Vélsleðar...

langjokull_512938019  ...geta verið skaðræði", frænda

  húsfreyju var mikið niðri fyrir.

  "Þarna vorum við stödd með hópi af fólki,

  ég og mín heittelskaða ektaspúsa uppi á

  miðjum Langjökli, og höfðum ALDREI farið á

  vélsleða fyrr en þarnaPinch.

  Tveir voru á hverjum vélsleða, og kom það í hlut

  kvennanna að sitja aftan við okkur karlana og

  halda sér í einhverja stöng.

  Veðrið var ekki slæmt, nema það var hauga drulluþoka",

  frændi húsfreyju dró augað í pung og saup á kaffibollanum.

  "Svo þarna var ég gerður ábyrgur fyrir lífi okkar beggja,

  sem ökumaður og fengum við þær leiðbeiningar einar

  að kæmi eitthvað upp á, væri best að "kasta sér

  af sleðanum", svo við lentum ekki undir honum"Halo.

  Frændi dró andann djúpt, smakkaði kleinuna og

  líkaði greinilega vel, því hann sporðrenndi henniWink.

  "Og af stað fórum við ásamt fleira fólki á vélsleðum,

  á meðan aðrir voru á stórum sleðavögnum dregnir

  af snjóbílum.  Ég þóttist aldeilis góður, og gaf í og

  sentumst við eiginkonan í loftköstum yfir frerann.

  En heldur hef ég víst farið geyst í þokunni, því

  allt í einu birtust tvær allstórar ójöfnur beint fyrir

  framan vélsleðann okkar, og það var ekki annað að

  gera en að láta sig vaða yfir þær"W00t.

  Frændi horfði glettnislega á frænku sína, og

  glotti þegar hann sá að hann hafði fangað

 athygli hennar alla.

  "Og hvað svo"? spurði húsfreyja spennt.

  "Nú við flugum þarna yfir, og ég æddi svo

  áfram með tryllitækið eftir tiltölulega sléttum

  ísnum dágóða stund, þegar allt í einu kemur

  annar vélsleði út úr þokunni og í veg fyrir mig.

  Nú ég snarstansaGetLost.

  Heyrðu góði, er galað til mín, hvað gerðirðu við

  frúna þína?

  Ég sneri mér svo skart að ég var næstum

  farinn úr hálslið.

  Það sat engin ástkær eiginkona í aftursætinu lengurW00t.

  Ég skimaði í angist í kringum mig.

  Og viti menn!

  Þarna lengst í fjarska, úti í þokusortanum sá ég

  grilla í einn örsmáan dökkan dílPinch.

  Ég snarsnéri sleðanum eins og andskotinn sjálfur

  hefði birst með logandi þrífork fyrir framan mig,

  og brenndi yfir ísinn til baka.

  Þegar nær dró "dílnum" sá ég að hann var

  sem betur fer mín ástkæra eiginkonaWhistling.

  Hún stóð þarna ein og yfirgefinn í þoku uppi

  á miðjum jöklinum og hágrátandiCrying.

  Hún var búin að sjá allt líf sitt renna fyrir

  hugskoti sér, kveðja alla ástvini sína í huganum,

  bölva mér niður til heitasta heitasta, fara þrisvar

  með Faðirvorið og átti aðeins eftir að skrá hinstu

  kveðjur og síðasta vilja niður í litlu vasadagbókina sína,

  þegar ég snéri aftur"Pinch.

  Frændi skellti sér á lær og hló glaðhlakkalega.

  Húsfreyja gat ekki annað en hlegið með honum.

  Það krymti í frænda.

  "Auðvitað hafði mín ektakvinna "kastað sér af"

  bévítans ökutækinu, þegar við fórum yfir ójöfnurnar,

  því hún taldi að við værum að lenda ofan í jökulsprungu"!

  Nú hlógu allir við borðið í erfidrykkjunniLoL.

  Frændi svolgraði kaffið.

  "En það var ekki allt búið enn".

  Hann blikkaði húsfreyju.

  " Ég lét þetta mér að kenningu verða, og skellti

  frúnni inn í einn bílanna sem drógu sleðavagnana.

  Settist svo aftast í hornið vinstra megin í sleðavagninn.

  Og ekki vorum við búin að aka lengi þegar

  sleðavagnsfjandinn var kominn hálfur ofan

  í sprungu "mín megin", svo ég sat þar sundurkraminn

  með haug af körlum ofan á mér, og horfði

  beint niður í "gapandi dauðann".W00t

  Frændi hryllti sig.

  "En þá var líka helvítis jöklaferðin blásin af,

  og okkur var komið ofan af jöklinum í

  í einum hvínandi hvelli"!

  Og allir áheyrendur skelltu upp úr enn og aftur.Grin

  Jamm, það var ljúft að hitta ættingja og vini

  í erfidrykkju einnar mætrar konu úr Eyjunum

  nú á dögunum.

  Rifja upp góðar minningar og skemmtilegar sögur,

  um leið og góð kona var kvödd hinstu kveðju.

  En djásnið þarf í kompjúterinn.

  Góðar stundir.

 

 


mbl.is Fær ekki bætur vegna vélsleðaslyss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband