifja upp góðar minningar og skemmtilegar sögur,
um leið og góð kona var kvödd hinstu kveðju.
En djásnið þarf í kompjúterinn.
Góðar stundir.
![]() |
Fær ekki bætur vegna vélsleðaslyss |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2010 | 16:54
Lok lok og læs!
Grafalvarlegt mál!
Er búið að láta ferðaskrifstofurnar vita?
![]() |
Líbýa lokuð Íslendingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2010 | 18:34
Eins og skotin í höfuðið....
....hugsaði húsfreyja örvæntingarfull.
Hún horfði furðu lostin á níu ára dóttur sína.
Níu ára djásnið stóð á orginu,
tárin runnu niður rjóðar kinnarnar í stríðum taumum.
Blés í lítinn plastpoka af og til, eins og til að ná upp
hærri eyrnarskaðandi roku næst, sú stutta.
Kötturinn æddi um íbúðina, af angist og tók
svo á blússandi fart upp um veggi...fjóra hringi. VRÚÚÚMMMM!
Staðnæmdist loks á eldhúsborðinu og ÆLDI hressilega yfir
stærðfræðibók djásnisins, ...og slímugar ælusletturnar
náðu einnig að sóða út hornið á skriftarbókinni og
heimavinnumöppunni.
"DJÍSUSS, nú hringi ég sko í 112", húsfreyja vissi hvorki
upphaf né endi á hrikalegu neyðarástandi þessu
á heimili sínu.
"Hvað var eiginlega í gangi"?
Hljóp fyrst húsfreyja á harðaspani með æludraslið
undir elhúskranann og reyndi að
bjarga skólabókunum frá stórtjóni.
Tókst að skola mesta jukkið burt án þess að
rústa bókunum.
"Sjúkkit".
Kom auga á hvíta pappíra, sem djásnið hélt af og til á
með hvítum hnúum, og orgaði því meir þegar hún gjóaði á þá augum.
Húsfreyja losaði um krampakennt takið á blöðunum,
og náði þeim af djásninu.
"Orðalisti"???
Varla var þetta smásaga...nema hún fjallaði um
"afbrýðisaman, fjölbreyttan og hnédjúpan miðvikudag"??
"ÉG ER SVOOOO LÉLEG" orgaði djásnið á háa séinu.
Og svo: "ÉG GET ÞETTA EKKI"....blés í pokann af gríð og erg....
"...ekkasog...ég var VALIN til að keppa í stafsetningarkeppni fyrir
bekkinn".....oooooorrrrrrgggggg!
Húsfreyja skoðaði blöðin.
"Er þetta nú svo slæmt"?
"Já, og ég á sko eftir að falla út á fyyyyyyrsta orðinu...ooooorrrrg".
Níu ára djásnið sá tómt tjón, hrun, angist, dauða og djöful
fyrir hugskotum sér...."ég get ekki einu sinn stafað
fyrsta orðið rétt....afbrýðisemi"...ooooorg...blás...blás.
Húsfreyja tók til við að þrífa æluslettur eftir köttinn
á eldhúsborðinu.
"Jamm, en við skoðum nú þetta bara í kvöld í
rólegheitum, rófan mín, og tökum þetta kvíðakast
út af dagskrá núna".
Djásnið róaðist smám saman og tók til við að læra heima,
þó að þær væru eitthvað þvældar skólabækurnar.
En kötturinn hélt áfram að spúa hér og þar næsta
hálftímann, og var að endingu hent út í súrefnið
á köldum sólpallinum....og ældi þar líka.
Djásnið ákvað að kattarrófan "hataði" stærðfræði,
og fór í það að þrífa upp ælu með húsfreyju.
Það verður svo snarl í matinn...húsfreyja hefur ekki geð
í sér að standa í stóreldamennsku eftir myljandi fjör
síðustu 2 tímana.
Það er tilhlökkunarefni húsfreyju að eiga svo eftir að lesa
yfir 120 orða lista með djásninu í kvöld....."komumst aldrei
framhjá fyrsta orðinu" segir djásnið.
Jamm.
En húsfreyja slapp þó altént við að hringja í 112!
Góðar stundir og munið svo að stafsetja "AFBRÝÐISEMI" rétt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)