Man einhver eftir...

funny_handbag_03  ..nuddtækinu sem sett var

  á gólfið?

  Sá herða- og hálsslappi átti svo

  að leggjast á gólfið með höfuð

  og herðar ofan á nuddpúðann...

  tækið sett í gang...og BINGÓ!

  Þriggja daga "sjóriða" var árangurinn eftir gott 15- 20 mín. nuddDevil.

  En að vísu varstu bara bara asskoti góður í hálsi og herðum,

  þar sem herbergin sveifluðust og gólfin rúlluðu

  um dag eftir dag...á "ÞURRU LANDI"Sick!

  Komst ekki í vinnuna í 3 dagaWhistling.

  Varst léttur á kostumHalo.

  Og rúmið og salernið voru í uppáhaldiPinch.

  Jamm.

  Mútta húsfreyju átti eitt svona tæki....hmmm hvað ætli hafi

  orðið af því?

  HEFUR EKKI SÉÐ ÞAÐ ÁRUM SAMAN, HÚSFREYJA.

  Skrítið!

  Svo var það "græjan" sem átti að redda

  öllu "hafið þið séð lyklana mína"- liðinuGetLost.

  Nóg var að festa "dinglumdanglið" við

  lyklakippu þína....týna síðan öllu saman...

  en FINNA á undraverðum tíma aftur,

  með því að FLAUTA!

  Aha!

  FlautaShocking!

  Þá átti dinglumdanglið eða græjan að

  gefa frá sér PÍP, og gefa uppi staðsetningu

  lyklanna þar meðWhistling.

  Húsfreyja æddi um flautandi kvöld eftir kvöld

  um herbergi sín....til þess eins að uppgötva

  að bévítans lyklarnir voru HVERGI í 5 metra radíus

  frá blístri hennarAngry.

  Fundust ævinlega á eftirfarandi stöðum:

  1.  Í búningsherberginu á vinnustað hennar ( annað hús).

  2.  Í framsætinu á herlegri bifreið hennar utandyra.

  3.  Heima hjá foreldrum hennar...í öðru þorpi, í 2 klukkutíma

  keyrslu fjarlægð.

  4.  Og reyndar tvisvar eða þrisvar hringdu vinir húsfreyju

  og létu hana vita af lyklunum hennar í þeirra vörslu eftir heimsókn.

  Húsfreyja fann ALDREI neina lykla þó hún blési sig fjólubláa af

  helvísku blístriPinch.

  ALDREIAngry!

  Húsfreyja græjaði sig upp með eðal axlartuðru,

  sem auðveldlega rúmar 1/3 af búslóð hennar....hefur

  ekki týnt lyklum síðanWink.

  Henti dinglumdanglinu á haugana.

  Tuðran?

  Jú, hún hefur týnst.....en vegna "stærðar"  og þyngdar aldrei

  lengur en 3 -5 mínútur í einuTounge.

  Er svona "ómögulegt að týna"-hlutur, því það fer svo

  mikið fyrir henniJoyful.

  Magn umfram gæði, er málið hérGrin.

  Þarf aldrei að "FLAUTA"!

  Húsfreyja lætur þjóðlagasöngvurum eftir blístrið með glöðu geði.

  En þið sem eigið "sturtuútvarpið"...er ekki bara málið

  að fá sér "baðkar" og skella sér í bað með þau gömlu

  góðu á GUFUNNI..."I'm gonna wash that man right out of my hair"...LoL?

  Góða baðstundir.

 


mbl.is Sturtuútvarpið versta græjan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband