12.9.2009 | 12:46
Ljúf saga á ljúfum degi.
Húsfreyja fékk ljúfa sendingu
á netpósti sínum.
Vill gjarnan deila með fleirum:
Þessi saga er sögð vera sönn.
Hún segir frá Sallý sem var að
aka heim á leið, eftir söluferð um
Norður-Arizona.
Þá kom hún auga á aldraða Navajo-indíánakonu
sem gekk hægt eftir vegarkantinum.
Sallý stöðvaði bifreið sína og bauð Navajó-konunni far.
Gamla konan kinkaði kolli án þess að segja orð og
settist þakklát inn í bílinn.
Sallý reyndi að hefja samræður við gömlu konuna,
en sú gamla var ekki ræðin.
Hún svaraði játandi með því að kinka kolli eða
neitandi með því að hrista höfuðið.
Hinsvegar virtsist hún mjög áhugasöm um innréttingu bífreiðarinnar,
og skoðaði hana hátt og lágt.
Líkast til óvön að sitja í svo fínum bíl.
Skyndilega varð þeirri gömlu starsýnt á brúnan bréfboka
sem var skorðaður við hliðina á ökumannssætinu.
Forvitni hennar leyndi sér ekki.
Sallý benti á bréfpokann og sagði:
"Þetta er koníaksflaska sem ég fékk fyrir karlinn minn".
Navajo-konan varð undrandi á svip.
En síðan kinkaði hún samþykkjandi kolli og sagði:
"Góð skipti".
... ... ... ....
Skondin saga á góðum laugardegi.
Átta ára djásnið er svo á "uppleið" eftir
hádegið.
Búin að panta bíóferð á teknimynd sem ber
það frumlega heiti "UPP"!
Húsfreyja alltaf tilbúin í "upplyftingu",
svo hún ætlar að drífa sig í bað, og svo
í bíó.
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2009 | 17:40
Ef það gengur svona seint og illa...
...að brenna og hola húsfreyju
í krús ofan í vígða jörð, með
tilheyrilegri viðhöfn, sálmasöng
og andakt, eins og gengur
með leifarnar af Jackson,
þá verður húsfreyja bálill!
Næsta vís að hún sitji þá hressilega "framliðin"
á sótsvörtu þrumuskýi, og dúndri eldfleygum
og eldingum, líkt og þrumuguðinn Þór forðum daga,
í mann og annan, er eiga að sjá um að útför hennar fari
sómasamlega fram hér á jörðu niðri.
Eftir tæplega 9 vikna basl með steindauðan skrokkinn
tókst loks að koma goðinu í gegnum heila jarðarför þarna vestur frá.
Svo átti að skella á einum herlegum minningartónleikum á
í hinni íðilfögru Vínarborg núna í september...og málið væri dautt!
En sei, sei, nei!
Nú er búið að fresta minningartónleikunum ....ekki um nokkra daga...
vikur....eða mánuði!
Ó nei!
Heilt ár!
Jamm, segi og skrifa HEILT ÁR!
Og það í regnvotri grámóskunni í borg Mister Browns!
Jaso!
Frábært!
Magnað!
THRILLING!
Sér nú húsfreyja fram á fregnir jafnt og þétt
af gangi mála í Lundúnum.
Auglýsingaherferð verður að sjálfsögðu hrint af stað,
til að heimsbyggð öll viti af minningartónleikum þessum.
Jacksonmúsík í botni í útvarpi og sjónvarpi...Billie Jean is not my lover...
Thriller..Thriller time....Beat it...beat it....I´m BAD (hvíslað)!
Allur pakkinn.....eins og leggur sig.
Húsfreyja í djúpum!
Átta ára djásnið húsfreyju hefur frá því að goðið lést
hlustað á einn disk og einn disk aðeins í CD-spilara sínum: Michael Jackson,
hlustað á einn tónlistarmann og einn aðeins
á you-Tube: Michael Jackson.
Skoðað eitt tónlistarmyndband í eigu húsfreyju og eitt aðeins:
THRILLER Michaels Jacksons.
AFTUR og AFTUR og AFTUR!
Spilast allt í undirmeðvitund húsfreyju þar með.
Allir hennar draumar á næturnar við bullandi
undirspil Jacksons.
Fólk á flandri í miðjum draumi í fjallgöngu
upp Heimaklett í Eyjum, útlítandi eins og
"afturgöngurnar" í Thriller.
NÆS!
Húsfreyja að versla sér nýja flík í
framandi landi....og verslunarkonan
orgar "BEAT IT" á eftir henni, þá húsfreyja
þakkar fyrir ánægjuleg viðskipti og yfirgefur verslunina.
Talandi um martraðir!
Og nú á húsfreyja eftir að fara í gegnum HEILT ÁR af
MICAEL JACKSON í botni á sínu heimili.....sjíss!
Heilabilun!
Martraðir!
Ekki misskilja húsfreyju.
Var mikil Jackson aðdáandi á unglingsárum sínum.
Átti a.m.k. 2 vínylplötur með goðinu og svo myndbandið
síspilaða THRILLER.
Jackson var frábær dansari, og ágætur söngvari og lagasmiður.
En húsfreyja hlustaði einnig mikið á þessum árum á
Diönu Ross, Queen, Osmonds, Slade, Neal Diamond, Fleetwood M.
og bræðurnar Gibbs, svo eitthvað sé nefnt og fílaði í tætlur.
Svo ekkert eitt stóð sosum upp úr nema Queen sem enn er í
uppáhaldi hjá húsfreyju.
En nú er "Jacksonárið mikla" þá hafið hjá átta ára djásninu,
og hefur engin músík verið spiluð svo stíft inni á heimilinu,
síðan Latibær með sína músík og svo Stubbarnir, voru og hétu!
Þá húsfreyja var átta ára lítil skotta, kunni hún einhver ógrynni
af lögum karlakórs er kenndi sig við fóstbræður.
Faðir hennar sjálfur í karlakór og kirkjukór í Eyjunum,
tók upp á fornlegt segulbandstæki öll lög þerra fóstbræðra
í þætti Svavars Gestssonar í útvarpinu.
Slatta kunni hún líka af barnalögum, eins og: Ranka er rausnakerling,
sem átti helling af hænum, og Bessi Bjarna söng um í útvarpi.
Allir krakkar, Blátt lítið blóm eitt er, Fyrr var oft í koti kátt, Atti katti nóa og
Öxar við ána voru sungin á háa séinu þá húsfreyja
skrapp á Pétó að róla.
Það var svo gaman að róla og syngja hástöfum í leiðinni.
Mest kunni hún samt af vísum og kvæðum sem móðir hennar og
afi kenndu henni.
Eitt erlent lag kunni hún nú samt nánast utan að, átta ára gömul.
"Yellow submarine" Bítlanna, var hennar lag.
Að vísu gætti smá miskilnings hjá þeirri átta ára fyrstu árin,
og sungið var "Djelló sumarið", en djelló vissi hún að var
"dísætt sykurhlaup" því hún átti stóra frænku í Ameríku...ergo
"sumar hins dísæta syskurhlaups" var skilningur þeirra 8 ára.
Jamm breyttir tímar, nýjir tímar.
Átta ára djásnið húsfreyju kann "MÖRG" erlend lög utan að,
og er með alla litina á hreinu á ensku, hvort sem það er
yellow, red, green eða blue.
Og þó að framburður hennar á "Thriller" Jacksons sé
"triller", er enginn miskilningur í gangi um innihald lagsins hjá henni.
Ó nei!
Og Jackson blívur!
Draumar húsfreyju æsast!
Aaaaarrrgh!
Góðar stundir....og ekki síður góða drauma!
![]() |
Minningartónleikum um Jackson aflýst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 13.9.2009 kl. 20:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2009 | 17:54
All is very ....umm
...strange, í hinu mikla veldi
Svíakonungs um þessar
mundir.
Skemmst að minnast "rannsóknar"
saksóknaraembættisins hins sænska
á 900 króna "fjárdrætti" (u.þ.b. 50 sænskar)
lögreglumanns nú á dögunum.
Og nú vill 25 ára sænskur "karlmaður" láta á
það reyna hvort hann geti "gefið börnum sínum
brjóst", eins og segir í fréttinni.
Jaso!
Svíi þessi hlýtur þá að vera nokkuð "þétt"
vaxinn, hafi hann "brjóst"!
Og "brjóstin" geyma jú mjólkurblöðrur þær er
framleiða "brjóstamjólkina".
Jamm.
Þannig væri einnig betra að hann hefði
"útstæðar geirvörtur", því innfallnar valda þær iðulega
vankvæðum við brjóstagjöf hjá konum.
Hann verður að reikna með eymslum og "stálma"
í brjóstunum þá mjólk fer að safnast fyrir,
og fylgjast vel með ef mjólkurgöng hans stíflast
því þá getur hann fengið ígerð.
Vá!
Brjálað!
Meira en lítið furðulegt að ræða um karlmann
sem brjóstamjólkurgjafa.
En máske að húsfreyja sé bara með bullandi fordóma
gagnvart körlum með "börn á brjósti"......?
Nah varla!
Hefur ekki verið það "margmennur" hópur
hingað til!
Húsfreyja er samt ekki alveg viss um að
"brjóstagjöf" sé eitthvað sem karlmenn
yrðu svona almennt hrifnir af...
Og þó!
Eða.....
Nei!
Varla.
Þrútin, aum og þung brjóst allar morgna sem
krílið sefur lengur en 4 tíma samfellt á næturnar.
Kvöldstund úti að borða og í leikhús í samfelldar 6-7 klst. martröð síðustu
2 tímana, vegna spennuverkja í brjóstum.....HEIM AÐ GEFA NÚNA!!!
Ekkert fokking pöbbarölt á eftir...þá DEY ég!
Krílið vindur upp á geirvörtuna eina gjöfina,
geirvartan þar með í rúst á eftir í nokkra daga.....
hryllingur, " brjóstagjöf horribilis", að gefa brjóst þeim megin.
Skreppitúr til múttu í kaffi austur fyrir fjall.....pakka
niður hálfri búslóð barnsins...og djísuss!... hafa lágmark
tvo hreina boli/peysur/blússur með á sjálfa þig...ef krílið skyldi æla
hressilega í "ropinu á öxlinni".
Og mikilvægast af öllu:
EKKI reikna með neinum langferðum, nema ungabarnið
fylgi með...þar sem "brjóst full af mjólk" eru til staðar, VERÐUR
barnið ÆTÍÐ að vera innan seilingar!
Einn og hálfur metri frá brjóstum til ungabarns
reyndar algert hámark.
Ekki það að húsfreyju hafi gengið illa að hafa djásnið
á brjósti, sei, sei nei.
Fékk aldrei sýkingu, og sjaldan sár.
Jamm!
En elsku herramenn, hafi þið áhuga á að leysa okkur konurnar
af hólmi...eða jafnvel bara leysa okkur af, af og til
í brjóstagjöfinni, taka máske annað hvert
barn að ykkur, þá er það hvað húsfreyju varðar...
GUÐVELKOMIÐ!
Góðar stundir, beint frá brjóstinu.
![]() |
Sænskur karlmaður vill gefa brjóst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2009 | 18:10
Góðir staðir!
Læðan húsfreyju, ætti sko aldeilis ekki sjö dagana sæla,
hefði hún snöflað í sig "90 þúsund kalli"!
Væri núna á mergjuðu "uppsölulyfi" fyrir
ketti, laxerólíu og "verk og vindeyðandi".
Skítakassi hennar væri staðsettur undir
"dótasmásjá" átta ára djásnsins, sem og
allir "hárboltar" er upp gengu úr læðu.
Fengi sko engan harðfisk, sú loðna næstu
vikurnar.....ekki fyrr en húsfreyja hefði lágmark
89.999 krónur í höndunum frá ketti aftur.
Væri í lagi að láta svona eina krónu liggja á milli hluta.
Hehehehe...húsfreyja mátti til.
Mikið er annars notalegt að ekki skuli vera til
90 þúsund króna peningaseðill hér uppi á litla Fróni.
Húsfreyja væri með lífið í lúkunum, áskotnaðist henni
einn 500 evru seðill.
Næsta víst að hún færi í bullandi "panikk" að finna
"góðan stað" til að geyma slíka fúlgu.....fyndi fljótlega
alveg "brilliant góðan stað" .....og eins og
ALLIR aðrir "góðir staðir" húsfreyju,
hyrfi "500 evru-staðurinn" þar með "gjörsamlega"
af yfirborði móður jarðar.
Útstrokaður!
ERASED!
Núllaður út úr tölvumengi jarðar!
Staðsetningarhnit "unknown"!
Að eilífu!
Nú veit eigi húsfreyja hvort hún sé sér
á báti hvað varðar "góða staði", en hæfileika þennan
til að upphugsa þá og finna og síðan
algjörlega "gjöreyða" þeim hefur hún erft frá
annars ágætri móður sinni.
Hæfileiki þessi byggist á því, að upphugsa og finna "góða" geymslustaði
fyrir "mikilvæga" hluti, verðmæti og peninga,
koma síðan mikilvægu hlutunum, verðmætunum og peningunum
fyrir á fundnum "góðstaðnum" og......
NADA!
NÚLL og NIX!
NICHTS!
INGENTING!
Helv...fokking fokk "ekkert" finnst af "góssinu" aftur.
ALDREI!
NEVER!
Hverfur inn í "góðstaða-eilífðina" miklu...........eða máske
að það sé til sérlegt "SVARTHOL" á sporbraut um móður jörð,
sem "sogar eingöngu" að sér "góða geymslustaði"!
-DÆS-
Á þá húsfreyja slatta af dáfögrum gullhringum, einhverja
hrikalega fúlgu af frónverskum peningaseðlum,
heilu haugana af mikilvægum ábyrgðarskírteinum
heimilistækja er biluðu innana 1-3 ára frá kaupum
og einhverra hluta vegna: heilt FJALL af pappírsklemmum og
sikkerhetsnælum, á sveimi í slíku svartholi!
Jamm, merkilegt þetta "góðstaðamál"!
Veit bara húsfreyja, að hún hefði alveg þegið að
fá einhvern annan "hæfileika" í vöggugjöf en þennan.
Hefði vel getað hugsað sér að vera "fiðlusnillingur"....annar
Paganini kannski....nú eða flott ballerína....Barysnikov...?
En húsfreyja getur þó þakkað sínu sæla, að hafa kveikt
snemma á perunni, hve "hættulegir, svikulir og HVERFANDI"
"góðstaðir" þessir eru.
Reynir nú ætíð að "geyma" allt á mjög einföldum og mikið
"áberandi" stöðum, og þar sem fólk gengur mikið um.
Ísskápurinn er VINSÆLL geymslustaður húsfreyju.
Hverjum dytti líka í hug að leyta að "skarti" húsfreyju
í frystihólfinu?
Eldhúsborðið kemur líka sterkt inn sem geymslustaður
og sömuleiðis skóskápurinn frammi í forstofu.
Og ábyrgðarskírteini hafa aldrei týnst hjá húsfreyju,
eftir að hún skellti þeim við hliðina á tómatsósunni
inni í búri!!
Jamm!
En finna til matinn næst....er við hliðina á gullhringjum og
hálsmenum í efstu frystiskúffunni!
Góðar stundir...og gætið ykkar á "góðu stöðunum"!
![]() |
Kötturinn át 500 evruseðil |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 13.9.2009 kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2009 | 12:56
Stórslys...
...í "stórasta" landi í heimi
.
O jæja.
Merkilega margir landar
húsfreyju trúðu á frjálshyggjuna,
"útrásina, og að eilífu "peningagræðandi banka".
Sorglegt ef það kostar þá sem "trúðu" fjármálasnillingum,
útrásarvíkingum og bankaeigendum, svo heimili þeirra, vinnuna
og vonina.
Óréttlátt?
Ekki spurning.
Vonlaust?
Aldrei!
Húsfreyja var ætíð frekar "efagjörn" þá
menn reyndu að selja henni "gullið við enda regnbogans",
hélt að sér höndum og er ekki í bísna slæmum málum í dag.
Blæðir að sjálfsögðu "fjárhagslega" í kreppunni eins og öllum,
en hún ræður enn við afborganir af íbúð sinni og bíl.....og
það þó húsfreyja og bóndi hafi asnast til að þiggja
"myntkörfulán" til að kaupa bílinn.
Þar "trúðu" húsfreyja og bóndi bílasölumanni þá hann sagði
að þetta væri það besta og HAGSTÆÐASTA í bílakaupum.
Nú eru húsfreyja og bóndi búin að greiða sem samsvarar
einni og hálfri bifreið, skreyttri gulli og demöntum fyrir
Honduna sína...og eiga sjálfsagt annað eins eftir....ef
ekki meira.
Hafa þau hringt í bílasölumann að kveldi og "andað í símann" hans?
Sei sei nei.
Bílasölumaður blessaður trúði nefnilega líka orðum sínum.
Selur engum bíl á Fróni í dag, hvorki á myntkörfuláni eða öðrum lánum.
Gullslegnu skartgripaskreyttu bílarnir verða látnir duga LENGI!
Svo sei sei nei!
Húsfreyja mun taka kreppufárinu af stóískri ró
írsku þrælanna hér uppi á litla Fróni landnámsáranna.
Hélt í þeim lífinu, telur húsfreyja.
Og hún "trúir" því að Frónbúar muni vinna sig saman
út úr stórslysi þessu, með sprengjukrafti hinna "sönnu víkinga"
fortíðarinnar.
Finnum leiðir.
Látum hlutina ganga upp.
Rísum upp úr öskunni, eins og fuglinn Fönix.
Og það þó að hinir "fölsku víkingar útrásarinnar" verði
hvergi nálægir....burtflognir á ónefndar suðurhafseyjar...
úthrópaðir af íslensku þjóðinni....en samt með sand
af seðlum íslensku þjóðarinnar enn í sínum vösum.
Þeir mega eiga sig, helvískir.
Við hirðum eignir þeirra hér upp í skuldir.
Stöndum saman 300.000 hræður út í miðju ballarahafi.
Erum seig.
Lifum þetta af.
Því okkar er landið.
Okkar er lífskrafturinn.
Okkar er baráttuviljinn.
Við erum "auður" þessa lands.
Húsfreyja vill enda pistil þennan á ljóði Þorsteins Erlingssonar,
þó stutt sé síðan hún brúkaði það hér.
Eyjan vor er engum köl,
er þú brosa lætur
hennar morgna, hennar kvöld
hennar ljósu nætur.
Hún á okkar heita blóð,
hún hefur okkur borið
til að elska líf og ljóð,
ljósið, frelsið, vorið.
Þ.E.
Góðar stundir.
![]() |
Uppskrift að stórslysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2009 | 19:37
Tólfta! Hrikalegt!
Húsfreyja er í djúpum!
Á eftir þessu, að minnsta kosti "9"
ástarsambönd "í bullandi skuld" til
að tryggja pottþétt að
hún rölti æviveginn með hinum
"eina og sanna".
Jeminn!
Djísuss!
Hvað segir bóndi ef húsfreyja fer nú
á stjá næstu 9 helgar, og dröslar
með heim "keppinaut" að morgni dags?
Nýjum hverja helgi eftir eldheitt ástarsamband
í viku!
"Bara til að hafa það á hreinu, að þú sért
mín eina sanna ást, vinur" hljómar einhvern
veginn ekki alveg nógu sannfærandi.
Ekki víst heldur, að átta ára djásnið gúdderi
að múttan kynni "9 stjúpfeður" til sögunnnar.
Jamm, mikil og merkileg speki þarna hjá stærðfræðingnum
í "niðri og undir" Ástralíu.
Hlýtur að vera afspyrnu fjörugt ástarlífið hjá þeim,
ef allir eru lágmark í 11 samböndum ,
áður en þeir hitta hinn eina og sanna lífsförunaut.
Er sem húsfreyju hefur lengi grunað:
Ástralir "rokka"!
Góðar stundir inn í helgina, og megi allir
Frónbúar finna sína einu sönnu ást......
þó húsfreyja telji að "12" sambönd á mann hér uppi á litla Fróni
bjóði bara upp á hrikaleg "allir að sofa hjá öllum-vandamál".
![]() |
Tólfta ástin sú rétta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 13.9.2009 kl. 20:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.9.2009 | 17:21
Sænskir í stórræðum.
Hvað ætli blessaður lögreglumaðurinn
hinn sænski hafi svo verið lengi að
draga að sér þessar 900 krónur?
Mánuði...hálft ár....eða máske lengur?
Sjálfsagt betra að stunda svona fjársölsun
á lengri tíma en styttri, svo minna beri á
glæpnum.
Kannske bara stungið undan einni krónu og fimmtiu aur
á dag....í rúmt eitt og hálft ár.
Dálaglegt það.
Saksóknaraembættið svíanna rannsakar nú málið.
Eins og : Hvað gerði löggan við "allan þennan fjárdrátt"?
Splæsti hann á sig sænskum eðal vínarbrauðum,
eða einum öllara....nú eða hvoru tveggja....
með "afborgunum"?
Ja, þrefalt svei og svínarí.
Þetta er sko fjárdráttur í lagi.
Allt eflaust á tjá og tundri hjá lögregluembættinu í hinu herlega
ríki sænska kóngsins.
Svo erum við Frónbúar að tuða um "spennerí"
á frónverskum útrásarvíkingum og bankastjórum!
"Icesafe"....iss!
En............svona í restina.
Ætli það kosti "nokkuð" að reka dómsmál í Svíaríki
vegna 900 króna fjárdrátts lögreglumanns?
Góðar stundir.
![]() |
Rannsókn vegna meints fjárdráttar lögreglu - upphæðin 900 krónur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.8.2009 | 17:53
Aumingja mennirnir.
Geta þeir ekki klárað að
byggja "litlu sætu" sumarhúsin sín
við Þingvallavatn, blessaðir?
Ósköp eru að heyra þetta.
Máske orðnir auralausir, þeir Bogi og Örvar....
nei, afsakið, Ágúst átti þetta að vera....innsláttarpúkinn
í ham í kompjúter húsfreyju.
Máske er líka skortur á "þyrlum" til flutninga á meira
byggingarefni?
Kannski áttuðu þeir félagar sig á því að þeir höfðu
vanreiknað stærð sumarhúsa sinna...
þurfa "miklu stærri" lóðir?!
Jamm, ýmislegt getur komið til greina.
En líklegast þykir nú húsfreyju að kreppuótætið
og óhræsið hún "Ísbjörg" hafi sett strik í reikninginn
hjá þeim kumpánum, og allt sé stóra strand í
sumarbústaðabyggingum...þó "litlir og þröngir" séu.
Nú er húsfreyja góðhjörtuð kona, og finnur til með þeim
sem minna mega sín og kennir "sárt í brjósti" um
sumarbústaðarlausa Boga og Ágústa.
Hún á smá aur hjá "Sun Life" samkvæmt blaðsnepli
sem kom inn um lúgu hennar á dögunum, og gæti hún nú
kannski hugsað sér að lána þeim ólánsömu sumarbústaðamönnum
aura þessa, svo þeir geti nú altént klárað að byggja úr því sem
þyrlur hafa flutt á staðinn.
Eina sem hún fer fram á, er að
lánsfé hennar verði henni skilað innan 10 ára,
með 37% vöxtum,
og í "evrum".........
Og að sjálfsögðu sé ríkið "ábyrgt" fyrir láni þessu,
verði einhverjar vöflur á endurgreiðslunum!
"Ice-Sigga" í uppsveiflu þar með...hehehe.
En Frónbúar verða máske lítið hrifnir af því að bæta við
sig fleiri "ísuðum kerlingafálum" ....svo kannski húsfreyja
passi bara áfram upp á sína "Sun Life"-aura og láti
Boga og Ágústa um að redda sér lánum á öðrum vígstöðum.
"Nýju" bankarnir á litla Fróni geta þá máske reddað þeim........
Góðar sumarbústaðastundir.
![]() |
Hálfkaraðar glæsihallir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 2.9.2009 kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2009 | 22:55
Hana! Þar skall eitt árið enn...
Og það í blankablíðu, sólskini og hita.
Húsfreyja alveg grandalaus úti á
sínum yndislega sólpalli í morgun,
þega hún fékk "heilt ár" í hausinn.
Hefur sjálfsagt argvítans kreppuárið legið
í leyni...setið um hana eins og rússneskur
spæjari um CIA í kalda stríðinu...og svo "ÁRÁS"!
Og "voila" húsfreyja er orðin árinu eldri en
hún var í gær!!
Bara sisona!
Eða svo túlka átta ára djásnið og Vigrinn
atburðarrásina hjá húsfreyju í dag.
Húsfreyja hefði máske átt að "fara huldu höfði"....
"dulbúast" og neita að gefa upp nafn og kennitölu,
þá "árið" barði dyra.
Nah!
Þetta er búin að vera fínn afmælisdagur,
með fjölskyldu og vinum í kökum og kaffi úti
á sólpalli.....og svo sushi í kvöldmatinn.
Það er með konur eins og eðalvín.
Verða betri með aldrinum.....ekki satt herramenn?
En djásnið búið að þræla húsfreyju í gegnum
lestrardæmi og lesa fyrir bónda.....og nú bara verðu hún að fá
múttuna í bólið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.8.2009 | 12:42
Vesen er þetta!
Ostur!
Silfurtungl!
Pappírstungl!
Og nú trétungl!
Geta menn ekki komi sér saman um, úr hverju
máninn okkar jarðarbarna er?
Kanarnir segjast hafa flutt heilu "kílóin ef ekki tonnin"
af tunglgrjóti til jarðar!
Séu búnir að "fljúga" til tunglsins all oft,
taka þar lendingu, og "stíga" stór skref á "tunglverskri" jörð.
(Og það þrátt fyrir "mergjaða traffík af geimrusli" á sporbaug í kringum móður jörð.)
Má þá ekki ganga í að "efnagreina" bévítans tunglgrjótið.....
altént eitthvað af því?
Nú máske kemur þá í ljós að tunglið okkar jarðarbúa hafi eitt sinn
verið skógi vaxið "frá fjalli til fjöru"....eða nei, ekki fjöru....
eða jú,.....átti ekki einu sinni að hafa verið vatn á tunglinu?
En jæja, látum vatnið liggja milli hluta, þó húsfreyju þyki líklegt
að heilu haugarnir af regnskógum eða öðrum skógum á
tungli voru hefðu þurft eitthvert smotterí af vatni.
Svo virðist eitthvað hafa klikkað illilega í vistkerfi tunglsins,
(ef til vill "vatnsskortur")
skógarnir veslast upp, og eftir varð "steingert trérusl" í
massívu magni....og eitt slíkt má þá finna í fínum "glerkassa"
Ríkisminjasafns Niðurlendinga....með gylltum áletruðum skildi.
Og þeir háu herrar Hollands bara bísna ánægðir með sinn
tunglverska "kolamola"!
Ætla að halda áfram að dásama tungldýrðina, hina steingerðu.
Datt þá húsfreyju í hug, að ef Niðurlendingar eru almennt
hrifnir af "steingerðu trjádóti" hvort ekki mætti endurnýja
gamlar mógrafir hér uppi á litla Fróni, og senda þeim nokkur
tonnin af mókolum, svona sem sárabætur fyrir Icesafe-vesenið?
Getum sent þeim einhvern slatta af glerkössum með...
gegn vægu gjaldi.....sem yrði þá aftur látið renna í það
að greiða Icesafe-skuld "óreiðumanna" við Hollendinga.
Nei, bara smá pæling, húsfreyju, hér.
En slæmt að "vita ekki" úr hverju tunglið okkar er.
Ætli engum geimfaranum hafi dottið í hug að spyrja "karlinn í tunglinu" um málið??
Máninn fullur fer um geiminn
fagrar langar nætur.
Er hann kannski að hæða heiminn
hrjáðan sér við fætur?
Fullur oft hann er
það er ekki fallegt
nei, það er ljótt
að flækjast hér og flakka þar
á fyllerí um nætur.
(Veit einhver höfund? Húsfreyja búin að gleyma.)
Góðar mánaskinsstundir!
![]() |
Tunglgrjótið reyndist vera tré |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 3.9.2009 kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)