Eins og skotin í höfuðið....

crazy_cat_6  ....hugsaði húsfreyja örvæntingarfull.

  Hún horfði furðu lostin á níu ára dóttur sína.

  Níu ára djásnið stóð á orginu,

  tárin runnu niður rjóðar kinnarnar í stríðum taumum.

  Blés í lítinn plastpoka af og til,  eins og til að ná upp

  hærri eyrnarskaðandi roku næst, sú stutta.

  Kötturinn æddi um íbúðina, af angist og tók

  svo á blússandi fart upp um veggi...fjóra hringi.  VRÚÚÚMMMM!

  Staðnæmdist loks á eldhúsborðinu og ÆLDI hressilega yfir

  stærðfræðibók djásnisinsSick, ...og slímugar ælusletturnar

  náðu einnig að sóða út hornið á skriftarbókinni og

  heimavinnumöppunni.

  "DJÍSUSS, nú hringi ég sko í 112", húsfreyja vissi hvorki

   upphaf né endi á hrikalegu neyðarástandi þessu

  á heimili sínuW00t.

  "Hvað var eiginlega í gangi"Shocking?

  Hljóp fyrst húsfreyja á harðaspani með æludraslið

  undir elhúskranann og reyndi að

  bjarga skólabókunum frá stórtjóni.

  Tókst að skola mesta jukkið burt án þess að

  rústa bókunum.

  "Sjúkkit".

  Kom auga á hvíta pappíra, sem djásnið hélt af og til á

  með hvítum hnúum, og orgaði því meir þegar hún gjóaði á þá augum.

  Húsfreyja losaði um krampakennt takið á blöðunum,

  og náði þeim af djásninu.

  "Orðalisti"???

  Varla var þetta smásaga...nema hún fjallaði um

  "afbrýðisaman, fjölbreyttan og hnédjúpan miðvikudag"Tounge??

  "ÉG ER SVOOOO LÉLEG" orgaði djásnið á háa séinu.

  Og svo:  "ÉG GET ÞETTA EKKI"....blés í pokann af gríð og erg....

  "...ekkasog...ég var VALIN til að keppa í stafsetningarkeppni fyrir

  bekkinn".....oooooorrrrrrgggggg!

  Húsfreyja skoðaði blöðin.

  "Er þetta nú svo slæmt"?

  "Já, og ég á sko eftir að falla út á fyyyyyyrsta orðinu...ooooorrrrg".

  Níu ára djásnið sá tómt tjón, hrun, angist, dauða og djöful

  fyrir hugskotum sér...."ég get ekki einu sinn stafað

  fyrsta orðið rétt....afbrýðisemi"...ooooorg...blás...blás.

  Húsfreyja tók til við að þrífa æluslettur eftir köttinn

  á eldhúsborðinu.

  "Jamm, en við skoðum nú þetta bara í kvöld í

  rólegheitum, rófan mín, og tökum þetta kvíðakast

  út af dagskrá núna".

  Djásnið róaðist smám saman og tók til við að læra heima,

  þó að þær væru eitthvað þvældar skólabækurnar.

  En kötturinn hélt áfram að spúa hér og þar næsta

  hálftímann, og var að endingu hent út í súrefnið

  á köldum sólpallinum....og ældi þar líkaSick.

  Djásnið ákvað að kattarrófan "hataði" stærðfræði,

  og fór í það að þrífa upp ælu með húsfreyju.

  Það verður svo snarl í matinn...húsfreyja hefur ekki geð

  í sér að standa í stóreldamennsku eftir myljandi fjör

  síðustu 2 tímana.

  Það er tilhlökkunarefni húsfreyju að eiga svo eftir að lesa

  yfir 120 orða lista með djásninu í kvöld....."komumst aldrei

  framhjá fyrsta orðinu" segir djásniðPinch.

  Jamm.

  En húsfreyja slapp þó altént við að hringja í 112Grin!

  Góðar stundir og munið svo að stafsetja "AFBRÝÐISEMI" réttLoL.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband