28.9.2009 | 20:08
Man einhver eftir...
..nuddtækinu sem sett var
á gólfið?
Sá herða- og hálsslappi átti svo
að leggjast á gólfið með höfuð
og herðar ofan á nuddpúðann...
tækið sett í gang...og BINGÓ!
Þriggja daga "sjóriða" var árangurinn eftir gott 15- 20 mín. nudd.
En að vísu varstu bara bara asskoti góður í hálsi og herðum,
þar sem herbergin sveifluðust og gólfin rúlluðu
um dag eftir dag...á "ÞURRU LANDI"!
Komst ekki í vinnuna í 3 daga.
Varst léttur á kostum.
Og rúmið og salernið voru í uppáhaldi.
Jamm.
Mútta húsfreyju átti eitt svona tæki....hmmm hvað ætli hafi
orðið af því?
HEFUR EKKI SÉÐ ÞAÐ ÁRUM SAMAN, HÚSFREYJA.
Skrítið!
Svo var það "græjan" sem átti að redda
öllu "hafið þið séð lyklana mína"- liðinu.
Nóg var að festa "dinglumdanglið" við
lyklakippu þína....týna síðan öllu saman...
en FINNA á undraverðum tíma aftur,
með því að FLAUTA!
Aha!
Flauta!
Þá átti dinglumdanglið eða græjan að
gefa frá sér PÍP, og gefa uppi staðsetningu
lyklanna þar með.
Húsfreyja æddi um flautandi kvöld eftir kvöld
um herbergi sín....til þess eins að uppgötva
að bévítans lyklarnir voru HVERGI í 5 metra radíus
frá blístri hennar.
Fundust ævinlega á eftirfarandi stöðum:
1. Í búningsherberginu á vinnustað hennar ( annað hús).
2. Í framsætinu á herlegri bifreið hennar utandyra.
3. Heima hjá foreldrum hennar...í öðru þorpi, í 2 klukkutíma
keyrslu fjarlægð.
4. Og reyndar tvisvar eða þrisvar hringdu vinir húsfreyju
og létu hana vita af lyklunum hennar í þeirra vörslu eftir heimsókn.
Húsfreyja fann ALDREI neina lykla þó hún blési sig fjólubláa af
helvísku blístri.
ALDREI!
Húsfreyja græjaði sig upp með eðal axlartuðru,
sem auðveldlega rúmar 1/3 af búslóð hennar....hefur
ekki týnt lyklum síðan.
Henti dinglumdanglinu á haugana.
Tuðran?
Jú, hún hefur týnst.....en vegna "stærðar" og þyngdar aldrei
lengur en 3 -5 mínútur í einu.
Er svona "ómögulegt að týna"-hlutur, því það fer svo
mikið fyrir henni.
Magn umfram gæði, er málið hér.
Þarf aldrei að "FLAUTA"!
Húsfreyja lætur þjóðlagasöngvurum eftir blístrið með glöðu geði.
En þið sem eigið "sturtuútvarpið"...er ekki bara málið
að fá sér "baðkar" og skella sér í bað með þau gömlu
góðu á GUFUNNI..."I'm gonna wash that man right out of my hair"...?
Góða baðstundir.
![]() |
Sturtuútvarpið versta græjan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2009 | 15:30
Sveppi, Villi.....og Gói.
Húsfreyja var stífluð í nefi,
höfuðverkur að byrja "orgsöng" sinn
bak við vinstra eyra hennar,
Hún snýtti sér hressilega:
"Við förum í bíó NÚNA, eða þá alls ekki,
nenni ekki að hafa ómögulegt lið sem ekki getur
leikið sér saman, að BÍÐA eftir því að fara af stað
næstu tvo tímana.
Fjórmenningarnir 6-10 ára horfðu á húsfreyju,
augabrýr sigu, ranghvolfdu augum á hvort annað,
dæstu.
Húsfreyja lét sem hún væri bæði steinblind og heyrnalaus,
og þrælaði liðinu á salernið, í útiföt og út í bíl.
Í bíó klukkan 12!
Lyftust heldur brýrnar á þeim er þau sáu húsfreyju
pakka tveimur meðalastórum "bland í poka"-skjöttum
niður í tuðru sína.
Húsfreyja keypti miða, en svo var það að kaupa kók
á línuna.
Fór í stutta biðröð.
Unga fólkið vann "löturhægt" en örugglega bak við
afgreiðsluborðin.
Ungur maður með 3 börn verslaði grimmt....borgaði....
mundi eftir einhverju....verslaði meira popp.....borgaði....
afgreiðslustúlkan hvarf að næsta kassa...taldi afganginn
löturhægt upp úr kassanum...kom til baka...unga manninn
vantaði eina kók í viðbót og eitthvert nammi...stúlkan tók
sér GÓÐAN tíma í að fylla kókglasið...vandaði sig ógurlega
að setja lokið á....leitaði nokkra stund að namminu sem
ungi maðurinn reyndi nú óþolinmóður að benda henni á.
Ungi maðurinn borgaði...stúlkan hvarf að næsta kassa...
taldi afganginn TVISVAR í mestu makindum.....kom á
snigilshraða og lét þann unga fá afganginn.
Húsfreyja bjargaði sér úr röð þessari, þegar ungur
maður sagðist geta afgreitt næsta, út á enda á
afgreiðsluborðinu.
"Fjórar litlar kók og einn sítrónutopp, ekkert fleira",
húsfreyja snögg.
Drengurinn dúllaði við kókglösin, sjálfsagt verið í læri
hjá sama kennara og löturhæga afgreiðslustúlkan.
Lokin voru vandasöm.
Rjátlaði við kæliskápinn, jú fann sítrónutopp.
Húsfreyja borgaði.
Drengurinn hvarf að fjórða kassa frá sínum eigin.
Húsfreyja beið.
Beið.
Taldi hægt upp á 10.
Drengur ókominn.
Taldi einn-Missisippi, tveir-Missisippi osfr.
Drengur mætti með afganginn, þegar húsfreyja var kominn upp í 47-Miss.....
Tvær mínútur til stefnu.
Húsfreyja skipulagði kókburðinn inn og þrælaði liðinu
inn í kvikmyndasalinn.
Litla liðið kengspennt.
Vigrinn sem var sessunautur húsfreyju spurði
4 sinnum á meðan auglýsingar runnu í gegn
hvenær myndin byrjaði.
Húsfreyja hóf "ofaníhal" á nammi í liðið.
Myndin hófst.
Sveppi og Villi í Stjörnustríðsgír.....nei, bara
upphafsatriðið.
Vigrinn fílaði myndina í tætlur.
Mundi endrum og eins eftir nammipokunum,
sat svo kengspenntur eða hló mikinn.
Svalan og Báran voru ekki síður hrifnar, en Sigginn
var í svolítilli flækju þegar Ilmur og Sveppi
ræddu saman "skotin" smá stund.
Húsfreyja?
Ja, satt að segja skemmti hún sér með miklum ágætum.
Lúmskur húmorinn átti vel við hana, fíflagangurinn
í Sveppa og Góa var hvorki yfirdrifinn né of barnalegur....
og enn og aftur sannaði þessi mynd að "Gói" biskupsins
er réttur maður í réttu starfi og hér í hárréttri kvikmynd.
Sérstaklega vel til fundið að merkja flugvélina, sem
nánast lenti á þeim félögum Sveppa og Góa með stórum
svörtum stöfum:...........eða nei, kannski ekki vert að segja
frá of miklu, altént hló húsfreyja dátt.
Myljandi fín mynd hjá þeim Sveppa og félögum,
Egill Óla og Ragnhildur Steinunn flott í litlum aukahlutverkum
og Auddi fékk að kenna á því að vera "hrekkjusvín".
"Vondu karlarnir" voru svolítið ófrumlegir, en leikarar þar
ágætir.
Aldeilis brilliant fjölskyldumynd, og gat húsfreyja ekki merkt annað
en bæði börn og fullorðnir skemmtu sér konunglega í salnum.
Og merkilegt "organdi hausverkurinn" húsfreyju var horfinn út
í veður og vind eftir bíó, en horið rann í stríðum straumi eftir sem áður.
Og rennur.
SNÝÝÝÝT!
Góðar bíóstundir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2009 | 14:26
Rasandi grín.
Þau standa þétt saman eða sitja
þétt á skrifborðsbrúnum a.m.k 6 manns.
Hver talar óðamála ofan í annann.
Ljóshærðu konurnar tvær gráta hástöfum.
Höfuð hristast til og frá.
Handapat.
Homminn kemur inn með hatt og gráan trefil á öxlinni.
Hann er vinur Aliciu, ljóshærðu gellunnar með vængjahárgreiðsluna.
Hann rýkur til Aliciu og reynir að hugga hana.
Paula Maria hin ljóshærða gellan með slöngulokka grenjar
enn hærra.
"Lækkið hljóðin í þessari VERGJÖRNU konu" hvæsir homminn.
Paula Maria alias vergjarna konan, er einnig einstæð móðir,
og hefur áhyggjur af því að búið sé að reka sig, og hvernig eigi
hún þá að sjá fyrir sér og syni sínum.
Alicia hefur áhyggjur af því að enda kærastalaus, heimilislaus,
Limmosínulaus og ekki síst "klúbblaus"!
Grætur upp við öxl hommans.
Omar, "hinn dýrðlegi CASANOVA", hefur mestar
áhyggjur af því að samband hans við Paulu Mariu
er opinbert gjört. Vill reka konuna, því að sjálfsögðu
gleymdi "hún" að setja öryggið á skrifstofuhurðina.
Lopez "hinn illi" yfirmaður allra, hótar að reka Paulu Mariu,
nema auðvitað hún vilji eiga með sér "Baby-Doll-kvöld".
Skrifstofudömurnar reyna að hugga Paulu Mariu.
Leikonan hin snjalla í því hlutverkinu, setur upp
hrikalegan svip, sem minnir húsfreyju á sársvangan
enskan veiðihund með síð eyru, mæna á húsbónda sinn
snöfla í sig síðasta kjötbitanum.
Húsfreyja tryllist af hlátri.
Gafst upp á æsispennandi sápuóperu þessari.
En það mega spænskumælandi sápuframleiðendur
eiga, að það er leit að svo "stífspreyjuðu og hreyfingarlausu"
hári í sjónvarpi, sem leikarar þeirra hafa.
Og neglur kvennanna er einnig skemmtilega LANGAR.....
og engin furða að "öryggið" á hurðum klikki, ef reynt er að
setja það á með slíkum "klóm"!
En þvílíkt, rasandi grín hjá spánverjunum.
Klikka ekki.
Gaman að þessu í risastóru flatskjársjónvarpi.
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2009 | 11:41
Minna mark er málið....
...í fótbolta
!
Snilld!
Fækkar óneitanlega mörkum, að hafa markið minna.
Kannski bara aukaatriði að vera yfirhöfuð að
skora einhver mörk.
Minnkar álag á markvörðum.
Minnkar spennu og streitu
hjá knattspyrnumönnum á velli þar með.
Lítil pressa að þurfa að JAFNA
eða ...forði forlögin oss frá slíku og þvílíku..jafnvel að komast yfir.
Spilað verður ævinlega upp á JAFNTEFLIÐ 0-0,
og hvort liðið geti sýnt "flottari snilldartakta"
í leiknum.
Og hvort menn hafi "lesið" leikinn rétt!
Geta bara dundað sér við að spila "glæsilegan"
fótbolta úti á miðjum velli og þurfa ekki að
hafa neinar áhyggjur af því að koma tuðrunni í "míni-markið"!
En máske er hægt að fá "ísknattleiksmörkin" lánuð?
Þau eru hæfilega stór fyrir fótbolta á stærð við "pökk", hæpið að
venjulegur fótbolti kæmist nokkurn tíma í mark.
En svo getur húsfreyja athugað hvort mörk strákanna
frá í fyrra hér í hverfinu séu ekki laus....þau voru ætluð
4-7 ára fótboltapeyjum.
Svo gætu snjallir uppfinningamenn ef til vill
fundið upp mark er "skryppi saman" þegar tuðran
kæmi inn fyrir 5 metra radíus frá því.
Eða mark sem "stykki út á hlið" eða "upp í loft",
þegar fótbolti stefndi hraðbyri til þeirra......tæki máske
nokkur "Moonwalk-spor ala Jackson" svona í leiðinni
til að auka skemmtanagildið.
Jamm.
En næsta víst að þá yrðu markverðir óþarfir.....og
ekki víst að fótboltamenn og konur yrðu ánægð með slíkt fyrirkomulag.
En kannski að Christensen hinn danski, sé bara ekki að
fíla sig sem markvörður í fótbolta....máske dreymir
hann æsandi drauma um spegilsléttan ís, pökk,
kylfur og "mínimörk"!
Hvað veit húsfreyja.
Skondin og óvenjuleg frétt eigi að síður.
Góðar fótboltastundir.
![]() |
Markvörður svindlar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 26.9.2009 kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.9.2009 | 18:30
Imbavandinn.
Húsfreyju sundlar.
SVIMAR!
Getur svo svarið að hún sá skuggann
af honum Paul Robinson í "Nágrönnum"
á veggnum hér við hliðina á sér áðan.
Jamm.
Húsfreyja er sem sagt búin að fá nýjan imba.
Fóstursonur og hans heittelskaða hætt við
að þrauka kreppubílífið á litla Fróni, og
vilja í ríki hins herlega norska kóngs.
Imbinn þeirra of stór og fyrirferðamikill í
millilandaflutninga
Bóndi hvort eð er verið að redda imbagreiðslum
mánaðarlega fyrir soninn, svo hingað í hús er
imbi þessi kominn.
Allar 37 eða 40....eða eru það 44 tommurnar?
DJÍSUSS!
Húsfreyja efast um að hún eigi nógu stórt
málband til að mæla dýrðina.
Eftir 2 og hálfan mánuð með litlum sætum 12
tommu imba skreyttan límmiðum átta ára djásnsins,
er breytingin myljandi MÖGNUÐ!
Húsfreyja nánast stekkur upp úr sæti sínu
á kvöldin til að reyna að grípa Ödda eða Sveppa í miðju falli
í einhverjum fíflaganginum.
Þolir ekki auglýsingar eða myndskeið með "úfnum sjó"...
afsakið aðeins að skreppa.....verður grængul af mergjaðri
sjóveiki um leið.
Leggur bolla og diska á borð fyrir Joey og Josh í "Friends",
þegar þeir mæta.
Og talandi um að fá allar verstu fréttirnar beint inn á
stofugólf til sín......húsfreyja situr með þær í "fanginu"!
Eigum við að ræða CSI og "ofurrannsóknarvinnuna" þeirra á
alls konar líkamsvessum, líffærum og útlimum dauðra......?
Nah.
Nóg að húsfreyja sé með æluna uppi í háls.
Og nú rétt í þessu getur húsfreyja svo svarið að
Paul Robinson Nágrannanna hinna áströlsku
varpaði "skugga " á vegginn við hlið hennar.
Úúúúíííí!
Svimi og sundl!
Rugga og róla!
Húsfreyja vill helst sitja uppi á eldhúsborði
með bakið upp við gluggarúðuna, þá hún
glápir á nýja imbann sinn.....í 5-6 metra fjarlægð
frá sjálfu tækinu.
Svona betri "12 tommu -fílingur" þar.
Bóndi og átta ára djásnið eru alsæl.
Segja að húsfreyja eigi eftir að "venjast" flatskjásferlíkinu.
Jamm.
Situr í eldhúsglugganum þangað til.
Horfir hvorki á Nágranna með Paul Robinson, eða
CSI fyrr en liðið í sjónvarpinu hættir að "varpa skuggum" á
veggi annars staðar í stofunni.
HLUSTAR á sjónvarpsfréttirnar.... eingöngu.
Góðar stundir og megi allar ykkar sjónvarpsstundir vera skuggalausar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2009 | 18:24
Hverju færð þú áorkað?
Húsfreyja varð hugsi við spurninguna.
Fékk hún yfir höfuð "einhverju" áorkað?
Skiptu hennar athafnir, orð eða skoðanir
einhverju máli í hinni stóru mynd þjóðfélags
sem rambaði á barmi örvæntingar, reiði og
vonbrigða vegna kreppu og bankahruns?
Hvert var "framlag" húsfreyju í þjóðfélagi sem
boðaði aðhald, niðurskurð og sparnað?
"Jú, svaraði húsfreyja hægt, "ég finn stað fyrir krafta
mína og vinnu í hinni daglegu jákvæðu þróun mála,
sem ég skapa með hugsun minni, orðum og
ekki síst kærleiksríkum verkum.
Að vinna allt af alúð og samviskusemi ásamt
því að koma fram við náungann eins og þú vilt að
hann komi fram við þig, skiptir miklu máli í daglegum
störfum mínum.
Eitt bros ásamt hlýju handtaki getur reyndar skipt
sköpum í tjáningu milli einstaklinga, og breytt öllu
um það hvernig þeir síðan upplifa atburði
líðandi stundar!
Engin stórkostleg kraftaverk í gangi í mínu starfi,
heldur örugg og hæg þróun í rétta átt, dag hvern!
Og hænufetin skila mér í gegn um þrengingar,
niðurskurð, kreppur og reiði þjóðfélagsins...eitt hænufet í einu".
Húsfreyja brosti glettnislega til viðmælanda síns.
Viðmælandi horfði skarpt á húsfreyju, og þagði góða stund.
"Iss, það þýðir ekkert að ræða við þig um kreppuhelvítið.
Þú ert hjúkrunarfræðingur og kona og ert allt of hógvær og góð í þér.
Þið eruð svona allar þessar hjálpsömu konur sem lifið fyrir
að hjálpa öðrum og gleðja þá.
Getið ekki að þessu gert, eruð fæddar með þessum ósköpum".
Viðmælandi hugsaði sig um smá stund.
"En það máttu vita góða, að við karlarnir værum ennþá
STEINALDARMENN ef það væri ekki fyrir ykkur, og sjálfsagt væri
engin kreppa í heiminum í dag ef þið væru æðstu stjórnendur".
Og viðmælandi kvaddi og snérist á hæli og hvarf út í
haustblíðuna.
Húsfreyja horfði á eftir karli.
Brosti með sjálfri sér.
"Hógvær og góð".
"Lifi fyrir að hjálpa og gleðja aðra".
Ekki amalegt hrós þetta.
Hvort konur hefðu getað forðað alheimi frá kreppu?
Tja!
Hæpið.
En ekkert vit í því að velta sér upp úr slíkum vangaveltum.
"Áorkum" engu þannig.
Góðar stundir á bólakafi í miðri kreppu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2009 | 13:22
Ó, snakilli fúllyndi...
...House!
Eru nú dagar þínir taldir?
Ó, vei!
Og það vegna "fótafúa".
Ó, nei!
Húsfreyja hefur átt margar góðar
stundirnar fyrir framan imbann með þeim fúllynda.
Og skemmt sér konunglega yfir
hugaræfingum, heilabrotum og
þrautum House og liðsmanna,
yfir furðulegum og framandi sjúkdómum
er ætíð hrella skjólstæðinga þeirra.
Og merkilegt nokk rata þeir allra dularfyllstu ætíð
í hendur House og kó......sjúkrahúsið er þeir eiga að
starfa á, virðist reyndar gera út á nánast
óþekkta og fátíða sjúkdóma.....og reka sig samt.
En Hugh Laurie er bísna góður leikari, að mati húsfreyju
og sjálfsagt að hann njóti sín á öðrum vígstöðum en sem
"lappalaus og hundfúll" spítalaspæjari.
En hans verður saknað sem House, af húsfreyju.
Hans snakillla fúllyndis og verður að grafa djúpt,
til að finna "mannlegar tilfinningar"-persónuleika.
Jamm.
En máske mætti senda House til "kraftaverkalæknis"
í næsta þætti, og láta lækna "fótafúann"....bara sisona.
Annað eins hefur nú skeð í imbanum......
Góðar stundir á Sunnudegi.
![]() |
Of erfitt að leika Dr. House |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.9.2009 | 17:27
Regnvot rólegheit.
Húsfreyja á frí í dag.
Gutlað og gaufað við húsverk,
þvegið þvotta og smellti sjálfri
sér í ilmolíubað.
Átta ára djásnið kom heim úr skólanum
upp úr klukkan tvö.
Ræddi við móðurina um lífið og tilveruna.
Um frændur sem hún man sem stráka,
en eru nú orðnir unglingar.
Um Elvis Presley og Michael Jackson...eiturlyf
og svefnlyf.
"Hann hefði getað lifað (Jackson) ef hann hefði
ekki fengið þessi svefnlyf".
Um frændfólk í Ameríku...hvort það hafi allt fæðst þar...
og að fólk í Ameríku sé heppið að geta ALLTAF fengið
sér svínarif eða kjúlla í BBQ-sósu.
Síðan reif hún upp málband húsfreyju
úr hnífaparaskúffuni, og gekk í það að mæla
lengdina á heimilislæðunni.
Frá "rófuenda" fram á "veiðihár"....
þarf vart að taka fram að átta ára djásnið
á mjög LANGA læðu.
Húsfreyja svo á leiðinni í verslunarleiðangur,
eitthvað verður heimilisfólkið og LANGA læðan
að snæða næstu daga.
Bóndi sem er nýrisinn upp úr mergjaðri hita/háls/kvefflensu
ætlar að slaka á í baði á meðan.
Húsfreyja sendi veðurguðunum hugskeyti um væntanlega
ferð sína til búða.
Leist ekkert á að fara heiladofin af grámyglulegu regni
og þoku, að versla inn fyrir helgina.
Og viti menn, hann stytti upp, og sólin er farin að brosa
á haustgrænum bletti húsfreyju.
Svona er að hafa GÓÐ sambönd.....
Næsta víst að minnismiðinn gleymist nú eigi á
elhúsborðinu heima, og allir hafi nóg að
bíta og brenna yfir helgina fram í næstu viku.....
meira að segja LANGA læðan.
Góðar stundir og njótið helgarinnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.9.2009 | 17:33
Kross-skilnaður?
Eða þrí-yfirkrossaður skilnaður
?
"Afhjónun"?
Borðið farið frá sænginni...og hver
fær þá krossinn í sinn hlut?
Eða verður máske að skipta Krossinum
50/50?
Fær þá Gunnar "þverspýtuna"?
Æruverðugur og andaktugur "krossberi"
Krossins hins eina og sanna, er bara
með frétt "aldarinnar": HJÓNASKILNAÐUR!
Kraftaverkasjeffi litla Fróns búinn á "bandinu".
Merkilegt.
Furðulegt.
Undur og stórmerki.
Veit biskup af þessu?
Páfinn?
Kraftaverkamaður að skilja við
sína sómakæru spúsu, bara sisona.
Gefur lítið út á hjónabandsheit og loforð.
"Uns dauðinn oss aðskilur"!
Dó eitthvað?
Hinn eini sanni "guðlegi kærleikur milli hjóna" máske
hrokkið upp af...fengið slag...DÁIÐ?
Var þá ekki hægt að redda einu herlegu "kraftaverki"
og "blása lífsandanum aftur í hjónakærleikann".....?
Krossinn lengi verið þekktur fyrir "ljómandi fín" kraftaverk s.s.
afhommanir, afeitranir og hjónabandabjarganir.
Hvað klikkaði?
Hehehehe!
Jamm.....húsfreyja var í merguðum "gríngír" er hún kom heim úr vinnu.
Krossarinn lá vel við höggi með fregnir af sínu prívat lífi í fjölmiðlum.
En gott ef þau hjón skilja í sátt og samlyndi.
Verði þeim allt til gæfu.
Guð blessi þau á öllum sínum vegum.
Góðar stundir og hefur húsfreyja nefnt það að hún lifir í.....
SYND...úúúú?!
![]() |
Forstöðuhjón Krossins að skilja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.9.2009 | 13:50
Síðsumarsblíða langt...
...fram í september á
Norður- og Austurlandi.
Hvað sosum sem fólk vill meina
um hlýnun jarðar, telur húsfreyja
að þetta sé veður sem menn á þessum
slóðum eigi inni eftir
regn og grámósku sumarsins.
Frábært að fá svona sumarauka og
er það einlæg von húsfreyju að menn og konur
norðan og austan heiða njóti vel.
Sjálf er húsfreyja sátt við veðurguði eftir
sólríkt og hlýtt sumar hér sunnan heiða.
Þeir hafa greinilega tekið húsfreyju í sátt,
eftir að hún tók við að hrósa þeim í hástert
og þakka góða þjónustu, áður
en hún setti fram "hóflegar" kröfur um
veður á öllum sínum ferðum í sumar.
Fór "aðeins" fram á hlýindi sól og blíðu, húsfreyja!
Enda lítið mál fyrir þá að senda sól og
blíðu á eftir bíl húsfreyju, og skorða svo
veðurblíðuna þokkalega vel við ákvörðunarstaði
hennar.
Eru jú sjálfir VEÐURGUÐIRNIR....með stóru vaffi og
upphafsstöfum.
En merkilegt nokk...leiðir húsfreyju leiddu hana
aldrei austur á land, og aðeins einu sinni til Akureyrar...
og á Akureyri var búin að vera mígandi rigning fyrr
um morgunin, þá húsfreyja mætti með sitt lið á svæðið.
Stytti upp um leið, og bóndi renndi bílnum inn á Glerártorgið.
Váv!
Húsfreyja bara komin með SAMBÖND.
Og það við Veðurguðina einu og sönnu.
Ja hérna hér.
Það er af sem áður var.
Æludallaferðir í stórum stíl með Herjólfi út í Eyjar.
BÚNAR!
Hríðarbyljir, þrumur og eldingar rétt á meðan
húsfreyja skaust austur fyrir fjall!
BÚIÐ!
Nóaflóð í öðru veldi 7 daga samfleytt í sumarbústöðum.
BÚIN!
HALELÚJA!
Húsfreyja er rokin út í búð og svo beina leið austur
fyrir fjall í kaffi til múttu sinnar.
Það verður BONGÓ!!
Góðar stundir ævinlega í góðu veðri.
![]() |
Yfir 20 stiga hiti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 15.9.2009 kl. 17:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)