Bévítans ellihrumleiki...

pstr_white_wash  ...í baki, að hrjá húsfreyju þessa

  síðustu dagaCrying.

  Var að bjástra við blautan þvott

  síðdegis á föstudegi, og varð næstum

  farlama á eftir.

  Ekkisens, árans sviðabruni í mjóbaki með

  leiðni niður í fót setti húsfreyju í "farbann"

  med det sammeErrm.

  Komst við illan leik frá rúmstokk og á salerni

  næstu tvo daga.

  Klæða sig í sokka!  Ekki sjens.

  Buxur!  Mega-vandamál, en þó gerlegt með

  mikilli skipulagningu.

  Fyrst upp á olnboga, í sitjandi stöðu,

  skáskjóta skárri skankanum fram í buxnaskálm,

  upp að ökkla.  Þá troð verri löppinni í sína skálm

  ofurhægt og ofurvarlega...hrópa á 8 ára djásnið

  og biðja hana að koma og toga buxnastrenginn það

  hátt upp að húsfreyja næði honum án þess að beygja sig

  hið minnsta, og BINGÓ málið var leystTounge.

  Síðan legið á hitapoka, bólgueyðandi lyf brudd

  og óréttlæti heimsins krufið til mergjar.....og krufið

  til mergjar.

  Árans vesen að geta ekki þrifið eldhúsgluggann

  og sett upp jólagardínurnarAngry.

  Ekki einu sinni hægt að pára á nokkur jólakortPinch.

  Húsfreyja dæsti og stundi yfir hrikalegu óréttlæti

  þessu, einmitt þegar hún ætlaði að byrja SVO SNEMMA

  á jólaundirbúningnum....ætlaði alls ekki að vera

  með allt í rassi, eins og oft áðurWhistling.

  Jamm.

  En húsfreyja er nú öll plástruð upp á japanska vísu,

  og er heldur að skána.

  Verður orðin "jólagardínufær" um helginaCool.

  Góðar stundir, og passið ykkur á bévítans blauta þvottinum

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband