Sveppi, Villi.....og Gói.

sveppi_m  Húsfreyja var stífluð í nefi,

  höfuðverkur að byrja "orgsöng" sinn

  bak við vinstra eyra hennar,

  Hún snýtti sér hressilega:

  "Við förum í bíó NÚNA, eða þá alls ekki,

  nenni ekki að hafa ómögulegt lið sem ekki getur

  leikið sér saman, að BÍÐA eftir því að fara af stað

  næstu tvo tímana.

  Fjórmenningarnir 6-10 ára horfðu á húsfreyju,

  augabrýr sigu, ranghvolfdu augum á hvort annað,

  dæstuErrm.

  Húsfreyja lét sem hún væri bæði steinblind og heyrnalaus,

  og þrælaði liðinu á salernið, í útiföt  og út í bíl.

  Í bíó klukkan 12!

  Lyftust heldur brýrnar á þeim er þau sáu húsfreyju

  pakka tveimur meðalastórum "bland í poka"-skjöttum

  niður í tuðru sínaHalo.

  Húsfreyja keypti miða, en svo var það að kaupa kók

  á línunaPinch.

  Fór í stutta biðröð.

  Unga fólkið vann "löturhægt" en örugglega bak við

  afgreiðsluborðin.

  Ungur maður með 3 börn verslaði grimmt....borgaði....

  mundi eftir einhverju....verslaði meira popp.....borgaði....

  afgreiðslustúlkan hvarf að næsta kassa...taldi afganginn

  löturhægt upp úr kassanum...kom til baka...unga manninn

  vantaði eina kók í viðbót og eitthvert nammi...stúlkan tók

  sér GÓÐAN tíma í að fylla kókglasið...vandaði sig ógurlega

  að setja lokið á....leitaði nokkra stund að namminu sem

  ungi maðurinn reyndi nú óþolinmóður að benda henni á.

  Ungi maðurinn borgaði...stúlkan hvarf að næsta kassa...

  taldi afganginn TVISVAR í mestu makindum.....kom á

  snigilshraða og lét þann unga fá afganginn.

  Húsfreyja bjargaði sér úr röð þessari, þegar ungur

  maður sagðist geta afgreitt næsta, út á enda á

  afgreiðsluborðinu.

  "Fjórar litlar kók og einn sítrónutopp, ekkert fleira",

  húsfreyja snögg.

  Drengurinn dúllaði við kókglösin, sjálfsagt verið í læri

  hjá sama kennara og löturhæga afgreiðslustúlkan.

  Lokin voru vandasöm.Pinch

  Rjátlaði við kæliskápinn, jú fann sítrónutopp.

  Húsfreyja borgaði.

  Drengurinn hvarf að fjórða kassa frá sínum eigin.

  Húsfreyja beið.

  Beið.

  Taldi hægt upp á 10.

  Drengur ókominn.

  Taldi einn-Missisippi, tveir-Missisippi osfr.

  Drengur mætti með afganginn, þegar húsfreyja var kominn upp í 47-Miss....W00t.

  Tvær mínútur til stefnu.

  Húsfreyja skipulagði kókburðinn inn og þrælaði liðinu

  inn í kvikmyndasalinn.

  Litla liðið kengspennt.

  Vigrinn sem var sessunautur húsfreyju spurði

  4 sinnum á meðan auglýsingar runnu í gegn

  hvenær myndin byrjaði.

  Húsfreyja hóf "ofaníhal" á nammi í liðið.

  Myndin hófst.

  Sveppi og Villi í Stjörnustríðsgír.....nei, bara

  upphafsatriðið.

  Vigrinn fílaði myndina í tætlur.

  Mundi endrum og eins eftir nammipokunum,

  sat svo kengspenntur eða hló mikinnGrin.

  Svalan og Báran voru ekki síður hrifnar, en Sigginn

  var í svolítilli flækju þegar Ilmur og Sveppi

  ræddu saman "skotin" smá stundBlush.

  Húsfreyja?

  Ja, satt að segja skemmti hún sér með miklum ágætum.

  Lúmskur húmorinn átti vel við hana, fíflagangurinn

  í Sveppa og Góa var hvorki yfirdrifinn né of barnalegur....

  og enn og aftur sannaði þessi mynd að "Gói" biskupsins

  er réttur maður í réttu starfi og hér í hárréttri kvikmyndWink.

  Sérstaklega vel til fundið að merkja flugvélina, sem

  nánast lenti á þeim félögum Sveppa og Góa með stórum

  svörtum stöfum:...........eða nei, kannski ekki vert að segja

  frá of miklu, altént hló húsfreyja dáttTounge.

  Myljandi fín mynd hjá þeim Sveppa og félögum,

  Egill Óla og Ragnhildur Steinunn flott í litlum aukahlutverkum

  og Auddi fékk að kenna á því að vera "hrekkjusvín".

  "Vondu karlarnir" voru svolítið ófrumlegir, en leikarar þar

  ágætir.

  Aldeilis brilliant fjölskyldumynd, og gat húsfreyja ekki merkt annað

  en bæði börn og fullorðnir skemmtu sér konunglega í salnum.

  Og merkilegt "organdi hausverkurinn" húsfreyju var horfinn út

  í veður og vind eftir bíó, en horið rann í stríðum straumi eftir sem áðurGetLost.

  Og rennur.

  SNÝÝÝÝT!

  Góðar bíóstundir.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband