29.11.2009 | 19:32
Jólaljós á aðventu...eða stórbruni.
Húsfreyja var mætt niður
á Austurvöll með 8 ára djásnið
og Rakel bestu vinkonu.
Kona mælti á norska tungu og
kona "mælti" á táknmáli við hlið hennar.
Sú norska var með hland fyrir hjartanu
yfir kreppuörlögum sinna frónversku frænda,
og óskaði að við næðum okkur fljótt á strik aftur.
Falleg ósk það, þó norskir frændur vorir hafi
ákveðið að bíða með lán til litla Fróns, þar til
"Ísbjargarklafinn" væri kyrfilega festur á frónverksa þjóð,
og Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn hefði lokið sinni blóðtöku.
Jamm!
Íslensk kona, Hanna Birna, titluð borgarstjóri rabbaði
næst um ljósið og vonina.
Verið í embætti borgarstjóra "óvenju lengi", sú góða kona,
mun lengur en síðustu fyrirrennarar hennar sem dúlluðu
sér við að stjórna borginni nokkra mánuði í senn.
En ljómandi góð ræða hjá "þaulsætnum" borgarstjóra,
stutt og "vongóð"!
Jólatréð var glæsilegt.
Húsfreyja reyndi að koma djásninu og Rakel í sjónmál,
svo þær sæju þegar tréð tendraðist upp.
Var töluvert mál, því feður í kringum 190 til tveir metrar
á hæð, tróðu sér stöðugt fram fyrir 8 ára skvísurnar...
og með börn á aldrinum 1-5 ára á herðunum.
Húsfreyja náði þeim loks á svæði þar sem þær náðu að
berja hálfan metra af toppi trésins augum....talið niður...
BINGÓ og það varð ljós!
"Noh"!
"Bara eins og í sköpunarsögunni", húsfreyja glotti
góðlátlega að hugsun sinni.
Myndir teknar af djásni og Rakel undir trénu,
við hliðina á þremur "sænskusyngjandi" túristum,
sem þurftu að fá 25 myndir af sér undir trénu.
Húsfreyja tók tvær.
Þá vildu 8 ára skvísur heim hið snarasta.
Enda töluvert kalt fyrir grannvaxnar 8 ára dömur í
blautum snjógöllum.
Húsfreyja reyndi að freista þeirra með upplestri
Gerðar Kristnýjar, jólasveinum og bangsanum úr
Dýrunum úr Hálsaskógi.
Neipp!
Svo húsfreyja hélt heim á leið, með dynjandi söng
jólasveina í eyrunum.
Á árum áður bjó húsfreyja á Heimaey,
"næst-stærstu" eyjunni í Vestmannaeyjaklasanum....
litla Frón að sjálfsögðu sú stærsta samkvæmt
hógværum og lítillátum Eyjamönnum.
Heldur var minna umstang í kringum jólatré
á Stakkó, kirkjuna og víðar í Eyjum þá, en var í dag niðri á
Austurvelli.
Gott ef Eyjamenn voru yfir höfuð nokkuð látnir vita,
þegar tendra skyldi ljós á bæjarjólatrjám.
Allt í einu voru bara sprottin upp upplýst jólatré
hist og her um bæinn.
HALLELÚJA!
Bara sisona.
Lítið gert úr málinu, þótt trén væru falleg í svartasta skammdeginum.
Húsfreyja man ekki eftir einni jólatrésræðu hjá
Magga bæjó.
Ekki einni.
Mun meira spennandi og meira að gera hjá krökkum að fá að skreyta
aðventukransinn á heimilunum, og systkini börðust
jafnvel um að fá að kveikja á fyrsta kertinu.
Þá voru "rauðar" lafandi slaufur og hangandi upp
eftir grannri spýtu í tísku á aðventukrönsum.
Húsfreyja lítil skotta þá, náði að kveikja í a.m.k.
tveimur aðventukrönsum, og systur hennar
náðu að brenna einn til kaldra kola.
Móðir húsfreyju stillti sínum aðventukrönsum
ætíð upp í "mest 70 cm fjarlægð" frá svalahurðinni
í borðstofunni, og faðir húsfreyju var orðinn
æði snjall í að sveifla "logandi" kransakyndli
á innan við sekúndu út um dyrnar.
Jamm, aðventukransar voru sko hasar.
Faðir húsfreyju bauð móðurinni ein jólin
að brenna bara helvískar "slaufurnar" STRAX,
úti á svölum, áður en þær færu á kransinn.
Og málið væri þar með dautt!
Móðirin afþakkaði pent, en sleppti slaufum
að mestu, bara svona smávegis á milli kerta.
En þá héldu systur húsfreyju, þá pínulítil peð
með ljósa slöngulokka, að þær gætu aldeilis kveikt sjálfar
á aðventukransinum!
Brann til kaldra kola....úti á svölum.
Faðirinn með brunasár á handarbaki í 4 vikur.
Síðan lítið verið notað af slaufum á aðventukransa
í stórfjölskyldu húsfreyju.
Það er ENGIN slaufa á aðventukransi húsfreyju þetta árið.
Aðeins greni, keramíksveinar, kuðungar og jólasnjókarl.
Átta ára djásnið kveikti á fyrsta kertinu seinni
partinn í dag undir vökulum augum húsfreyju sem
stóð 10 cm frá kransi og 30 cm frá svalahurðinni.
En allt fór vel, og það eina sem brann var kertið
sem átti jú að loga.
Átta ára djásnið svo alsælt með snjóinn, og er búin
renna sér á rassaþotu allan liðlangan daginn,
fyrir utan "skreppelsið" á "upptendrunina" niður
á Austurvelli.
Húsfreyja hins vegar að jafna sig af ellihrumleika í baki,
og eftir tvö andlát hjá hennar yndislegu öldungum á deildinni
hennar.
Annð andlátið var nokkuð fyrirsjáanlegt, en hitt kom snögglega upp
og því eru nú tveir elskulegir herramenn horfnir í "Sumarlandið".
Jamm, erfitt að horfa á eftir yndislegu fólki.
"En svona er lífið, Siggi" sagði Júlli á Hlíðarenda gjarnan við
föður húsfreyju, og ekkert nema gott eitt um það að segja.
Gæfan mesta.
Aska og mold. En nægir nokkrum slíkt,
sem notið hefur ritninganna fræðslu?
Vor eirðarlausa öld er hrjáð og sýkt
af efasemd og hræðslu.
Oss voru gefin fögur fyrirheit,
en fæstir vilja þeim í auðmýkt trúa
og nema staðar eftir langa leit
í landi þar sem, sem hryggð og ótti búa.
Oss voru gefin holl og heilög ráð,
er hefja skyldu mannsins líf og sanna,
að barnið skynjar betur drottins náð
en böðlar þeirra Kaífasarmanna.
Vor mesta gæfa er að fæðast feig
og finna guð og ljósið eygja,
en þyngsta raun að þjást af banageig
og þora ekki að deyja.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Góðar stundir á aðventu.
![]() |
Tendrað á ljósum Óslóartrésins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2009 | 21:19
Bévítans ellihrumleiki...
...í baki, að hrjá húsfreyju þessa
síðustu daga.
Var að bjástra við blautan þvott
síðdegis á föstudegi, og varð næstum
farlama á eftir.
Ekkisens, árans sviðabruni í mjóbaki með
leiðni niður í fót setti húsfreyju í "farbann"
med det samme.
Komst við illan leik frá rúmstokk og á salerni
næstu tvo daga.
Klæða sig í sokka! Ekki sjens.
Buxur! Mega-vandamál, en þó gerlegt með
mikilli skipulagningu.
Fyrst upp á olnboga, í sitjandi stöðu,
skáskjóta skárri skankanum fram í buxnaskálm,
upp að ökkla. Þá troð verri löppinni í sína skálm
ofurhægt og ofurvarlega...hrópa á 8 ára djásnið
og biðja hana að koma og toga buxnastrenginn það
hátt upp að húsfreyja næði honum án þess að beygja sig
hið minnsta, og BINGÓ málið var leyst.
Síðan legið á hitapoka, bólgueyðandi lyf brudd
og óréttlæti heimsins krufið til mergjar.....og krufið
til mergjar.
Árans vesen að geta ekki þrifið eldhúsgluggann
og sett upp jólagardínurnar.
Ekki einu sinni hægt að pára á nokkur jólakort.
Húsfreyja dæsti og stundi yfir hrikalegu óréttlæti
þessu, einmitt þegar hún ætlaði að byrja SVO SNEMMA
á jólaundirbúningnum....ætlaði alls ekki að vera
með allt í rassi, eins og oft áður.
Jamm.
En húsfreyja er nú öll plástruð upp á japanska vísu,
og er heldur að skána.
Verður orðin "jólagardínufær" um helgina.
Góðar stundir, og passið ykkur á bévítans blauta þvottinum
Bloggar | Breytt 15.12.2009 kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2009 | 17:52
Vitskert af græðgi?
Húsfreyja reynir að fylgjast
með í kreppufári, "Ísbjargarkrísu"
og "góðviljuðum" aðgerðum
Alþjóða gjaldeyrissjóðarins hér
uppi á litla Fróni.
Gömlu bankarnir hrundir og steindauðir,
og Arion, Hagar, Baugur-grúpp ásamt fleirum dansa
trylltan dans í kringum "rotnandi lík" þeirra.
"KLING, KLANG, KISTAN TÓM"!
Ríkisstjórnin rær lífróður til að bjarga því sem
bjargað verður, með myllusteina stjórnarandstöðunnar
um hálsinn og fnykinn af morknaðri útrás í vitunum
og síðast en ekki síst stæka ólyktina af siðspilltum
bankaviðskiptum.
Sauðsvartur almúginn herðir enn sultarólina,
enda í hans verkahring að standa skil á og endurgreiða
"hringavitlaus endurfjármögnunarlán"
útrásarvíkinga og fyrrum bankaeigenda.
Spekingar og spámenn ryðjast inn í fjölmiðla..."þið eigið
að gera þetta svona, en ekki hinsegin...spara milljarða hér
og milljarða þar", þegar málið er að AGS hefur ALLT um málið
að segja hvernig hlutirnir eru framkvæmdir.....og þá þær þjóðir
sem "mestu ráða" innan AGS.
Okkar er EINGÖNGU að BORGA!
Enginn ber ábyrgð á því hvernig fór,
því menn bara svona "misstu tökin á veruleikanum"
í öllum þessum "brjálæðislega góðærisgróða"....sem
reyndist svo aðeins endalausar tölur á pappír eða í
tölvum.
Engir áþreifanlegir peningar.
Merkingarlaust núllerí!
Þá spyr húsfreyja: Urðu útrásarvíkingar allir ásamt
fyrrum bankaeigendum "vitskertir af græðgi"?
Vitskertir!?
Nei, bara svona spyr, húsfreyja.
Því ástandið í þjóðfélaginu er aldeilis ekki gáfulegt í dag.....
...svona meira GJEGGJAÐ......VITSKERT jafnvel!
Húsfreyja er að íhuga alvarlega að HÆTTA að fylgjast
með kreppufréttum, tóm helvísk, botnlaus endaleysa
hvort eð er, sem enginn sér fyrir endann á.
Mun skárra að huga að 4 ára afmæli heimiliskattarins,
"harðfisksafmælisterta" að boði 8 ára djásnsins,
hrósa svo 8 ára djásninu enn og aftur fyrir að vinna íslenskuverðlaun
Menntaráðs Reykjavíkur, kenna henni 8 sinnum töfluna
í stærðfræði, föndra jólakortin, senda veðurguðum
öllum hljóða bæn um kyrrláta og fallega snjókomu
á Aðfangadag því 8 ára djásninu langar svo að hafa
hvít jól, stússa á kringum öldungana í vinnunni
svo þeir eigi gleðileg Jól, skipuleggja piparkökubakstur með múttu
í desember og muna að kveikja á kertum í skammdeginum
verndarenglum öllum til dýrðar og gleði.
Húsfreyja NEITAR að smitast af kreppupakkinu.....
kærir sig ekkert um að verða VITSKERT!
Góðar stundir og gangi ykkur vel með "ólina"!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2009 | 11:44
Noh! Alltaf að græða....
...bankinn húsfreyju.
Uppskírður, afspilltur, skuldalaus
og glænýr!
Húsfreyja er alsæl.
Hlýtur að koma að því að allur þessi
gróði skili sér til kúnnanna....eða hvað?
Fær máske húsfreyja "afskriftabréf" í jólagjöf frá
"Arion"?
Ekki slæmur díll það.
Bara þetta með nýja nafnið.
Húsfreyja er ekki viss að henni líki
við að bankinn hennar heiti eftir
"vængjuðu hrossi".
Hrossi sem gat flogið hvert á
land sem var....enda faðirinn sjálfur Pósedon
sjávarguð hinna fornu Grikkja.
"Flýgur" þá bara ekki "allur þessi" gróði eitthvað
út í buskann, líkt og aurarnir útrásarvíkinganna
gerðu?
Kúnnarnir að borga okurvexti af okurlánum eftir sem áður,
og mega þakka fyrir að "eiga" þak yfir höfuð sér
skuldlaust um áttrætt!
Jamm.
Húsfreyja er orðin kúnni hjá "Arion"!
Banka með nafn af "grískum" uppruna.
Úr goðafræðinni.
Verður húsfreyja brátt "goðsögn ein" með allar sínar
okurskuldir?
HALLELÚJA!
Og AMEN.
Góðar stundir
![]() |
Virðisrýrnun um 20 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.11.2009 | 18:12
Sjónrænn bölvaldur?
Nærbuxnafaldur?
JASO!
Nú klæðist fólk af báðum kynum
þröngum fatnaði, ef þeim hugnast slíkt.
Enda margir með fallega og spengilega kroppa,
bæði konur og karlar, og því þá ekki að leyfa línunum
að njóta sín?
Húsfreyja hefur gaman af fólki.
Sér í lagi samskiptum við fólk, en spekúlerar mun
minna í útliti þess nú til dags.
Horfir meira á það hvort mannfólkið hefur hlýlega
framkomu, bjart bros og einlægt augntillit.
Og það hvað fólk hefur fram að færa í töluðu máli.
Útlitið svona meira eftirá þankar, hvað húsfreyju varðar,
þó alltaf finnist henni mikilvægt að fólk sé snyrtilegt
og hreint til fara.
En húsfreyja man þá tíð, er hormónar blússuðu
á ógnarhraða um æðar hennar og Keanu Reaves, Brad Pitt
og Antonio Banderas voru "hrikalega heitir" og sexý....úúú...
og eru nú reyndar enn.
Þá var aldeilis mikið pælt í útlitinu...og pælt í útlitinu....og pælt
í útlitinu með vinkonum og vinum.
En aldrei nokkurn tímann man húsfreyja eftir því,
að "nærbuxnafaldur" kæmi inn í þær umfangsmiklu pælingar.
Eða að "nærbuxnafaldur" hafi skipt minnsta máli, þá horft
var á eftir vel vöxnum karlpeningi á götum úti....og það
þó þeir væru í níðþröngum buxum, sem sýndu vel að
þeim fannst betra að halda "djásnum" sínum heitum
í "naríum" á köldum vetrardögum.
Engin vandræði voru heldur á húsfreyju og vinkonum hennar
með að vera í naríum undir níðþröngum gallabuxum.....og enginn
setti út á það heldur.
ENGINN.
Þá spyr húsfreyja:
Horfir fólk mikið á "nærbuxnafalda" í dag, þá þeir sjást í gegnum
þröngar flíkur?
Eru þá faldar þessir að "bögga" menn og konur út í hið
óendanlega?
Í alvöru!
NÆRBUXNAFALDAR!
Skvísan eða gæinn sem faldi þessum skartar
þar með orðin "hrikalega púkó"?
Lummó?
Hallærisleg?
UNCOOL!
Ekki kynæsandi fyrir krónu!
Hundljót helv.... skrípi?
Út af daufum útlínum nærbuxnafalds!
Kommon!!
Hvenær fóru nærbuxnafaldar að vera svona "sjáanlegir"
og "vinsælir" í útlitspælingunum?
Hverjum hugnast eiginlega að góna eingöngu á þá, í stað þess
að dást að vel formuðum líkama?
Hvað gerðist eiginlega?
Urðu allt í einu allir nærbuxnafaldar miklu "þykkari" og
óþjálli, svo þeir blasa við langar leiðir, gangi fólk í
þröngum fötum?
Fær viðkvæmt fólk "slag", þá það ber augum slíka falda?
Eða er fólk sem sést á götum úti með "sýnilegan
nærbuxnafald" lagt í einelti af "NÆRBUXNAFALDSHÖTURUM"?
Er máske búið að stofna félag "NÆRBUXNAFALDSHATARA",
sem heftur sett sér það markmið að útrýma
nærbuxnaföldum í 12 skrefum fyrir árið 2012?
(Eftir 2012 skiptir engu máli hvort sést í slíka hörmungarnærbuxna-
sjónmengun, þar sem Majarnir spáðu mannkyni ekki lengri framtíð).
Jamm!
Naríur eða ekki naríur verður að vera mál hvers og eins.
En pyntingatól eins og G-strengi og nú C-fjaðurstafi
mega "NÆRBUXNAFALDSHATARARNIR" eiga.
Góðar stundir og megi veturinn verða ykkur
"hlýr og þvagfærasýkingalaus".
![]() |
Tekur c-strengur við af g-streng? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 19.11.2009 kl. 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.11.2009 | 18:37
Vandfundinn heiðarleiki?
Á litla Fróni?
Ja, jú, jæja.
Húsfreyju hefur virðst
að heiðarleiki í pólitík
hafi verið vandfundnari
en sjálfdautt hross út í haga.
Enda hestamönnum allflestum umhugað mjög
um hross sín, og orðið næsta fátítt að
hross finnist sjálfdauð út í haga.
En í pólitík virðist aðal málið að "svíkja, pretta,
ljúga og smjúga", og upplýsa almennig sem allra minnst
um stöðu mála á litla Fróni.
Helst aðeins á laugardögum á "nýju tungli" þá kyngir
niður snjó.......og þá aðeins ef ákveðinn fyrrum
seðlabankastjóri hefur gefið tilskilin leyfi fyrir því.....og
ljós logar á friðarsúlunni.
En er víst eitthvað að gutla í blaðamennsku um þessar mundir,
sá góði dökkblái maður, sem hefur haft "upplýsingaflæði"
til þjóðarinnar í hendi sér.
Ætli "þjóðfundarfólk" verði að senda inn
skriflega beiðni í ÞRÍRITI um HEIÐARLEIKA til Alþingis og Mogga?
VÁV!
Þvílíkur kjarkur sem þarf í slíkt.
Ætli allt "þjóðfundarfólk" verði þá tekið á teppið,
líkt og Hallgrímur Helga. rithöfundur hér um árið?
Rosalegt!
Svaðalegt!
En þetta er ekki allt og sumt!
Þjóðfundarfólk vill að lögð verði áhersla á:
Jafnrétti!
Virðingu!
Réttlæti!
Til hvurs?
Er ekki allt þetta í myljandi góðum gír hér
í "stórasta landi" í heimi?
Spyrjið bara konur út í launajafnrétti á litla Fróni.
Spyrjið bara karla út í jafnan rétt til að umgangast börn sín
eftir skilnað.
Spyrjið hvort framganga ríkisstjórnar, útrásarvíkinga
og fyrrum bankaeigenda síðustu 16 árin hafi ekki
vakið virðingu og áðdáun hjá þjóðinni.
Og hæstiréttur litla Fróns sem náðar allt útrásarpakkið
eins og leggur sig!- Réttlæti á æðsta, besta og bláasta stigi.
Dásemd!
Dýrð!
HALLELÚJA!
Kærleikur, ábyrgð, frelsi, sjálfbærni og lýðræði..........????
Sko! Það er lágmark að þjóðfundur noti
orð sem stjórnendur og framámenn
litla Fróns SKILJA!
Þessi fimm síðustu atriði finnast hvergi
í neinum "pólitískum orðabókum".
Og hafa líklega aldrei heyrst í pólitík,
síðan síðurnar er innihéldu þessi orð og hugtök
voru brúkuð sem "neyðarskeini" á Alþingi,
þegar þáverandi frónversk ríkisstjórn samdi
við Kanana um her hér í den.
Fjölskylda, jöfnuður, traust???
Væri jafn gott að senda frá sér yfirlýsingu
á forngrísku eða sanskrít!
Jamm.
En það má sosum alltaf reyna.
Ofurbjartsýnir sem við Frónbúar erum.
Muna bara að senda góða "frónverska orðabók" með,
þá stjórnvöld þarf til að tryggja árangur af vinnu þjóðfundar.
En virðingarvert og gott framtak, eigi að síður hjá þjóðfundarfólki
í Laugardalshöllinni.
Húsfreyjar á þá ósk heitasta
að árangurinn verði góður fyrir land og þjóð.
Góðar og þjóðlegar stundir.
![]() |
Þjóðin leggur áherslu á heiðarleika |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2009 | 17:58
Kakósúpa og egg...og góð íslenska.
Kvöldmatur.
Jamm.
Kreppukvöldmatur segir húsfreyja.
"Namm, mamma" segir átta ára djásnið.
"Við getum svo haft slátur á morgun, mamma".
"Og við eigum eftir að baka súkkilaðikökuna, sem þú keyptir
í Hagkaup".
Brosdagar í skólanum hjá henni um þessar mundir,
og hún er bjartari en sól í heiði á hádegi 23 júní.
Lætur sér nægja eina gulrót og eina sveskju í morgunmat
og snöflar svo í sig hafragraut í skólnum.
Alsæl.
Kreppufæði, hvað er nú það?
Kom með bréf til foreldranna heim úr skólanum í gær.
"Er búið að reka þig fyrir óþekkt, óspektir og yfirgang" spurði
húsfreyja stríðnislega og tók við bréfinu
Nah!
Djásnið vildi ekki kannast við neitt slíkt í sínu fari.
Húsfreyja las bréfið.....upphátt.
Búið að tilnefna átta ára djásnið til íslenskuverðlauna menntaráðs
Reykjavíkur.
Foreldrum og djásni boðið í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur
næsta mánudag.
"Oooo nú fékk ég í magann, mamma....af hverju ég?
Ég er svo feiminn, ég þori ekki að standa uppi á sviði
í einhverri verðlaunaafhendingu".
Djásnið lagðist í keng í sófann og blés og dæsti.
Húsfreyja að springa af monti.
"Iss, ekkert mál, ég fer bara með þér...og svo er ekkert
víst að þú þurfir upp á svið, það eru margir tilnefndir og
líklegast þarf bara sá sem vinnur upp á svið".
Djásnið róaðist.
"Nú, þá er þetta allt í lagi".
Húsfreyja hefur síðan ekkert viðrað þann möguleika við
átta ára djásnið, að hún gæti "unnið" verðlaunin.
Mamma mía!
Húsfreyja sér fyrir sér, að verða basla með djásnið
náfölt og skjálfandi í fanginu upp á svið...öll 22 kílóin....
....organdi "NEI, ég vil EKKI nein verðlaun, mamma...þú sagðir
að ég þyrfti ekki að fara upp á svið.....aaaaarrrrgggh".
En koma tímar koma ráð...og eins og húsfreyja sagði,
eru margir tilnefndir, en aðeins einn vinningshafi.
Svo djásnið á "góðan sjens" á að sleppa við
mergjaðan sviðsskrekk.
En gaman að þessu.
Og mestur heiður liggur í því að vera tilnefndur.
Verðlaunin bara bónus....."taugatrekkjandi" bónus.
En húsfreyju er bara nokkuð glatt í sinni,
og hún spáir því að kreppukakósúpan verði
bísna gómsæt í kvöld.
Eggin betri.
Góðar stundir og njótið þess að kenna unga fólkinu okkar
að tala og skrifa fallega og skýra íslensku.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2009 | 17:44
Hvað? Allt að gerast...
...hér uppi á litla Fróni í kreppuaðgerðum
!
Búið að lengja skuldahala heimilanna
um 3 ár.
Hækka skatta.
Hæstiréttur að "refsa" INNHERJUM í bönkum
grimmilega....eða NEI.....
...þar var víst allt slétt og fellt og löglegt.
En búið að "stappa" kaupgetuna langt niður fyrir núllið
hjá almenningi.
Hækka bensín.
Hækka mat og nauðsynjavörur.
Skera niður hjá lögreglu Frónbúa.
Glæpir og refsing búið spil þar með á litla Fróni.
Má bara loka Litla Hrauni.....eða hvað?
Skera niður í heilbrigðiskerfi Frónbúa, enda
sáralítið að gera hjá því pakkinu....bara ein lítil
svínaflensa að bögga jarðarkringluna og íbúa hennar.
Iss!
Búið að afskrifa "milljarða á milljarða ofan" hjá
útrásarvíkingum og fyrrum bankaeigendum
sem nýju bankarnir "treysta" svo vel.
Skera niður greiðslur til aldraðra og öryrkja.
Setja flest öll sprotafyrirtæki í gjaldþrot eða greiðsluþrot.
Búið að ákveða að "klára" Tónlistarhöllina við höfnina,
því hún er það sem kemur Frónbúum að "mestu gagni" nú
mitt í albrjálaðri kreppunni.
Og mikilvægast af öllu: Það er búið að kveikja á FRIÐARSÚLUNNI.
Sem sagt!
ALLT að GERAST!
ALDREI DAUÐUR TÍMI á litla Fróni.
ALLT SVO SKILVIRKT OG MARKVISST!
OG RÉTTLÁTT!
Góðar stundir í bráðhuggulegum kreppuaðgerðum.
![]() |
Kalla eftir aðgerðum í kreppu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2009 | 12:28
Gott minni?
"Já, ég man þetta eins og
gerst hefði í gær", sú aldraða
iðaði í skinninu og var komin
í mergjað sögustuð.
"Manstu eftir fæðingunni ÞINNI"?
Tvær konur einnig vel við aldur, voru
áheyrendur þeirrar öldruðu og voru
furðu lostnar.
"Að sjálfsögðu" svaraði sú aldraða drjúg.
"Og ekki nóg með það", hér hafði sögukona
áhrifamikla þögn til áherslu,
"hann pabbi fékk að vera viðstaddur fæðinguna,
það man ég svo vel"!
Sú aldraða krosslagði hendur og iðaði sem aldrei fyrr.
"Hvað segirðu"?
"Manstu eftir að hafa séð hann pabba þinn, þegar
þú varst nýfædd"?
Eyru og augu áheyrenda voru næstum dottin í gólf niður,
svo mikil var bísnin og forundranin.
"Ó, já" svaraði kerla hróðug, "get aldrei gleymt því,
því hann heilsaði mér og sagði: Sæl dóttir".
Sögukona lygndi aftur augunum af sælu minninganna.
Opnaði þau aftur og horfði einbeitt á viðmælendur sína.
Svo kom ábúðarfullt:
"Og auðvitað svaraði ég að bragði og sagði: HALLÓ PABBI".
Það var þögn dágóða stund.
En svo sló fáránleiki síðustu setningar sögukonu og áheyrendur.
Brosvipra myndaðist við munnvik sögukonu.
Svo slapp frá henni fliss, og að lokum veinuðu
allar stöllurnar þrjár af hlátri....
......og síðan skelltu þær kaffinu og jólakökunni í sig
og ræddu ekki "minnisstæðar" fæðingar meir.
... .... .... .... .... .... .... .... ....
Það er aldrei dauð stund á vinnustað húsfreyju,
og oft glatt á hjalla.
Öldungar hennar eru allir dásamlegt og skemmtilegt fólk.
Færa hverjum þeim sem nennir að hlusta, hafsjó að kyngimögnuðum
fróðleik, speki, lífsreynslu og lífsgleði að gjöf.
Góðar og dýrmætar gjafir það.
Jamm.
Og svo eru það "öldungarnir" með OFURMINNIÐ, eins og sögukona....
Þeir eru bara SNILLD!
Húsfreyja svo á leið með 8 ára djásnið í bíó.
"This is it, með Michael Jackson" skal tekinn með stæl.
Jamm.
Heilabilun framundan hjá húsfreyju?
Heilu næturnar með undirspil Jacksons í öllum hennar draumum....
NÆSTU MÁNUÐINA.....ÁRIN?
Ekki spurning.
En leggur ekki móðir geðheilsu sína fúslega á vogarskálarnar
fyrir glóhært 8 ára djásn, með geislandi falleg brún augu og
bjartasta brosið undir sólunni?
"I am not alone....Billie Jean your not my.....Thriller......
so beat it"!
Jamm.
Engin spurnig hér.
This is it!
Góðar stundir á ljúfum sunnudegi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2009 | 18:53
Mun mæta í sína eigin...
...jarðarför, húsfreyja....
STEINDAUÐ og FRAMLIÐIN!
Mun láta lítið fyrir sér fara og
enn minna í sér heyra.
Og alls ekki undir neinum kringumstæðum,
mun húsfreyja fara að rjátla við kistulokið,
berja í það eða lyfta upp nokkra sentimetra
í miðri líkræðu...og það þó henni finnist
málflutningur klerks ekkisens lofræðubull.
Því slíkt mynda án vafa koma af stað massívum
kransæðastíflum og heilablóðtöppum í
ættmönnum húsfreyju, þeim sem í jarðaför mættu
af stakri skyldurækni og samviskusemi.
En fólki vill svona "heldur bregða" þegar búið er
að "afskrifa" og útskrifa hinn látna úr jarðlífi,
ef allt í einu lyftist lok...."ÍÍÍÍÍískur"...
eða heyrist bank...BANK-BANK....úúúúúú!
Og húsfreyju er frekar vel við afkomendur sína
ættingja og vini, og vill síður gerast "fjöldamorðingi" í eigin útför.
.... .... .... .... ... .... .... .... .... .... ... ....
En hrapalegur atburður atarna í Brasilíu, og ekkert grín að missa
ástvin í bílslysi.
Góðar stundir og farið varlega í umferðinni.
![]() |
Mætti í eigin jarðarför |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)